Morgunblaðið - 19.09.2002, Side 44

Morgunblaðið - 19.09.2002, Side 44
KIRKJUSTARF 44 FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞÁ ER vetrarstarf Hafnarfjarð- arkirkju hafið og er starfsemin fjöl- breytt og eykst ár frá ári og starfs- fólk hennar og sóknarnefnd leitast við að bjóða upp á eitthvað við allra hæfi. Tímamót í starfi. Hinn 1. september síðastliðinn lét Natalía Chow af störfum sem org- anisti og kórstjóri kirkjunnar og í stað Natalíu hefur verið ráðin Ant- onia Hevesi. Hinn 1. september urðu einnig nokkrar breytingar hjá prestum Hafnarfjarðarkirkju. Sr. Gunnþór Ingason hélt þá í námsleyfi og mun hann dvelja við nám og rannsóknir í Wales á Bretlandseyjum fram á næsta sumar. Við störfum sem sókn- arprestur tók sr. Þórhallur Heim- isson, en sr. Þórhildur Ólafs mun starfa sem prestur kirkjunnar á vetri komanda. Foreldramorgnar. Á hverjum fimmtudagsmorgni hittast foreldrar ungbarna í safn- aðarheimilinu milli kl. 10 og 12 og eiga saman notalega stund. Er þessi starfsemi sérstaklega ætluð for- eldrum í fæðingarorlofi og öðrum sem eru heimavið með ungbörn. Barna- og unglingakórar. Helga Loftsdóttir stjórnar barna- og unglingakórum Hafnarfjarð- arkirkju. Barnakórinn æfir alla mánudaga frá 17–18 og unglinga- kórinn á fimmtudögum frá 17–19. Kórarnir syngja í öllum fjöl- skyldumessum, en líka á kóramótum bæði innan og utan bæjar. Átta til níu ára starf. Á fimmtudögum frá kl. 17–19 koma saman krakkar á aldrinum átta til níu ára í safnaðarheimilinu og eiga góða stund með leiðtogum sínum. Krakkarnir föndra, fara í leiki syngja og skemmta sér saman í góðra vina hópi og stundum er sleg- ið í pitsuveislu þegar tækifæri gefst til. Tíu til tólf ára starf. Á þriðjudögum frá kl. 17–19 er æskulýðsstarf fyrir tíu, ellefu og tólf árabörn í safnaðarheimilinu. Margt er gert sér til gamans eins og í átta til níu ára starfinu og eru allir krakkar á þessum aldri velkomnir. ÆSKÓ – Æskulýðsfélög Hafn- arfjarðarkirkju. Á vegum kirkjunnar hefur um árabil verið boðið upp á mikið og fjölbreytt æskulýðsstarf. Á þriðju- dögum frá 17–19 er sérstakt æsku- lýðsstarf ætlað fermingarbörn- unum. Sömu daga frá kl. 20–22 starfar æskulýðsfélag 14–16 ára krakka. Og einu sinni í viku, á sunnudagskvöldum, hittast 16–20 ára félagar í safnaðarheimilinu. Starfið er öllum opið. Það er alltaf líf og fjör í æskulýðsstarfinu. Sunnudagaskólar í kirkju og Hvaleyrarskóla. Sunnudagaskólinn er kominn á fulla ferð. Er hann haldinn um leið og almenn guðsþjónusta, og þá í safnaðarheimilinu kl 11. Koma börn- in fyrst með fullorðna fólkinu til kirkju, en undir fyrsta sálmi fara þau með leiðtogum sínum í safn- aðarsalinn. Þar eru sagðar sögur, farið í leiki, sungið og margt sér til gamans gert. Öll börn fá límmiða og safnmöppu. Eftir stundina er síðan hressing borin fram í safnaðarheim- ilinu. Á sama tíma er líka haldinn sunnudagaskóli í Hvaleyrarskóla. Einu sinni í mánuði er svo haldin fjölskylduguðsþjónusta þar sem báð- ir sunnudagaskólarnir sameinast í Hafnarfjarðarkirkju. Þá taka prest- arnir líka þátt og boðið er til veislu. Fermingarstarf. Fermingarstarfið hófst með guðs- þjónustu hinn 8. september. Kennt er alla daga vikunnar nema mið- vikudaga enda sækir mikill fjöldi fermingarbarna fræðsluna. Sr. Þór- hildur og sr. Þórhallur annast fræðsluna að venju. Undir lok sept- ember fara fermingarbörnin og prestarnir í sólahrings ferðalag í Vatnaskóg þar sem hópurinn hrist- ist vel saman. Börnin taka síðan þátt í safnaðarstarfinu í vetur að venju. Boðið er upp á æskulýðsstarf tengt fermingarbörnunum sérstaklega. Einnig verða haldnir fræðslufundir fyrir foreldra fermingarbarnanna þegar líður á haustið. Fræðslustarf. Fullorðinsfræðsla hefur alltaf ver- ið mikil á vegum