Morgunblaðið - 19.09.2002, Síða 54
54 FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞJÓÐLEGIR Stuttmyndadagar íReykjavík voru haldnir dagana 5. til9. september. Hátíðin er nú haldin ítíunda sinn, en í ár var sú breyting
gerð að hafa hátíðina með alþjóðlegu sniði og
sýna þar stuttmyndir eftir erlenda leikstjóra,
m.a. verðlaunamyndir frá Cannes og Sun-
dance-hátíðinni. Metnaðarfull dagskrá var
skipulögð, efna átti til málþings í tengslum við
dagskrána með þátttöku erlendra skipuleggj-
enda og leikstjóra sem komu til að vera við-
staddir hátíðina. Aðsókn á Stuttmyndadaga
var hins vegar mjög dræm og var málþing sem
efna átti til á laugardeginum m.a. fellt niður af
þeim sökum.
Síðastliðinn sunnudag birtist í Morgun-
blaðinu grein eftir Arnar Eggert Thoroddsen
þar sem ýmislegt er varðar kynningu og fram-
kvæmd hátíðarinnar er gagnrýnt. Segir Arnar
að svo virðist sem skipulagning hafi verið í
ólestri á hátíðinni, og nefnir sem dæmi að að-
standendur hátíðarinnar hafi ekki verið við-
staddir afhendingu verðlauna að dagskrá lok-
inni og að verðlaunagögn hafi ekki legið fyrir.
Þá telur Arnar að illa hafi verið staðið að kynn-
ingu dagskrárinnar og nefnir sem dæmi að
upplýsingar hafi ekki legið fyrir um sigurveg-
ara hátíðarinnar að henni lokinni, almennt hafi
hátíðin verið lítt sýnileg og að bæklingar með
dagskrárliðum hafi ekki verið til staðar fyrr en
í umfjöllun er birtist í Fókus þegar dagur var
liðinn af hátíðinni. Af frásögnum að dæma hafi
oft verið að meðaltali 3–5 áhorfendur á sýn-
ingum.
Stuttmyndadagar nutu opinberra styrkja
m.a. frá Reykjavíkurborg, menntamálaráðu-
neytinu, Kvikmyndasjóði Íslands og Media-
áætlun Evrópusambandsins og minnir Arnar á
í greininni að það sé á ábyrgð skipuleggjenda
slíkra verkefna að vel sé að öllum þáttum staðið
þegar farið er með opinbert fé. Þá hljóti fram-
kvæmd Stuttmyndadaga óhjákvæmilega að
skaða ímynd íslenskra hátíða út á við, en við-
stödd voru m.a. Adeline Le Dantec frá sam-
bandi evrópskra kvikmyndahátíða og Uwe
Penker hjá Stutt- og hreyfimyndahátíðinni í
Dresden í Þýskalandi. „Að sjálfsögðu er ekki
hægt að skella allri skuldinni á aðstandendur
hvað það varðar. En sannarlega hefði verið
hægt að halda mun betur á spöðunum, a.m.k.
hefði verið hægt að vinna kynningarstarfið og
hugmyndavinnuna sem því fylgir af meiri fag-
mennsku þannig að menn hefðu getað unað
sáttir við sitt framlag,“ segir Arnar Eggert í
grein sinni.
Staðsetningin erfið
Morgunblaðið hafði samband við Jóhann
Sigmarsson, forsvarsmann Suttmyndadaga, og
innti hann eftir því hvað hefði farið úrskeiðis
við kynningu og framkvæmd hátíðarinnar í
ljósi hinnar dræmu aðsóknar og annarra þátta
er nefndir eru í grein Arnars Eggerts.
