Morgunblaðið - 04.10.2002, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.10.2002, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ VATNSVIRKINN ehf Ármúla 21 · Sími 533 2020 vatnsvirkinn@vatnsvirkinn.is MERKILÍMBÖND Sérstaklega hentug og þægileg merkilímbönd til notkunar í lagnakerfum. Merking og litir samkvæmt stöðlum RB Heildsala - Smásala TIL stendur að lengja svokallaðan Norðurgarð í vesturhöfn Reykja- víkurhafnar, þar sem Grandi hefur aðstöðu sína, um nærfellt helming með landfyllingum auk þess sem hann verður breikkaður. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi fram- kvæmdanna kosti á bilinu 6–700 milljónir króna. Skipulags- og bygginganefnd Reykjavíkur samþykkti á miðviku- dag að auglýsa tillögu að deiliskipu- lagi svæðisins sem gerir ráð fyrir þessum breytingum en það eru Arkitektar Gunnar og Reynir sem hönnuðu skipulagið. Að sögn Hannesar Valdimarsson- ar hafnarstjóra verða framkvæmd- irnar hluti af breytingum sem gera þarf í tengslum við byggingu tón- listar- og ráðstefnuhúss á gömlu Austurhöfninni. „Það þýðir að Reykjavíkurhöfn þarf að þjappa sér saman og hugmyndir okkar eru að breyta svolítið til þannig að Grandi fái betri aðstöðu en hann hefur hingað til haft við Norðurgarð. Þá verður starfsemi, sem núna er í Austurhöfninni, færð í Vesturhöfn- ina. Þannig að þetta er hluti af lengra ferli.“ Heildarkostnaður yfir milljarð Hann segir að um talsverða framkvæmd sé að ræða. „Þarna er núna hafnarbakki sem er 150 metr- ar og það á að lengja hann um næstum því helming upp í tæpa 300 metra. Svo er hann mjór þannig að það á að nota tækifærið og breikka hann.“ Af greinargerð með deili- skipulagstillögunni má ráða að bakkinn verði breikkaður úr 9,8 metrum í 24 metra. Alls verður lóð Granda stækkuð úr rúmlega átta þúsund fermetrum í tæp 31 þúsund fermetra en að sögn Hannesar verður heildarfram- kvæmdinni áfangaskipt. „Í fyrsta áfanga geta þetta verið fram- kvæmdir upp á 6–700 milljónir króna,“ segir hann. „Þegar það er komið tekur við að breyta annars staðar þannig að þetta er yfir einn milljarður króna þegar allt er kom- ið saman, ekki bara við Norðurgarð heldur í Vesturhöfninni allri.“ Breytingar á hafnarsvæðinu vegna fyrirhugaðs tónlistarhúss Tölvumynd/Onno Tölvugerð þrívíddarmynd af Norðurgarði eins og hann kemur til með að líta út að framkvæmdum loknum. Hér er horft til norðurs frá Faxaskála. Norðurgarður stækkaður Reykjavíkurhöfn            ÞAÐ er rólegt andrúmsloft í versluninni við Vesturgötu 17 í Reykjavík. Þangað kemur fólk ekki aðeins til að grúska í gömlum skræðum heldur nota margir tækifærið til að létta á hjarta sínu við eiganda búðarinnar og annarra starfs- manna. „Þetta er náttúrlega eins konar félagsmála- stofnun líka,“ segir Bragi Kristjónsson, eigandi fornbókabúðarinnar Bókavörðunnar, í samtali við Morgunblaðið í tilefni af 25 ára afmælis verslunarinnar. „Hingað kemur allskonar fólk, ráðherra- greyin og þingforsetinn til að létta á sér. Þetta kemur hingað alveg úrvinda og fer endurnært til baka.“ Og Bragi og starfsmenn eru meira en til- búnir til að spjalla. „Það fylgir þessu andrúms- lofti sem bókin hefur að vera ekki með neitt stress.“ Geymdi bókalagerinn á Bessastöðum Verslunina setti Bragi á laggirnar árið 1977. „Ég var búinn að vera í sambandi við ýmsa kalla sem voru á þeim tíma í þessu eins og Sigurð heit- inn Benediktsson sem var með listmunauppboð í gamla daga og Helga Tryggvason bókbindara sem átti 200 tonn af bókum og seldi í áratugi hér í Reykjavík. Hann geymdi bókalagerinn sinn suður á Bessastöðum hjá Ásgeiri Ásgeirssyni forseta. Ég var sjálfur að safna bókum og um- gekkst þessa kalla, lærði að taka í nefið hjá þeim og hafa það huggulegt með þeim.“ Sex fornbókabúðir voru starfandi þegar Bragi ákvað að bæta einni við en nú er aðeins ein þeirra starfandi auk verslunar Braga. Hann seg- ist ekki hafa óttast samkeppnina. „Menn óttast hana ef þeir eru móðursjúkir. Það er bara eðli- legt að það sé samkeppni í öllum hlutum, hún er og hefur alltaf verið.“ Verslunin hóf starfsemi sína í litlu, 40 fer- metra húsnæði á Skólavörðustíg 20. „Við höfum verið á þremur öðrum stöðum á leiðinni þangað sem við erum núna því þetta hefur verið smám saman að stækka.