Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 51

Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 51 DAGBÓK Árnað heilla STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VOG Afmælisbörn dagsins: Þú getur lífgað upp á um- hverfið með þinni hrífandi framkomu. Þú ert lífsglaður og hefur áhrif á marga í kringum þig. Öðrum finnst þú skemmtilegur og áhuga- verður. Árið verður hag- stætt því þú munt læra að meta hluti upp á nýtt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Einhver getur gefið þér góð ráð varðandi fjárhagslega framtíð þína. Leyfðu öðrum að bera byrðarnar með þér. Naut (20. apríl - 20. maí)  Vertu viðbúinn því að eitt og annað komi upp á í dag og trufli áætlanir þínar. Það þýð- ir ekkert annað en vera harð- ur og segja fólki hreint út eins og er. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Stundum er ferð án fyrirheits það sem sálin þarfnast. Veltu frekar vandamálunum fyrir þér og flýttu þér hægt í leit að lausn þeirra. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Leyfðu engum að setja þér stólinn fyrir dyrnar eða sýna þér frekju á nokkurn hátt. Þetta mun veitast þér furðu létt. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Reyndu ekki að skjóta þér á bak við loðnar upplýsingar. Einhver ágreiningur gæti komið upp varðandi heimilis- þrifin. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú þarft að fást við þýðingar- mikið mál í dag. Það er betra að líta á björtu hliðarnar en vera sífellt að ergja sig út af einhverju. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú gætir hitt einhvern á óvæntum vettvangi sem verð- ur vinur þinn eða jafnvel nán- ari. Ferðaáætlanir með nán- um vini hljóma vel. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú mátt eiga von á því að hitta gamlan vin í dag. Hristu af þér slenið. Það þarf engin ósköp til þess að gera þær breyting- ar sem nauðsynlegar eru. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Vitneskjan er það atriði sem nú skiptir sköpum um flesta ef ekki alla hluti. Nýttu hana til hollra hluta, sem bæði gefa þér ánægju og auka á hreysti þína. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þær aðstæður koma upp að þú neyðist til þess að segja hvar í flokki þú stendur. Gerðu það sem þú þarft að gera og leiddu annað hjá þér. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það er aldrei of seint að bæta við menntun sína og til þess eru ótal möguleikar. Hikaðu ekki við að leita hjálpar hjá vinum þínum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Stundum erum við ósköp varnarlaus gagnvart umheim- inum en þá er björgin fólgin í því að finna sér haldreipi í sín- um innri manni. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 4. októ- ber, er sjötugur Hermann G. Hermannsson, verkstjóri í flugþjónustudeild slökkvi- liðsins á Keflavíkurflug- velli. Eiginkona hans er Erla M. Magnúsdóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum í Stjörnuheimilinu í Garðabæ í dag milli kl. 18–21. 80 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag- inn 7. október, er áttræð Unnur Ragna Benedikts- dóttir, Sigtúni 45, Reykja- vík. Eiginmaður hennar var Jón Valgeir Guðmundsson. Hún verður, ásamt fjöl- skyldu sinni, að heiman á af- mælisdaginn. LJÓÐABROT Á RAUÐSGILI Enn ég um Fellaflóann geng, finn eins og titring í gömlum streng, hugann grunar hjá grassins rót gamalt spor eftir lítinn fót. Hugrökk teygist á háum legg hvönnin fram yfir gljúfravegg, dumbrauðu höfði um dægrin ljós drjúpir hin vota engjarós. Löngum í æsku ég undi við angandi hvamminn og gilsins nið, ómur af fossum og flugastraum fléttaðist síðan við hvern minn draum. – – – Jón Helgason 1. c4 g6 2. Rc3 Bg7 3. g3 Rf6 4. Bg2 0–0 5. d3 d6 6. Rf3 e5 7. Hb1 a5 8. a3 Rc6 9. b4 axb4 10. axb4 h6 11. 0–0 Be6 12. b5 Re7 13. Bd2 Rd7 14. Dc1 g5 15. h4 f6 16. hxg5 hxg5 17. Re4 Hb8 18. Ha1 b6 19. Ha7 Rc8 20. Ha3 Re7 21. Dc2 g4 22. Rh4 Rc5 23. Rc3 De8 24. Ha7 Hc8 25. Be3 f5 26. Bxc5 dxc5 27. Bb7 Bf6 28. Bxc8 Rxc8 29. Hxc7 Bxh4 30. gxh4 Dd8 31. Hxc8 Bxc8 32. Kg2 f4 33. Hh1 Bb7+ 34. f3 Kh8 35. Re4 gxf3+ 36. exf3 Bxe4 37. fxe4 Dd4 38. Kf1 Staðan kom upp í keppni heimsins gegn Rússlandi sem lauk fyrir skömmu í Moskvu. Hinn 15 ára Teimour Radjabov (2.618) hafði svart gegn Evgeny Bareev (2.726). 38... Da1+! og hvítur gafst upp enda verður hann hróki undir eftir 39. Kg2 f3+ 40. Kh2 Dxh1+! 41. Kxh1 f2. Fyrri hluti deildakeppni Skák- sambands Íslands hefst kl. 20.00 í dag, 4. október, í húsakynnum Bifreiða og landbúnaðarvéla, Grjóthálsi 1. Búist er við að herskari sterkra erlendra stórmeist- ara tefli fyrir Skákfélag Hróksins og verður spenn- andi að sjá hvernig öðrum liðum tekst að glíma við þá. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. 