Morgunblaðið - 04.10.2002, Side 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 23
Haust
2002
BLACKY
DRESS
jean paul
BRAX
feel good
LAUGARVEGUR 53,
s. 551 4884
Laugavegi 47
sími 552 9122
Laugavegi 47
sími 551 7575
Ullarfrakkar/ Rykfrakkar
25%
afsláttur
í dag og laugardag
Langan laugardag
Laugavegi 25,
sími 533 5500
Full búð
af nýjum
haustvörum
olsen
Laugavegi 46, sími 561 4465
Villtar &
Vandlátar
Full búð af
nýjum
vörum frá
M A N O U K
S K A R T
Verið velkomin!
ÚTSALA
Silkidamask og bómullarsatín í metratali
Dúkadamask í metratali o.fl. o.fl.
á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050
Laugavegi 54, sími 552 5201
Við tökum til
50% afsl.
af völdum vörum t.d.:
Gallbuxur áður 5.990
Nú 2.990
Peysur áður 3.990
Nú 1.990
30% afsláttur
af toppum og bolum
o.m.fl.
Allt nýjar vörur.
Ótrúleg verð
RICHARD Reid, breskur ríkis-
borgari sem sakaður er um að
hafa gert tilraun til að sprengja
farþegaflugvél í loft upp yfir Atl-
antshafi með sprengiefni földu í
skó sínum, mun játa sig sekan um
öll atriði ákærunnar gegn honum,
sagði verjandi hans, Owen Walk-
er. Vill Reid með þessu komast
hjá opinberum réttarhöldum og
þeim neikvæðu áhrifum sem þau
myndu hafa fyrir fjölskyldu hans.
Bandarísk yfirvöld lögðu
áherslu á að ekkert samkomulag
hefði verið gert við Reid, sem kall-
aður hefur verið „skósprengj-
umaðurinn“. John Ashcroft,
dómsmálaráðherra Bandaríkj-
anna, sagði að Reid væri, líkt og
öðrum sakborningum, „velkomið að
játa sig sekan um það sem hann er
ákærður fyrir“. Fyrst eftir að hann
var handtekinn kvaðst Reid ekki
vera sekur.
Um leið og hann breytti framburði
sínum fór hann fram á að tveimur
ákæruatriðanna yrði breytt og felld-
ar niður fullyrðingar um að hann
hefði hlotið þjálfun hjá hryðjuverka-
samtökunum al-Qaeda, sem hafa lýst
sig ábyrg fyrir hryðjuverkunum í
Bandaríkjunum 11. september í
fyrra. Lögregla hefur komist á snoð-
ir um það, að Reid, sem ólst upp í
Suður-London og snerist til íslam,
hafi verið í Pakistan og Afganistan
síðla árs 2001, en síðan snúið aftur til
Evrópu.
Reid hefur ítrekað fullyrt að hann
hafi verið einn að verki, en alríkis-
saksóknarinn í Massachusetts,
Michael Sullivan, sagði að ekki kæmi
til greina að ákærunum yrði breytt.
„Við höfum óhrekjandi sannanir fyr-
ir því að hann hafi hlotið þjálfun hjá
al-Qaeda og við erum reiðubúin að
leggja þær sannanir fram fyrir
rétti,“ sagði Sullivan við fréttamenn.
Farþegar um borð í þotu Am-
erican Airlines á leið frá París til
Miami 22. desember sl. yfirbug-
uðu Reid er hann var að reyna að
kveikja í sprengiefni sem var skó-
sóla hans. Þotunni var snúið til
Boston þar sem Reid var handtek-
inn. Rannsóknarlögreglumenn
segja að Reid hefði að líkindum
tekist að sprengja flugvélina í loft
upp ef hann hefði notað kveikjara
en ekki eldspýtur er hann reyndi
að tendra kveikiþráð sprengjunn-
ar í skónum.
Reid sótti sömu mosku í Lond-
on og Zacarias Moussaoui, eini
maðurinn sem hefur enn verið
ákærður í tengslum við hryðju-
verkin 11. september. Breska
leyniþjónustan hleraði ennfremur
símtöl Reids og Moussaouis. Þeir
munu hafa fengið þjálfun í sömu búð-
unum hjá al-Qaeda.
„Skósprengjumaður-
inn“ hyggst játa
Boston. AFP.
Richard Reid
FRAKKAR tilkynntu í gær að þeir
hefðu frestað tilraunum með gena-
meðferð sem ætlað er að hjálpa
ungbörnum sem fæðst hafa með
gallað ónæmiskerfi, í kjölfar þess
að eitt barnanna hefur tekið veiki
er líkist hvítblæði. Opinber frönsk
stofnun, er hefur eftirlit með lyfjum
og öðrum heilbrigðisvörum, sagði
að tilraunin hefði verið stöðvuð uns
ljóst væri hverjar væru orsakir
veikinda barnsins.
Þessar ráðstafanir dekkja horf-
urnar á því að genameðferð, sem
fyrir áratug var talin marka þátta-
skil í læknisfræði, skili þeim ár-
angri sem vonast var eftir. Tilraun-
in í Frakklandi var eina gena-
meðferðin sem leitt hafði til þess að
framrás banvæns sjúkdóms stöðv-
aðist, og hafði lækkað rostann í
gagnrýnendum þessarar nýju
tækni, er telja hana geta verið ban-
væna.
Dökkar horf-
ur með gena-
meðferð
París. AFP.
Moggabúðin
Derhúfa, aðeins 800 kr.