“ Í dag er Bragi svo kominn í 200 fermetra húsnæði. Hann segir söluna á bókunum ekkert vera að dala. „Hún hefur aukist aftur seinni árin. Hún datt dálítið niður um tíma þegar vídeóið var ungt og tölvurnar voru að drepa allt. En svo er fólk bara farið að þreytast á þessu kjaftæði í sjónvörpunum og þessari ómerkilegu afþrey- ingu í vídeóinu.“ Hann segir einnig spila inn í að bækur séu orðnar bitastæðari nú en áður. „Forlögin hafa breytt sinni stefnu og eru komin með miklu vandaðri hluti en áður. Áður fyrr var þýdda ást- arsagan afþreying kvenna en nú nota þessar konur bara spólur í staðinn. Í staðinn hafa bóka- forlögin þýtt meira af betri ritum og betri skáld- sögum seinni árin.“ Nýjar tegundir bóka, sem Bragi virðist ekki vera par hrifinn af, hafa einnig rutt sér til rúms. „Það er varla hægt að fara út úr rúminu án þess að lesa sjálfshjálparbók um það hvernig á að fara út úr rúminu eða með kynlífsleiðbeiningum og um bakstur og bara um það hvernig fólk á að koma sér í gegn um daginn. Það er nú aldeilis aldeilis!“ Inntur eftir því hverjir það eru sem kaupi hjá honum bækur segir Bragi töluverða sölu til út- landa til erlendra stofnana og einstaklinga sem séu að stúdera íslensk fræði og sögu. Eins séu margir Íslendingar sem séu að safna efni tiltek- inna bóka, t.d. um ákveðin landsvæði, ættfræði eða náttúrufræði. Enn til menn sem fjárfesta í bókum Og hinn ástríðufulli bókasafnara sem safnar bókinni bókarinnar vegna er ennþá til. „Það eru meira að segja til menn sem fjárfesta í bókum ennþá þótt það sé orðið erfiðara en áður. Áður voru málverk og bækur eins konar miðlar til að geyma í peninga en það er liðin tíð að mestu. Nú eru einstaka menn sem gera þetta ennþá sér til ánægju og hafa ekki tapað á því.“ En hvað á svo að gera í tilefni af afmælinu? „Við verðum með útsölu frá 4. til 14. október þar sem veittur verður helmingsafsláttur á öllum bókum og meira af sumu. Það eru svo mörg tonn sem eru til.“ Fornbókabúðin Bókavarðan heldur upp á 25 ára afmæli sitt Vesturbær „Mörg tonn sem eru til“ Morgunblaðið/Þorkell Þekktir bókasafnarar komu Braga á bragðið með bækur og kenndu honum líka að taka í nefið. HEILDARKOSTNAÐUR vegna nýbyggingar við Fjölbrautaskól- ann í Garðabæ er áætlaður 768 milljónir króna en byggingunni verður senn lokið. Upphafleg áætl- un hljóðaði upp á 600 milljónir króna. Í bréfi bæjarritara til bæjar- stjórnar kemur fram að samningur um byggingu hússins hafi verið gerður milli Garðabæjar og Bessa- staðahrepps annars vegar og ráðu- neyta menntamála og fjármála hins vegar árið 1993 og var samnings- upphæðin 600 milljónir króna. Hlutur Garðabæjar skyldi vera 36 prósent eða 216 milljónir króna. Nú er komið að lokum verkefn- isins og er útlit fyrir að heildar- kostnaður verði 768 milljónir króna og hlutur Garðabæjar þar með 276,5 milljónir króna. Samþykktar fjárveitingar vegna verkefnisins eru hins vegar aðeins 215,2 millj- ónir. Raunhækkun rétt undir 10 prósentum Var ákveðið á fundi bæjarráðs í vikunni að vísa mismuninum, 61,3 milljónum króna, til endurskoðun- ar fjárhagsáætlunar bæjarins, sem nú stendur fyrir dyrum. Í bréfi bæjarritara segir að hækkunin stafi fyrst og fremst af verðlagsbreytingum en raunhækk- un sé rétt undir 10 prósentum. Nýbygging FG Kostnaður meiri en upphaflega áætlað Garðabær TEKJUR Seltjarnarneskaupstaðar aukast um 28 milljónir í ár sam- kvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætl- un bæjarins sem bæjarstjórn hefur samþykkt. Þá hækka gjöld um ríf- lega 13 milljónir. Mest munar um aukin framlög til fræðslumála en þau hækka um rúm- lega 15,5 milljónir. Þá hækka fram- lög til yfistjórnar bæjarins um tæpar 10 milljónir. Á móti kemur að fjár- magn til gatna og holræsa er skorið niður um rúmar 29 milljónir. Hækk- ar útgjaldaliðurinn samtals um tæp- lega 13,2 milljónir. Auknar tekjur stafa fyrst og fremst af útsvari sem eykst um 15 milljónir króna og 11 milljónir koma frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Eru auknar tekjur alls 28 milljónir. Tekjur bæj- arins aukast Seltjarnarnes

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.