Morgunblaðið - 27.08.2002, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2002 11
SAMKVÆMT nýrri skýrslu um hag-
kvæmni járnbrautarlestar milli
Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar
munu tekjur af miðasölu mæta
rekstrar- og viðhaldskostnaði en þær
myndu hvorki duga fyrir endurnýjun
vagna og mannvirkja né greiðslum
vaxta og afborgunum lána af fjárfest-
ingunni. Stofnkostnaður er áætlaður
33,3 milljarðar króna, árlegur rekstr-
arkostnaður rúmir 1,4 milljarðar en
tekjur rúmir 1,2 milljarðar króna af
1,4 milljónum farþega á ári.
Fjöldi lestarfarþega hefur verið
áætlaður miðað við spár um fjölda
flugfarþega og mat á vilja þeirra til
þess að nota lestina fremur en að fara
í bíl. Hafa flugvallarstarfsmenn verið
teknir með í reikninginn. Um 1,4
milljónir farþega árið 2010 er 40%
aukning miðað við fjölda flugfarþega
í dag.
Í skýrslunni eru aðrar forsendur til
staðar en þegar sömu aðilar, breska
ráðgjafarfyrirtækið AEA Techno-
logy Rail og Ístak hf., könnuðu hag-
kvæmni járnbrautar og miðuðu þá
aðallega við leiðina frá Keflavík að
Mjódd í Reykjavík. Skýrslu um þá
framkvæmd var skilað í október á
síðasta ári. Nú er gert ráð fyrir fleiri
lestarstöðvum, annarri brautarlegu
og lengri leið, þ.e. endastöð við
Reykjavíkurflugvöll, og miðað við að
völlurinn leggist af og flugsamgöngur
verði alfarið um Keflavíkurflugvöll. Í
fyrri skýrslu var einnig rætt um
hvers konar járnbrautir ætti að not-
ast við. Þar var hefðbundin hraðlest
talin besti kosturinn, en jafnframt sá
dýrasti, og miða skýrsluhöfundar við
þann kost nú.
Tekin í notkun
eftir átta ár
Miðað er við að árið 2010, ef und-
irbúningur hæfist nú þegar, yrði
hægt að taka í notkun járnbraut með
fjórum vögnum í einni einingu, eins
og það er nefnt í skýrslunni. Lest-
irnar yrðu svipaðar og eru t.d. við
flugvellina í Kaupmannahöfn, Osló
eða London. Sæti og aðrar innrétt-
ingar yrðu vandaðri en t.d. í lang-
ferðabílum. Lestin yrði rafknúin með
orku frá loftlínu yfir brautinni og færi
á hálftíma fresti milli staða á um 160
km hámarkshraða á klukkustund.
Árið 2020 yrðu vagnarnir orðnir 44 að
tölu í 11 einingum.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
á sunnudag, og sést nánar á með-
fylgjandi korti, myndi brautin liggja
frá flugstöð Leifs Eiríkssonar í
Keflavík og að þeim stað sem Reykja-
víkurflugvöllur er nú í Vatnsmýrinni.
Að Straumsvík myndi brautin liggja
meðfram núverandi Reykjanesbraut
en færast þá innar í landið og samsíða
nýjum vegi sem þar yrði lagður. Er
þetta meginbreyting á brautarlínu
frá fyrri skýrslu. Lestarstöðvar yrðu
í Innri-Njarðvík, Hvassahrauni, ef
flytja ætti þangað innanlandsflugvöll,
Kapelluhrauni og neðanjarðar við
verslanamiðstöðina Smáralind í
Kópavogi. Frá Kapelluhrauni færi
lestin í nokkrum jarðgöngum til
Reykjavíkur, síðast úr Smáralind
undir Kópavog, Fossvogsdal og loks í
gegnum Öskjuhlíð. Gangaop yrði við
rætur Öskjuhlíðar vestan við Perluna
og norðan við Hótel Loftleiðir. Nokk-
ur óvissa er þó sögð um legu braut-
arinnar frá Kópavogshálsi vegna
skipulags byggðar og gatna sem enn
er í vinnslu á því svæði.
