Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 41

Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 41
„Því að sjálfur Drottinn mun stíga niður af himni með kalli, með höf- uðengils raust og með básúnu Guðs, og þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upp rísa.“ I Þess. 4:16. Guðjón. Það var á mánudagsmorguninn 30. september 2002 að hún amma okkar fékk sína hvíld. Við munum öll sakna hennar meira en orð fá lýst. Ljúflyndi hennar og alúð munu seint úr minnum hverfa. Seint verða máð- ir úr minningunni þeir sumardagar þegar amma sá um að strákarnir hennar fengju sopann sinn. Við strákarnir sátum við eldhúsborðið á meðan amma færði okkur trakter- ingar af sinni bestu snilld. Aldrei leið sá dagur, á meðan amma hafði heilsu til, að hún gerði ekki sopann klárann þó svo að hún hefði stundum ekki hugmynd um hvort við myndum láta sjá okkur. Skyldurækni hennar var með ein- dæmum og við strákarnir munum alltaf að því búa að amma hafi fengið að taka þátt í uppeldi okkar. Það voru mikil forréttindi að hafa ömmu alltaf í nálægð. Og nú þegar amma er farin skammast maður sín fyrir alla barnaóþekktina og minnist allra góðu stundanna þegar amma las um Dýrin í Hálsaskógi og þegar hún af aðgætni passaði upp á að maður færi ekki illa klæddur út í vetrarkuldann. Amma vildi alltaf vera til gagns og engum til trafala. Hún kenndi okkur að það mikilvægasta væri að láta gott af sér leiða. Minning ömmu býr í hjörtum okkar allra og við óskum þess að geta miðlað af visku hennar til þeirra sem í kringum okkur eru. Amma hafði trú sem var sterk undirstaða allra hennar gjörða. Þrá hennar á endurkomu frelsarans var óbilandi og kærleiki Krists var henni hugðarefni mikið. Í dag kveðjum við ömmu með fullvissu um að á Drott- ins degi munum við fá að faðma hana aftur að okkur. „Og ég heyrði rödd af himni, sem sagði: „Rita þú: Sælir eru dánir, þeir sem í Drottni deyja upp frá þessu. Já, segir andinn, þeir skulu fá hvíld frá erfiði sínu, því að verk þeirra fylgja þeim.““ (Opb. 14:13) Blessuð sé minning okkar elskuðu ömmu. Halldór. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 41 Mig langar að segja nokkur orð um hann afa minn. Ég átti alveg frábæran afa, afi Sibbi var hann kallaður. Hann var rólyndismaður en mjög duglegur. Hann var alltaf að gera eitthvað, hann var smiður og smíð- aði því ýmislegt. Má þar nefna húsin tvö á Digranesveginum. Svo var hann að dytta að húsinu eða gera eitthvað í bílskúrnum og líka garð- inum. Og þegar maður kom í heim- sókn var alltaf stoppað til að heilsa upp á mann og sjá um að maður fengi nú eitthvað að borða. Og ég man þegar ég var yngri að þá lumaði hann alltaf á súkkulaði sem hann gaf okkur eftir matinn. Hann og amma Nína voru æðisleg hjón og unnu vel saman og voru held ég bara bestu vinir. Þau voru alltaf dugleg að fara í ferðalög, hvort sem það voru dags- ferðalög eða lengri. Og það voru tínd ber og gerðar úr þeim sultur og saft. Og mér fannst mjög töff að eiga afa sem bakaði handa manni flatkökur þegar maður vildi. Alltaf átti afi Skoda og var end- urnýjað reglulega, og þótt hann væri að eldast þýddi það ekki að hann keyrði öfga-hægt eins og gam- all kall. Í fyrrasumar fórum við á ættarmót á Stóruvöllum að hitta ættingja ömmu og þar sem það er úti í sveit og ég rataði ekki þurfti ég að fylgja afa. Hann keyrði á undan mér að vísa veginn og ég fylgdi á eft- ir. Og þegar kom að malarvegunum SIGURBERG MAGNÚS SIGURÐSSON ✝ Sigurberg Magn-ús Sigurðsson fæddist á Sauðár- króki 9. ágúst 1931. