Morgunblaðið - 04.10.2002, Qupperneq 1
232. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 4. OKTÓBER 2002
SVÍINN Hans Blix, yfirmaður
vopnaeftirlitsnefndar Sameinuðu
þjóðanna í Írak, kynnti í gær á fundi
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
samkomulagið sem náðist við stjórn
Saddams Husseins Íraksforseta í vik-
unni um framkvæmd eftirlitsins. Blix
fer í dag til Washington þar sem hann
hittir m.a. Colin Powell utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna. Blix sagði
nefndina ekki geta náð árangri í Írak
nema full samstaða næðist í örygg-
isráðinu um valdsvið og umboð eft-
irlitsnefndarinnar til að leita að ger-
eyðingarvopnum. George W. Bush
Bandaríkjaforseti sagðist í gær vilja
mynda öflugt bandalag þjóða sem
gerðu sér grein fyrir þeirri hættu sem
stafaði af Saddam.
„Hernaðarárás er síðasti kosturinn
sem ég vel, ekki sá fyrsti. En Saddam
verður að skilja og Sameinuðu þjóð-
irnar verða að vita að vilji [banda-
rísku] þjóðarinnar er sterkur,“ sagði
forsetinn í gær.
Er Blix kom af fundi öryggisráðs-
ins í gærkvöldi sagði hann að ráðið
réði því hvort og hvenær vopnaeft-
irlitsmenn færu til Íraks. „Ég vona að
biðin verði ekki löng,“ sagði hann.
„Við getum farið þangað eins fljótt og
raunhæft er. En það kæmi ekki vel út,
ef við hæfum eftirlit og síðan kæmi
fram ný tilskipun sem breytti umboð-
inu,“ sagði Blix. Ari Fleischer, tals-
maður Bush, sagði í gær að færu eft-
irlitsmennirnir til Íraks án þess að
öryggisráðið væri búið að samþykkja
nýja ályktun með hertum skilyrðum
gagnvart Íraksstjórn myndu þeir
verða eins og „ferðamenn í útsýnis-
ferð“ og starf þeirra því gagnslaust.
Bush vill að öryggisráð SÞ sam-
þykki ályktun þar sem m.a. séu settar
fram kröfur um óheftan aðgang eft-
irlitsmanna að stöðum sem núverandi
ályktanir ná ekki yfir. Er ekki síst átt
við fjölmargar hallir Saddams sem
eru sumar geysistórar og ná lóðirnar
yfir samanlagt 31,5 ferkílómetra
svæði með yfir þúsund byggingum.
Rökstuddur grunur er um að Írakar
noti hallirnar og húsakynni öryggis-
sveita til að fela birgðir af efna- og
sýklavopnum og búnað í tengslum við
vopnin.
„Stórkostlegt“ ef
Saddam yrði velt úr sessi
Ríkin fimm, sem hafa neitunarvald
í öryggisráðinu, eru klofin í afstöðu
sinni til nýrrar ályktunar um Írak.
Bretar fylgja Bandaríkjamönnum að
málum en Kínverjar, Rússar og
Frakkar hafa lýst andstöðu við nýja
ályktun. Hvöttu Kínverjar í gær til
þess að eftirlitsnefndin færi sem fyrst
af stað og SÞ reyndu að leysa málið
með friðsamlegum hætti.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur stutt Bush dyggilega í
deilunum. Hann sagði á þingi Verka-
mannaflokksins í gær að markmiðið
væri að tryggja að Saddam afhenti öll
gereyðingarvopn sem hann réði yfir.
Það gæti gerst með friðsamlegum
hætti ef Írakar létu undan kröfunum
en gerðu þeir það ekki yrði að beita
hervaldi. Blair sagði að það væri ekki
endilega markmið hans að velta
Saddam úr sessi, eins og stjórn Bush
vill. En færi svo yrði það „stórkost-
legt ... ekki síst fyrir írösku þjóðina,“
sagði forsætisráðherrann.
Blix segir einingu SÞ
skilyrði fyrir vopnaeftirliti
Tony Blair leggur áherslu á að
markmiðið sé að fjarlægja
gereyðingarvopn Saddams
Reuters
Bush Bandaríkjaforseti hvatti til þess í ræðu í gær að bandarískum fyr-
irtækjum yrði gert kleift að kaupa tryggingar gegn hermdarverkum.
Washington, New York, London. AP, AFP.
BRANDENBORGARHLIÐIÐ í
Berlín var afhjúpað í gær eftir
tveggja ára viðgerð við hátíðlega
athöfn að viðstöddum Gerhard
Schröder kanslara, Klaus Wowe-
reit borgarstjóra og Bill Clinton,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
Hliðið var reist árið 1791, kop-
arvagninn fræga ber hér í hvolf-
þakið á þinghúsinu skammt frá.