Árlegt rekstrartap
250 milljónir
Skýrsluhöfundar reikna með að
fargjald yrði svipað og í flugrútunni
svonefndu sem gengur frá Hótel
Loftleiðum til Leifsstöðvar, sem sagt
er lægra en tíðkast í lestum milli höf-
uðborga og flugvalla í nágrannalönd-
unum. Hækkun á fargjaldi kynni að
bæta fjárhagsafkomu brautarinnar
en drægi jafnframt úr þjóðhagslegri
hagkvæmni þar eð fleiri myndu þá
kjósa að nota einkabílinn í stað járn-
brautarinnar.
Sem fyrr segir er árlegur rekstr-
arkostnaður tæplega 1,5 milljarðar
króna, eða nákvæmlega 1.458 millj-
ónir, og tekjur af miðasölu rúmir 1,2
milljarðar. Þannig að miðað við
rekstrarkostnaðinn eingöngu yrði
um 250 milljóna króna tap á rekstr-
inum á ári. Yrðu þá eftir greiðslur af
vöxtum og afborgunum lána af fjár-
festingunni.
Um fjárhagshliðina segir í skýrsl-
unni: „Nærri lætur að tekjur af miða-
sölu mæti rekstrar- og viðhalds-
kostnaði járnbrautarinnar, en þær
duga ekki fyrir endurnýjun vagna og
mannvirkja. Ef rétt er áætlað ætti
því að vera hægt að reka járnbraut-
ina án hárra styrkja. Hins vegar er
þess ekki að vænta að tekjurnar
hrökkvi fyrir greiðslum vaxta né af-
borgunum lána vegna upphafskostn-
aðar.“
Rekstrarkostnaður skiptist þannig
í grófum dráttum að 987 milljónir kr.
myndu fara í árlegt viðhald og end-
urnýjun, þar af 415 milljónir í sjálfar
lestirnar og 276 milljónir í teinana,
launakostnaður yrði 412 milljónir og
orkukostnaður 58 milljónir.
Skipting á 33,3 milljarða króna
stofnkostnaði er þannig að 11,2 millj-
arðar færu í mannvirki og jarðvinnu,
7,5 milljarðar í járnbrautarteina,
járnbrautarlestir myndu kosta 6,4
milljarða, raflagnir 3,1 milljarð, lest-
arstöðvar 2,5 milljarða, merkja- og
stjórnbúnaður 1,3 milljarða og reitur
fyrir geymslu og viðhald vagna
myndi sömuleiðis kosta 1,3 milljarða
að mati skýrsluhöfunda. Þeir taka
fram að tölurnar myndu lítið breytast
þó að miðað yrði við aðra tilhögun en
að flytja Reykjavíkurflugvöll.
Setja mætti járnbraut
inn í svæðisskipulag
Í skýrslunni segir að nokkra þætt-
ir, sem skipti máli fyrir hagkvæmni
járnbrautarinnar, þurfi að taka með í
reikninginn sem sé þó erfitt að meta
beint til fjár. Um er að ræða tíma-
sparnað lestarfarþega, tímasparnað
þeirra sem aka á vegunum, fækkun
slysa vegna meira öryggis á járn-
braut en vegi og lækkun tekna rík-
isins af sköttum á eldsneyti. Síðan
segir orðrétt: „Ef tekið er tillit til
þessara þátta við samanburðinn, er
áætlað að tekjur og hagræði af járn-
brautinni skili nálægt 80% af kostn-
aðinum við hana. Þetta hlutfall er að
sjálfsögðu mjög háð spám um fjölda
flugfarþega. Ennfremur geta ákvarð-
anir um framtíð Reykjavíkurflugvall-
ar haft áhrif á þetta. Þótt bjart-
sýnisspá sé lögð til grundvallar, er
ljóst að tekjur af járnbrautinni muni
undir engum kringumstæðum mæta
öllum kostnaði við hana. Þess vegna
virðist ekki rétt að ráðast í járnbraut-
arlagningu með þeim hætti sem lýst
er í þessari skýrslu.“
Að endingu segir í samantekt
skýrslunnar: „Það er niðurstaða
þessarar athugunar að ekki eru nein-
ar tæknilegar hindranir fyrir því að
leggja járnbraut eins og hér hefur
verið lýst, en frá sjónarhóli hag-
kvæmni er hún ekki réttlætanleg
miðað við þær forsendur sem eru not-
aðar.
