Morgunblaðið - 19.09.2002, Síða 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002 53
Skráning er í síma 565-9500
Hraðlestrarnámskeið
Viltu margfalda afköst í námi?
Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
Næsta hraðlestrarnámskeið hefst þriðjud. 24. september
HRAÐLESTRARSKÓLINN
w w w. h . i s
MEL B hefur viðurkennt að hafa reynt að fremja
sjálfsmorð þegar hún var fjórtán ára. Kryddpían seg-
ir í hispurslausri sjálfsævisögu sinni, „Catch a Fire“,
frá því að hún hafi átt við þunglyndi að stríða á ung-
lingsárunum. „Ég veit ekki hvar ég fékk þá hugmynd
að taka inn of stóran skammt af lyfjum,“ segir í bók-
inni. Þar kemur fram að Mel hafi skipulagt sjálfs-
morðstilraunina nokkrar vikur fram í tímann.
Hún hafði skrifað sjálfsmorðsbréf sem var svo-
hljóðandi: „Mér líkar ekki við vini mína eða skólann. Ég hata pabba
og hann skilur mig ekki.“ Það var pabbi Mel sem hafði keypt töfl-
urnar anadin plus sem hún tók inn eina í einu á meðan hún horfði á
sjálfa sig í speglinum og tárin streymdu niður kinnarnar. Til allrar
hamingju bjargaði móðir hennar henni. Hún var með mikinn höf-
uðverk og kom inn í herbergi Mel til að leita að verkjatöflum. Hún
fór með Mel á sjúkrahús og stúlkan ældi alla leiðina.
Mel B reyndi að fyrirfara sér
Leitin að hamingjunni
(Pursuit of Happiness)
Gamanmynd
Bandaríkin, 2001. Skífan VHS. 97 mín.
Öllum leyfð. Leikstjórn: John Putch. Aðal-
hlutverk: Frank Whaley og Annabeth
Gish.
MIÐJUMOÐIÐ virðist loða
sterkar við rómantísku gaman-
myndina en aðrar kvikmynda-
greinar, að
minnsta kosti
þegar litið er til
þess sem verið er
að gera í dag í
þeim efnum. Hér
er ein slík með-
almynd á ferðinni,
en hún lýsir barn-
ingi tveggja vina
við hamingjuleit.
Þetta eru þau Alan og Marissa
sem verið hafa nánir vinir frá
æsku, en þegar þau lenda bæði í
mikilli krísu á fertugsaldri fara
þau að líta hvert annað öðrum
augum. Það er leikstjórinn John
Putch sem leikstýrir myndinni, og
er stíllinn látlaus og jarðbundinn.
Hann fær áhorfendur auðveldlega
til að detta inn í líf þessara
tveggja persóna um stundarkorn,
en framvindan býr ekki yfir nein-
um sérstökum frumlegum sveifl-
um. Frekar er hægt að mæla með
annarri mynd eftir sama leik-
stjóra, sem er gerð í sama látlausa
stílnum, kom út nýlega á mynd-
bandi og nefist Valerie Flake. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Róman-
tískt
miðjumoð
Söngur Brians
Brian’s Song
Íþróttadrama
Bandaríkin 2001. Skífan VHS. (91 mín.)
Öllum leyfð. Leikstjórn John Gray. Aðal-
hlutverk Mekhi Pfifer, Sean Maher, Ben
Gazzara.
ÞAÐ kemur stundum (reyndar
of oft) fyrir að maður botnar
hreinlega ekkert í af hverju sumar
myndir eru gerð-
ar. Þessi er ein
þeirra. Ekki það
að hún sé svona
alvond. Nei, hún
er bara ein af
þessum endur-
gerðum sem
manni finnst ein-
hvern veginn al-
gjörlega tilgangs-
lausar. Ekki nóg með að þessi
sanna saga, af vináttu tveggja
ruðningskappa, hins hvíta Brians
Piccolo og Gale Sayers, hafi þegar
verið sögð í mynd með James Ca-
an og Billy Dee Williams frá árinu
1971, heldur eru hún sláandi lík
annarri sem sögð var í öllu stærri
mynd sem hét Remember The Tit-
ans og skartaði Denzel Wash-
ington. Held að það væri nær að
nýta krafta þessa annars hæfi-
leikaríka fólks er að myndinni
kemur til annarra og frumlegri
hluta – því þótt endurvinnsla sé í
flestum tilvikum af hinu góða þá
er ekki svo þegar listsköpun á
borð við kvikmyndagerð er annars
vegar.
Skarhéðinn Guðmundsson
Þið munið
hann Brian
alltaf á föstudögum