Svaraði Jóhann því að prentuð hefðu verið
veggspjöld og að fjallað hefði verið um hátíðina
í dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi. Aðsóknin
hefði hins vegar verið dræm og mætti þar e.t.v.
um kenna staðsetningu hátíðarinnar í Tjarn-
arbíói og Bæjarbíói í Hafnarfirði. Upphaflega
hefði verið gert ráð fyrir að hátíðin yrði í Regn-
boganum en samningar um það ekki náðst. „Ég
hafði gert munnlegan samning við Björn Sig-
urðsson hjá Regnboganum fyrir ári um að há-
tíðin fengi þar aðstöðu gegn því að greiða kvik-
myndahúsinu helminginn af miðasölutekjum.
Fjórum vikum fyrir hátíðina
breyttist þetta og vildi Regn-
boginn þá fá greiddar 1,5 millj-
ónir króna í leigu fyrir tvo
minnstu salina í þann tíma
sem hátíðin stæði yfir. Það var
alveg óraunhæft verð fyrir
okkur, þetta eru 40 og 65
manna salir og engan veginn
mögulegt að ná upp í það með
miðasölu.“ Þá segir Jóhann að
áður hafi Regnboginn beðið
um að hátíðin yrði frá fimmtu-
degi til sunnudags í stað þess
að hefjast á föstudegi, sem
hefði kallast betur á við um-
fjöllun sem fyrirhuguð var í
Fókus.
„Ég hefði e.t.v. átt að aflýsa hátíðinni þegar
þetta var orðið ljóst en það var of seint, ég var
búinn að eiga í samskiptum við erlenda aðila
um ákveðnar tímasetningar. Ég leitaði síðan til
Sambíóanna, um að fá leigðan einn sal í Há-
skólabíói og var uppsett leiguverð 850 þúsund
krónur en leigan var 150 þúsund krónur í fyrra.
Ég ákvað því að fara þá leið að notast við Bæj-
arbíó og Tjarnarbíó og bjóða upp á rútuferðir í
Hafnarfjörðinn. Mér finnst það stóralvarlegt
mál að vera alveg upp á markaðsbíóin kominn
með svona verkefni, forgangsatriðið hjá þeim
er bara næsta stórmynd. Það vantar algjörlega
óháð kvikmyndahús í Reykjavík, sem getur
sinnt metnaðarfullum verkefnum á sann-
gjarnan hátt,“ segir Jóhann.
Ólafur H. Torfason, kvikmyndagagnrýnandi
og rithöfundur, hefur fylgst náið með þróun
Stuttmyndadaga sem kvikmyndahátíðar og í ár
var fyrirhugað að hann annaðist málþing í
tengslum við hátíðina. Hann var því spurður
hvað hann teldi að hafi farið úrskeiðis í ár.
„Það þurfti einfaldlega að fella málþingið
niður því það var enginn mættur. Það kom mér
satt að segja á óvart hversu illa hátíðin var sótt,
en ég held að ekki megi vanmeta þá vinnu sem
Jóhann Sigmarsson hefur lagt í að byggja upp
þessa hátíð. Það var verulega flott efni á hátíð-
inni sem hefði að öllu jöfnu átt að draga að fólk.
Ég held að staðsetning hátíðarinnar hafi ráðið
nokkru þar um, menn eru ekki vanir að fara í
þessi bíó og margir virðast setja það fyrir sig
að gera sér leið í Hafnarfjörðinn til að sækja
svona hátíð. Það má heldur ekki gleyma því að
það er eðli hátíða af þessu tagi að eitthvað rask-
ist í dagskránni og að ýmislegt komi upp á í
svona verkefnum,“ segir Ólafur.
