Morgunblaðið - 04.10.2002, Side 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 49
?GæðiáNettov
e
rð
i.
..
ASKALIND 3, KÓP., SÍMI: 562 1500
AÐ GLÆSILEGU DÖNSKU
VISSIR ÞÚ
fást aðeins hjá okkur og kosta
minna en þig grunar!
I N N R É T T I N G A R N A R
OG FULLKOMNU ÍTÖLSKU
E L D U N A R T Æ K I N
Bridsfélag Hreyfils
Annað kvöldið í þriggja kvölda
hausttvímenningi fór fram sl. mánu-
dagskvöld og þá skoruðu eftirtalin
pör mest í N/S:
Daníel Halldórss. - Guðlaugur Sveinss. 262
Skafti Björnss. - Jón Sigtryggsson 254
Eiður Gunnlaugss. - Jón Ingþórss. 235
A/V:
Sigurjón Tryggvason - Hjálmar Pálss. 272
Björn Árnason - Sigurður Steingrss. 246
Birgir Kjartanss. - Árni Kristjánss. 243
Meðalskor var 216. Síðasta um-
ferðin verður spiluð nk. mánudags-
kvöld í Hreyfilshúsinu og hefst
keppnin kl. 19.30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Dalvíkur
og Ólafsfjarðar
Félagið hóf starfsemi sína 23.
sept. með látum. Spilaður var upp-
hitunartvímenningur með þátttöku
10 para. Miðlungur var 108.
Úrslit urðu þessi:
Jón Jónss.-Eiríkur Helgas. 142
Guðm. Sigurbjörnss.-Rafn Gunnarss. 121
Þorst. Ásgeirss.-Hákon V. Sigmundss. 121
30. sept. var spilaður tvímenning-
ur. 9 pör mættu til leiks og var miðl-
ungur 72.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Tryggvi Guðm.-Grzegorz Maniakowski 93
Jón Kr. Arngrímss.-Jón A. Helgas. 84
Kristján Þorsteinss.-Hákon V. Sigm.ss. 82
Mánudaginn 7. okt. hefst svo 3ja
kvölda Samherja-tvímenningur.
Eins og venjulega eru allir vel-
komnir.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Mánudaginn 30. sept. sl. var spil-
aður 1 kvölds tvímenningur, Mitch-
ell. Meðalskor 216 stig. Röð efstu
para.
NS:
Jón G. Jónsson – Friðjón Margeirsson 27
Dagmar Arnard. – Valgerður Kristjónsd. 26
Hanna Friðriksd. – Þórdís Þormóðsd. 22
Besta skor í AV:
Guðjón Sigurjónsson – Helgi Bogason 27
Jón S. Ingólfsson – Jens Jensson 25
Ólafur A. Jónss. – Vilhjálmur Sigurðss. jr.
23
Við höfðum auglýst að við færum
af stað með Barómeter-tvímenning
3–5 kvölda hinn 30. sept. sl. en þátt-
taka var ekki nægjanleg, svo við
frestum því þar til mánudaginn 7.
okt. nk. Þá verður reynt aftur að
fara af stað með Barómeterinn.
Skráning á spilastað, Síðumúla
37, ef mætt er stundvíslega kl. 19.30
á mánudaginn 7. okt. nk.
Öllum er heimil þátttaka.
Bridsfélag Selfoss
og nágrennis
Aðalfundur BS var haldinn 25.
sept. sl. Í stjórn voru kosnir: Garð-
ar Garðarsson formaður, Kristján
M. Gunnarsson gjaldkeri, Ólafur
Steinason ritari, Gunnar Þórðarson
varaformaður, Björn Snorrason
meðstjórnandi og Brynjólfur
Gestsson meðstjórnandi.
Eftir fundinn var spiluð 3 sveita
hraðsveitakeppni og fóru leikar
þannig:
Kristján, Helgi, Gísli, Brynjólfur
og Guðmundur 36
Guðjón, Höskuldur, Ólafur og Hörður 31
Þórður, Grímur, Björn og Garðar 23
Dagskrá félagsins fram að ára-
mótum verður sem hér segir:
3. okt.: Eins kvölds tvímenningur
10., 17. og 24. okt.: Tvímenningur
spilaður í sveitum. Dregið verður í
nýjar sveitir á hverju kvöldi og
keppnin reiknuð út í pörum.
31. okt., 7. og 14. nóv.: Suður-
garðstvímenningur
21., 28. nóv og 5. des.: Hrað-
sveitakeppni. Pörum verður raðað í
sveitir, til að mynda sem jafnastar
sveitir að styrkleika.
12. og 19. des.: Tveggja kvölda
jólaeinmenningur.
Mætum nú öll vel í spilamennsk-
una í vetur.
