Morgunblaðið - 04.10.2002, Side 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 25
HERINN á Filippseyjum kenndi í
gær múslímskum skæruliðum í Abu
Sayyaf-hreyfingunni um sprengju-
árás sem varð þremur mönnum að
bana, þar á meðal bandarískum her-
manni.
Talið er að hópur borgarskæruliða
hafi staðið að árásinni en sprenging-
in varð fyrir utan krá í bænum
Zamboanga á suðurhluta eyjanna.
Þeir sem létust voru filippeyskur
uppgjafahermaður, bandarískur
hermaður og filippeyskur maður á
vélhjóli, sem flutti sprengjuna að
kránni. Ekki er þó talið að um sjálfs-
morðsárás hafi verið að ræða, heldur
að sprengjan hafi sprungið aðeins
fyrr en til stóð.
Yfirvöld í Bandaríkjunum og Fil-
ippseyjum segja að náin tengsl hafi
verið á milli Abu Sayyaf-hreyfingar-
innar og al-Qaeda, hryðjuverkasam-
taka Osama bin Ladens.
Gloria Arroyo, forseti Filippseyja,
boðaði í gær til fundar með yfir-
mönnum hersins og lögreglunnar
þar sem rædd voru viðbrögð við
hryðjuverkinu.
Abu Sayyaf kennt
um hryðjuverk
Zamboanga. AFP.
TYRKNESKUR dómstóll
breytti í gær dauðadómi yfir
kúrdíska uppreisnarforingjan-
um Abdullah Öcalan í ævilangt
fangelsi. Er sú ákvörðun rakin
til þess að í ágúst samþykkti
tyrkneska þingið miklar um-
bætur á mannréttindalöggjöf-
inni í því skyni að auðvelda síð-
ar hugsanlega inngöngu Tyrk-
lands í Evrópusambandið.
Öcalan fór lengi huldu höfðu,
aðallega í Sýrlandi, eða þar til
fyrir fjórum árum þegar Tyrkir
hótuðu Sýrlendingum hernaði
framseldu þeir hann ekki.
Deilt um fjár-
mál flokka
MIKIL gagnrýni hefur verið
höfð uppi á Hægriflokkinn í
Noregi fyrir að vera eini stjórn-
málaflokkurinn í landinu sem
neitar að gefa upplýsingar um
fjármál einstakra flokksdeilda.
Hafa talsmenn Framfara-
flokksins ekki látið sitt eftir
liggja í gagnrýninni en nú hefur
verið vakin athygli á því að
sjálfur lofar Framfaraflokkur-
inn þeim sem gefa honum pen-
inga algjörri nafnleynd. Var
það raunar auglýst sérstaklega
í blöðum fyrir kosningarnar á
síðasta ári. Stóð að því félag
sem nefnist „Vinir Framfara-
flokksins“. Landssamtök
stjórnmálaflokkanna verða að
skýra frá fjármálum sínum en
það á ekki við um einstakar
flokksdeildir. Þess krefjast þó
margir og hefur verið boðuð til-
laga um það á þingi.
Lögin brotin
með kossi
DÓMSTÓLL í Íran hefur skip-
að fyrir um handtöku kunnrar
leikkonu en hún er sökuð um
„ósiðsemi á almannafæri“.
Leikkonan, Gowhar Kheirand-
ish, 47 ára gömul, braut það af
sér að kyssa ungan leikstjóra
um leið og hún afhenti honum
verðlaun á kvikmyndahátíð í
borginni Yazd. Sagt er að fólk
hafi flykkst út á götur til að
mótmæla þessu hneyksli en í
hinu íslamska Íran er framferði
af þessu tagi harðlega bannað.
Annað hneyksli af sama toga er
í uppsiglingu í borginni Ardebil
en þar kyssti ung stúlka bæj-
arstjórann á kinnina við vígslu
almenningsgarðs. Sagði í einu
blaði íhaldsmanna í Íran að
guðhrætt fólk í borginni hefði
orðið ævareitt þessu „klámi“,
sem augljóslega væri ætlað að
grafa undan íslam.
53% Dana
trúa á guð
MEIRA en helmingur Dana
trúir á guð. Kemur það fram í
könnun sem fræðimenn við
Álaborgarháskóla hafa gert og
ekki hefur enn verið birt opin-
berlega. Er könnunin hluti af
rannsókn í 25 löndum og verður
hún birt þegar aðrar niðurstöð-
ur liggja fyrir, að því er fram
kemur í Kristeligt Dagblad.
53% Dana svöruðu því játandi
að þeir tryðu á guð og er það
hærra hlutfall en í Noregi, Sví-
þjóð, Þýskalandi og Frakk-
landi. Í Portúgal kváðust 92%
trúa á guð, 86% í Póllandi og
84% í Bandaríkjunum.
STUTT
Öcalan í
ævilangt
fangelsi
alltaf á föstudögum