Morgunblaðið - 19.09.2002, Síða 27

Morgunblaðið - 19.09.2002, Síða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002 27 FIMMTUDAGSTILBOÐ DÖMUSANDALAR Suðurlandsbraut Sími 533 3109 Opið mán.-fös. kl. 12-18 laugardaga kl. 10-16 Teg: EUR203327 Litur: Svart Str: 36 - 41 Verð nú 2.995 Verð áður 4.995 ALLIR AÐRIR SKÓR MEÐ 30% AFSLÆTTI BANGLADESH-danski lista- maðurinn Ruhul Amin Kajol sýnir nú götulistaverk á bílastæði við Norræna húsið og teikningar og skissur í anddyri þess. Eftir tilurð Pakistan var ákveðið að landsmál þar yrði urdu. Í aust- urhluta Pakistan, nú Bangladesh, töluðu um 95% landsmanna bangla. Í kringum þetta byggðist upp mót- mælahreyfing sem barðist fyrir rétti sínum til að tala bangla sem þykir með afbrigðum blæbrigðaríkt tungumál. Bangla á sér ríka hefð og er sjöunda mest talaða tungumál í heiminum. 21. febrúar 1952 voru fimm manns skotnir í þessari bar- áttu. Þeim var reist minnismerki og í lok fimmta áratugarins varð það að hefð að 21. febrúar voru málað götumálverk í minningu þeirra á strætin umhverfis minnismerkið. Máluð voru þjóðleg munstur í hvít- um lit. Kajol er fæddur 1956 og hefur því sennilega ekki tekið þátt í þessum mótmælum á sínum tíma, en eigi að síður eru götulistaverk hans sem ávallt eru máluð á götuna sjálfa, rakin aftur til þessara at- burða. Í rúman áratug hefur Kajol mál- að verk sín á götur í ýmsum lönd- um en hann er nú búsettur í Dan- mörku. Verk hans virðast snúast um frelsisbaráttu, baráttuna fyrir hlutverki fegurðar, lista, lita, gleði, hamingju í samfélaginu. Staðsetn- ing þeirra á götunni, undir fótum okkar, sendir þau skilaboð að listin eigi ekki að vera í háum höllum og lokuðum sölum, heldur mitt á meðal okkar. Kajol málar einnig málverk sem sýnd eru í hefðbundnum lista- sölum en götulistaverkin virðast leika mikilvægara hlutverk í list hans. Hér sem oftar stöndum við frammi fyrir þessari eilífu spurn- ingu um hvernig við eigum að fara að því að gera listina hluta af lífi okkar allra. Margir listamenn reyna á allan hátt að ná til almenn- ings, með því að setja list sína upp í opinberu rými, á götum úti, eða með því að einfalda verk sín, gera þau aðgengileg og öllum skiljanleg. Aðrir kjósa frekar að skapa lista- verk sem tengjast þróun listasög- unnar eða fela í sér afstöðu eða ádeilu. Þeir skapa þá gjarnan verk sem eru aðeins skiljanleg þeim sem þekkja listasöguna eða lögmál list- heimsins og reyna ekki endilega að ná til fjöldans. Ruhul Amin Kajol en einn þeirra listamanna sem kýs að vinna ein- föld verk sem allir skilja. Götu- listaverk hans eru hvorki flókin né valda þau miklum heilabrotum. Þau geta í besta falli verið góðlátleg áminning til okkar sem alltaf horf- um niður í götuna og gleymum að líta upp og sjá fegurð lífsins í kringum okkur. Hann fær börn og fullorðna til liðs við sig við útfærslu verkanna en hlutverk þeirra virðist þó takmarkast við að fylla út í fyr- irfram ákveðna litafleti frekar en að vera beinlínis skapandi. Á endanum hafa þó allir tekið þátt í ákveðnu listrænu ferli. Ég kemst ekki hjá því að bera saman verk Kajol og amerísku listakonunnar Holly Hughes sem unnið hefur hér á landi í rúmt ár. Í starfi sínu virkjar hún íbúa smárra samfélaga til listsköpunar og um- hugsunar um umhverfi sitt, með það að markmiði að koma auga á kosti umhverfisins. Verk Hughes koma fyrst og fremst til móts við fólkið sjálft, umhverfi þess og hug- arheim. Verkin verða til í raunveru- legri samvinnu þar sem allir aðilar eru skapandi afl, verkin verða ekki til án fólksins, staðarins, sögunnar. Þótt það sé jákvætt í sjálfu sér að reyna að vinna list sína fyrir og með öllum almenningi og götulista- verk Kajols lífgi sannarlega upp á bílastæðið við Norræna húsið og komi vegfarendum á óvart nær það samt ekki mikið lengra en að vera skreytilist. Myndefni