Morgunblaðið - 04.10.2002, Side 8

Morgunblaðið - 04.10.2002, Side 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ 44 350 KUBUS hillurnar frá Ide møbler fást í alls kyns útfærslum og miklu úrvali í Húsgagnahöllinni. Komdu röð og reglu á hlutina og njóttu þess að horfa á þá í KUBUS hillum. L156 x D36 x H166 Litir: Hlynur, kirsuber og hvítt Fylgihlutir: Hurðir og skúffur, ekki innifaldar í verðinu. Sími 510 8000 • Bíldshöfða 20 • 110 Reykjavík • www.husgagnahollin.is f a s t l a n d - 8 3 3 2 KUBUS Listaklúbburinn Selma Kjörorðin eru fræðsla og félagsskapur ListaklúbburinnSelma er starf-ræktur á vegum Listasafns Íslands. Lista- safnið var stofnað 1884 og er stærsta safn íslenskra listaverka. Safnið er þjóð- listasafn og leggur megin- áherslu á 19. og 20. aldar list, íslenska og erlenda. Það er miðstöð rannsókna, heimildasöfnunar og kynningar á íslenskri myndlist. Í Listaklúbbn- um Selmu kennir ýmissa grasa fyrir áhugamenn um myndlist. Ólafur Torfason starfar að kynningarmál- um fyrir Listasafn Íslands og hann er í forsvari fyrir Listaklúbbinn Selmu. Hann svaraði góðfúslega nokkrum spurningum sem Morgunblaðið lagði fyrir hann. Hver er tilurð þessa klúbbs, segðu okkur eitthvað um forsög- una og hvers vegna heitir hann Selma? „Listaklúbburinn Selma er ein af nýjungum Listasafns Íslands til að auka þjónustuna. Slíkir klúbbar hafa reynst vel við söfn erlendis og safnið væntir þess að fólk kunni vel að meta þetta tæki- færi. Nýlega var opnuð í safninu fyrsta stóra listasafnsbúðin hér- lendis með úrvali prentgripa og listmuna, nýting á húsakynnum til sýninga er að aukast og staf- rænn gagnagrunnur safnsins að opnast gestum. Klúbburinn er nefndur eftir dr. Selmu Jónsdóttur listfræðingi (1917–87) sem var lengi forstöðu- maður Listasafnsins og öflugur frumkvöðull í kynningu á mynd- list hérlendis. Nafnið tengist því hvorki Selmu sem Björk lék í Myrkradansara né Selmu Björns- dóttur sviðsstjörnu eins og sumir hafa haldið.“ Hver er tilgangur Listaklúbbs- ins Selmu? „Annars vegar að auðvelda fólki að kynna sér betur myndlist og fylgjast með og hins vegar að gefa því kost á að hitta aðra með sameiginleg áhugamál. Slagorðin eru því „fræðsla og félagsskap- ur“. Hverjum þjónar klúbburinn? „Ég held að hann geti jafnt ver- ið fyrir unga og aldna, alla sem vilja kynnast listum og menningu betur, símennta sig, deila sameig- inlegum áhugamálum og öðlast aukna lífsreynslu og lífsfyllingu.“ Nú hefur margt fólk fríðindi gagnvart Listasafninu, fær t.d. boðsmiða á allar sýningar. Hvað meira felst í þátttöku í Selmu? „Þarna er ólíku saman að jafna. Fyrir árgjaldið fá klúbbfélagar boð á foropnanir með leiðsögn og veitingum og síðan geta þeir kom- ið eins oft og þeir vilja á allar sýn- ingar safnsins í heilt ár. Ennfrem- ur fá þeir afslátt í safnbúð og kaffistofu, komast í menningar- ferðir og fleira. Þetta er allt ný þjónusta. Það er mismunandi hve mörgum hefur hingað til verið boðið á formlegar opnanir og stundum eru sýningar opnaðar án slíkrar viðhafnar. Fastir boðs- gestir munu eflaust átta sig á að það hentar þeim ekki síður en öðrum að vera í Selmu.“ Hvernig skrá menn sig í Selmu? „Upplagt er að koma bara á yf- irstandandi sýningu og fá þar kynningargögn og umsókn- areyðublað. Opið er klukkan 11 til 17 alla daga nema mánudaga. Einnig er hægt að hringja í síma 515 9600, senda tölvupóst í selm- a@natgall.is eða heimsækja vef- inn www.listasafn.is.“ Er klúbburinn öllum opinn? „Já, og margs konar mögu- leikar eru á aðild á mismunandi verði. Árskort fyrir einstakling kostar t.d. 3.500 krónur en fyrir par 5.000 krónur. Enn lægra ár- gjald er fyrir fjölskyldufólk, námsfólk og eldri borgara. Einnig geta stofnanir, samtök, fyrirtæki og félög gerst aðilar fyrir 25– 100.000 árgjald og fá þá mismun- andi mörg árskort og boðsmiða í staðinn.“ Er eitthvað félagslíf í kringum Selmu, árshátíðir, grillveislur, eitthvað annað? „Auk þess sem klúbbfélagar hittast á foropnunum verða skipu- lagðar sérstakar hópferðir fyrir þá með leiðsögn sérfræðinga á listasöfn og sýningar erlendis. Klúbbfélagar geta líka keypt miða í árlegan hátíðarkvöldverð klúbbsins í salarkynnum safnsins við Fríkirkjuveg, gamla Glaumbæ.“ Hvað fær fólk svo að sjá í Lista- safninu á næstunni? „Nú er þar saga ljósmyndar- innar en um miðjan nóvember verður opnuð yfirlits- sýning um það nýjasta í íslenskri listasögu, verk eftir listafólk sem fætt er eftir 1950. Á næsta ári verða m.a. tvær sýningar sem vafalítið munu vekja verulega athygli, á einlita- verkum Claude Rutault og eftir- myndum Mike Bidlo. Einnig verða sýningar á verkum Rögnu Róbertsdóttur, Ásgríms Jónsson- ar og Georgs Guðna, yfirlitssýn- ing um feril Júlíönu Sveinsdóttur, yfirlitssýning um íslenska mynd- list á 20. öld og sérstök sýning um tímabilið 1960–80.“ Ólafur H. Torfason  Ólafur H. Torfason er fæddur í Reykjavík 1947. Hefur stundað nám í kvikmyndafræðum, gert stuttmyndir, útvarps- og sjón- varpsefni og stundað kennslu, kynningar, myndlist og ritstörf. Hann hefur búið í Reykjavík, Kaupmannahöfn, Stykkishólmi og á Akureyri og starfar nú fyrir Listasafn Íslands og Kvikmynda- sjóð Íslands. Maki er Þorgerður Sigurðardóttir myndlistarmaður og eiga þau þrjú börn, Melkorku Teklu, Torfa Frans og Guðrúnu Jóhönnu. Auðveldar að kynnast betur myndlist Þér eruð svo góðar í föndrinu, frú dómsmálaráðherra, gætuð þér ekki kennt mér að búa til pappírs dugga dugg, ég er með efnið?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.