Morgunblaðið - 28.06.2002, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 28.06.2002, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. STJÓRN Landspítala – háskóla- sjúkrahúss mun í dag senda heil- brigðisráðherra tillögur að sparnað- araðgerðum sem stjórnin leggur til að gripið verði til á sjúkrahúsinu. Rekstraruppgjör sjúkrahússins fyr- ir fyrstu fimm mánuði ársins sýnir 319 milljónir króna umfram fjár- heimildir eða 3,3% frávik frá fjár- heimildum tímabilsins. Fjárveitingar til sjúkrahússins voru á þessu ári skornar niður um 4% á fjárlögum, að sögn Önnu Lilju Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra fjárreiðna og upplýsinga. Hún segir að stefnt sé að 2% sparnaði á árinu og því sé sjúkrahúsið 1,3% yfir því marki miðað við rekstraruppgjörið fyrstu fimm mánuðina. Anna Lilja segir að sparnaðar- markmiðin ættu að nást verði tillög- um stjórnar fylgt eftir. Meðal annars sé ætlunin að lækka starfsmanna- kostnað, draga úr yfirvinnu, herða á ráðningareftirliti og endurskoðun á verklagi. Þá sé verið að sameina deildir sem þýði að hægt verði að fækka fólki á vakt. Ekki verði hjá því komist að draga saman í þjónustu og eru það einkum þær hugmyndir sem ráðherra fær til umfjöllunar. Anna Lilja segir að hún geti ekki tjáð sig frekar um þær hugmyndir fyrr en ráðuneytið hefur fjallað um þær. Aðspurð hvort aðgerðirnar hafi uppsagnir í för með sér segir Anna Lilja að þegar 2% sparnaðaráformin voru sett fram um áramót hafi verið ákveðið að forðast uppsagnir. Um síðustu áramót hafi nokkrum starfs- mönnum verið sagt upp. Alltaf sé eitthvað um að fólk hætti á stórum vinnustað eins og Landspítalanum og frekar verði gripið til þess ráðs að færa starfsfólk milli deilda. Hún segir að miðað sé við að sum- ar sparnaðaraðgerðir hefjist nú þeg- ar og aðrar að afloknum sumarfríum. Dregið verður úr skurð- aðgerðum á síðari hluta ársins Í greinargerð með rekstrarupp- gjörinu kemur fram að ástæður fyrir umframkostnaði á sjúkrahúsinu fyrstu fimm mánuði ársins séu nokkrar. Ákveðið hafi verið í upphafi árs að nýta afkastagetu skurðstofa og legudeilda til fulls fyrri hluta árs- ins með það að markmiði að fækka á biðlistum. Þótt skurðaðgerðum hafi fjölgað um tæp 10% miðað við sama tímabil í fyrra séu biðlistar enn of langir í nokkrum sérgreinum. Það eigi einkum við augnaðgerðir, al- mennar skurðaðgerðir og bæklunar- aðgerðir. Segir einnig að hagkvæmt væri að nýta afkastagetu skurðstofa spítalans til fulls og fækka á biðlist- um þar sem kostnaður við rekstur skurðstofanna sé fastur. Spítalinn hafi þó ekki fjármögnun til að standa undir því þar sem hann sé á föstum fjárlögum. Verði dregið úr aðgerðum síðari hluta ársins. Þá er rekstur öldrunarsviðs tals- vert fram úr áætlun. Helsta ástæðan er sögð að ekki hafi tekist að útskrifa sjúklinga sem hafa lokið sinni með- ferð á spítalanum og þurfa á annars konar vistunarúrræðum að halda. Rekstur slysa- og bráðasviðs fór einnig talsvert fram úr áætlun sem er í greinargerðinni skýrt með auk- inni eftirspurn eftir þjónustunni. Legudögum á sólarhringsdeildum fækkaði um 5,4% fyrstu fimm mán- uði ársins, dagvistardögum á dag- deildum fjölgaði um 8,7% og komum á göngudeildir um tæpt 1%. Meðal- legutími styttist á hverju ári, er nú 8,9 dagar en var 9,3 dagar í fyrra. Fæðingum fjölgaði um 2,5%. Landspítali – háskólasjúkrahús 3,3% umfram fjárheimildir fyrstu 5 mánuði ársins Ráðherra sendar tillögur um að draga úr þjónustu ÞAU eru ófá skemmtiferðaskipin sem lagt hafa leið sína til Íslands það sem af er sumri og enn fleiri eiga eftir að koma til landsins á næstunni. Skipið Black Watch var á ytri höfn- inni í Reykjavík og blasti tignarlega við ljósmyndara Morgunblaðsins þegar hann átti leið um Frakkastíginn í gær. Black Watch staldraði reyndar stutt við, kom til landsins í gærmorgun og hélt aftur á brott um kvöldið, en skipið er skráð á Bahamaeyjum. Annað skip ættað þaðan kom einnig