Aðspurður hvers vegna svo seint hafi verið
gengið til samninga um endanlegt leiguverð á
sölum Regnbogans segir Björn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri kvikmyndasviðs Norður-
ljósa sem rekur bíóið, þá Jóhann einfaldlega
ekki hafa náð samningum. „Við ræddum saman
fyrir ári og myndi ég ekki segja að þar hafi ver-
ið um munnlegan samning að ræða því við vor-
um ekki farnir að ræða neinar upphæðir, fjölda
mynda eða neitt slíkt. Ég lýsti yfir áhuga á að
koma að verkefninu og myndum
við ræða það betur síðar. Þegar
kom að því að semja endanlega um
þetta fjórum vikum fyrir hátíðina
var Jóhann kominn heim frá Berl-
ín, þar sem hann býr, en þá voru
hugmyndir Jóhanns um verð og
fjölda sala einfaldlega ekki raun-
hæfar fyrir okkur. Það var einfald-
lega of langt á milli sjónarmiða
okkar og ákváðum við því að slíta
viðræðum strax, til að Jóhann
hefði svigrúm til að leita annað.“
Björn segir ekki rétt að hann hefði
farið fram á 1,5 milljónir króna fyr-
ir aðstöðuna. „Ef reiknaður er
kostnaður bíósins við að leggja til
aðstöðu til slíkrar hátíðar, má telja
hann á aðra milljón. Ég var hins vegar tilbúinn
að fara niður í tæpa milljón. Ég hafði mikinn
áhuga á að taka þátt í verkefninu en hins vegar
ber mér að reka mínar einingar svo að við séum
ekki að borga með þeim, því miður. Á þessum
tíma vorum við á fullu við að undirbúa þá
spænsku kvik-
myndahátíð sem er
í gangi núna og
höfum við átt mjög
gott samstarf við
þá aðila,“ segir
Björn.
Aðspurður seg-
ir Þorvaldur
Árnason for-
stöðumaður
kvikmyndadeild-
ar Sambíóanna
þá tölu sem Jó-
hann nefnir ekki
endurspegla
beint þá leigu
sem Há-
skólabíó myndi
almennt setja upp fyrir hátíð á borð við Stutt-
myndadaga, hún geti orðið mun lægri sé fyr-
irvarinn til að ráðstafa sölum hússins nægileg-
ur. „Þegar Jóhann kom að máli við okkur voru
aðeins um tvær vikur í að hátíðin hæfist, og
höfðum við þegar ráðstafað okkar sölum. Það
hefði verið mjög dýrt að breyta þeim fyrirætl-
unum og var einfaldlega ekki hægt með svo
stuttum fyrirvara nema með miklum tilkostn-
aði. Hefði Jóhann komið til okkar fyrir ári hefð-
um við eflaust getað samið um sanngjarnt
verð,“ segir Þorvaldur.
Bráðabirgðaaðild að samtökum
kvikmyndahátíða
Einn meðlima dómnefndar um íslensku
verðlaunamyndirnar á hátíðinni, sem Morg-
unblaðið hafði samband við, segir nokkurt
reiðileysi hafa ríkt við verðlaunaafhendinguna
sem fram fór á sunnudegi hátíðarinnar. Jóhann
Sigmarsson hafi hvergi verið að finna og nauð-
synleg gögn til verðlaunaafhendingarinnar,
hafi vantað. Stefán Jón Hafstein, formaður
menningarmálanefndar Reykjavíkurborgar,
hafi komið til athafnarinnar í stað borgarstjóra
en farið skömmu síðar þegar reiðileysið blasti
við. „Við höfðum í raun ekki fengið nein gögn
send um hvernig athöfnin átti að fara fram, og
myndi ég því segja að upplýsingamiðlunin hafi
ekki verið sem skyldi. En aðsóknin var sorg-
lega dræm á myndirnar, stundum var enginn í
salnum og sjaldnast fleiri en nokkrir gestir,“
segir einn af þremur meðlimum dómnefnd-
arinnar.
Þegar Jóhann Sigmarsson er spurður hvað
sé hæft í því að forsvarsmenn hafi „skrópað“
við verðlaunaafhendingu en setið þess í stað
„að sumbli“ á Naustinu eins og segir í grein
Arnars Eggerts, segir hann að um hátíð-
arkvöldverð fyrir erlenda gesti hátíðarinnar
hafi verið að ræða, og þar hafi hann tafist. Seg-
ir hann það hafa verið ákveðið fyrirfram að
einn starfsmaður hátíðarinnar, Jón Sæmundur
Auðarson, yrði á staðnum og sæi um verð-
launaafhendinguna. „Kvöldverðurinn var inni í
ákveðinni fjárhagsáætlun og var engum stór-
fjármunum eytt í hann,“ segir Jóhann.
