Morgunblaðið - 03.09.2002, Side 22

Morgunblaðið - 03.09.2002, Side 22
NEYTENDUR 22 ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HAFINN er innflutningur og sala hér á landi á Vita Biosa-fæðubót- arefni, sem er blanda af krydd- jurtum og öðrum plöntum. Efnið, sem framleitt er í Danmörku, hef- ur verið mjólkursýru- gerjað með sérstak- lega samsettri örverurækt sem í eru mjólkursýrubakteríur eða mjólkursýrugerlar og gersveppir. Við gerjunina myndast mjólkursýra með lágu sýrustigi, sem kemur í veg fyrir að skaðlegar bakteríur geti fjölgað sér í tilbúinni vöru, segir í fréttatilkynn- ingu frá innflytjend- um. Það er hið ný- stofnaða fyrirtæki Lífskraftur ehf. sem stendur að innflutn- ingnum, en fyrirtækið er í eigu hjónanna Hildar Stefánsdóttur og Guðjóns M. Jóns- sonar. Að sögn þeirra Hildar og Guð- jóns mun fyrirtækið starfa í sam- vinnu við tengd fyrirtæki á Norð- urlöndunum sem hafa sömu markmið að leiðarljósi. „Við erum að bjóða fram vörur, sem eru lífs- uppbyggjandi og án allra eitur- efna, bæði fyrir fólk, garðyrkju og annan landbúnað. Þessar vörur eru árangur 20 ára rannsóknar- starfs. Vörurnar eru nú notaðar í yfir 100 löndum og hafa þær m.a. fengið viðurkenningu til notkunar í lífrænni ræktun í landbúnaði í Danmörku. Biosa-vörur hafa nú verið not- aðar í dönskum landbúnaði í átta ár og hjá þeim bændum, sem til- einkað hafa sér vörurnar, er reynslan einstök. Afkoma þeirra hefur stórbatnað á sama tíma og þeir eru að framleiða heilsusam- legri vörur.“ Fyrir fólk ber örveru-heilsu- drykkinn Vita Biosa hvað hæst, en hann er mjólkursýru- gerjaður jurtadrykk- ur, sem kemur jafn- vægi á þarma og meltingarkerfið sem og almennu jafnvægi á líkamann í heild sinni, að sögn Hildar og Guðjóns, sem bæta því við að í jurta- blöndunni sé m.a. að finna anísjurt, basil- íkum, grikkjasmára, dill, eini, fenniku, ylli, engifer, hvönn, kerfil, lakkrísrót, oreganó, piparmintu, stein- selju, kamillu, rósm- arín, salvíu, brenni- netlu og timían. „Allar jurtirnar og plöntuhlutarnir hafa verið notaðar um aldir í alþýðulækn- ingum. Jurtirnar hafa allar sem heild jákvæða verkun á melting- arfærin og sjá líkamanum enn fremur fyrir gagnlegum efnum, sem sporna gegn öldrun og draga úr myndun sindurefna, sem eru skaðleg fyrir líkamann og geta or- sakað sjúkdóma.“ Sem stendur er nú unnið að því að koma vörunum í sem flestar verslanir, en Vita Biosa-jurta- drykkurinn fæst nú í apótekum Lyfju auk þess sem hann er hægt að nálgast í Heilsuhorninu á Ak- ureyri og Siglufjarðarapóteki. Nýja fyrirtækið Lífskraftur hefur komið sér upp heimasíðu með vef- fanginu: http://www.lifskraftur.is. Netfang fyrirtækisins er: biosais- land@lifskraftur.is „Lífsuppbyggj- andi og án eiturefna“ Lífskraftur ehf. flytur inn danskt fæðubótarefni Vita Biosa-fæðubót- ardrykkurinn. NÚ síðustu daga hefur flokkur manna verið að skera hvannarfræ af ætihvönn í Mýrdalnum, en þar er ein- mitt mikið af hvönn á því landi sem er friðað fyrir sauðfé á vorin. Fræið á að nota í heilsulyfið Angelica. Það er fyrirtækið Saga Medica sem framleiðir jurtaveigina. Þráinn Þor- valdsson, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, segist stefna á að safna að lágmarki einu tonni af fullþurrkuðum hvannarfræjum á þessu hausti, safn- að hefur verið á Suðurlandi en þar er hvönnin fyrst til að þroska fræ en til að ná einu tonni af þurru fræi þarf 5 til 6 tonn af ferskum hvannarhausum þannig að það er töluverð vinna að ná þessu fræmagni, fræið er síðan þurrkað og þreskt á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Hvannarfræs- söfnun í full- um gangi Fagradal. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Þráinn Þorvaldsson fram- kvæmdastjóri sker hvannarfræ sunnan undir Hjörleifshöfða. MUAMMAR Gaddafi, forseti Líb- ýu, fullyrti um helgina að ásakanir um að Líbýa væri eitt hinna svo- kölluðu „útlagaríkja“ ættu ekki lengur við. Sagði hann að Líb- ýustjórn myndi framvegis leita eftir friðsamlegum samskiptum við Bandaríkin og Ísrael innan vé- banda Afríkusambandsins. Þá sagði Gaddafi að yfirvöld í Líbýu hefðu handtekið nokkra íslamska öfgamenn, sem grunaðir væru um tengsl við al-Qaeda-hryðjuverka- samtökin. Ummæli Gaddafis um helgina þóttu um margt athyglisverð. Tók hann af öll tvímæli um að hann vildi bæta samskipti Bandaríkj- anna og Líbýu til muna, en Líbýa er enn á lista þeirra fyrrnefndu yfir ríki sem sögð eru styðja við bak hryðjuverkamanna. „Menn kölluðu okkur útlagaríki í gamla daga,“ sagði Gaddafi. „Þær ásakanir voru réttar. Í gamla daga vorum við byltingar- sinnaðir […] Við fórum okkar fram einir og sér og höfum þurft að taka afleiðingum gjörða okk- ar.“ Var Gaddafi hér að vísa til þess að Líbýumenn voru jafnan litnir nokkru hornauga á áttunda og ní- unda áratugnum fyrir að skjóta skjólshúsi yfir ýmis hryðjuverka- samtök. Þá hefur Líbýustjórn ver- ið sökuð um að hafa átt þátt í Lockerbie-sprengjutilræðinu árið 1988, sem kostaði 270 manns lífið. Gaddafi sagði hins vegar á laug- ardag að framvegis myndu líbýsk stjórnvöld hegða sér í samræmi við þá stefnu sem Afríkusamband- ið mótaði. „Við erum ekki lengur svarti sauðurinn í Afríkusam- bandinu. Ásakanir á hendur okkur eiga ekki lengur við,“ sagði hann. Fá sömu meðferð og fangarnir á Kúbu Nokkur þúsund manns fylgdust með ræðu Gaddafis, sem haldin var í tilefni þess að 33 ár voru lið- in síðan hann komst til valda í Líbýu. Var ræðunni jafnframt sjónvarpað beint í Líbýu en hún var um tveggja klukkustunda löng. Gaddafi hefur áður lýst sig reiðubúinn til að taka þátt í bar- áttu Bandaríkjamanna gegn al- þjóðlegum hryðjuverkum. Hann hefur hins vegar ekki áður greint frá því að menn, sem taldir eru tengjast al-Qaeda, hafi verið handteknir. Gaddafi sagði ekki hversu margir hefðu verið hnepptir í varðhald en lét þess getið að þeir myndu fá sömu meðferð og fang- arnir sem Bandaríkjamenn geyma í Guantanamo-herstöðinni á Kúbu. Varar við árás á Írak Gaddafi réð Bandaríkjamönn- um frá því að ráðast á Írak. Af- leiðing slíkrar herfarar yrði sú að Írak yrði nýtt Afganistan. „Það er betra fyrir þá að Saddam Hussein ráði þar ríkjum. Stjórn hans er sterk og kemur í veg fyrir að ísl- amskir bókstafstrúarmenn taki völdin,“ sagði hann. Þá sagði Gaddafi að árás á Írak myndi gefa Osama bin Laden, leiðtoga al-Qaeda, tækifæri til að réttlæta hryðjuverk sín. Ítrekaði hann fyrri ummæli sín um að árásin á New York og Wash- ington hefði verið „hroðalegur“ verknaður. Hann hvatti hins veg- ar Bandaríkin og Bretland til að breyta afstöðu sinni til araba og múslima. „Ef þið Bandaríkjamenn og Bretar haldið áfram að ögra múslimum munuð þið sjá eftir því,“ sagði Muammar Gaddafi. Líbýa ekki lengur eitt af „útlagaríkjunum“ AP Líbýumenn fögnuðu því um helgina að 33 ár voru liðin frá því að Muammar Gaddafi komst til valda. Líbýa var áður konungdæmi. Kaíró. AP. Muammar Gadd- afi segist vilja vinsamleg sam- skipti við Banda- ríkin og Ísrael ERLENT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.