Verkkaupi, Orkuveita Reykjavíkur
og borgarverkfræðingur, þurfa nú að
ákveða um framhaldið. Til greina
gæti komið að kanna hverjar viðbót-
artekjur kynnu að fást frá notkun á
járnbrautinni óháðri flugi. Einnig
mætti rannsaka tækifæri til sparnað-
ar.
Síðast en ekki síst kemur sá kostur
til álita að fella járnbrautina inn í
svæðisskipulag þannig að hana megi
leggja síðar, ef þróun verður með
þeim hætti að lagning þessarar járn-
brautar teljist hagkvæm og þá ef til
vill sem hluti stærra brautarkerfis.“
Flutningur innanlandsflugs
hvatinn að athuguninni
Þegar fyrri skýrslan var kynnt
kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra að hvatinn
að hagkvæmniathugun á lagningu
járnbrautar milli Reykjavíkur og
Keflavíkur hefði verið umræðan um
flutning innanlandsflugsins úr Vatns-
mýrinni á nýjan flugvöll, annaðhvort í
nágrenni Reykjavíkur eða til Kefla-
víkur. Forsendan fyrir því væri skil-
virkari samgöngur milli staða.
Eins og áður segir myndi stofn-
kostnaður vera 33,3 milljarða króna
en til samanburðar má geta þess að
nýr innanlandsflugvöllur í Vatnsmýr-
inni var talinn kosta rúma 8 milljarða
króna, samkvæmt skýrslu sem
Reykjavíkurborg lét gera, og nýr
flugvöllur á uppfyllingu í Skerjafirði
(Lönguskerjum) rúma 13 milljarða.
Að flytja innanlandsflugið til Kefla-
víkur var talið kosta rúma 4 millj-
arða.
Skýrslan var kynnt í stjórn Orku-
veitunnar sl. föstudag og fer fyrir
borgarráð síðar í vikunni.
Járnbrautarskýrslan fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og borgarverkfræðing
Tekjur duga ekki
fyrir vöxtum og
afborgunum lána
! "
#$
!!
Breskt ráðgjafarfyrir-
tæki og Ístak miða við
að flugvöllur fari úr
Vatnsmýrinni og flug-
samgöngur verði alfarið
um Keflavíkurflugvöll í
seinni skýrslu sinni um
járnbraut milli Reykja-
víkur og Keflavíkur.
Björn Jóhann Björns-
son skoðaði skýrsluna,
sem kynnt verður í
borgarráði í vikunni.
bjb@mbl.is
ÁKÆRA ríkissaksóknara gegn
þremur mönnum sem sakaðir eru um
innflutning á um 30 kílóum af hassi
var þingfest í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Fjórði maðurinn er
ákærður fyrir að hafa ásamt einum
þremenninganna lagt á ráðin um inn-
flutning á 5,4 til 7,5 kílóum af hassi
sem var hluti af fyrrnefndri sendingu
og greitt honum 1,5 milljónir til
kaupa á fíkniefnunum.
Lögreglan í Reykjavík lagði hald á
hassið 12. mars sl. og er þetta er
mesta magn sem lagt hefur verið
hald á í einni sendingu hér á landi.