Fjármagninu sem hátíðin hafði úr að spila
var að sögn Jóhanns varið í að greiða starfs-
mönnum hátíðarinnar laun, borga fyrir aðstöðu
fyrir starfsmenn og hátíðina og prentun á
veggspjöldum. Þá kosti á bilinu 500 til 700 þús-
und að flytja inn erlenda kvikmynd til sýningar
hér. „Við höfðum lagt mikla vinnu í að skipu-
leggja hátíðina, og kom ég hingað í sumar
gagngert til þess að sinna hátíðinni auk þess að
hafa verið í samskiptum við erlenda aðila sl.
vetur,“ segir Jóhann.
Stuttmyndadagar
hlutu vilyrði fyrir
10.000 evra úthlutun
frá Mediaáætlun Evr-
ópusambandsins og
verður sá styrkur af-
hentur síðar að lokn-
um ákveðnum forms-
atriðum. „Sá styrkur
mun fara í það að
borga upp skuldir há-
tíðarinnar, sem mynd-
uðust vegna þess að það
keypti sig enginn inn á
myndirnar. Fyrir hátíð-
ina fengum við 500 þús-
und krónur frá Reykja-
víkurborg, og var sú
upphæð lækkuð um 100 þúsund krónur frá því í
fyrra þrátt fyrir að hátíðin hafi í raun vaxið á
þessu tímabili. Af því fóru 350 þúsund krónur í
verðlaunafé, sem er sú fasta upphæð sem við
höfum veitt á Stuttmyndadögum. Aðrir op-
inberir styrkir voru 250 þúsund krónur frá
menntamálaráðuneytinu og 250 þúsund frá
Kvikmyndasjóði.“
Þegar Jóhann er að lokum spurður hvort
hann telji að það hvernig hátíðin fór fram skaði
ímynd hennar út á við segist hann ekki telja svo
vera. „Stuttmyndadagar eru þegar komnir
með bráðabirgðaaðild að samtökum evrópskra
kvikmyndahátíða, og eigum við von á staðfest-
ingu á aðildinni fljótlega. Sú aðild er skilyrði
fyrir styrkúthlutun úr sjóði Media-áætlunar-
innar og virðist skipulagning hátíðarinnar að
minnsta kosti hafa mætt þeirra kröfum,“ segir
Jóhann.
Jóhann Sigmarsson svarar gagnrýni á Stuttmyndadaga
„Vantar óháð
kvikmyndahús“
Verðlaunamyndin A Very Very Silent Filmeftir Manish JHA er ein þeirra mynda semfóru framhjá þjóðinni.
Jóhann Sigmarsson
heida@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Kvikmyndir .com
DV
Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 6. Síðasta sýning
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 14.
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Yfir 14.000 MANNS
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.40 B.i. 14.
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
HL Mbl
„Besta mynd ársins til þessa“
1/2HÖJ Kvikmyndir.com
„Ein besta mynd þessa árs.
Fullkomlega ómissandi.“
SV Mbl
HK DV
Radíó X
Yfir 14.000 MANNS
„meistaraverk sem
lengi mun lifa“
ÓHT Rás 2
i
l i li
Sýnd kl. 5 og 8. B. i. 14.Sýnd kl. 5, 8 og 10. B.i. 12 ára.
kl. 4.45, 7.30 og 10.10.
Kvikmyndir .com
DV
Sýnd kl. 8.
The Sweetest Thing
Sexý og Single i l
miðaverð aðeins 350 kr!
STUTTMYND
HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 4 og 4.30.
Sýnd með íslensku tali.
Ný Tegund Töffara
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“