Morgunblaðið - 28.06.2002, Page 29
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 29
BYGGÐASAFNIÐ í Skógum opnar
sýningu um samgöngur og tækni-
minjar 20. júlí næstkomandi, en nú
stendur yfir flutningur frá Reykja-
vík á fornbílum og öðrum vinnu-
tækjum, sem ætlaður er staður á
sýningunni.
Það er Vegagerðin sem sér um
að flytja tækin austur, en í Skógum
er verið að taka í notkun 1.500 fer-
metra nýtt sýningarhús, þar sem
lögð verður áhersla á samgöngur
og tæknimynjar og er þetta fyrsta
sýningin þar.
Að sögn Björns Björnssonar sýn-
ingarhönnuðar lána Þjóminjasafn
Íslands og Vegagerðin muni á sýn-
inguna. Þjóðminjasafnið lánar
gamlar bifreiðar, auk nokkurra
uppgerðra véla, líkt og báta- og
ljósavél, en Vegagerðin leggur til
níu vinnutæki, þeirra á meðal
skurðgröfu, veghefil og valtara.
Björn segir að bifreiðarnar sem
verið sé að flytja séu með elstu bif-
reiðum á landinu. „Elsti bíllinn er
vörubíll af gerðinni T-Ford árgerð
1917, mjög fallega uppgerður. Síð-
an er slökkvibíll, einnig T-Ford, ár-
gerð 1923 og svo má nefna Willys-
blæjujeppa árgerð 1946, sem Krist-
ján Eldjárn átti lengi vel,“ bætir
hann við.
Hann segir að í dag verði meðal
annars fluttur norskur veghefill,
uppgerður og fallegur, af tegund-
inni Drafn, en hann sé frá 1927. Þá
verði líka fluttur Citroën-snjóbíll,
sem hafi verið notaður á Holta-
vörðuheiði. Bifreiðin sú sé búin
beltum að aftan og skíðum að fram-
an og sé frá árinu 1927.
„Bílarnir ganga ekki allir ennþá,
en elsti bíllinn, T-Fordinn, er öku-
fær. Þeir eru samt ekkert keyrðir,
heldur settir upp á vagn og fluttir
þessa löngu leið. Bílarnir eru í mjög
misjöfnu ásigkomulagi, en það er
einmitt hugmyndin með þessari
sýningu að sýna bíla sem hafa verið
gerðir upp og líka þá sem á eftir að
gera upp,“ bendir Björn á.
Nokkrar af elstu bifreiðum
landsins á faraldsfæti
Morgunblaðið/Arnaldur
Þessi gamli Elcar, árgerð 1927, er meðal bílanna sem Þjóðminjasafnið
lánar á sýninguna. Sá er mjög merkilegt eintak en óuppgerður. Einar
Magnússon menntaskólarektor átti bílinn lengi, en Einar var mikill
ferðagarpur og ferðaðist mikið um óbyggðir.
Samgöngusafn opnað í Skógum
sem og öryggi sjúklinga og veita
sjúklingum í húsarústunum fyrstu
hjálp.
Námskeiðið var hluti af almanna-
varnaæfingunni Samverði 2002 sem
lýkur á sunnudag. Alls taka 19 þjóð-
ir þátt í æfingunni sem er hluti af al-
þjóðlegu öryggis- og varnarstarfi
Atlantshafsbandalagsins. Þetta er
þriðja Samvarðaræfingin sem hald-
in er á Íslandi. Um 1.000 manns
taka þátt í æfingunni, þar af milli
400 og 500 erlendir þátttakendur ef
starfsmenn Varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli eru taldir með. Í til-
kynningunni segir að markmið æf-
ingarinnar sé að styrkja og
samhæfa aðgerðir herja og borgara-
legra stofnana aðildarríkja Atlants-
hafsbandalagsins og samstarfsríkja
þess á sviði björgunar þar sem æfð
eru viðbrögð við náttúruhamförum.
125 BJÖRGUNARMENN frá Belg-
íu, Litháen, Rúmeníu og Úsbekistan
sóttu námskeið hjá rústabjörgunar-
sérfræðingum Slysavarnafélagsins
Landsbjargar á Gufuskálum á Snæ-
fellsnesi og lauk því í gær. Björg-
unarmennirnir æfðu m.a. notkun
sérhæfðra hljóðleitartækja, rústa-
björgunarmyndavéla og loftpúða
sem hægt er að nota til að lyfta rúst-
um.
Á lokaæfingunni, sem fram fór í
gær, var æfð leit og björgun í rúst-
um. Í fréttatilkynningu frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörgu segir að
aðstæðum hafi svipað mjög til
þeirra sem verða á vettvangi jarð-
skjálfta. Björgunarmennirnir fengu
það verkefni að finna 30 menn sem
voru í kjallara húss sem átti að hafa
hrunið eftir jarðskjálfta. Björgunar-
menn þurftu að tryggja eigið öryggi Björgunarmenn frá Úsbekistan við æfingar á Gufuskálum.