Hafnarfjarð- arkirkju og fastur liður í vetr- arstarfinu. Í vetur verður haldið áfram með hjónanámskeiðin sem um 5.500 manns hafa tekið þátt í frá árinu 1996. Því miður er nú full- bókað á öll námskeið haustsins. Skráð verður á ný eftir áramót. Einnig verður boðið upp á fræðslu- námskeið um Biblíuna og kristna trú í október, og í nóvember verður haldið námskeið undir heitinu „Frá Móse til Múhammeðs“ í samvinnu við Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar. Sömuleiðis verða haldin margs kon- ar fræðslukvöld um fjölskylduna, vímuefnavandann og málefni ung- linga í tengslum við ferming- arstarfið. Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá kirkjuþjónum. Kvenfélag. Við kirkjuna er starfandi kven- félag sem heldur reglulega fundi yf- ir vetrartímann. Sigrún Sigurbjarts- dóttir formaður þess veitir upplýsingar um félagið í síma 555 1356. AA-fundir. Haldnir eru AA-fundir þrisvar í viku í safnaðarheimilinu, sunnudaga kl. 11–12, mánudaga kl. 20–21 og miðvikudaga kl. 20–21. Kyrrðarstundir. Kyrrðarstundir eru haldnar á miðvikudögum frá 12–12.30 í kirkj- unni eða kapellu safnaðarheimilis- ins. Eru þetta ákaflega gefandi stundir þar sem friður og næði gefst til að hlaða sjálfan sig í erli dagsins. Boðið er upp á léttan hádegisverð eftir stundina í góðum félagsskap. Kirkjukórinn. Kórinn æfir alla þriðjudaga frá kl. 20–22. Kórfélagar skiptast á að syngja í guðsþjónustum en einnig eru haldnir tónleikar bæði að hausti og vori. Farið er í æfingarbúðir og ferðalög, aðrir söfnuðir og kórar heimsóttir og auk þess er boðið upp á þjálfun í söng. Allir sem áhuga hafa á að taka þátt í starfi kórsins geta sett sig í samband við Antoniu Hevesi, organista og kórstjóra kirkj- unnar, í síma 864 2151. Sérstaklega er óskað eftir fleiri karlaröddum og altröddum. Poppmessur og gospelmessur. Einu sinni í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina eru haldnar guðs- þjónustur með óhefðbundnu sniði að kvöldi dags. Um er að ræða vísna- messur, poppguðsþjónustur, dæg- urlagamessur og goðpelguðsþjón- ustur. Fjölmargir listamenn koma að þessum stundum. Mikill fjöldi kirkjugesta hefur líka sótt þær í gegnum tíðina og yfirleitt er kirkjan sneisafull á þessum kvöldum. Hinn 6. október verður haldin popp- og dægurlagamessa þar sem Hjörtur Howser og hljómsveit annast söng og leik. Á kristniboðsdaginn, 10. nóvember, verður gospelmessa, en þá syngur kór kirkjunnar gospellög undir stjórn Antoniu Hevezi. Eftir gospelmessuna bjóða ferming- arbörn til kökuhlaðborðs sem er víð- frægt um Hafnarfjörð. Þessar mess- ur hefjast kl. 20.30. Sálgæsluviðtöl. Margt fólk sækir heim viðtalstíma presta Hafnarfjarðarkirkju. Veita prestarnir margs konar ráðgjöf og stuðning í málefnum sem snerta bæði einstaklinga og fjölskyldur. Öllum er frjálst að leita til prestanna og ekki er gert að skilyrði að menn séu í þjóðkirkjunni. Viðtalstímar prestanna eru: Sr. Þórhallur Heim- isson, sími 555-4166, farsími: 891- 7562. Mán.: kl. 13–14.30, þri.: kl. 11.30–13, mið.: kl. 10–11.30 og eftir samkomulagi. Sr. Þórhildur Ólafs, sími 555- 4166, farsími 694-8655. Mið.: kl. 17– 18.30, fim.: kl. 11.30–13, föst.: kl. 11.30–13 og eftir samkomulagi. Krýsuvíkurkirkja Hinn 13. október næstkomandi verður haldin guðsþjónusta í Krýsu- víkurkirkju. Slík guðsþjónusta hefur verið haldin reglulega á vori og hausti undanfarin ár. Prestur, org- anisti og kór frá Hafnarfjarð- arkirkju annast guðsþjónustuna. Í lok guðsþjónustunnar verður hin fagra altaristafla Krýsuvíkurkirkju eftir listmálarann Svein Björnsson tekin niður og flutt til Hafnarfjarð- arkirkju. Þar mun hún hafa vet- ursetu fram á komandi vor. Samvera eldri borgara í Laugarneskirkju NÚ hefjum við gönguna saman, eldri borgarar í Laugarneskirkju, og komum til okkar fyrsta fundar í dag kl. 14. Þar mun sr. Bolli Gústavsson, fyrrum vígslubiskup, lesa úr verkum sínum og rifja upp æviminningar. Að dagskrá lokinni er boðið upp á kaffi og meðlæti. Samverur eldri borgara eru í Laugarneskirkju ann- an hvern fimmtudag alla vetrarmán- uðina. Umsjón þeirra er í höndum þjónustuhóps safnaðarins, kirkju- varðar og sóknarprests. Verið vel- komin í gott og upplífgandi sam- félag. Vetrarstarf Hafnarfjarðarkirkju Morgunblaðið/Sverrir Hafnarfjarðarkirkja og Tónlistarskóli Hafnarfjarðar. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur. Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu, Lækjargötu 14a. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili að stundinni lokinni. Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg- unn kl. 10–12. Herdís Storgaard kemur og fræðir um öryggi barna heima fyrir. Allir for- eldrar velkomnir. Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel milli kl. 12 og 12.10. Að bænastund og altaris- göngu lokinni er léttur hádegisverður í safn- aðarheimilinu. Einfalt, fljótlegt og innihalds- ríkt. Fyrsta samvera eldri borgara á nýju starfsári kl. 14. Samveran er í umsjá þjón- usthóps Laugarneskirkju, kirkjuvarðar og sóknarprests. Að dagskrá lokinni er boðið upp á veitingar. Kynningarfundur kl. 20 um Alfa-námskeið. Námskeiðið stendur í 10 vikur og er í raun heimboð safnaðarins þar sem hverjum sem vill er boðið að koma, njóta skemmtilegs samfélags og fræðslu um kristna trú og tilgang lífsins. Upplýsing- ar gefur sóknarprestur í s. 820-8865. Allt fólk velkomið á kynningarfundinn án nokk- urra skilmála. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Neskirkja. Nedó – unglingaklúbbur. 8. bekkur kl. 17, 9. bekkur og eldri kl. 20. Svenni og Hans. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstu- dag kl. 10–12. Digraneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10– 12. Fyrsta samvera vetrarstarfsins. Bæna- stund kl. 12.10. Unglingakór Digranes- kirkju kl. 17–19. Fella- og Hólakirkja. Biblíu- og Helgistund í Gerðubergi kl. 10–12. Þorvaldur Halldórs- son kemur í heimsókn. Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10– 12. Fræðandi og skemmtilegar samveru- stundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Kirkjukrakkar fyrir börn 7–9 ára í Húsaskóla og Grafarvogskirkju kl. 17.30–18.30. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20–22. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30. Seljakirkja. Alfa-námskeið kl. 19. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 22. Ath. breyttan tíma. Gott er að ljúka deg- inum í kyrrð kirkjunnar og bera þar fram áhyggjur sínar og gleði. Bænarefnum má koma til presta kirkjunnar og djákna. Hressing í safnaðarheimilinu eftir stund- ina. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safnaðar- heimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl. 13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra með ung börn að koma saman í notalegu umhverfi og eiga skemmtilega samveru- stund. Barnastarf fyrir 10–12 ára börn í dag kl. 17. Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10– 12 ára kl. 16.30–18. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10 mömmumorgunn í Safnaðarheimilinu. Sr. Kristján Björnsson. Kl. 16 æfing hjá Litlum lærisveinum, hópur I. Kl. 17 æfing hjá Litlum lærisveinum, hópur II. Guðrún Helga Bjarnadóttir kórstjóri. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel- komnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu verði í Safnaðarheimili eftir stundina. Safnaðarstarf FRÉTTIR FAGDEILD um upplýsingatækni í hjúkrun, sem er deild innan Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga, heldur í dag námstefnu um hag- nýta upplýsingatækni fyrir heil- brigðisstarfsfólk sem ber yfir- skriftina Í dagsins önn á Grand hótel Reykjavík Sigtúni 38. Hefst hún kl. 9. „Á námstefnunni koma fram 11 fyrirlesarar sem munu fjalla um fjölbreytt svið innan upplýsinga- tækni í hjúkrun. Upplýsingatækni í hjúkrun er fræðigrein sem hefur verið skilgreind sem sambland af tölvunarfræði, upplýsingafræði og hjúkrunarfræði. Tilgangur og markmið deilarinnar er að auka þekkingu hjúkrunarfræðinga og efla samstarf þeirra um hönnun, þróun og notkun upplýsingatækni í hjúkrun,“ segir í fréttatilkynningu. Námstefna um hagnýta upp- lýsingatækni DAGANA 21. og 22. september gefst fólki kostur á að taka þátt í hrossa- smölun og stóðréttum í Austur- Húnavatnssýslu með heimamönn- um. Í Skrapatungurétt, sem er nyrst í Laxárdal í A-Hún, hefur verið smal- að 800-1.000 hrossum undanfarin haust. Á laugardag verður hrossunum smalað norður Laxárdal. Gestum er boðið að taka þátt í þeirri smala- mennsku. Mæting er á Strjúgsstöð- um um kl. 9:30 og riðið verður í gegn- um Strjúgsskarð inn í Laxárdal, þar sem að slegist verður í för með gangnamönnum. Smalar koma að í Kirkjuskarðsrétt í Laxárdal milli kl. 13 og 14 og er þar gert hlé á hrossa- rekstrinum. Bílvegur liggur alveg fram að Kirkjuskarðsrétt, þannig að þeir sem að vilja koma á einkabíl og fylgjast með hafa tök á því. Eftir stundarhlé verður rekið áfram norð- ur í Skrapatungurétt. Það er gífur- lega spennandi að taka þátt í og fylgjast með þessum rekstri á svo stórri hrossahjörð, sem er sú stærsta á Íslandi, segir í fréttatilkynningu. Á laugardagskvöld verður grill- veisla í reiðhöllinni á Blönduósi. Borðhald hefst kl. 20, en opið hús verður til kl. 23. Stóðréttardansleik- urinn verður í Félagsheimilinu á Blönduósi í beinu framhaldi af mat- arveislunni í reiðhöllinni. Á sunnu- dag hefjast réttarstörf kl. 10 og standa fram eftir degi. Stóðréttir í Skrapa- tungurétt Í TILEFNI af alþjóðadegi Alzheim- erssjúklinga gengst Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra minnissjúkra fyrir fjöl- breyttum og upplýsandi fræðslufundi um málefni minnissjúkra. Fundurinn verður haldinn í húsa- kynnum Pharmanor Hörgstúni 2, Garðabæ, á alþjóðadaginn, laugar- daginn 21. september nk. Fundurinn hefst kl. 13 og er áætlað að honum ljúki kl. 16. Á fundinum verða flutt fjögur er- indi. Flytjendur eru meðal færustu einstaklinga sem fjalla um málefni minnissjúkra. Smári Pálsson taugasálfræðingur fjallar um mun eðlilegrar gleymsku og Alzheimerssjúkdómsins. Hanna Lára Steinsson félagsráðgjafi lýsir þeim úrræðum sem fyrir hendi eru fyrir minnissjúka. Jón Snædal yfir- læknir ræðir um Alzheimerssjúkling- inn undir stýri og vísindamenn frá Ís- lenskri erfðagreiningu upplýsa það nýjasta í svari við spurningunni „Hvað getur erfðafræðin sagt okkur? – erfðaráðgjöf“. Halldór Torfason og félagar taka lagið og gleðja fundar- gesti með söng sínum. Fundarstjóri verður Soffía Egilsdóttir félagsráð- gjafi. Fundurinn er opinn öllu áhuga- fólki. Fræðslufundur um Alzheimer SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 11  1839198½  Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42 kl. 20.00. Mikill söngur og vitnisburðir. Prédikun: G. Theodór Birgisson. Allir hjartanlega velkomnir. www.samhjalp.is Í kvöld kl. 20.00: Lofgjörðar- samkoma. Majór Inger Dahl stjórnar. Brigader Ingibjörg Jónsdóttir talar. Allir hjartanlega velkomnir. Samkoma í kvöld kl. 20.00 í Suðurhlíðarskóla, Suðurhlíð 36, 105 Reykjavík. Pier Piersson, lofgjörðarleið- togi úr Vineyard-kirkju í Stokk- hólmi, leiðir lofgjörð og predikar. Allir hjartanlega velkomir. Uppl. í síma 564 4303. Vineyard christian fellowship international. mbl.is ATVINNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.