Verjandi eins þremenninganna
hefur krafist þess að málinu verði vís-
að frá dómi þar sem fulltrúi lögreglu-
stjórans í Reykjavík sem vann að
rannsókn málsins hafi verið vanhæf-
ur vegna tengsla sinna við verjanda
annars sakbornings í málinu. Skv.
lögum um meðferð opinberra mála,
skal við þingfestingu sakamáls spyrja
ákærðu um hvort þeir játi sakargiftir
en vegna frávísunarkröfunnar var því
frestað. Málið verður tekið fyrir á ný
á föstudag.
Hagsmunaárekstrar
Þórir Örn Árnason, hdl., byggir
frávísunarkröfuna á því að fulltrúinn
og Karl Georg Sigurbjörnsson, hdl.,
sem er lögmaður annars sakbornings
í sama sakamáli, hafi með sér slíkt
samband að það hljóti að valda van-
hæfi fulltrúans. Karl Georg hafi með
höndum hagsmunagæslu í dómsmáli
sem hann hefur flutt fyrir fulltrúann.
Nú sé uppi sú staða í málinu að eftir
sé að gera lokauppgjör og séu hags-
munir fulltrúans þar um ein milljón
króna, þegar hafi hann greitt ríflega
800.000 kr. í lögfræðikostnað en eftir
standi um 500.000 kr. Ljóst megi vera
að hagsmunaárekstur sé slíkur hjá
þessum tveimur mönnum að ekki
verði hjá því komist að fulltrúinn telj-
ist vanhæfur. Því verði að vísa málinu
frá á grundvelli 30. gr. laga um með-
ferð opinberra mála og eðli málsins í
heild. Í 30. greininni er kveðið á um
vanhæfi ákæranda. Í þessu tilviki er
það hins vegar ríkissaksóknari sem
gefur út ákæruna en ekki lögreglu-
stjórinn í Reykjavík.
Í bréfi til dómsmálaráðuneytisins
og ríkissaksóknara segir Þórir að
skjólstæðingur Karls Georgs hafi
borið skjólstæðing sinn þungum sök-
um sem hafi leitt til ákæru í þessu
máli. Engin önnur sönnunargögn en
þessi framburður og sögusagnir ann-
ars ákærða í málinu liggi fyrir um
þátt skjólstæðings Þóris í málinu auk
þess sem sakbendingin hafi átt sér
stað við sérkennilegar aðstæður. Þá
gerir Þórir ýmsar athugasemdir við
rannsókn lögreglu og segir að fyrr-
nefndur fulltrúi hafi tafið afhendingu
gagna og neitað að rannsaka atriði
sem hann hafi bent á. Grundvallarat-
riðið í málinu sé þó hagsmuna-
árekstrar fulltrúans og Karls Georgs.
Egill Stephensen, saksóknari hjá
lögreglustjóranum í Reykjavík, segir
að greinargerð um málið verði send
ríkissaksóknara og að svo stöddu
muni lögregla ekki tjá sig frekar um
málið.
Ákærðir fyrir innflutning
á um 30 kílóum af hassi
Krafist frávísunar vegna vanhæfis
fulltrúa lögreglustjóra
RÚSSNESKA fjölskyldan sem sótti
um hæli hér á landi fyrir skemmstu
fer af landi brott í vikunni og munu
finnsk yfirvöld taka mál hennar fyrir.
Fjölskyldan, hjón og sautján ára
sonur þeirra, fóru fram á hæli þar
sem sonur þeirra verður 18 ára í
haust og kemst þá á herskyldualdur.
Sögðu hjónin að sonur sinn væri svo
veikburða að herþjónusta myndi
stefna heilsu hans í voða.
Jóhann Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Útlendingaeftirlitsins, segir að
stofnunin hafi ekki tekið efnislega af-
stöða til hælisbeiðninnar. Skv. Dyfl-
innarsamningnum svokallaða, eigi all-
ir rétt á að fá hælisbeiðni sína tekna
fyrir í einu landi. Fólkið hafi farið frá
Rússlandi um Finnland áður en það
kom til Íslands og hafi finnsk yfirvöld
viðurkennt að þau eigi að fjalla um
hælisbeiðni fjölskyldunnar.
Rússneska
fjölskyldan
fer til
Finnlands