Morgunblaðið - 27.08.2002, Blaðsíða 23
heild sinni er mögnuð lifun. Stendur
sumarlangt.
Mögnuð lifun reyndist ekki síður
sýningin á fiðraða 126 milljón ára
risaeðluafbrigðinu inni í safninu,
þótt á allt öðrum grundvelli væri,
ásamt fleiri steingervingum frá
sama fundi, hún er ekki mikil um sig
en þeim mun athyglisverðari og
virðist hér vera fundinn nýr hlekkur
í þróunarsögunni. Ekki voru tiltak-
anlega margir að skoða hana þegar
mig bar að síðdegis en gestum
dvaldist yfirleitt firnalengi. Það var
þannig ekki sýningin, heldur öllu
frekar sjálft hið mikla og stórkost-
lega safn sem dró hinn mikla fjölda
gesta að. Þá er frá því að segja að í
meira en hundrað ár hafa vís-
indamenn deilt um uppruna fugla
himinsins en ekki orðið á eitt sáttir í
þeim efnum. En með því að bera
saman beinagrind af elsta þekkj-
anlega afbrigðinu og litlar jurtaætur
af risaeðluafbrigði hafa þeir nú kom-
ist að þeirri niðurstöðu, að sterklega
megi gera ráð fyrir að flestar núlif-
andi fuglategundir séu komnar frá
risaeðlutegundum. Þeir hafi þróast í
núverandi form fyrir ýmis og ólík
skilyrði í umhverfinu og upp-
runalega lögun, sem var skiljanlega
býsna margþætt í ljósi þess að þróun
risaeðlunnar mun hafa náð yfir 60
milljón ára tímabil. Og þar sem sagt
er að lífið hafi komið úr hafinu er
meinlaust að draga þá ályktun að
fuglar hafi verið til á undan risaeðl-
unni, jafnvel í milljónir ára. Má af
öllu ráða að draumur núlifandi kyn-
slóðar hins viti borna manns, Homo
sapiens sapiens, um samþættingu
tegundanna og heimsþorpið gangi
fullkomlega á skjön við lögmál nátt-
úrunnar og alheimsins um leið. Sýn-
ingin stendur til vorsins 2003.
Loks er að víkja að hinni stór-
merku sýningu á British Museum á
fornminjum frá Jemen. Á þeim slóð-
um og jafnframt arfsagnarinnar um
drottninguna af Saba hefur í skorp-
um á síðustu öld og loks samfleytt
frá árinu 1970 verið leitað að sönn-
unargögnum um tilvist hátign-
arinnar óviðjafnanlegu. Virðist
hvorki hafa tekist að sanna arfsögn-
ina né afsanna hana, hins vegar hafa
menn fundið mikið safn ómetanlegra
heimilda og dýrgripa úr fortíðinni
eins og hin einstæða sýning er lif-
andi vottur um. Hún hermir af tíma-
bilinu fyrir daga drottningarinnar
og eftir, menn engan veginn úrkula
vonar um að þeir rekist á einhverjar
sannanir, iðulega er sannleikskorn
finnanlegt í öllum munnmælasögum
þótt tíminn kunni að magna þeim líf
og lit í tímans rás eftir hugarflugi
hinna háru þula. Sýningin leggur
mikla áherslu á arfsögnina og þróun
hennar til nútímans, í rituðu máli,
myndverkum og kvikmyndum, og er
öll hin skemmtilegasta, jafnframt
fylgir vegleg og tæmandi sýning-
arskrá prýdd fjölda mynda í lit eins
og best gerist á nýrri tímum.
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
Dino Bird, fiðruð risaeðla.
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
Fugl úr forneskju.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2002 23
SVANA Berglind Karlsdóttir sópr-
ansöngkona og Rögnvaldur S. Val-
bergsson orgelleikari halda tónleika
í Sauðárkrókskirkju í kvöld, þriðju-
dagskvöld, kl. 20.30. Tónlistin er að
mestu leyti keltnesk, m.a. þjóðlög frá
Englandi, Skotlandi, Írlandi og Wal-
es, m.a. útsetningar eftir Benjamin
Britten og fleiri. Aðgangur er ókeyp-
is.
Keltnesk tónlist
á Sauðárkróki
LISTAMAÐURINN Tolli mun ann-
ast skreytingar í nýrri hótelbygg-
ingu á Selfossi og á Flúðum, sam-
kvæmt samningi sem hann hefur
gert við KÁ, rekstraraðila hótel-
anna. Með því er, að sögn Þórs
Kjartanssonar, markaðsstjóra KÁ,
gert ráð fyrir að hótelið verði nokk-
urs konar opinn og lifandi vettvang-
ur fyrir list Tolla með föstum verk-
um í eigu hótelsins og lánsverkum
sem sett verða upp á breytilegri yf-
irlitssýningu.
