Morgunblaðið - 19.09.2002, Síða 50
DAGBÓK
50 FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Mána-
foss, Tensho Maru no 78
og Merike koma í dag,
Helgafell fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Hrafn kom í gær, Selfoss
fór frá Straumsvík í gær,
Barði fór í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og jóga, kl. 10
boccia, kl. 13 mynd-
mennt.
Árskógar 4. Kl. 9–12 op-
in handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofa, kl. 10–16
pútt. Sviðaveisla verður
11. október. Hjördís
Geirs skemmtir.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 13 bókband.
Félagsvist á morgun kl.
13.30.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánudaga og fimmtu-
daga. Fimmtud.: Kl. 13
tréskurður, kl. 14 bóka-
safnið, kl. 15–16 bóka-
spjall, kl. 17–19 æfir kór
eldri borgara í Damos,
línudans byrjar 5. okt. kl.
11. Námskeið í postulíns-
málun byrjar 18. nóv.
Uppl. og skráningar:
Svanhildur s. 586 8014
e.h.
Félagsstarfið, Furugerði
1. Í dag kl. 9 smíðar og
útskurður, leirmunagerð
og alm. handavinna, kl.
9.45, verslunarferð í
Austurver, kl. 13.30
boccia. Enn eru laus
pláss á námskeið í leir-
munagerð. Á morgun
verður messa kl. 14,
prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson, Furugerð-
iskórinn syngur undir
stjórn Ingunnar Guð-
mundsdóttur. Allir vel-
komnir.
Furugerði 1 og Norð-
urbrún 1. Haustlitaferð á
Þingvelli verður farin
fimmtudaginn 26. sept-
ember, lagt af stað frá
Norðurbrún 1 kl. 12.45,
síðan teknir farþegar í
Furugerði 1. Kaffiveit-
ingar í Hótel Valhöll. Ek-
ið verður í gegnum
Grímsnes og Hellisheiðin
heim. Leiðsögumaður
Tómas Einarsson.
Skráning í síma 568 6960
Norðurbrún og síma
553 6040 Furugerði.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–16.45 opin
handavinnustofan, kl.
14–15 söngstund.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Grafarvogi. Púttað
er annan hvern fimmtud.
á Korpúlfsstöðum kl. 10,
og annan hvern fimmtu-
dag er leikin keila í Keilu
í Mjódd. Uppl. í s.
545 4500, Þráinn Haf-
steinsson.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Almennur fé-
lagsfundur verður í fé-
lagsheimilinu Gullsmára,
laugard. 21. september
kl. 14. Benedikt Dav-
íðsson, form. LEB, ræðir
kjaramál og samskipti
við stjórnvöld. Starfsemi
og stefnumál félagsins
verða einnig á dagskrá.
Félagsmenn eru hvattir
til að mæta.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Leirnámskeið
byrjar 23. sept. og snyrti-
námskeið 30. sept.
Trésmíði, nýtt og notað,
byrjar 30. sept. kl. 14.
Handavinnuhornið.
Fimmtud. kl. 13 leikfimi
karla. Spænskan byrjar
föstud. 27. sept. Búta-
saumur byrjar 3. okt. og
postulínsmálun 10. okt.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Leikfimi í
Bjarkarhúsinu kl. 11.30,
glerskurður kl. 13. Opið
hús kl. 14 í boði Lyfju,
kynnt inntaka lyfja og
ýmis þjónusta og einnig
fræðsla um beinþynn-
ingu og beinþéttnimæl-
ingu og tónlist: Ólafur B.
og Ingibjörg, kaffi og
meðlæti. Biljardstofan
opin virka daga kl. 13.30–
16 skráning í Hraunseli,
s. 555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in virka daga frá kl. 10–
13. Kaffi, blöðin og matur
í hádegi. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Fimmtudag-
ur: Aðalfundur Brids-
félags FEB kl. 13, spilað
á eftir. Söngfélag FEB
kóræfing kl. 17.
Fyrirhugað er að halda
námskeið í framsögn ef
næg þátttaka fæst. Leið-
beinandi Bjarni Ingvars-
son. Upplýsingar á skrif-
stofu FEB. Haustlitaferð
að Þingvöllum 28. sept-
ember. Nesjavallavirkj-
un heimsótt. Kvöldverð-
ur og dans í Básnum.