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi laug- ardaginn 21. septem- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Kópavogskirkju 30. september. þá sá ég hann ekki, hann keyrði svo hratt að ég sá bara ryk fyrir framan mig og gat varla fylgt honum! Í fyrra bjó ég úti í Frakklandi og það var þegar hann fyrst fékk krabbamein. Mér leið ekki vel við þá tilhugs- un. Þá var ekki svo ein- falt að kíkja í heimsókn til hans. En hann vann bug á því krabbameini, hann var svo sterkur í gegnum þetta allt. Allt- af snemma á fætur og farið í sund og kannski bíltúr. Ég kom heim til Íslands í sumar og þá til að gifta mig. John maðurinn minn er enskur og ekki lét afi það stoppa sig þótt hann kynni ekki ensku. Hann kunni kannski þrjú orð í ensk- unni og notaði þau óspart. John var strax velkominn inn á heimilið og í sumarbústaðinn þar sem var mjög gaman. Og meira að segja komu nokkrir útlendir vinir mínir í heim- sókn þangað og afi alltaf jafn gest- risinn, spjallaði bara við þau á ís- lensku! Eftir það kom krabbameinið aftur í líkama afa og það rétt fyrir brúð- kaupið mitt og hann var það veikur að hann afboðaði komu sína í brúð- kaupið. Mér þótti það afskaplega leitt en viti menn, daginn fyrir brúð- kaupið hringdi mamma til þeirra og þá var sagt að afi væri á leið til Eyja í Herjólfi. Þvílíkur dugnaður hjá honum. Og það var mér mikill heið- ur að hafa hann viðstaddan á brúð- kaupsdaginn minn. Og ég er líka mjög glöð yfir því að John fékk að- eins að kynnast honum. Það er erfitt að kveðja í fáum orð- um, en ég vil bara segja að það var heiður að eiga svona góðan afa. Takk fyrir allar góðu stundirnar. Kveðja Björk Steingrímsdóttir. Já, kallið. Ég minnist þess er Eið- ur kallaði „Hífopp“ á sinn sérstaka hátt á Hafliða í gamla daga og skips- hundurinn fékk æðiskast, hljóp eins og vitlaus væri um allt skip og glefs- aði í stígvélahælanna á togvaktar- manninum ef hann var ekki nógu fljótur að slá úr blökkinni, slíkur var kraftur og ákveðni raddarinnar. Eiður Jóhannesson hefur kallað sitt síðasta kall í þessum heimi, en ef ég þekkti hann rétt, togar hann nú um Víkurála himnaríkis, léttur í lundu, … og það lóðar. Hvíldu í friði, vinur minn. Gússý, þér og fjölskyldu þinni, vin- um og ættingjum, votta ég mína dýpstu samúð og vona að sá er nú, sem ætíð, leiðir Eið um ódáinsakra, veiti þér styrk og trú. Kristján Elíasson. Jæja, elsku afi minn, þá ertu far- inn frá okkur fyrir fullt og allt og við kveðjum þig með tár í augum og brostið hjarta. Þegar pabbi færði mér fréttirnar af því að þú værir dáinn fannst mér erfitt að trúa því að Guð gæti tekið jafn hraustan og lífsglaðan mann eins og þig frá okkur án þess svo mikið sem að leyfa okkur að kveðja. En það þýðir ekki að véfengja gjörðir Skap- arans því að vegir hans eru eins og við vitum órannsakanlegir. Núna ertu kominn í annan og betri heim og sinnir þínu hlutverki sem Guð al- máttugur hefur falið þér af þeirri al- úð og samviskusemi sem þér einum er lagið. Það er búið að hífa, aflinn frágeng- inn og þú heldur af stað yfir móðunna miklu út á hafsjó skýjanna, ánægður með aflann, árangur lífsins og von- arblik í augum um enn eina metsöl- una, vitandi að með Guðs hjálp er allt mögulegt. Minning mín um þig mun lifa í hjarta mínu það sem eftir er og ég veit að við hittumst aftur áður en langt um líður. Sæll að sinni, elsku afi minn. Eiður Ágúst. Hvað er það sem dregur hugann að því að gera sjómennsku að ævi- starfi. Kviknaði sú hugmynd þegar tveir litlir bræður stóðu á bryggjunni í Hafnarfirði og horfðu á eftir föður sínum sigla áleiðs til Englands á drekkhlöðnum kolatogara, rúmlega 350 tonna skipi, ljóslausu að leggja á hafið í síðari heimsstyrjöld? Var það ævintýraljóminn um hetjuna sem bauð hættunni byrginn á meðan fjöl- skyldan beið milli vonar og ótta hvort skipið skilaði sér heim