þess tengist ekki umhverfi sínu þótt það sé unn- ið á staðnum og í samstarfi við ís- lensk börn. Það er kannski ástæðan fyrir því að verkið nær ekki að verða mikið meira en tímabundið skraut, það nær ekki að tengjast umhverfinu á sterkan hátt heldur minnir á litríkt fiðrildi sem hefur slæðst hingað óvart. Það lífgar upp á tilveruna, sem er góðra gjalda vert, en ristir ekki djúpt. Sumargestur á bílastæði MYNDLIST Norræna húsið, bílastæði og anddyri Til 22. september. Anddyri Norræna hússins er opið mán. til lau. frá kl. 8-17 en sunnudaga frá kl. 12-17. GÖTUMÁLVERK OG SKISSUR, RUHUL AMIN KAJOL Ragna Sigurðardóttir Götumálverk Ruhul Amin Kajol á bílastæði Norræna hússins. Í HÚSI málaranna á Eiðistorgi hjalda listakonurnar Rúna Gísladóttir og Messíana Tómasdóttir tvær að- skildar sýningar. Báðar hafa listakon- urnar verið bæjarlistamenn Seltjarn- arness, Rúna árið 2000 og Messíana árið 2001. Rúna Gísladóttir sýnir olíumál- verk, flest byggð á fantasíulandslagi þar sem himinn, fjöll og vatn úr ólíku landslagi blandast saman á einum myndfleti. Landslagið er því nokkuð furðulegt á að líta, en þar sem lista- konan brýtur lítið upp með mismun- andi áferð og heldur sig við samskon- ar efnistök, þ.e. lausa pensildrætti, sætta augun sig fljótlega við óvenju- legt samspil landslagsformanna. Í yfirsetuherberginu sýnir Rúna smáar klippimyndir (collage) sem landslagsmálverkin virðast spunnin út frá. Einnig sýnir hún málverk af flöskum sem hún hefur unnið eftir teikningum 6 ára barna. Oft á tíðum heldur hún myndefni sínu innan af- markaðs svæðis á fletinum, þ.e. að formin flæða ekki út í jaðarinn, og málar ramma umhverfis þau líkt og Jóhannes Jóhannesson gerði í mörg- um af abstraktmálverkum sínum. Sýna myndirnar hugmyndaheim listakonunnar frekar en eftirmyndir af landslagi, eða eins og breski teikn- arinn James Jeffreys sagði á átjándu öldinni þegar hann var skammaður fyrir að hafa hlutföll í ójafnvægi, „Myndir mínar eru ekki eftirlíkingar (imatative), þær eru skapandi (creat- ive)“. Verk Messíönu Tómasdóttur eru af allt öðrum toga en Rúnu og reyndar ólík því sem hingað til hefur verið til sýnis í Húsi málaranna. Eru það ein- litir (mónókróm) skúlptúrar, míni- malískir útlits, sem krefjast meiri rýmishugsunar að hálfu listamanns en í hefðbundinni málaralist. Mess- íana leggur út með rauðan lit og túlk- ar hann á þrjá vegu, sem dyggðir, dauðasyndir og vatn lífsins. Verkin eru abstrakt, smíðuð í plexígler og byggjast á hringformi og einfaldri litafræði þar sem rauður litur hverfur í litleysur. „Dyggðirnar“ eru eina veggverkið. Það eru þrjú hringform sem hanga samhliða á vegg, eitt blóð- rautt sem lýsist svo í bleikt og hverfur að lokum í hvítt eða tómt. „Dauða- syndirnar sjö“ sýnir Messíana í sjö mjóum rörum sem síga úr lofti niður á gólf frá blóðrauðu yfir í svart eða myrkt. Vatn lífsins setur hún fram í súlulaga vösum á gólfinu. Er vatn í vösunum bætt með rauðu litarefni sem hverfur að lokum í glært eða tært. Síðasti vasinn eða súlan stendur utan sýningarrýmisins og beinir þannig athygli að innanhúsarkítekt- úrnum á Eiðistorgi, en þar standa rauðar burðarsúlur. Verkið dregur því umhverfið inn í sýningarrýmið og svo öfugt. Ekki er ég sannfærður um að einföld mínimalísk útfærslan skili því biblíulega þema sem Messíana tengir rauða litnum. Standa verkin prýðilega sem óhlutbundin rýmisverk þar sem sýningargestur getur upplif- að þau eftir eigin tilfinningu fyrir formum, lit og rými. Ólíkir heimar MYNDLIST Hús málaranna Sýningin er opin á fimmtudögum til sunnudags frá kl. 14–18 og lýkur 22. september. MÁLVERK OG SKÚLPTÚR RÚNA GÍSLADÓTTIR OG MESSÍANA TÓMASDÓTTIR Jón B.K. Ransu Málverk Rúnu Gísladóttur, „Hrimhvíta móðir“. „Dauðasyndirnar sjö“ í túlkun Messíönu Tómasdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.