Leiðsögn Pálína Jóns-
dóttir o.fl. Skráning hafin
á skrifstofu FEB. Silf-
urlínan er opin á mánu-
dögum og miðvikudögum
kl. 10–12. Skrifstofa fé-
lagsins er flutt í Faxafen
12, s. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í Ás-
garði, Glæsibæ. Upplýs-
ingar á skrifstofu FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 10 leik-
fimi. Samkvæmisdansar
byrja 10. okt. Mál-
verkasýning Gerðar Sig-
fúsdóttur er opin virka
daga frá kl. 13–16 til 31
okt.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund, um-
sjón Lilja G. Hallgríms-
dóttir, djákni Fella- og
Hólakirkju, frá hádegi
spilasalur og vinnustofur
opin, m.a. servéttumynd-
ir o.fl. Á morgun kl. 16
verður opnuð myndlist-
arsýning Brynju Þórð-
ardóttur, Gerðuberg-
skórinn syngur, Vina-
bandið spilar. Veitingar í
Kaffi Bergi. Allar upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.55 leik-
fimi, handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–15, kl.
9.30 keramik og leir-
mótun, kl. 13 ramma-
vefnaður, gler og postu-
línsmálun, kl. 17
myndlist, kl. 17.15 kín-
versk leikfimi.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 10 ganga, kl. 13 brids,
kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum,
gömlu dansarnir byrja
kl. 19 fimmtud. 10. okt.
Lyfja hf. verður með
fræðslu um notkun lyfja í
Gullsmára föstudaginn
20. sept kl. 14.45. Kaffi-
veitingar.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og keramik,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
bútasaumur, kl. 10
boccia, kl. 13 handavinna,
ath. ekki verður leiðbein-
andi í dag, kl. 14 fé-
lagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 13–16.45
leir, kl. 10–11 ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
15.30 alm. handavinna,
kl. 10–11 boccia, kl. 13–16
kóræfing og mósaík.
Jóganámskeið hefst
mánud. 23. sept. kl.
10.30–11.30 einnig verður
kennt á miðvikud. 10.30–
11.30 skráning í s.
562 7077. Haustlitaferð
verður miðvikud. 25.
sept. kl. 10. Farmiðar
óskast sóttir fyrir
mánud. 23. sept.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9.30 glerskurður,
körfugerð og morg-
unstund og boccia, kl. 13
handmennt og spilað.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborgarsvæð-
inu, Hátúni 12. Tafl kl.
19.30.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánudaga
og fimmtudaga. Skrán-
ing kl. 12.45, spil hefst kl.
13.
Karlakórinn Kátir karl-
ar hefur æfingar á
þriðjudögum kl. 13 í Fé-
lags- og þjónustu-
miðstöðinni Árskógum 4.
Söngstjóri Úlrik Ólason.
Tekið við pöntunum í
söng í s. 553 5979 Jón, s.
551 8857 Guðjón eða s.
553 2725 Stefán.
Digraneskirkja Kirkju-
starf aldraðra, starfið
hefst með ferðalagi
þriðjud. 24. sept. Farið
verður með Guðrúnu Ás-
mundsdóttur á slóðir
Einars Benediktssonar,
lagt af stað frá kirkjunni
kl. 13 áætluð heimkoma
kl. 22. Skráning hjá Önnu
s. 554 1475.
Í dag er fimmtudagur 19. sept-
ember, 262. dagur ársins 2002.
Orð dagsins: Því að þeim, sem hef-
ur, mun gefið verða, og frá þeim,
sem eigi hefur, mun tekið verða,
jafnvel það sem hann hefur.
(Mark. 4, 25.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 kalsi, 4 mæla, 7 klúra, 8
skjóllaus, 9 gutl, 11 svelg-
urinn, 13 at, 14 þverspýt-
unnar, 15 ávöl hæð, 17
aða, 20 ambátt, 22 afkom-
enda, 23 gól, 24 korns, 25
líkamsæfing.
LÓÐRÉTT:
1 blökkumaður, 2 reyna,
3 einkenni, 4 háð, 5 missa
marks, 6 hinn, 10 dýrin,
12 nytsemi, 13 þrír eins,
15 hæfa, 16 sveitirnar, 18
sívalningur, 19 nemum,
20 skordýr, 21 ferskt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fjöruborð, 8 rofið, 9 ansar, 10 jór, 11 totta, 13
glata, 15 stafs, 18 ógnar, 21 nes, 22 klaga, 23 öngul, 24
flækingur.