við í Reykjavík í gær en það heitir Maxím Gorky og lagðist að bryggju við Korngarða í Sundahöfn. Héldu margir farþegar í land til skoðunarferða. Morgunblaðið/Golli Tignarleg sjón við Frakka- stíginn MIKIL þurrkatíð hefur verið víða á Vesturlandi undanfarið og segja bændur það sums staðar farið að koma niður á sprettunni. Þurrkurinn kemur sér hins vegar vel fyrir þá sem stunda dúntekju. Í Flatey hefur lítið rignt síðan um miðjan maí og segir Hafsteinn Guð- mundsson, bóndi og sjómaður í Flat- ey, ekki hafa verið svo þurrt í mörg ár. „Við fengum smáskúr fyrir hálfum mánuði en síðan hefur ekki komið neitt sem heitið getur. Við það bætist síðan að mikill sjór gekk yfir eyjuna í rokinu á þjóðhátíðardaginn og er gróður víða skemmdur eftir seltuna en hann hefur ekki getað jafnað sig vegna rigningarleysis.“ Hafsteinn bendir á að gras sé víða skrælnað og að hvönn og njóli séu víða orðin svört efst. Þá hafi áburður ekki nýst að gagni vegna þurrksins og að slætti muni líkast til seinka. „Ég man nú ekki eftir svona þurrki, ekki nema helst þá árið 1974 en þá var enn meiri þurrkur í byrjun sumars.“ Hafsteinn segir að frost í fyrri hluta maí hafi haldið raka í jörðinni og því sé hún ekki jafn þurr og ella hefði verið. „Búast má við að vatnsskortur verði í eynni ef þetta heldur svona áfram en þar er þó allt í lagi ennþá.“ „Ég held það hafi aldrei verið eins þurrt og núna svo ég muni til. Nú mætti gjarnan fara að koma rigning á túnin,“ segir Lilja Þórarinsdóttir, húsfreyja á Grund í Reykhólasveit. Hún segir að minnkað hafi í ám í grenndinni. „Miðnesá og Heyá eru til dæmis orðnar hálfgerðar sprænur og Grundará er nánast þornuð upp,“ segir Lilja. Þurrkurinn hefur mismikil áhrif á sprettu, þar sem tún hafa tekið við sér snemma er heyskapur kominn vel af stað en annars staðar voru tún farin að skrælna, að sögn Eiríks Blöndal, framkvæmdastjóra Búnaðarsamtaka Vesturlands. „Menn hafa þó borið sig vel og núna virðist víðast hvar vera útlit fyrir ágætis heyfeng.“ Þurrkatíð farin að há sprettu á Vesturlandi STOFNFJÁREIGENDURNIR fimm sem hafa milligöngu um yfir- tökutilboð Búnaðarbankans sendu í gær öðrum stofnfjáreigendum í SPRON bréf þar sem þeir hvöttu þá til að krefjast þess að nýr fundur verði boðaður. Í kjölfar yfirtökutil- boðsins var ákveðið að fresta fundi stofnfjárfesta sem átti að fara fram í dag en stjórn SPRON telur yfirtöku- tilboðið ekki standast lög og vill bíða úrskurðar Fjármálaeftirlitsins. Eig- endur a.m.k. þriðjungs stofnfjár þurfa að krefjast þess að boðað verði til fundar til að svo verði. Í yfirlýsingu segir Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, tilboð fimmmenningana hafa skapað óraunhæfar væntingar meðal stofn- fjáreigenda um hugsanlegan rétt þeirra til gjafakvóta á eiginfé spari- sjóðanna í landinu. Ekki sé ólíklegt að þær tefji aðlögun sparisjóðanna að markaðsaðstæðum og harðnandi samkeppni á fjármálamarkaði. Hann segir ámælisvert að banki í meiri- hlutaeigu ríkisins standi fyrir van- hugaðri skyndiárás af þessu tagi. Stofnfjár- eigendur krefjist nýs fundar  Stofnfjáreigendurnir/11  Árásinni verður/28  Ekki andstaða/30 ÞETTA gæsapar fór í heljarinnar göngutúr ásamt ungum sínum um Vestmannaeyjabæ í gær en fjöl- skyldan hefur búið við flugvöllinn í Heimaey. Leiðin lá frá flugvellinum niður í bæ þar sem þær spásseruðu inn með Friðarhöfn og inn á Eiði en þar fékk öll fjölskyldan sér sund- sprett. Stefnan var síðan tekin beina leið að meginlandinu. Smá- vaxnir ungarnir áttu í nokkrum erfiðleikum með að komast leiðar sinnar í stórgrýttri fjörunni og þáðu því hjálp ungra áhorfenda við að komast til sjávar. Parið hefur gert sig heimakomið við flugvöllinn í nokkur ár og verpt þar og komið upp ungum. En ung- arnir virðast hins vegar ekki hafa snúið aftur til að verpa svo þetta er eina parið á svæðinu. Morgunblaðið/Sigurgeir Ungarnir skoða heiminn ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.