Morgunblaðið - 27.08.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isBjörgvin Sigurbergsson segist
þurfa fleiri fugla/B9
KR-ingar í efsta sæti, stigi
á undan Fylki/B2
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
UPPHÆÐ skuldar Landspítala –
háskólasjúkrahúss, LSH, við birgja
sem aðild eiga að Samtökum versl-
unarinnar – FÍS var rædd á fundi
þeirra í gær. Sjúkrahúsið ætlar að
greiða niður elstu skuldirnar um
mánaðamótin. Sjúkrahúsið segir
skuldina töluvert lægri en birgjar
halda fram. Samtök verslunarinnar
segja upphæð LSH vera án drátt-
arvaxta sem skýri að einhverju
leyti misræmið.
Tölur sannreyndar og sam-
eiginleg yfirlýsing í dag
Anna Lilja Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjárreiðna- og upp-
lýsingasviðs LSH, segir að sjúkra-
húsið hafi farið yfir sitt bókhald og
fengið út upphæð sem er töluvert
lægri en sú sem birgjar telja að
skuld sjúkrahússins við þá nemi.
Anna Lilja segir að á fundinum hafi
forsvarsmönnum FÍS verið af-
hentar þær tölur. „Þeir ætla að
sannreyna allar tölur með sínum
birgjum. Í framhaldi af því munum
við gefa út sameiginlega yfir-
lýsingu, þar sem rétt tala kemur
fram, en það er ljóst að hún er önn-
ur en áður hefur verið haldið fram.“
Í Morgunblaðinu sl. föstudag er
vitnað í bréf sem FÍS sendi for-
stjóra LSH þar sem segir að skuld
sjúkrahússins við birgja innan sam-
takanna sem stunda innflutning á
lyfjum og öðrum hjúkrunar- og
heilbrigðisvörum sé 840 milljónir
króna. Þá var sjúkrahúsinu gefinn
tveggja vikna frestur til þess að
ganga frá skuldinni. Andrés Magn-
ússon, framkvæmdastjóri FÍS, seg-
ist ánægður með fundinn í gær og
að nú sé verið að fara yfir allar töl-
ur og sannreyna þær.
Mistök hjá einu fyrirtæki
„Það liggur fyrir að mistök hafa
átt sér stað hjá einu fyrirtæki okk-
ar varðandi upplýsingar en það
breytir því þó ekki að vanskilin eru
veruleg. Inni í tölu sjúkrahússins
eru engir dráttarvextir og okkar
fyrirtæki krefjast dráttarvaxta og
gefa það ekki eftir.“
Andrés segir niðurstöðu á gaum-
gæfilegri samantekt á skuld
sjúkrahússins við fyrirtæki FÍS að
vænta í dag.
Anna Lilja segir að varanlegrar
lausnar á skuldastöðunni við birgj-
ana sé ekki að vænta fyrr en með
fjáraukalögum, sem sett eru fram á
fyrstu dögum þingsins í október.
„Við munum greiða upp elstu
skuldir við birgjana nú um mán-
aðamótin. Á fundinum ræddum við
um að fá tölurnar fyrst á hreint og
að elstu skuldir yrðu greiddar nú
um mánaðamótin,“ sagði Anna
Lilja Gunnarsdóttir að lokum.
Varanlegrar lausnar á skuldum LSH við birgja ekki að vænta fyrr en með fjáraukalögum í október
Elstu skuldirnar greidd-
ar um mánaðamótin
FJÖLMENNUR borgarafundur
var haldinn í Selásskóla í gærkvöldi
um tillögur að nýju deiliskipulagi í
Norðlingaholti og spunnust miklar
umræður um skipulagið á svæðinu
sjálfu og næsta nágrenni þess og
var mörgum fundarmönnum heitt í
hamsi. Steinunn Valdís Óskarsdótt-
ir, formaður skipulags- og bygging-
arnefndar hjá Reykjavíkurborg,
kynnti á fundinum helstu tillögur
að deiliskipulaginu sem nú er til
skoðunar. Hún lagði áherslu á að
markmiðið með fundinum væri ekki
einungis að gera grein fyrir sjón-
armiðum borgarinnar og kynna
skipulagið í heild sinni, heldur ekki
síður til þess að hlusta á raddir
fundarmanna. Hún fór yfir skipu-
lagið og gerði grein fyrir lýsingu
svæðisins, aðstæðum, afmörkun,
náttúrufræði, veðurfræði og fleira.