Lóðrétt: 2 jafnt, 3 ryðja, 4 bjarg, 5 rústa, 6 brot, 7 brúa,
12 tif, 14 lag, 15 sekk, 16 aðall, 17 snakk, 18 ósönn, 19
neglu, 20 rell.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
ALDREI í sögunni hafa jarðarbú-ar þurft að muna eins mörg
leyninúmer og lykilorð og nútíma-
maðurinn. Hann þarf leyninúmer
fyrir farsímann, debetkortið, kredit-
kortið og heimabankann. Sjálfur þarf
Víkverji líka að muna leyninúmer til
að kveikja á tölvunni í vinnunni, ræsa
forrit og opna tölvupóstinn. Hann
þarf leyninúmer til að komast inn á
líkamsræktarstöðina sína, númerið á
talnalásnum fyrir skápinn í ræktinni
og svona mætti lengi telja.
x x x
Eftir því sem leyninúmer og lyk-ilorð eru notuð oftar því betur
festast þau í minninu og hægt er að
auðvelda sér lífið með því að nota
sem oftast sömu nöfnin og númerin.
Þegar hvorugt á við er hætt við að
þessar töfraformúlur nútímans fest-
ist alls ekki í minnisfrumunum. Það
fékk Víkverji að reyna í sumar eftir
að hann varð fyrir því óláni að glata
debetkortinu sínu. Eins og reglur
gera ráð fyrir hringdi hann strax í
bankann og lét loka kortinu. Nokkr-
um mínútum síðar fannst kortið aftur
en það hafði á dularfullan hátt komist
í vasa á jakka sem Víkverji taldi sig
ekki hafa notað í marga mánuði.
Hvernig kortið komst í jakkavasann
upplýstist aldrei fullkomlega en Vík-
verji var engu að síður ánægður með
fundinn. Verra var að hann gleymdi
alveg að hringja í bankann og láta
opna aftur fyrir kortið. Hann mundi
reyndar alls ekki eftir að hafa lokað
kortinu fyrr en síðar um daginn þeg-
ar afgreiðslumaður í bókabúð til-
kynnti hátt og snjallt að debetkort
Víkverja væri vákort og gerði það
upptækt á stundinni.
Aftur hafði Víkverji samband við
bankann, í þetta skiptið til að óska
eftir nýju debetkorti. Það var auðsótt
mál en beiðni Víkverja um að fá aftur
gamla leyninúmerið var umsvifalaust
hafnað – leyninúmerið væri leyndar-
mál sem aðeins eigandinn sjálfur
mætti vita. Þegar Víkverji fékk nýja
debetkortið nokkrum dögum síðar
þuldi hann leyninúmerið nokkrum
sinnum í hljóði þar til hann taldi það
greypt í huga sér, henti síðan bréf-
snifsinu með leyninúmerinu í ruslið
og gekk rakleiðis að næsta hrað-
banka. Þar komst hann að því að
hann hafði steingleymt nýja leyni-
númerinu. Ekki var annað að gera en
að hringja aftur í bankann og óska
eftir nýju leyninúmeri. Enn og aftur
lagði Víkverji nýtt leyninúmer á
minnið en komst fljótlega að því að
bankinn hafði sent vitlaust leyninúm-
er, a.m.k. gekk það ekki að kortinu.
Aftur var hringt í bankann en þar
sem Víkverji var á þessum tíma í
sumarleyfisferðum vítt og breitt um
landið var hann án leyninúmers fyrir
debetkortið tæplega mánuð. Þetta
skapaði svo sem engin stórkostleg
vandræði. Hann tók bara pening út í
gamaldags bankaútibúum og keypti
bensín á þjónustustöðvum. Vissulega
varð af þessu svolítill aukakostnaður
enda bensínið dýrara og bankarnir
tóku nokkra hundraðkalla í þjón-
ustugjöld. Þegar síðasta leyninúmer-
ið komst loks í hendur Víkverja
ákvað hann að taka enga áhættu.
Hann stimplaði það inn í farsíminn
sinn, dulbúið sem sjö stafa símanúm-
er hjá kunningja. Nú er bara að vona
að hann gleymi ekki hvað þessi
ímyndaði kunningi heitir!
1. Rf3 Rf6 2. d4 g6 3. c4 Bg7
4. Rc3 d6 5. e4 0–0 6. Be2 e5
7. 0–0 Rc6 8. d5 Re7 9. Rd2
a5 10. Hb1 Bd7 11. b3 Kh8
12. a3 Reg8 13. b4 axb4 14.
axb4 Re8 15. c5 f5 16. f3
Rgf6 17. Rc4 Rh5 18. g3
Ref6 19. Hf2 De7 20. b5 dxc5
21. b6 c6 22. d6 De8 23. Ra4
fxe4 24. Rxc5 exf3 25. Bxf3
Bf5 26. Hb3 Ha1 27. Ha3
Hb1 28. Hb3 Ha1 29. Rxb7
Be6 30. Rba5 e4 31. Be2 Rg4
32. Hf1 Hxf1+ 33. Dxf1
Bd4+ 34. Kg2
Ein af uppáhaldsbyrjun-
um Zigurds Lanka með
svörtu er kóngsindversk
vörn og heldur hann tryggð
við hana sama hvað á dynur.