70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 4. októ- ber, er sjötugur Ólafur O. Sveinbjörnsson húsasmíða- meistari, fyrrum móttöku- stjóri skrifstofu forstjóra hjá Orkuveitu Reykjavíkur, Álfhólsvegi 85, Kópavogi. Ólafur tekur á móti gestum á afmælisdeginum í safnað- arheimili Krossins, Hlíða- smára 5–7, Kópavogi, milli kl. 19 og 22. HUGRENNINGAR sagn- hafa í þremur gröndum snú- ast að mestu um drottn- inguna í tígli. Taktu þér sæti í suður: Norður gefur; NS á hættu. Norður ♠ 43 ♥ ÁKD ♦ ÁG10 ♣ÁG1032 Suður ♠ Á65 ♥ G102 ♦ K9876 ♣54 Vestur Norður Austur Suður -- 1 lauf 1 spaði 1 grand Pass 3 grönd Pass Pass Pass Vestur kemur út með spaðatvist, þriðja hæsta í lit makkers. Hver er áætlunin? Fjórir tígulslagir duga í níu, svo það er í sjálfu sér í lagi að gefa vestri slag á tíguldrottningu þegar búið er að dúkka spaðann tvisvar. En vandinn er stíflan í litn- um, sem skapar hættu þeg- ar austur er með drottn- inguna. Til dæmis ef legan er svona: Norður ♠ 43 ♥ ÁKD ♦ ÁG10 ♣ÁG1032 Vestur Austur ♠ 1072 ♠ KDG98 ♥ 9765 ♥ 843 ♦ 543 ♦ D2 ♣987 ♣KD6 Suður ♠ Á65 ♥ G102 ♦ K9876 ♣54 Segjum að sagnhafi gefi tvo fyrstu spaðaslagina og fái þann þriðja á ásinn. Hann spilar svo tígulás og tígli með því hugarfari að svína yfir til vesturs. En það eru engin gleðitíðindi að fá drottninguna frá austri, því tían stíflar litinn. Leiðin framhjá þessum vanda er þessi: Sagnhafi hendir hjarta úr borði í spaðaásinn. Tekur svo tvo slagi á hjartalitinn áður en hann spilar tígulás og gosa. Þegar austur kemur með drottninguna, drepur suður, spilar hjartagosa og hendir tígultíu úr borði. Þá er leiðin greið fyrir tíglana. Þetta er dæmi um ein- falda lausn sem þó er erfitt að koma auga á. Sem hljóm- ar eins og mótsögn, en gæti líka verið skilgreining á feg- urð. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Þessi duglegu tvíburasystkin héldu nýlega hlutaveltu á Ak- ureyri til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust 1.180 krónum. Þau heita Fiona og Þorlákur Sigurðarbörn. Hlutavelta KIRKJUSTARF Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í umsjá Aðalbjargar Helgadóttur. Kaffi- spjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lof- gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu- fræðsla. Barna- og unglingadeildir á laugardögum. Létt hressing eftir samkom- una. Allir velkomnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga- samkoma í kvöld kl. 21. Kirkjuskólinn í Mýrdal. Vetrarstarfið hefst á morgun, laugardag, kl. 11.15 í Víkur- skóla. Í vetur fáum við nýjar bækur og nýj- ar myndir. Nýir og skemmtilegir söngvar ásamt hinum gömlu og góðu. Sögur, brúðuleikhús og litastundir verða á sínum stað. Fjölmennum og bjóðum stóru systk- inunum, pabba og mömmu, afa og ömmu, að koma með. Hittumst hress og kát. Starfsfólk kirkjuskólans. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Samkomur á laugardögum: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11. Barnaguðsþjónusta í umsjá Guðnýjar Kristjánsdóttur. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Gavin Anthony. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs- þjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guð- mundsson. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Biblíu- rannsókn og bænastundir eru í Loftsaln- um að Hólshrauni 3, Hafnarfirði, á fimmtudagskvöldum kl. 20 og að Breiða- bólstað í Ölfusi á miðvikudagskvöldum kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Ómar Selfosskirkja SÓKNARNEFND Neskirkju hefur ráð- ið Steingrím Þór- hallsson í starf org- anista við kirkjuna en hann tekur við af Reyni Jónassyni sem lætur af störfum vegna aldurs. Stein- grímur kemur að fullu til starfa um næstu jól en mun leika á orgelið við nokkrar messur fram að þeim tíma. Söfn- uðurinn mun áfram njóta krafta Reynis fram á aðventu. Steingrímur Þór- hallsson er 28 ára gamall, fæddur og uppalinn á Húsavík þar sem hann hóf tónlistarnám. Hann varð stúdent af tónlistarbraut Menntaskólans við Hamrahlíð 1995, lauk píanókennaraprófi við Tónlistarskólann í Reykjavík 1998 og kantorsprófi við Tón- skóla Þjóðkirkjunnar. Org- elkennari hans var Marteinn H. Frið- riksson dómorgan- isti. Haustið 1998 hóf hann nám við Pon- tificio Instituto di Musica Sacra í Róm, sem er kirkjutónlist- arstofnun Páfa- garðs. Þaðan lauk hann mastersprófi í orgelleik (magistero in organo) sumarið 2001 undir leiðsögn Giancarlo Parodi. Steingrímur er söfnuði Neskirkju ekki að öllu ókunnur því hann hefur grip- ið inn í og leyst af við helgihald í kirkjunni á liðnum árum. Síðustu misserin hefur hann verið skólastjóri Tónlistarskólans á Hólmavík og organisti kirkj- unnar þar. Steingrímur verður boðinn vel- kominn til starfa í messu næsta sunnudag, 6. október, kl. 11. Nýr organisti í Neskirkju Steingrímur Þór- hallsson organisti Garðatorgi, sími 565 6550 Loksins komnar frábæru viscose buxurnar og gallabuxur Gott verð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.