Morgunblaðið - 14.09.2002, Qupperneq 13
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 13
AKUREYRI
NÍU listamenn sem kalla sig Nýja
september-hópinn opna í dag, á
laugardag 14. september kl. 14,
sýningu á ljósmyndum, mál-
verkum og skúlptúrum í Ketilhús-
inu undir yfirskriftinni „Með ólík-
indum“.
Sýningin er sjónrænt þversnið
þar sem sundurleitni er hærra
skrifuð en samleitni. Stefnuleysið
er hér viljandi, óreiðan að yf-
irlögðu ráði. Verkin eiga þó sam-
eiginlega myndræna ögun, þar
sem miðillinn fær að njóta sín til
fulls, segir í frétt um sýninguna.
Listamennirnir í Nýja sept-
ember-hópnum eru:
Auður Sturludóttir,
Birgir Rafn Friðriksson
Finnbogi Marinósson,
Jóhannes Dagsson, Nói (Jóhann
Ingimarsson), Ólafur Sveinsson,
Ragnhildur Magnúsdóttir,
Sunna Sigfríðardóttir og
Sigurveig Sigurðardóttir
Sýningin stendur til 29. sept-
ember. Opið er alla daga nema
mánudaga, frá kl. 13.–17.
Finnbogi Marinósson ljósmyndari er einn félaga í Nýja september-hópnum.
„Með ólíkindum“
í Ketilhúsinu
KÁRI Eiríksson listmálari heim-
sækir Akureyri í þriðja sinn með
sýningu sem opnuð verður á morg-
un, laugardaginn 14. september, kl.
15 í Gallerí Gersemi í Parísarhús-
inu við Hafnarstræti.
Fyrsta sýning Kára á Akureyri
var árið 1968 í húsi við Gránu-
félagsgötu 9, en það hefur nú fyrir
löngu verið rifið. Gallerí Gersemi
er á annarri hæð í Parísarhúsinu
svonefnda. Þar mun Kári sýna 24
stór olíumálverk auk þess sem þar
verður einnig að finna málverka-
bók Kára sem út kom fyrir 30 ár-
um.
Kári nam við Handíða- og mynd-
listaskóla Íslands, Konunglegu
listaakademíuna í Kaupmannahöfn,
Listaakademíuna í Florens auk
þess sem hann var við nám og list-
sköpun um eins árs skeið í Mexíkó-
borg og New York.
Fyrsta sýning hans var í húsi
Dantes í Flórens árið 1958, en hér
heima sýndi hann fyrst í Lista-
mannaskálanum í Reykjavík næsta
ár á eftir, 1959.
Í frétt um sýninguna segir að
hér sé á ferðinni listamaður með
langa og litríka sögu að baki og því
verði forvitnilegt að slást með í för
um sali gallerísins og njóta ávaxt-
anna af löngu ævistarfi hans.
Kári Eiríksson
sýnir í Gersemi
VETRARSTARF Hjálpræðishers-
ins á Akureyri hefst á morgun,
sunnudaginn 15. september.
Barna- og unglingastarf Hjálpræð-
ishersins hefur verið í miklum
blóma undanfarin ár og hafa að
jafnaði um eitt hundrað börn og
unglingar sótt fundi í viku hverri.
Sunnudagaskóli verður kl. 11 á
sunnudögum, á mánudögum kl.
17.15 verða fundir sem kallast
„Örkin hans Nóa“ og eru ætlaðir
krökkum í 1. til 3. bekk og sama
dag eru fundir fyrir krakka í 6. til
7. bekk sem kallast „Mannakorn“.
Á fimmtudögum kl. 17.15 er
Krakkaklúbbur en hann er fyrir
börn í 4. til 5. bekk. Unglingar
koma svo saman á fimmtudags-
kvöldum kl. 20.
Áhersla er lögð á létta og
skemmtilega dagskrá, farið verður
í leiki og þrautir, sungið og leik-
þættir æfðir auk þess sem börnin
fá kennslu í grundvallaratriðum
kristinnar trúar. Þátttaka í barna-
og unglingastarfi Hjálpræðishers-
ins er öllum að kostnaðarlausu og
þangað eru allir velkomnir segir í
frétt frá Hjálpræðishernum.
Vetrarstarf Hjálpræð-
ishersins að hefjast
HREPPSNEFND Vatnsleysu-
strandarhrepps hefur hafnað umsókn
myndbandaleigu um leyfi til reksturs
í bílgeymslu við íbúðargötu. Eigendur
leigunnar eru ósáttir við niðurstöð-
una, hafa nú breytt henni í mynd-
bandaklúbb og halda rekstrinum
áfram í því formi. Fulltrúi minnihluta
hreppsnefndar hefur skotið málinu til
félagsmálaráðuneytis og úrskurðar-
nefndar skipulags- og byggingamála.
Halldór Ármannsson og Bentína
Jónsdóttir settu upp myndbandaleigu
í forstofuherbergi í íbúðarhúsi sínu í
Aragerði 16 í Vogum í júlímánuði.