Hún ræddi forsendur og markmið
skipulagsins og sjónarmið vegna
þeirrar gagnrýni sem komið hefur
fram.
Steinunn benti á að allt frá árinu
1984 hefði verið gert ráð fyrir að
það risi íbúðarbyggð í Norðlinga-
holti. Um þá gagnrýni sem fram
hefur komið að lítið verði um hefð-
bundin einbýlishús í Norðlingaholti
sagði hún. „Eins og staðan er á
húsnæðismarkaði í Reykjavík og á
höfuðborgarsvæðinu öllu er mikil
þörf fyrir minni íbúðir og með
þessu er verið að koma til móts við
þau sjónarmið sem þar eru uppi.“
Steinunn sagði að það sem skipti
mestu máli varðandi skipulagið
væri sú hugmyndafræði sem lægi
að baki skipulaginu. Í markmiðum
þessa skipulags væri meðal annars
stuðlað að byggðamynstri sem und-
irstrikaði einkenni landslags, góð-
urs, byggingarlistar og að húsagerð
tæki mið af sérstæðu landslagi.
Steinunn sagði að í aðalskipulagi
Reykjavíkur væri mótuð sú stefna
að þétta byggð og máli skipti að
þétting byggðar þýddi ekki bara að
þétta ætti hana í eldri hverfum
borgarinnar. Steinunn benti á að
hæstu húsin í Norðlingaholti yrðu 6
hæða há sem kynni að vera umdeil-
anlegt en það væri ákveðin hugsun
í skipulaginu sem lægi þarna að
baki.
Fjölmargir fundargestir kvöddu
sér hljóðs og beindu spurningum til
Steinunnar Valdísar og þeirra
Helgu Bragadóttur skipulagsfull-
trúa, Ágústu Sveinbjörnsdóttur,
hverfisstjóra hjá skipulagsfulltrúa,
Ólafs Bjarnasonar, forstöðumanns
Verkfræðistofu, og Stefáns Her-
mannssonar borgarverkfræðings.
Margir höfðu áhyggjur af framtíð
þeirra sem eiga hesthús í Norð-
lingaholti. Meðal þess sem menn
minntu á var að svæðið væri snjó-
þungt á vetrum og íbúar í Sel-
áshverfi lýstu yfir óánægju með út-
sýnistap sem þeir yrðu fyrir með
hinu fyrirhugaða hverfi í Norð-
lingaholti.
Fjölmennur borgarafundur um deiliskipulag í Norðlingaholti
Stefna borgarinnar
er að þétta byggð
Morgunblaðið/Golli
Mikið fjölmenni var á borgarafundi sem haldinn var í Selásskóla í gær vegna deiliskipulags væntanlegs at-
vinnu- og íbúðarhverfis í Norðlingaholti. Margir komu með spurningar og athugasemdir um skipulagið.
RAUÐU örvarnar, listflugsveit
breska flughersins, flugu lágt yfir
höfuðborgarsvæðinu í gærdag, en
vélarnar voru á leið til Keflavíkur
sem er áfangastaður sveitarinnar á
leið hennar til Kanada.
Morgunblaðið/RAX
Það var nokkuð dimmt yfir þeg-
ar vélar Rauðu örvanna flugu
yfir höfuðborgina í gær.
Rauðu
örvarnar
KONA sem ákærð er fyrir mann-
dráp, með því að stinga sambýlis-
mann sinn þrisvar með hnífi í íbúð á
Grettisgötu hinn 6. mars sl., segist
ekkert muna eftir atburðum kvölds-
ins. Við þingfestingu málsins fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær benti
hún á að vitni hefðu sagt að hún hefði
ekki verið sú eina sem hefði verið
með hníf í höndunum þegar árásin
átti sér stað.
Hnífstungurnar komu í brjóst og
kvið og voru tvær þeirra sérlega
djúpar.
Í ákæru kemur fram að maðurinn,
sem var fimmtugur, hafi látist vegna
bráðra lungnabreytinga og lungna-
bólgu sem hafi verið afleiðing af at-
lögu konunnar. Er konan ákærð fyr-
ir manndráp. Lögmaður konunnar,
Hilmar Baldursson hdl., óskaði eftir
frekari gagnaöflun vegna málsins.
Ákærð fyrir
hnífstunguárás
Segist ekkert
muna eftir
árásinni
♦ ♦ ♦