Bridsfélag
Akureyrar
Fyrsta tvímenningsmót vetrarins,
Startmótið, hófst þriðjudaginn 24.
september. Þegar fyrra kvöldi af
tveimur er lokið er staða efstu
manna þannig:
Frímann Stefánsson – Páll Þórsson
Pétur Guðjónsson – Anton Haraldsson
Jónas Róbertsson – Sveinn Pálsson
Spilað er á þriðjudagskvöldum.
Einnig eru spiluð eins kvölds tví-
menningsmót á sunnudögum í
Hamri.
Næstu mót
Mótaskrá Bridssambandsins er
komin út og er með hefðbundnum
hætti. Íslandsmótið í einmenningi er
næsti stórviðburðurinn en það verð-
ur spilað 18.–19. október og í beinu
framhaldi af því eða 20. okt. verður
ársþing BSÍ.
Íslandsmót kvenna í tvímenningi
verður 9.–10. nóvember og landství-
menningur spilaður 15. nóvember.
Íslandsmót eldri og yngri spilara
verður 16.–17. nóvember og Íslands-
mót í parasveitakeppni helgina eftir
eða 23.–24. nóv.
Af öðrum mótum má nefna Norð-
urlandsmótið í sveitakeppni sem
fram fer á Akureyri 2.–3. nóvember.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Það mættu 22 pör þriðjudaginn
24. sept. og spilaður var Michell-tví-
menningur að venju. Lokastaða
efstu para í N/S:
Vilhjálmur Sigurðss. – Þórður Jörundss. 264
Helgi Björnss. – Þórður Sigfússon 258
Helga Helgad. – Sigrún Pálsd. 250
Hæsta skorin í A/V:
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 270
Jóhann Benediktss. – Pétur Antonss. 253
Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 231
Sl. föstudag mættu 25 pör og þá
urðu úrslitin þessi í N/S:
Vilhjálmur Sigurðss. – Þórður Jörundss. 368
Auðunn Guðmundss. – Bragi Björnss. 352
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófss. 350
Hæsta skor í A/V:
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 422
Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddsson 370
Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 346
Sem sagt sömu sigurvegarar í
báðum riðlum báða dagana. Meðal-
skorin á þriðjudag var 216 en 312 á
föstudag.
FYRIR örfáum árum tók eg und-
irritaður á leigu pósthólf hjá þeirri
ágætu stofnun Pósti og síma í
gamla pósthúsinu í miðbæ Reykja-
víkur. Þetta var á þeim tíma sem
einkavæðing var byrjuð að tröllríða
húsum í hinum vestræna heimi og
ekki síst á Íslandi þar sem stjórn-
völd leggja sig sérstaklega fram að
gera þá sem ríkir eru enn ríkari á
kostnað okkar hinna.
Það var nú með leigukjörin á
þessu litla pósthólfi sem vart telst
vera nema örfáir þverþumlungar að
stærð, að þau voru ákveðin 900 kr. á
ári. Eftir að stofnunin Póstur og
sími var klofin í herðar niður og
skipt niður í tvö aðskilin fyrirtæki,
ákváðu þeir háu herrar hjá Íslands-
pósti sem yfirtóku alla póstþjón-
ustu á Íslandi, sjálfsagt í hagræð-
ingarskyni, að hækka ársleiguna á
pósthólfum úr 900 krónum í 2.800
nú í ársbyrjun. Þetta er hækkun
upp á meira en 200% á tímum
rauðra strika og sjálfsagt annarra
strika í öðrum litum. Mér finnst
þeir háu herrar sem nú ráða ríkjum
í þessu fyrrum opinbera fyrirtæki,
vera á góðri leið að breyta þessari
gömlu þjónustustofnun í ræningja-
bæli eins og nú mun vera tíundað.
Í gærdag átti eg leið fram hjá
pósthúsinu við Pósthússtræti og
sótti það sem borist hafði í hólfið
góða. Ekki var þar margt bréfa,
einungis eitt umslag frá rukkunar-
fyrirtæki úti í bæ, sem því skrítna
nafni og skrifast með litlum stöfum
og nefnist intrum justitia inkasso.
Mér datt fyrst í hug hvort einhverj-
ir ítalskir mafíósar væru að rita
mér bréf og hugðist fleygja þessu
tilskrifi ólesnu. Svo lítt mikilvæg
persóna sem eg er, get vart hafa
vakið athygli umdeildra athafna-
manna úti í hinum stóra og marg-
slungna heimi enda sem íslenskur
alþýðumaður hef eg engan áhuga
fyrir einhverjum slíkum samskipt-
um.
