Morgunblaðið - 19.09.2002, Page 29
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002 29
Á SÍÐASTA vefriti
fjármálaráðuneytisins
um mánaðamótin eru
settar fram tölur um
opinber framlög til
heilbrigðismála. Þar
kemur fram að fram-
lögin séu hæst á Íslandi
þegar borin eru saman
OECD-lönd. Enda þótt
Ísland sé meðal þeirra
hæstu kemur þetta
ekki heim og saman við
þær upplýsingar sem
LSH hefur lagt fram á
fundum í nefndum Al-
þingis undanfarna
daga. Skýringin virðist
e.t.v. liggja í því að út-
reikningar í vefritinu taki hluta af fé-
lagslegri þjónustu, svo sem við aldr-
aða, inn í sínar forsendur. Þá er
einnig rétt að benda á að margar
leiðir eru til að bera saman útgjöld af
þessu tagi milli landa og virðist sjón-
arhorn vefritsins vera óhagstæðara
Íslendingum en flest önnur sem
koma til álita. Á þessu þarf því að
fást nánari skýring, m.a. vegna þess
að tölur úr vefritinu hafa verið gerð-
ar að fréttaefni á Stöð 2 og víðar og
ýmsir hafa orðið til þess að vitna í
þessar tölur þegar rætt er um fjár-
framlög og fjárskort í heilbrigðis-
málum.
Fleiri skýringar kunna að vera á
þessu. Samanburður á kostnaði milli
landa er mjög erfiður og því verður
að vara við því að tölum sé slengt inn
í umræðuna án þess að fyrirvörum
sé skýrt haldið til haga og að öðru
leyti reynt að gæta jafnvægis í allri
framsetningu. OECD gefur út mikið
talnaefni um heilbrigðismál og hefur
einmitt nýlega kynnt
nýja útgáfu, OECD
Health Data 2000.
Þetta efni geta menn
skoðað með því að fara
inn á heimasíðu OECD:
www.oecd.org. Algeng-
ast er að bera saman
heilsuútgjöld milli
landa sem hlutfall af
landsframleiðslu og er
þetta gert í töflu 1 í
fréttatilkynningu
OECD. Þar kemur
fram að við erum
nokkru fyrir ofan með-
altal á þennan mæli-
kvarða en alllangt frá
toppnum eins og þekkt
hefur verið meðal þeirra sem fylgst
hafa með þessum málaflokki. Árið
1998 er umrætt hlutfall t.d. 8,3% bor-
ið saman við slétt 8% að meðaltali í
OECD. Árið 2000 hefur hlutfallið
reyndar hækkað í 8,9% meðan með-
altalið hefur haldist óbreytt. Þótt
hækkunin hafi verið þetta mikil eru
enn fimm lönd með meiri útgjöld til
heilbrigðismála en Ísland; Bandarík-
in, Sviss, Kanada, Þýskaland og
Frakkland.
Mikil hækkun hlutfallsins á árinu
2000 vekur reyndar grunsemdir um
að eitthvað óvenjulegt hafi verið á
ferðinni á því ári. Er hugsanlegt að
villa hafi slæðst inn í flokkun útgjald-
anna, sbr. það sem nefnt var hér á
undan, eða gæti óvenjulega sterk
staða krónunnar á þessu ári leikið
hér eitthvert hlutverk? Þetta þarf að
brjóta til mergjar á yfirvegaðan hátt
áður en því er slegið föstu að við
séum efst á lista OECD-þjóða yfir
eyðslusemi á heilbrigðissviðinu.
Einnig vekur athygli í áðurnefndri
töflu að raunútgjöld til heilbrigðis-
mála á mann hér á landi hafa aukist
hægar að jafnaði undanfarin tíu ár
en að meðaltali í OECD. Þannig juk-
ust útgjöldin á Íslandi um 2,9% að
meðaltali á árabilinu 1990–2000 í
stað 3,3% í OECD. Þetta stangast
nokkuð á við efni í síðari hluta grein-
arinnar í vefritinu. Fyrir vikið er
ástæða til að óska eftir vandaðri
greinargerð um þennan samanburð
þar sem leitast er við að skoða og
greina slíkar samanburðartölur frá
öllum hliðum.
Sterkar raddir heyrast nú í þjóð-
félaginu um að við eigum að auka
framlög okkar til sjúkrahúsanna,
dvalar- og hjúkrunarheimila, heilsu-
gæslunnar o.fl. Margir vilja gera
slíkt með breyttri forgangsröðun og
telja að heilsa, hjúkrun og lækningar
borgaranna eigi að hafa forgang um-
fram ýmsar aðrar framkvæmdir og
þjónustu ríkisins. Þá er gjarnan
gripið til samanburðar við önnur
lönd. Áreiðanlegar tölur sem byggð-
ar eru á sambærilegum forsendum
eru höfuðnauðsyn í þeirri umræðu.
Ólafur Örn
Haraldsson
Heilbrigðismál
Samanburður á kostn-
aði milli landa, segir
Ólafur Örn Haraldsson,
er mjög erfiður.
Höfundur er þingmaður
Framsóknarflokksins.
Misvísandi tölur
um fjárframlög
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Fullkomnaðu
verkið
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
Söluaðilar um land allt
Mörkinni 3, sími 588 0460
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Húsgögn
Sérpantanir
Toppárangur
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Söluaðilar um land allt
?GæðiáNettov
e
rð
i.
..
ASKALIND 3, KÓP., SÍMI: 562 1500
AÐ GLÆSILEGU DÖNSKU
VISSIR ÞÚ
fást aðeins hjá okkur og kosta
minna en þig grunar!
I N N R É T T I N G A R N A R
OG FULLKOMNU ÍTÖLSKU
E L D U N A R T Æ K I N