Kenndu erlendum
björgunarmönnum
rústabjörgun
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur komist að þeirri niðurstöðu að
regla í samþykktum Samtaka aldr-
aðra um að söluverð íbúða samtak-
anna „megi aldrei vera hærra en
kostnaðarverð hennar, að viðbættri
verðhækkun samkvæmt vísitölu
byggingakostnaðar, en að frádreginni
hæfilegri fyrningu, að mati dóm-
kvaddra manna,“ sé ekki bindandi
fyrir dánarbú sem átti slíka íbúð.
Samtök aldraðra eiga forkaupsrétt
á íbúðinni en þegar erfingjarnir ætl-
uðu að selja íbúðina gerðu samtökin
kröfu um að verð ákvarðaðist í sam-
ræmi við þessa reglu og væri þá mun
lægra en markaðsvirði íbúðarinnar.
Í samþykktum Samtaka aldraðra,
sem staðfestar voru af félagsmála-
ráðuneytinu 1981, segir að félagsmað-
ur sem fengið hafi íbúð að tilhlutan fé-
lagsins megi ekki selja hana nema
stjórn félagsins hafi áður hafnað for-
kaupsrétti. Söluverð íbúðar, hversu
oft sem eigendaskipti kunni að verða,
megi aldrei vera hærra en kostnaðar-
verð hennar að viðbættri verðhækk-
un samkvæmt vísitölu byggingar-
kostnaðar, en að frádreginni hæfi-
legri fyrningu samkvæmt mati dóm-
kvaddra manna. Samhljóða ákvæði er
í 12. gr. samþykkta félagsins frá októ-
ber 1991 en þær hafa ekki verið stað-
festar af ráðuneytinu.
Ekki þinglýst
Í niðurstöðu héraðsdóms segir að
telja verði að framangreindri reglu í
samþykktum samtakanna verði ekki
beitt nema fyrir því séu skýrar heim-
ildir gagnvart þeim sem þar eigi hlut
að máli. Heimildir fyrir slíkri reglu
voru ekki í lögum á þeim tíma sem
konan keypti íbúðina en samþykktir
Samtaka aldraðra voru hins vegar í
gildi þegar konan keypti íbúðina.
Í málinu var einnig deilt um hvort
umrædd kona hefði verið félagi í Sam-
tökum aldraðra þegar hún keypti
íbúðina. Í dómi héraðsdóms segir að
engin gögn hafi verið lögð fram um
beiðni konunnar um inngöngu í sam-
tökin og verði að telja ósannað að hún
hafi gengið í þau. Þá hafi ekki verið
lögð fram undirskrift hennar undir
skuldbindingu um að hún skyldi vera
háð samþykktum samtakanna eins og
þær væru á hverjum tíma svo sem
gert sé ráð fyrir að félagsmenn geri
við inngöngu í samtökin. Í ljósi þessa
alls féllst héraðsdómur ekki á að dán-
arbúið sé bundið af umræddri reglu.
Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdóm-
ari kvað upp dóminn. Karl Axelsson,
hrl., flutti málið f.h. dánarbúsins en
Ragnar H. Hall, hrl., var til varnar.
Skýrar lagaheimildir nauð-
synlegar til að reglan gildi
Regla um hámarksverð íbúða bindur ekki dánarbú
BANDARÍSKU náttúrverndarsam-
tökin World Wildlife Fund (WWF)
hafa sent frá sér tilkynningu þar sem
álframleiðandinn Alcoa er hvattur til
að hætta við byggingu álvers í Reyð-
arfirði. Þau fordæma framkvæmdina.
Í fréttatilkynningunni segir að
virkjunarframkvæmdir vegna vænt-
anlegs álvers komi til með að sökkva
hluta Dimmugljúfra. Þá segir að
ákvörðun Alcoa, sem leggi opinber-
lega áherslu á umhverfisvernd í starf-
semi sinni, komi afar mikið á óvart
þar sem norska álfyrirtækið Norsk
Hydro hafi hætt við þátttöku í verk-
efninu. Það hafi verið vegna mikillar
gagnrýni og umhverfismats sem hafi
sýnt fram á geigvænlegar afleiðingar
fyrir svæðið.
„WWF styður íslensk náttúru-
verndarsamtök í viðleitni sinni til að
fá austurhluta miðhálendisins sam-
þykkt sem þjóðgarð. Slíkur þjóðgarð-
ur myndi tryggja vernd hálendisins
til langs tíma fyrir áhrifum fram-
kvæmda á borð við Alcoa-álverið.
Þetta myndi skapa fleiri störf, í ferða-
mannaþjónustu, en myndu skapast í
kringum fyrirhugaða virkjun og ál-
ver, með miklu minni tilkostnaði.“
WWF fordæmir fyrirhugað
álver í Reyðarfirði