Um milljón manna fagnaði á göt-
um þýsku höfuðborgarinnar í gær
en þá var þjóðhátíðardagur og
þess minnst að rétt 12 ár voru lið-
in frá sameiningu þýsku ríkjanna
tveggja.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur vegna óánægju með
andstöðu Schröders við stefnu
Bandaríkjamanna í málefnum
Íraks ekki enn óskað kansl-
aranum til hamingju með kosn-
ingasigur fyrir skömmu. Bush
sendi hins vegar starfsbróður sín-
um, Johannes Rau, heillaóskir í
tilefni þjóðhátíðardagsins og
minnti á nána samvinnu þjóðanna
í meira en hálfa öld sem væri
traustur grunnur fyrir því að tak-
ast á við „ný verkefni“.
Reuters
Brandenborgarhliðið opnað
Ráðgerðu
þrjár árásir
Qaeda hefðu sent að minnsta kosti 50
manns til þess að taka þátt í sjálfs-
morðsárásum gegn Bandaríkjunum
og Ísrael. Sjálfur kveðst hann hafa
hafnað því að ganga samtökunum á
hönd og taka þátt í árásunum.
Lögmenn Lindh sögðust vilja kom-
ast yfir gögnin til þess að nota sem
gögn í máli hans. Þeir héldu því fram
að hann hefði verið beittur harðræði
meðan á yfirheyrslum stóð. Það var
áður en þeir sóttust eftir því að ná
samkomulagi um að Lindh játaði öll
ákæruatriði um að hafa starfað fyrir
talibana. Búist er við því að Lindh
verði dæmdur í 20 ára fangelsi.
JOHN Walker Lindh, Bandaríkja-
maður sem var liðsmaður talibana í
Afganistan, segir að árásin á Banda-
ríkin hinn 11. september hafi átt að
vera sú fyrsta af þremur sem al-
Qaeda-samtökin hugðust gera í land-
inu á skömmum tíma. Þá kveðst hann
hafa hafnað tilboði um að taka þátt í
sjálfsmorðssprengjuárás gegn
Bandaríkjunum, að því er fram kem-
ur í leynilegum gögnum sem sjón-
varpsstöðin CNN birti í gær.
Um er að ræða gögn sem eru hluti
af yfirheyrslu liðsmanna bandarískra
sérsveita yfir Lindh, sem var tekinn
til fanga þegar Bandaríkjamenn
gerðu árás á Afganistan í lok síðasta
árs. Einnig er þar að finna gögn sem
greina frá yfirheyrslu bandarísku al-
ríkislögreglunnar yfir Lindh. Þar
kemur fram að hann hafi átt tengsl
við liðsmenn al-Qaeda, sem hafi
greint frá því að samtökin hefðu í
hyggju að gera þrjár árásir í Banda-
ríkjunum. Önnur árásin hefði átt að
eiga sér stað nærri kjarnorkuveri eða
olíu- eða gasleiðslum. Þá hefði efna-
vopnaárás komið til greina. Önnur
árásin átti að eiga sér stað í nóvember
og sú þriðja í upphafi árs 2002, að
sögn CNN.
Lindh, sem var í æfingabúðum al-
Qaeda í nokkrar vikur í Afganistan,
greindi í yfirheyrslunum frá því að al-
Hryðjuverkin 11. september
BRESKIR vísindamenn sögðu
í gær fyndnasta brandara í
heimi, þegar lokið var umfangs-
mestu rannsókn sem gerð hef-
ur verið á kímnigáfu. Undan-
farið ár hefur fólki hvarvetna í
heiminum gefist kostur á að
greiða atkvæði um brandara á
Netinu með því að nota þar til
gerðan „hláturmæli“, auk þess
að leggja sjálft fram brandara.
Richard Wiseman, sálfræð-
ingur við Háskólann í Hert-
fordshire í Bretlandi, stjórnaði
rannsókninni, en alls voru lagð-
ir fram um 40 þúsund brand-
arar og um tvær milljónir
manna greiddu atkvæði um þá.
Auk þess sem rannsóknin
leiddi í ljós hvaða brandari
höfðaði mest til fólks um víða
veröld sýndi hún einnig fram á
að kímnigáfa er mjög mismun-
andi frá einni þjóð til annarrar.
Brandarinn sem fékk flest at-
kvæði á heimsvísu var sendur
inn af Gurpal Gosall, geðlækni í
Manchester, og er svona:
Tveir veiðimenn eru úti í
skógi þegar annar þeirra hníg-
ur niður. Hann virðist hættur
að anda og augun í honum eru
gljáandi. Hinn maðurinn takur
fram farsímann sinn og hringir
í neyðarlínuna. Hann segir óða-
mála: „Vinur minn er dáinn!
Hvað á ég að gera?“ Starfsmað-
ur neyðarlínunnar svarar:
„Vertu rólegur, ég get hjálpað
þér. Fyrst verðum við að vera
vissir um að hann sé dáinn.“
Það er þögn um stund, síðan
heyrist byssuskot. Veiðimaður-
inn kemur aftur í símann og
segir: „Ókei. Hvað svo?“
Wiseman segir að margir
brandarar hafi þótt fyndnari
meðal tiltekinna hópa fólks, en
þessi hafi hvarvetna þótt góður.
Fyndnasti
brandari
í heimi
London. AFP.