Morgunblaðið - 17.07.2002, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#$ "
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÚ Á fimmtudagskvöldið hefst Gull-
mót JB og Breiðabliks sem er einn
stærsti íþróttaviðburður sem haldinn
er hérlendis. Þar munu upp undir
1000 stúlkur spila fótbolta af lífs og
sálar kröftum í þrjá daga fram á
sunnudag. Liðin sem spila eru rúm-
lega 90 og þau koma frá yfir 20 fé-
lögum víðs vegar að af landinu. Leikið
er í þremur aldursflokkum og eru
stelpurnar á aldrinum 6-15 ára. Þetta
er 17. Gullmótið og þau hafa verið
haldin árlega frá árinu 1986.
Uppgangur kvennaboltans hefur
verið mikill á síðustu árum og eflaust
eiga mót eins og Gullmótið mikinn
þátt í því. Árangur kvenna í fótbolta
hefur verið góður og vaxandi og má í
því sambandi minna á frábæran ár-
angur landsliðsins okkar sem enn á í
baráttu við að komast í lokakeppni
HM í Kína á næsta ári. Þá var árang-
ur 17 ára landsliðs okkar á Norður-
landamótinu hér á dögunum mjög at-
hyglisverður, en þar lentu okkar
stúlkur í 3ja sæti.
Að mörgu leyti má því segja að ár-
angur kvennalandsliða okkar sé mun
betri en árangur karlanna þótt sam-
anburður af þessu tagi sé auðvitað
alltaf vafasamur. Það er allavega ljóst
að það er full ástæða til þess að við
séum stolt yfir þeim frábæra árangri
sem stelpurnar okkar eru að ná.
Að einu leyti hefur kvennaboltinn
þó alltaf átt undir högg að sækja þótt
árangur, þátttaka og leikgleði sé ekki
síðri en hjá körlunum. Þarna er ég að
vísa til mjög mismunandi áhuga fjöl-
miðla og umfjöllunar eftir því hvort
kynið er að spila. Þetta er ekki síst at-
hyglisvert í yngri flokkunum þar sem
það hefur viljað brenna við að umfjöll-
un sé meiri og ítarlegri af pollamótum
en pæjumótum þrátt fyrir að um-
gjörðin sé í raun og veru sú sama.
Margir telja að ástæðan fyrir þessu
sé að flestir þeirra sem fjalla um
íþróttir séu karlar, en væntanlega
eiga þeir sem um fjalla álíka margar
dætur og syni sem spila fótbolta
þannig að skýringin er auðvitað ekki
einhlít. Að mínu mati er þarna um
draug úr fortíðinni að ræða sem er
nauðsynlegt að kveða endanlega nið-
ur. Auðvitað hafa málin verið að
þróast í rétta átt á undanförnum ár-
um hvað þetta varðar, en betur má ef
duga skal.
Ég vil hvetja alla, hvort sem þeir
fjalla um íþróttir eða ekki, að koma í
Kópavogsdalinn um helgina og líta á
þetta frábæra starf sem þar fer fram.
Það er mjög skemmtilegt að sjá um
1000 stelpur leggja sig allar fram um
að ná árangri í íþrótt sinni. En
skemmtunin felst ekki bara í boltan-
um, heldur er stefnt að því að hafa
umgjörðina alla líflega og skemmti-
lega. Í því sambandi má benda á
kvöldvökur með frábærum skemmti-
kröftum sem fara fram í Smáralind og
Smáranum á föstudags- og laugar-
dagskvöld. Gullmótið er stórviðburð-
ur og það á skilið að um það sé fjallað
og að eftir því sé tekið.
ARI SKÚLASON,
situr í unglingaráði knatt-
spyrnudeildar Breiðabliks.
Frá Ara Skúlasyni:
Morgunblaðið/Jim Smart
Gullmótið og
kvennaboltinn
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.