Í stöðunni hafði hann svart
gegn hinum sterka stór-
meistara Ljubomir Ftacník
á opna Hamborgarmótinu
2001. 34... Hxc1! 35. Dxc1
Df8!! Þótt ótrúlegt megi
virðast er sókn svarts ill-
stöðvanleg enda f2-reiturinn
illa varinn. Framhaldið varð:
36. De1 Rf2! 37. g4 Rf4+ 38.
Kg3 Rh1+ 39. Dxh1 Rxe2+
og hvítur gafst upp enda
mát bæði eftir 40. Kg2 Df2+
41. Kh3 Rf4# og 40. Kh4
Dh6#. 6. skák Hreyfilsein-
vígisins hefst kl. 16.00 í dag í
Þjóðarbókhlöðunni.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss Grétarsson
Svartur á leik.
ÉG vil mótmæla því að
Leiðarljós sé tekið út af
dagskrá og í staðinn sé
sýndur fóbolti.
Það er fjöldi manns sem
horfir á Leiðarljós og er
ekki sátt við að missa af
þættinum. Mætti ekki
sýna fótboltann á öðrum
tíma?
V.S.B.
Níð á tónleikum
Á TÓNLEIKUM Quar-
ashi 12. sept. sl. hitaði
hljómsveitin XXX Rott-
weiler upp. Á tónleikunum
komu þeir því á framfæri
að mesti glæpahundur
þjóðarinnar væri Árni
Johnsen og létu svo salinn
taka undir níðsöng um
Árna.
Ég átti krakka á þess-
um tónleikum og voru þeir
miður sín vegna þessa
þegar þeir komu heim.
Undrar það mig að að-
standendur tónleikanna
skuli ekki hafa stoppað
þetta af.
Móðir.
Hækkun
bóta til bóta
EF ellilífeyrir og bætur
örorkuþega og laun verka-
fólks myndu hækka um
100% mundi hagnaður
fyrirtækja hér á Íslandi
ekki vera ósvipaður. Er
ekki kominn tími til að
huga að verkalýðs-, ör-
orku- og öldrunarmálum?
Jón Trausti
Halldórsson.
Tapað/fundið
Reiðhjól í óskilum
GARY Fisher-fjallahjól er
í óskilum í miðbænum.
Upplýsingar í síma
896 3141.
Stálarmband
í óskilum
STÁLARMBAND með
gylltum stöfum merkt Re-
bekka fannst í nágrenni
Þjóðskalasafns. Upplýs-
ingar í síma 695 0943.
Barnabakpoki
í óskilum
BARNABAKPOKI, Lion
King, grænn og rauður,
fannst á göngustíg fyrir
ofan Skógrækt ríkisins á
Mógilsá. Upplýsingar í
síma 557 5312 og 515 4500.
GSM-sími í óskilum
GSM-sími fannst í ná-
grenni Langholtsskóla.
Upplýsingar í síma
588 6838.
Týndir geisladiskar
FÖSTUDAGINN 6. sept.
lagði fjölskylda úr Breið-
holti af stað norður í réttir
og við brottför lagði móð-
irin geisladiskahulstur of-
an á toppinn á bílnum á
meðan hún var að raða í
bílinn og uppgötvaðist það
ekki fyrr en á leiðinni
norður. Þeir sem hafa
fundið geisladiskahulstur
með u.þ.b. 25 diskum í vin-
samlega hafi samband í
síma 862 0637.
Dýrahald
Hnoðri er týndur
HNOÐRI sást síðast laug-
ardaginn 31. ágúst fyrir
utan heimili sitt í Köldu-
kinn 5. Hnoðri er 3ja ára
grár fress með svarta ól
með silfurmerki með nafni
og síma. Hann er mjög
blíður og svarar nafni.
Hans er sárt saknað og
þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um Hnoðra hafi
samband í síma 660 7863.
Fress vantar heimili
Ársgamlan fress vantar
heimili. Hann er bröndótt-
ur með hvíta snoppu, kvið
og loppur. Mjög kelinn og
hefur þegar verið geltur.
Uppl. í síma 860 4173.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Leiðarljós
og fótbolti