Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.06.2002, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 39 gjarnan stoppað í nokkra daga, nóg að spjalla og tekið í spil. Ester lét ekki sitt eftir liggja að taka þátt í heimilisstörfum, hvað kom sér vel, því kona mín var þá komin með skerta starfsgetu. Ester átti því láni að fagna að vera heilsuhraust um dagana en hin síðari ár hallaði þó undan, sjónin skert að mun og starfsorkan dvínandi. Mun það hafa fallið að hennar ósk að þurfa ekki að eyða löngum tíma án starfa og því hefur hún verið að fullu sátt við endalokin. Burtkvaðning vina og samferða- fólks skilur óhjákvæmilega eftir sig tóm í huga þeirra sem standa eftir á ströndinni. Ég á eftir að sakna síma- spjalls okkar, sem var fastur liður af og til eftir að ég fluttist hingað suður. „Bilið er stutt milli blíðu og éls“ segir skáldið Matthías Jochumsson í einu snilldarljóða sinna, og vissulega er það oft svo í okkar lífi. Ágúst, eldri sonur Esterar, vinsæll og vinmargur drengur, hélt upp á sextugsafmæli sitt norður í fæðingarbyggð sinni, Árneshreppi, hinn 15. júní sl. með mikilli rausn og myndarbrag. Var hann nýkominn suður þegar móðir hans lést. Ég og mitt fólk færum hon- um, Magnúsi bróður hans og skyldu- liði þeirra innilegar samúðarkveðjur. Minning Esterar mun lengi hug- stæð þeim sem henni kynntust. Eyjólfur Valgeirsson. Æ! Elsku kerlingin mín, var það fyrsta sem mér kom í hug þegar ég frétti af andláti Esterar. Svo kom samviskubit og leiði yfir að hafa ekki heimsótt hana á spítalann, en ég veit að hún fyrirgefur mér það. Við Ester kynntumst fyrir u.þ.b. þremur árum þegar hún vegna sjón- depurðar þurfti aðstoð heimahjúkr- unar. Fljótt urðu þessar heimsóknir hinar mestu skemmtistundir og við spjölluðum um allt mögulegt. Alltaf var eitthvað til með kaffinu því hún hætti ekki að baka þótt sjónin væri döpur. Nei, mín kona steikti kleinur og flatkökur úti á svölum. En þegar hún sagðist einu sinni „rétt vera búin að drepa sig“ út af rokinu dró úr bakstrinum. Ég hef kynnst mörgu eldra fólki en engum eins og Ester. Hún var svo einstök, gamansöm og hláturmild, kunni mikið af vísum og ljóðum. Svo sungum við stundum saman og hún söng fyrir mig og ég skrifaði upp það sem á að syngja fyrir hana í dag. Það var einstaklega ljúft að gera henni greiða og aðstoða hana á allan máta, hvort sem það var að fara yfir bréf með henni, skrifa á gjafakort eða taka hana með í búð. Ég gleymi ekki þegar hún sagði það „hálfgerða bil- un“ en sig langaði að taka slátur. Það gerði hún og besta hjálpin var að þræða nálarnar fyrir hana, hitt gat hún gert sjálf. Hún var einstaklega sjálfbjarga þrátt fyrir mikla sjón- depru. Samband okkar varð enn sterkara þegar hún ákvað að flytja á Sólvangs- veginn og við keyptum íbúðina af henni. Henni fannst nú nóg um rusk- ið sem við gerðum á íbúðinni, en var fyrst til að koma og skoða og leist bara vel á. Hún var alltaf velkomin og það var gaman að fá hana í heimsókn. Hún hugsaði alltaf mikið um hvernig mér gengi í garðinum og þess háttar. Hún var líka óspör á góð ráð. Við teljum það vera eitt mesta lán í lífinu að flytja á