Þeim var bent á að þau þyrftu að
sækja um leyfi til bygginganefndar
og gerðu það í lok mánaðarins. Um-
sóknin var send í grenndarkynningu
og fyrr í þessari viku hafnaði meiri-
hluti skipulags- og bygginganefndar
umsókninni. Tveir af fulltrúuum
meirihlutans töldu að starfsemin
samrýmdist ekki íbúðarbyggð, sam-
kvæmt skipulagsreglugerð, meðal
annars vegna ónæðis af umferð og
skorts á bílastæðum og sá þriðji vísaði
til athugasemda sem fram komu frá
íbúum í nágrenninu.
Samkeppni lækkar verðið
Hreppsnefnd hefur nú staðfest nið-
urstöðuna með þremur atkvæðum H-
listans sem hafa hreinan meirihluta í
hreppsnefnd, gegn einu atkvæði.
Annar fulltrúi minnihlutans sat hjá
við afgreiðsluna. Báðir fulltrúar
minnihlutans töldu sig þurfa meiri
tíma til að skoða málið og fóru fram á
frestun en því var hafnað. Fundur
bygginganefndar var kvöldið fyrir
fund hreppsnefndar.
Jón Gunnarsson oddviti segir að
farið hafi verið yfir málið af fagnefnd
og hún komi með rökstudda niður-
stöðu um að ekki sé heimilt að leyfa
starfsemina á þessum stað. Hrepps-
nefnd hafi staðfest það enda segist
hann ekki hafa forsendur til að ganga
gegn niðurstöðu sem þannig sé feng-
in. Tekur oddvitinn þó fram að hann
hefði gjarnan viljað hafa samkeppni í
starfsemi myndbandaleiga í Vogum,
það leiði til lækkunar verðs, en starf-
semin verði þá að vera á svæði þar
sem gert væri ráð fyrir þjónustustarf-
semi af þessu tagi.
Halldór Ármannsson, annar eig-
andi myndbandaleigunnar í Aragerði,
sagði að tilkoma fyrirtækisins hefði
strax haft mikil áhrif á markaðinn.
Þau hafi leigt spólurnar út á 400 krón-
ur og látið aðra fylgja með frítt, eins
og algengt væri á höfuðborgarsvæð-
inu. Sú myndbandaleiga sem fyrir var
á staðnum hafi verið með 500 krónur
en lækkað sig strax niður í 250 kr. Í
báðum tilvikum væri annað frítt
myndband innifalið. Eftir að þeirra
umsókn var hafnað hafi hin leigan
strax hækkað leiguna til fyrra horfs.
Halldór segist ósáttur við niður-
stöðu hreppsnefndar, hann geti ekki
látið vaða svona yfir sig. Því hafi þau
breytt um rekstrarform og reki nú
myndbandaklúbb heima hjá sér. Fólk
verði að ganga í klúbbinn til að fá
myndbönd. Telur hann að sú starf-
semi sé ekki leyfisskyld. Hann getur
þess að allir sem komi til að ná í spól-
ur skrifi undir mótmæli gegn ákvörð-
un hreppsnefndar og séu 70 búnir að
undirrita.
Halldóra Magný Baldursdóttir
greiddi atkvæði á móti ákvörðun
meirihluta hreppsnefndar. Hún telur
að afgreiðslan feli í sér grófa mismun-
um milli íbúa og vísar í því efni til þess
að á sama fundi var samþykkt um-
sókn um rekstur á rafverkstæði í
sömu götu og myndbandaleigan er.
Einnig til þess að ýmis rekstur sé án
leyfa í heimahúsum á staðnum og að
myndbandaleiga og verslun hafi verið
í bílskúr í íbúðarhverfi til skamms
tíma, með fullu leyfi. Segir Halldóra
að fólk komi mest gangandi og á hjól-
um í myndbandaleiguna en telur lík-
legra að viðskiptavinir rafverkstæð-
isins þurfi að nota bíla. Hún hefur
óskað eftir úrskurði félagsmálaráðu-
neytisins og úrskurðarnefndar skipu-
lags- og byggingamála vegna málsins.
Reka leiguna áfram
sem myndbandaklúbb
Vogar
Deilur um rekstur myndbandaleigu í íbúðargötu
„MEÐ áframhaldandi samvinnu og
öflugu átaki verður Reykjanesið orð-
ið stórveldi í þjónustu við ferðamenn,
innan ekki svo margra ára,“ sagði
Hallgrímur Bogason, formaður Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum
(SSS), þegar hann flutti skýrslu
stjórnar á aðalfundi sambandsins í
gær. Auk skýrslu stjórnar og af-
greiðslu reikninga voru lagðar fyrir
fundinn ýmsar ályktanir. Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra ávarpaði
fundarmenn og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, sagði frá und-
irbúningi mála fyrir komandi
landsþing. Fundinum lýkur í dag.