Þar sem eg hafði ekkert meðferð-
is í pússi mínu til að lesa að bíða eft-
ir strætisvagninum, lýk eg upp
bréfi þessu. Í ljós kemur að þarna
er verið að rukka mig ekki aðeins
um þessar 2.800 krónur fyrir not af
pósthólfinu númer 97, heldur eru
krafðir dráttarvextir allt aftur til
dagsetningar reikningsins sem er
15.3. 2002 auk kostnaðar og ítrek-
unargjalds, samtals kr. 4.733. Einu
sinni var sagt á Alþingi: Dýr myndi
Hafliði allur og má taka undir þau
orð.
Með bréfi þessu er eftirfarandi
texti:
Við höfum verið beðin um að
minna þig á skuld, sem er í van-
skilum. Þjónusta okkar felst meðal
annars í því að minna fólk og fyr-
irtæki á skuldbindingar sínar áður
en þær eru sendar í lögfræðiinn-
heimtu.
Ekkert nafn, hvorki undirskrift
eins né neins einungis með stöðl-
uðum texta: Með góðri kveðju Inn-
heimtudeild Intrum á Íslandi.
Allt og sumt! Samtíð okkar ein-
kennist nú af ópersónulegum sál-
arlausum samskiptum þegnanna,
þar sem höfð er í fyrirrúmi gegnd-
arlaus auðsöfnun, allt í þágu
græðginnar og skyndigróðans.
Mér satt best að segja ofbýður
svona vinnubrögð sem minna helst
á að við einkavæðingu Pósts og
síma hafi þessu opinbera fyrirtæki
verið breytt í ræningjabæli. Eg veit
ekki hvort það hafi verið tilgangur
stjórnvalda á sínum tíma en ef svo
er, þá þarf að koma á breytingu í
næstu þingkosningum að vori.
Svona vinnubrögð sem hér að of-
an er lýst, eru fyrir neðan allt gott
velsæmi og ýmislegt við að athuga:
1. Skilmálum með pósthólfi þessu
hefur verið breytt einhliða og
ekki hefur verið hirt um að til-
kynna það hvorki mér né öðrum
svo eg viti.
2. Einungis er sendur gíróseðill
sem í þessu tilfelli hefur annað-
hvort misfarist eða gleymt að
greiða innan þess tíma sem ráða-
mönnum Íslandspósts hentar.
3. Augljóst er að krafan er þegar
komin í innheimtu hjá þessu lög-
fræðifyrirtæki þó svo að annað sé
gefið í skyn.
Undir venjulegum kringumstæð-
um hefði verið eðlilegt hjá fyrirtæki
þessu að gefa viðskiptavinum sín-
um einhvern sanngjarnan umþótt-
unartíma, t.d. hvort þeir sættu sig
við þessa miklu hækkun og ef ekki,
að gefa viðskiptavinum sínum tæki-
færi að segja leigunni upp með ein-
hverjum sanngjörnum fyrirvara.
Þetta er ekki gert heldur er aðferð-
um beitt sem minnir einna mest á
rukkunaraðferðir undirheimana og
stundum má lesa um í blöðum. Það
er miður að virt ríkisstofnun lendir
í höndunum á mönnum sem leggja
meiri áherslu á skjótfenginn gróða
en að veita góða þjónustu á sann-
gjörnu verði.
Þessi vinnubrögð sem hér er lýst,
eru Íslandspósti ekki til framdrátt-
ar og væri mjög æskilegt að Neyt-
endasamtökin tækju svona mál til
skoðunar. Mætti biðja aftur um
gamla góða Póst og síma. Þó svo að
sú stofnun hefði ekki verið með öllu
gallalaus, þá var hún ágæt á sinn
hátt og ekki hefur betra tekið við
með þessari endemis einkavæð-
ingu.
Hér verður numið staðar að
segja frá viðskiptum mínum við
þetta fyrirtæki, Íslandspóst hf., en
eg held eg hugsi mig um tvisvar áð-
ur en eg ákveð að kaupa þjónustu af
því hér eftir.
GUÐJÓN JENSSON,
Arnartanga 43, Mos.
Opið bréf til Íslandspósts hf.
Frá Guðjóni Jenssyni:
Í GREIN þinni í Morgunblaðinu
14. sept. lýsir þú, Gunnar I. Birg-
isson formaður bæjarstjórnar
Kópavogs, eftir „samstilltum hópi
sem hrópaði á torgum“ og mótmæl-
ir skipulagstillögum Kópavogsbæj-
ar við Elliðavatn. Þú spyrð hvers
vegna ekkert heyrist í honum nú
þegar Reykjavíkurborg auglýsir
nýtt deiliskipulag á Norðlingaholti.
Þar sem þú vitnar í orðalag íbúa á
Kópavogslandi við Elliðavatn á sín-
um tíma, hlýtur þessi hópur að
vera íbúasamtökin „Sveit í borg“.