aftur? Eiður Jóhannesson var annar þessara bræðra. Hann byrjaði ungur að stunda sjó, fyrst sem hjálparkokkur á Faxa frá Hafnarfirði, kolakyntum síðutogara, varð fljótlega fullgildur háseti. Það var ekki auðvelt fyrir unga menn með tvær hendur tómar að brjótast til mennta í þá daga, það var ekkert sældarlíf að stunda sjó á þessum skipum, vosbúð og kuldi en ævintýrið heillaði. Eiður kvæntist ungur og var kominn með fjölskyldu er hann hóf nám í Stýrimannaskól- anum, þá rúmlega tvítugur. Það þurfti kjark og samheldni en það tókst með ómetanlegri hjálp eigin- konu og tengdamóður hans. Taka varð afleysingatúra um jól og alltaf þegar færi gafst til að hafa það fram að vorprófi. Þegar námi lauk og menn komu aftur um borð voru 4–5 prófmenn fyrir á vakt. Það var ekki auðvelt að fá stýrimannastöðu en með dugnaði hafðist það. Fljótlega var honum treyst fyrir yfirmanns- stöðu og seinna sem skipstjóra lengst af á togaranum Viðey frá Reykjavík. Ég átti því láni að fagna að vera samskipa bróður mínum á Viðey en ætlaði aðeins að fara einn túr en sá túr stóð í þrjú ógleymanleg ár. Eiður var alla tíð farsæll skipstjóri og eign- aðist trygga og góða vini um borð. Við bræðurnir áttum margar góðar samverustundir með fjölskyldum okkar sérstaklega minnumst við hjónin veiðiferðar í Heiðavatn við Vík í Mýrdal og meiri háttar ferðar að Baulárvallavatni á Snæfellsnesi í svo dýrðlegu veðri að okkur hjónum verður ógleymanleg. Eftir að sjó- mennskuferli hans lauk fjölgaði aftur samverustundunum og nutum við þeirra mjög á síðustu árum. Skyndilega og allt of fljótt er því lokið. Ég kveð þig, kæri bróðir, með miklum söknuði. Megi Guð varðveita þig um alla eilífð. Innilegar samúðarkveðjur send- um við Kolbrún eftirlifandi eiginkonu og afkomendum öllum. Þinn bróðir. Smári. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EIÐUR JÓHANNESSON fv. skipstjóri, Gullsmára 11, Kópavogi, andaðist á heimili sínu föstudaginn 20. sept- ember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ágústa Lúðvíksdóttir, Lúðvík Eiðsson, Guðríður Ottadóttir, Eiður Örn Eiðsson, Ingibjörg Torfhildur Pálsdóttir, Lilja Eiðsdóttir, Kristján Elíasson, Jóhannes Eiðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÁSGEIR ÁSKELSSON vélstjóri, Álfabyggð 5, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 1. október. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 10. október kl. 13.30. Jóhanna Bogadóttir, Lovísa Ásgeirsdóttir, Guðmundur Jónsson, Bogi Ásgeirsson, Margrét Einarsdóttir, Jóhanna Margrét Ingvarsdóttir, Kristinn Bjarkason, Jón Einar Guðmundsson, Birgir Örn Guðmundsson, Elín Arna Bogadóttir, Einar Kári Bogason, Ásgeir Jóhann Kristinsson, Daníel Ingi Kristinsson. Elskuleg móðir okkar, amma, tengdamóðir og systir, MARTÍNA ERNA SIGFRIDSDÓTTIR, Hamrabergi 24, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni fimmtudagsins 3. október. Jónína G.H. Daníelsdóttir, Sigurður M. Daníelsson, Þröstur S. Daníelsson, Hanna G. Daníelsdóttir, Kristján G.H. Daníelsson, Daníel Daníelsson, Almut Kühl, Heidi Jedelsky, tengdabörn og barnabörn. Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ MAGNÚSDÓTTIR, Bergstaðastræti 65, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut miðvikudaginn 2. október. Magnús Guðjónsson, Svanheiður Ingimundardóttir, Steingrímur Guðjónsson, Katrín Guðmannsdóttir, Sigríður Guðjónsdóttir, Sigurður Harðarson, Ingólfur Sv. Guðjónsson, Jónína E. Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN HÖJGAARD, Löngubrekku 22, lést á Landspítalanum föstudaginn 20. sept- ember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ragnheiður Hannesdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.