Morgunblaðið - 27.08.2002, Page 49
VLADÍMÍR Pútín Rússlandsfor-
seti ku njóta mikilla vinsælda í
heimalandi sínu og nú er popplag,
þar sem honum er sungið lof, eitt
vinsælasta lagið í þarlendum út-
varpsstöðvum.
Ég vild’ ég ætti mann eins og Pútín
sterkan og hugrakkan
sem drekkur hvorki né duflar
og stingur ekki af,
syngur söngkona popphljómsveit-
arinnar Syngjum saman. Hún seg-
ist vera þreytt á kærastanum sem
alltaf er fullur og lendir stöðugt í
slagsmálum. Henni finnst vera
kominn tími til að eignast mann
eins og Pútín.
Lagið er nú leikið á öllum
helstu útvarpsstöðvum í Rúss-
landi. Enginn virðist aftur á móti
vita neitt um hljómsveitina og
hvergi er hægt að kaupa lagið á
geisladiski, að því er kemur fram
á vefsíðu BBC. Þá segjast út-
varpsstöðvar ekki vita hver sendi
þeim lagið. Hefur þetta kveikt
orðróm um að lagið sé runnið
undan rifjum ímyndarfræðinga í
Kreml sem unnið hafa hörðum
höndum við að móta jákvæða
ímynd Pútíns meðal þjóðarinnar.
Og með ágætum árangri því að
skoðanakannanir sýna að um 70%
Rússa eru ánægð með forsetann.
Vinsældir Pútíns eru raunar að
færast út í nokkrar öfgar. Nú er
hægt að kaupa Pútínúr, Pútín-
borgara og bráðlega verður hægt
að fá Pútíntómata. Pútín sjálfur
hefur sagt að hann hafi hina
mestu skömm á þessari persónu-
dýrkun.
Maður eins og Pútín
Brosandi Rúss-
landsleiðtogi! Ekki
er vitað til þess að
neinir poppsmellir
hafi verið samdir
um Brezhnev og
Andropov.
Popplag um
Rússlandsforseta
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2002 49
Coldplay
A Rush Of Blood To The Head
Parlophone
Hvernig er hægt að fylgja eftir og toppa
aðra eins frumraun og Parachutes? Ná-
kvæmlega svona!
ÞAÐ geta allir slegið í gegn. Allt
sem þarf er heppni, heppni til að
vera á réttum tíma á réttum stað, jú
og ekki spillir að vera með rétta útlit-
ið. En til að við-
halda frægðinni
þarf annað og
meira, miklu
meira. Þá kemur
nefnilega til kasta
hæfileikanna,
hvort þeir yfir höfuð eru til staðar
eða ekki. Eins erfitt og það virðist nú
vera að búa til eins farsæla og fram-
bærilega frumraun og Parachutes
var, leyfi ég mér að fullyrða að marg-
falt erfiðara hafi verið að fylgja
henni eftir svo vel væri. Það er göm-
ul saga og ný að mörg stórstjarnan
hefur runnið harkalega á rassinn
strax með annarri plötu og aldrei
borið sitt barr eftir það. A Rush Of
Blood To The Head er önnur plata
Coldplay og geta fjórmenningarnir
staðið föstum fótum, uppréttir og
stoltir af útkomunni sem tekur for-
veranum fram á nær öllum sviðum.
Platan er rökrétt framhald. Ekkert
Kid A-tilfelli (að þeirri plötu ólast-
aðri), heldur eðlileg framþróun, spor
í hárrétta átt fyrir sveit í sporum
Coldplay, skólabókardæmi um
hvernig gera á góða uppskrift betri –
nánast fullkomna.
Hér er sem sagt engin stórhuga
bylting á ferð. Lágstemmt, seiðandi
og ávanabindandi tilfinningapoppið
allsráðandi, ljúfsárar ástar- og sakn-
aðarkveðjur frá skáldi sveitarinnar
Chris Martin, sem vel að merkja er
orðinn einhver alframbærilegasti
rokksöngvari samtímans. Og þótt
ákveðið hafi verið að tefla ekki á
tvær hættur þá er tónlistin öll miklu
margbreytilegri, egghvassari og há-
værari í allri sinn kyrrð. Textarnir
eru og háskalegri, sbr. viðbrögð
Martins við 11. september í opnun-
arlaginu „Politik“, allrabesta lagi
sveitarinnar frá upphafi. Það kallar
fram óþægilega tilfinningu en um
leið einhverja undarlega hugarró,
eins og Martin viti betur – að allt fari
vel að lokum. „The Scientist“ er
ennþá fallegri ballaða en „Trouble“
og risið magnaða í enda lagsins und-
irstrikar óumflýjanlega að loksins sé
kominn fram á sjónarsviðið hugsan-
legur arftaki U2. Stór orð það!
Þótt „Warning Sign“ láti lítið yfir
sér í fyrstu hefur það að geyma við-
lag sem við ítrekaða hlustun verður
að einhverjum þeim angurværasta
saknaðaróði sem maður hefur í
lengri tíma heyrt.
Þar með er það á hreinu, Para-
chutes var engin tilviljun, engin
byrjendaheppni. A Rush Of Blood
The Head er heilsteypt og svo gott
sem algjörlega pottþétt tilfinninga-
poppplata, gerð af einlægum ungum
mönnum – eða manni (Martin er allt
í öllu) – með fágæta hæfileika og
bullandi sjálfstraust. Og nú mega
þeir, mín vegna, bregða sér í Kid A-
gírinn, eða bara halda áfram á sinni
braut. Þeim eru allir vegir færir.
Skarphéðinn Guðmundsson
Tónlist
Pottþétt tilfinning
Bláu augu þín – Chris Martin,
söngvari og aðallagasmiður
Coldplay.
Lykillög: „Politik“, „The Scientist“,
„Warning Sign“.
Skráning er í síma 565-9500
Hraðlestrarnámskeið
Viltu margfalda afköst í námi?
Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
Næsta hraðlestrarnámskeið hefst þriðjud. 3. september
HRAÐLESTRARSKÓLINN
w w w. h r a d l e s t r a r s k o l i n n . i s
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 422
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SG. DV SV Mbl
Kvikmyndir.is
1/2 Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4 og 6.Vit 398
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Vit 422
Sýnd kl.10.10. Vit 415 Sýnd kl. 6. Vit 415
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 420
Sýnd í lúxussal kl. 4, 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 423
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Aðalskvísan í skólanum er komin með
samkeppni sem hún ræður ekki við!
„Enginn ætti að missa af þessari,“
Kvikmyndir.is
SK Radíó X
DV MBL
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Vit 418
Kvikmyndir.com
1/2MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12. Vit 420
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 3.45. Ísl tal. Vit nr. 410.
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 426Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 422
ÞriðjudagsTilboð kr. 400 ÞriðjudagsTilboð kr. 400
ÞriðjudagsTil-
boð kr. 400
ÞriðjudagsTil-
boð kr. 400
ÞriðjudagsTil-
boð kr. 400
Sýnd kl. 8 og 10.10. Bi. 14. Vit 417