Það er rétt, við börðumst gegn
því að farið yrði ógætilega að nátt-
úru og umhverfi Elliðavatns og
undir málstað okkar tóku á sínum
tíma 11.000 einstaklingar sem
studdu sjónarmið okkar með undir-
skriftum sínum. Við erum enn
mjög ósátt þegar yfirvöld í Kópa-
vogi halda því fram að töluvert til-
lit hafi verið tekið til mótmæla og
athugasemda. Við erum ekki síst
ósátt þegar yfirvöld Kópavogsbæj-
ar fullyrða að allt skipulagsferlið
hafi farið vel fram í samráði við
íbúa. Skipulagi byggðar milli
Vatnsendavegar og Elliðavatns var
sáralítið breytt – þ.e. „milli vatns
og vegar“ og F-reitur, sem verður
ein þéttasta þúfan við vatnið. At-
hafnasvæði Vatnsendans breyttist
ekkert þrátt fyrir vel rökstuddar
athugasemdir. Á þeim svæðum
verður byggð mikil og þétt eins og
upphaflega var ráðgert. Hvað hef-
ur þá áunnist? Jú, á svokölluðu
norðursvæði, vestan við Vatnsenda-
veginn, verður byggð sæmilega
dreifð og skipulagsferlið hefur ver-
ið opnara gagnvart íbúum - nær
því að vera í samræmi við Stað-
ardagskrá 21, sem Kópavogsbær
hefur einhverra hluta vegna dregið
að samþykkja.
En við fögnum því, Gunnar, að
nú skulir þú taka upp hanskann
fyrir náttúruna og ráðast til atlögu
gegn því að farið sé offari í upp-
byggingu svæðisins við Elliðavatn.
Við erum eins og þú búin að kynna
okkur deiliskipulagstillögur
Reykjavíkurborgar fyrir Norð-
lingaholtið og höfum sent inn at-
hugasemdir. Við erum uggandi um
að þessi nýja byggð muni bera El-
liðavatn, umhverfi þess og vatna-
svið Elliðaánna ofurliði. Hún verð-
ur enn þéttari, hærri og nær
viðkvæmu vatni en byggðin Kópa-
vogsmegin.
Hverfasamtökin „Sveit í borg“
gera m.a. athugasemdir við þétta
byggð og há fjölbýlishús nærri
bökkum Elliðavatns, við bensín-
stöðvar á sprungusvæði á jaðri
vatnsverndarsvæðis og við háa
byggð á bökkum Bugðu. En Kópa-
vogsbær hyggst breyta upphafleg-
um farvegi Bugðu í lifandi vatns-
farveg og verður hún hluti af
vatnasvæði Elliðaánna. Of lítið
samráð virðist hafa verið milli
Reykjavíkur og Kópavogs um sett-
jarnirnar, sem gera á beggja vegna
„hreppamarka“.
Mjög lítið rými er ætlað fyrir þá
útivist sem er stunduð við Elliða-
vatn og erfitt er að ímynda sér að
t.d. svo náin sambúð hestaumferð-
ar og íbúðarbyggðar muni ganga
snurðulaust fyrir sig.
Skipulag á Vatnsenda hefur ver-
ið kynnt í smáskömmtum og þar
með eru minni líkur á að almenn-
ingur átti sig á heildarmyndinni.
Við hvetjum íbúa höfuðborgar-
svæðisins til að kynna sér framtíð-
arskipulag á landi Reykjavíkur og
Kópavogs við Elliðavatn, þar sem
myndin er nú að skýrast.
Ellefu þúsund manns á höfuð-
borgarsvæðinu mótmæltu fyrir
tveimur árum þéttri, háreistri
byggð við Elliðavatn og komu þar
með þeim skilaboðum til yfirvalda
að þeim bæri að vanda sig við
skipulag þessa svæðis. Við biðjum
ykkur, sem valdið hafa í Reykjavík
og Kópavogi, að virða óskir þessa
hóps.
Staðardagskrá 21 hefur verið
samþykkt af Reykjavíkurborg, sem
ætlar samkvæmt henni m.a. að
„vinna að stofnun fólkvangs og
friðlýsingu, á 100–250 m svæði um-
hverfis ... vatnasvæði Elliðavatns“.
Er ekki betra að fara eftir eigin
samþykktum, Reykjavíkurborg?
Ekki fórna þessari útivistar-
perlu!
Fyrir hönd stjórnar hverfa-
samtaka Vatnsenda „Sveit í borg“,
KOLBRÚN KÓPSDÓTTIR
RUT KRISTINSDÓTTIR
SIGRÍÐUR
SIGURÐARDÓTTIR
SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR
STEINUNN JÓNSDÓTTIR.
Gunnar Birgisson og Elliðavatnið
Frá stjórn hverfasamtaka
Vatnsenda, „Sveit í borg“:
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050