Samvinna nauðsynleg
Hallgrímur Bogason gerði ferða-
mál að sérstöku umfjöllunarefni í
skýrslu sinni. Gat hann þess að fyrir
25 árum hefði verið viðburður að sjá
ferðamenn í Grindavík enda íbúarnir
ekki talið þetta svæði henta fyrir
heimsóknir þeirra. Sagði Hallgrímur
að þetta hefði breyst með árunum.
Uppbygging á þessu sviði hefði verið
hröð og örugg hin síðari ár og sveit-
arstjórnarmenn sýnt skilning á mik-
ilvægi þess að byggja upp nýja at-
vinnugrein á svæðinu. „En í þessum
málaflokki sem og svo mörgum öðr-
um er samvinna sveitarfélaganna
nauðsynleg ætlum við að ná hámarks-
árangri. Það er nefnilega ákjósan-
legra að skipta með sér verkum en að
margir séu að vinna að því sama,“
sagði Hallgrímur. Nefndi hann í því
sambandi stórhuga uppbyggingu í
safnamálum og að fyrirliggjandi hug-
myndir þar um gæfu bjarta von um
rétta leið þar sem sveitarfélögin væru
öll á sitt hverju sviðinu í þessu efni.
Með áframhaldandi samvinnu og öfl-
ugu átaki verði Reykjanesið orðið að
stórveldi í þjónustu við ferðamenn
innan ekki svo margra ára.
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fjórir af fulltrúum Reykjanesbæjar á aðalfundi SSS, f.v. Skúli Þ. Skúla-
son, Björg Guðjónsdóttir, formaður bæjarstjórnar, Sigríður Jóna Jó-
hannesdóttir og Kjartan Már Kjartansson.
Grindavík
Verði stórveldi
í ferðaþjónustu
ÁÆTLAÐ er að sveitarfélögin í
landinu verði af um einum milljarði
króna í útsvarstekjum í ár vegna
breytinga á einkarekstri yfir í einka-
hlutafélög.
Á aðalfundi Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum liggur fyrir til-
laga um áskorun á Samband ís-
lenskra sveitarfélaga um að könnuð
verði til hlítar áhrif breytinga á lög-
um um einkahlutafélög á tekjur
sveitarfélaga og teknar upp viðræður
við ríkisvaldið um að sveitarfélögum
verði bættur tekjumissirinn. Af
þessu tilefni lét Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, þess getið að á
síðasta ári hefðu verið stofnuð 1.800
ný einkahlutafélög og í ár stefndi í að
3.800 bæst við. Sagðist Vilhjálmur
ekki áfellast menn fyrir að breyta
rekstrarformi sínu með þessum
hætti, það hentaði hagsmunum
þeirra. Það hefði hins vegar áhrif á
tekjur sveitarfélaganna. Áætlað væri
að þau töpuðu einum milljarði króna í
ár vegna þessarar breytingar. Ríkið
tapaði hins vegar litlu.
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, sagði að það ætti að styrkja
búsetu manna til frambúðar í byggð-
arlögunum þegar einyrkjar breyttu
rekstri í einkahlutafélög og skattar
þeirra lækkuðu. Hins vegar sagðist
hann hafa séð sláandi tölur um áhrif
slíks á tekjur einstakra sveitarfélaga,
ekki síst þar sem atvinnulíf byggðist
á útgerð krókabáta, og nefndi Bol-
ungarvík sem dæmi um það.
Vilhjálmur lét það álit í ljósi að já-
kvæð áhrif af umræddri formbreyt-
ingu á rekstri á fjárhag sveitarfélag-
anna væri aðeins brot af þeim tekjum
sem þau töpuðu.
Tapa milljarði á stofn-
un einkahlutafélaga
NÁMSKRÁ vetrarins hjá Sí-
menntun Háskólans á Akureyri er
komin út og verður henni dreift í
hús í þéttbýli frá Ólafsfirði til
Húsavíkur. Einnig er hún aðgengi-
leg á Netinu frá heimasíðu Háskól-
ans á slóðinni www.unak.is.
Við skipulagningu námskeið-
anna var höfð samvinna við fjölda
einstaklinga í atvinnulífinu og fé-
lagasamtökum og ýmsar fræðslu-
stofnanir sem annast fullorðins-
fræðslu.
Í námskrá vetrarins eru 45 nám-
skeið í boði og stjórnunarnám;
Stjórnendur framtíðarinnar, í sam-
starfi við IMG. Yfir 100 kennarar
koma að kennslu á námskeiðunum
og koma þeir því víða að, en áhersla
hefur verið lögð á að fá sérfræð-
inga á hverju sviði til kennslunnar.
Flest námskeiðanna eru á
fræðasviðum Háskólans sem
tengjast heilbrigðisvísindum, upp-
eldis- og kennslufræði, stjórnun,
fjármálum og rekstri en einnig eru
tungumálanámskeið fyrirferðar-
mikil. Þá er boðið upp á námskeið
um efni sem verið hafa mikið í þjóð-
málaumræðunni og má þar nefna
hálendi Íslands, jafnréttismál og
siðferðileg álitamál.
Símenntun Háskólans á Akureyri
Námskráin komin út