Aðspurður segist Tolli ánægður
með þennan samning sem sé að
mörgu leyti einstakur hvað varðar
samskipti listamanna og atvinnulífs.
„Samningurinn er gerður að frum-
kvæði KÁ og hefur hann þróast
smám saman í núverandi mynd. Hót-
elið skuldbindur sig sem sagt til að
kaupa af mér verk fyrir ákveðna
upphæð á ári næstu fimm árin. Til
viðbótar við það lána ég hótelinu vel
valdar myndir og legg þannig til
myndir í alla sali og stærri rými. Þar
legg ég áherslu á að skapa dálítið
heildstæða mynd af því sem ég hef
verið að gera, kannski má segja að
þarna sé orðinn til nokkurs konar
vettvangur eða miðstöð um list
mína,“ segir Tolli en á Hótel Selfossi
verður að hans sögn á fjórða tug
mynda og um 15 myndir eru þegar
komnar upp á Hótel Flúðum.
„Myndirnar á Hótel Selfossi eru
valdar m.t.t. til hönnunar hússins,
sem er nokkuð sérstök og tengist að
mörgu leyti vatni. Þá er ég að byrja á
röð vatnslitamynda af vatnasvæði
Ölfusár sem verður líklega tilbúin
fyrir hótelið á næsta ári.“
Tolli bætir því við að um breyti-
lega uppstillingu verði að ræða, hann
muni skipta út myndum og margar
lánsmyndanna séu til sölu. „Þetta er
að mörgu leyti óvenjulegur samning-
ur og finnst mér hann vera til eftir-
breytni þegar litið er til samskipta
listamanna og atvinnulífs almennt.
Þarna mótar hótelið sér ákveðna
stefnu varðandi myndlistarkaup um
leið og til verður vettvangur þar sem
vakin er athygli á list minni.“
Þór Kjartansson, markaðsstjóri
hjá KÁ, segir að hótelin hafi ákveðið
að velja fremur einn listamann til
þess að prýða hótelið myndlist en að
fá verk úr ólíkum áttum. „Hið ný-
byggða hótel á Selfossi er stórt og
hýsir að miklu leyti ráðstefnugesti
og fólk í viðskiptaerindum. Okkur
fannst verk Tolla kallast vel á við það
umhverfi sem við viljum skapa okkar
gestum, jafnframt því sem verk hans
eru mjög sterk og falla vel að hönnun
hússins. Nú þegar er kominn upp
stór hluti af verkunum en það mun
auðvitað bætast nokkuð við. Við
munum leggja áherslu á að halda
þessu dálítið lifandi og vonumst til
þess að fólk sæki hótelið hér á Sel-
fossi heim til að skoða þetta stóra
safn verka eftir Tolla sem hér er
saman komið,“ segir Þór Kjartans-
son að lokum.
Tolli sýnir á Hótel Selfossi
Þór Kjartansson, markaðsstjóri KÁ, og listmálarinn Tolli.
Í HAUST tekur til starfa nýr kór
í Mosfellsbæ, Kammerkór Mos-
fellsbæjar. Stjórnandi kórsins
verður Símon H. Ívarsson og
meðleikari Judith Pamela Þor-
bergsson, en þau eru bæði kunnir
tónlistarmenn.
„Á efnisskrá kórsins verða fjöl-
breytt kórverk frá ólíkum tíma-
bilum og stíltegundum,“ segir
Símon. Auk hefðbundinna kór-
verka verða sungnar kunnar tón-
smíðar og verður leitast við að
hafa verkefnavalið fjölbreyttara
en gengur og gerist hjá flestum
kórum. Sungin verða lög allt frá
endurreisnartímabilinu til tuttug-
ustu aldar tónlistar, gospellög,
afrísk lög, nútímalög, dægurlög
og hvað eina sem vekur áhuga og
veitir ánægju í söng.“
Æfingar hefjast
4. september
Boðið verður upp á kennslu í
grunnatriðum tónfræðinnar fyrir
þá sem þess óska og er markmið
hennar að þjálfa rytma og kenna
nótnalestur. Jafnframt verður
boðið upp á þjálfun í samskipta
og skapandi tónlistarmiðlun. Æf-
ingar verða á miðvikudagskvöld-
um kl. 20 í Tónlistarskóla Mos-
fellsbæjar og verður fyrsta
æfingin miðvikudaginn 4. sept-
ember.
Nýr kór í Mosfellsbæ
M O N S O O N
M A K E U P
lifandi litir