Mýrargötuna með þá góðu anda sem hér eru og nú bætist örugglega sá besti við. Við erum æv- inlega þakklát fyrir góð kynni og ein- staka gæsku í okkar garð. Öllum að- standendum sendum við sam- úðarkveðjur, ég veit að Ester var tilbúin, en við vorum það ekki. Vertu sæl, elsku Ester, og þakka þér fyrir allt. Guðbjörg Sigurgeirsdóttir og fjölskylda, Mýrargötu 2. ✝ Herdís GuðbjörgBjarnadóttir fæddist á Fossi í Vest- urhópi 21. febrúar 1901. Hún andaðist á Heilbrigðisstofuninni á Hvammstanga 14. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru: Bjarni Bjarnason og Ingibjörg Ágústa Andrésdóttir. Systk- ini hennar voru: Bjarni Ágúst Bjarna- son, Jónína Bjarna- dóttir, Þóra Margrét Bjarnadóttir, Andrea Sólveig Bjarnadóttir, Hálfdán Bjarnason og Þórarinn Bjarnason og eru þau öll látin. Herdís stundaði nám í Alþýðuskólan- um á Hvammstanga veturinn 1918. Herdís var vinnu- kona í 20 ár á ýmsum stöðum og lausakona eftir það. Árið 1979 fluttist Herdís á Heil- brigðisstofnunina á Hvammstanga og dvaldi þar sem eftir var. Útför Herdísar verður gerð frá Breiðabólstaðar- kirkju í Vesturhópi í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku frænka. Ég ætlaði nú ekki að kveðja þig á þennan hátt, mín mein- ing var að koma norður í sumar eins og mér þótti svo gaman og ræða öll heimsins mál við þig. Ég sé þig fyrir mér sitjandi í stólnum þínum annað- hvort að lesa bók eða skrifa niður vís- ur. Þetta hvort tveggja var það skemmtilegasta sem þú gerðir. Þú varst afskaplega gestrisin og fannst gaman þegar fólk kom í heim- sókn, börn voru alltaf í miklu uppá- haldi hjá þér, og hafðir þú það oft á orði að ég hefði alltaf verið mjög stríðin á yngri sem eldri árum, ég vona að þú hafir fyrirgefið mér það. Ég vissi að þig hafði alltaf dreymt um að læra, þú settir allar þínar kind- ur, sem ekki voru margar, til þess að þú gætir komist einn vetur í skóla á Hvammstanga, það var þér mikils virði. Þú sagðir mér að þau ár sem þú varst á elliheimilinu á Hvammstanga hefði þér aldrei liðið eins vel og þar. Vil ég þakka alla þá umhyggju og vel- vild sem þér var sýnd þar, sérstak- lega vil ég þakka Jóhönnu, Birni og Nínu á Syðri Þverá. Hvíl í friði. Þín frænka Stella. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Það er skrýtið að hugsa til þess að hitta ekki Dísu næst þegar ég á leið inn á Sjúkrahúsið á Hvammstanga. Dísu kynntist ég fyrst þegar ég fór að starfa þar sem gangastúlka í afleys- ingum. Þá var ég aðeins 16 ára stelpu- skott, ekkert nema skinn og bein og hafði Dísa takmarkaða trú á mér. En þegar samverustundunum fjölgaði tókst mér að sanna mig og urðum við mestu mátar. Ekki spillti það fyrir að hún hafði unnið sem kaupakona hjá Gunnlaugi langafa mínum og fékk ég oft að heyra sögur frá þeim tímum. Minnisstæðast er mér þegar hún, 97 ára gömul, þuldi upp, án mikilla vand- kvæða, fimm erinda grínkvæði sem hann hafði ort um hana. Það er margt sem hún Dísa hefur kennt mér án þess að vita það, til dæmis að þakka fyrir það sem maður hefur, en hún var ávallt svo þakklát fyrir það sem gert var fyrir hana. Hún var líka svo kát og það gat auð- veldlega smitað út frá sér. Með þessum orðum vil ég minnast Dísu minnar og þakka henni yndisleg kynni og ég er þess fullviss að minn- ingarnar komi til með að ylja mér í framtíðinni. Frændfólki og vinum Dísu minnar bið ég Guðs blessunar. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Blessuð sé minningin um þig, Dísa mín. Inga Rut Ólafsdóttir. Hún frænka okkar og vinkona Dísa Bjarna eins og hún var oftast kölluð var dálítið sérstök manneskja, ekki var lífið henni alltaf létt er hún fór á milli sem vinnukona og erfitt að standast þær kröfur sem vinnuum- hverfið gerði á þeim tíma. Argaþras voru verstu ummæli um vist hjá Dísu en annars lagði hún allt gott til allra og vildi ekki tala illa um nokkurn mann. Síðar fór Dísa á milli heimila ættingja sinna og vinafólks og aðstoð- aði við barnagæslu og að segja börn- um til við lestur en það var hennar mesta ánægja ásamt því að skrifa nið- ur vísur og lesa bækur. Minninga- brotin um Dísu eru mörg frá liðinni tíð en og tengjast þá heimilum for- eldra okkar. Eftir að Helga Ágústsdóttir frænka hennar flutti suður kom Dísa heim til okkar á aðfangadagskvöld meðan hún treysti sér til og eftir það þá voru heimsóknir okkar og barnanna til hennar á aðfangadags- kvöld fastur liður í okkar helgihaldi en Dísa var sannkallað jólabarn og byrjaði að skoða í pakka og kort snemma dags en beið ekki til kvölds- ins með að byrja. Gleðitíðindi úr fjöl- skyldunni og af vinum voru lesin upp úr jólakortunum og glaðst yfir góðum fréttum. Síðasta bílferð Dísu út í Vesturhóp var messuferð að Breiða- bólastaðarkirkju síðastliðið haust til að gleðjast yfir endurbótum og við- haldi á kirkjunni, en hugur Dísu og stuðningur hafði gert það kleift, hún hafði gefið fjármuni til að vinna áfram að viðhaldsmálum í kirkjunni. Við þökkum þér Dísa fyrir samvist- irnar og gullmolana sem hrutu þér af vörum og er þú hélst upp á eitt hundrað ára afmælið þá var það stór stund og þú gladdist innilega yfir frændfólkinu þínu er sumt kom að sunnan og öllum vinum þínum sem samglöddust þér þennan dag. Eftir síðasta afmælisdag hjá þér var eins og það væri ekkert meira að stefna að, meira fengir þú ekki út úr lífinu og þú kvaddir hægt og hljótt eins og lífs- ganga þín var lengstum, í sátt við allt og alla. Fjölskyldan, Melavegi 10, Hvammstanga. HERDÍS GUÐBJÖRG BJARNADÓTTIR S. 555 4477  555 4424 Erfisdrykkjur               !    "  "##$ % &   ! ' !'!  !  ( !! )!(                   ! "                       ! "!      #  $      "        !    %!     #$%&' ( '  $    %) " * ( '   +, (  -,$ ,('   .'' # '  /  0  1  2 ( '  (3 ,# #,  ,  ( '    &  &,&   &,& 4 (    ) , * + &   ! &        ! " #!   ,(  &    '  -   .   /  0(    !     $ % & '$  * +&+  !  ()'     ( (!   & (!  ,!    1  .   /  0(   0         $* $* +  2  !     !     ,- . ! "/ )* 01"12 3(    (!    3 !0  4  .   /  )2& / '$   %)%/  3( 41 + . & %/* '$  0%%3 3( 41 +  *  '$  $ 3( 41 '$  )  %0%% + 3( 41 3( 41 +  ) %1 '$  4 4 +%4 4 4  2  !  !     !    56 7 "0)*"+ 1$   ! 5  ( (!   )     4  . !   /  8%& 59) '$  : ' 59) : ' . 1 + 3(  : ' ,$ /  %9)2 '$  '$; : ' 8 ( 1*/ + )  : ' . / . ( " '$  +%"4 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.