Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 53
Vinsælasta íslenska myndin í ár
...Hafið rokkar ...Hér er á ferðinni stórkostleg upplifun...
...Íslenskt meistaraverk
...Gunnar og Herdís leiða eftirminnilegan leikarahóp sem á
þátt í að gera Hafið að einni bestu íslensku kvikmyndinni
...Tímamótaverk í íslenskri kvikmyndasögu
BH, Sánd
SFS, kvikmyndir.is
og horn.is
HK, DV
HJ, Mbl.
28.000 bíógestir!
ARI Í ÖGRI Liz Gammon.
BARBRÓ, Akranesi. Óli Palli.
BARINN, Laugavegi 45, Kvenna-
sveitin Rokkslæðan.
BÍÓHÖLLIN, Akranesi Konsert,
söngbók Gunnars Þórðarsonar kl.
21.
CAFÉ AMSTERDAM Stuðsveitin
Sólon spilar.
CAFÉ CATALÍNA Sváfnir Sigurð-
arsson.
CAFÉ ROMANCE Andy Wells spila
fyrir gesti.
CATALÍNA Stórsveit Péturs Krist-
jánssonar.
FJÖRUKRÁIN Hljómsveitin Feðg-
arnir leika fyrir dansi.
GRANDROKK Maus og Tristian.
Maus leikur m.a. efni af væntanlegri
10 laga plötu, þar sem m.a. er að
finna titillagið „Musick“ sem fer í
spilun á útvarpsstöðvunum einmitt í
dag.
GULLÖLDIN Svensen og Hall-
funken.
KAFFI KLETTUR, Biskupstungum.
Diskórokktekið Dj Skugga-Baldur.
KAFFI REYKJAVÍK Djasshátíð. Six-
ties leikur fyrir dansi.
KAFFI-LÆKUR, Hafn. Njalli í Holti.
KAFFI-STRÆTÓ Blátt áfram.
KAFFISETRIÐ Karaoke frá kl. 22 til
04, taílenskt kvöld.
KRINGLUKRÁIN Mannakorn.
LIONSSALURINN, Kópavogi
Áhugahópur um línudans með dans-
æfingu kl. 22. Elsa sér um tónlistina.
O’BRIENS Guðmundur Pétursson
og söngkonan Mæsí.
ODD-VITINN, Akureyri Örvar
Kristjánsson.
PAKKHÚSIÐ, Selfossi Smack.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópavogi
Hunang.
RÁIN, Reykjanesbæ Úlfar.
SPORTKAFFI Big Foot þeytir skíf-
um.
SPOTLIGHT Dj Sesar í búrinu.
STAPINN, Reykjanesbæ Bubbi
Morthens og Hera kl. 21.
VIÐ POLLINN, Akureyri Hljóm-
sveitin Ljósbrá.
VÍDALÍN Vítamín.
VÍKIN, Höfn Papar.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
EFTIR þögn er sérstæður titill á
geisladiski. Hann gæti vísað í ein-
hverja persónulega reynslu en líka
einfaldlega í tónfræðimál; eftir þögn
kemur tónn.
Annars borgar
sig ekkert að
brjóta heilann
um slíkt heldur
njóta óvenju-
legrar tónlistar-
innar sem diskurinn hefur að geyma.
Eftir þögn er nefnilega um margt
óvenjulegur diskur. Þar er ekki fiskað
eftir dægurvinsældum og ólíklegt er
að tónlistin fái spilun á öldum ljósvak-
ans, þar sem þó er hennar staður
miklu fremur en í umræðu í dagblaði.
Nema hugsanlega í sérstökum þátt-
um um jaðartónlist sem Gufan ein
heldur úti. Þessi tónlist verður varla
þáttur í tilveru nema þeirra sem eiga
því láni að fagna að fá diskinn beinlín-
is upp í hendurnar – eða treysta þeim
sem þetta skrifar og kaupa hann!
Diskinn gera tveir af fremstu tón-
listarmönnum þjóðarinnar, Skúli
Sverrisson og Óskar Guðjónsson.
Þótt það sé nokkur aldursmunur á
þeim er bakgrunnurinn ekki ólíkur.
Báðir eru músíkmenntaðir og hafa
snert á flestum stefnum. Skúli byrjaði
í poppsveitum á Íslandi og var síðan
heitur í bræðings- og heimssveitinni
alþjóðlegu Full Circle en hefur síðan
færst í átt til tilraunakenndari hluta
og innhverfari. Sama má segja um
Óskar, sem ungur vakti strax mikla
athygli fyrir frísklega takta með ten-
órsaxinn. Hann sló síðan í gegn þegar
hann gekk til liðs við Mezzoforte og
hljóðritaði með henni Monkey Fields.
Keldulandið kom út í hittiðfyrra. Þar
blæs hann nokkur af fallegustu lögum
Jóns Múla heitins Árnasonar, ásamt
Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara, í
útsetningum í anda naumhyggju og
hver tónn á þar sína sögu.
Það er þó enginn naumhyggjublær
yfir Eftir þögn, nema helst bæklingn-
um sem fylgir. Vissulega er þetta
dúódiskur. Skúli leikur á bassagítar
og Óskar á beinan tenórsaxófón. Tón-
listin er aðgengileg og lagræn og með
klassísku yfirbragði. Kannski lag-
rænar stemningar. Á disknum eru
stemningar, hver annarri styttri, sjö
eftir Óskar, sex eftir Skúla og eina
semja þeir saman. Sú stysta er 1 mín-
úta og 19 sekúndur og heildarspilun-
artími er rétt rúmlega hálftími.
Eftir þögn hefur að geyma per-
sónulega tónlist. Á diskahulstri segir
líka að tónlistin hafi verið samin upp-
haflega fyrir fjölskyldur og vini. Þetta
persónulega og kannski líka naum-
hyggjuna má svo lesa út úr nöfnum
stemninganna: „Frið“, „Koma“,
„Hún“, „Mammamma“, „Anna kveð-
ur“, „Sætti“, „Höfnun“, „Mín ró“.
Stundum svífur tregi yfir vötnum og
stundum gáski en það er fyrst og
fremst angurværðin, kyrrðin eftir
þögnina og fyrsta flokks hljóðfæra-
leikur sem gera þennan disk að góð-
um vini.
Tónlist
Kyrrðin
eftir
þögnina
SKÚLI SVERRISSON OG
ÓSKAR GUÐJÓNSSON
Eftir þögn
Edda – miðlun og útgáfa
Dúódiskur með tónlist eftir Skúla Sverris-
son bassaleikara og Óskar Guðjónsson
saxófónleikara, inniheldur fjórtán lög.
Upptökur fóru fram í New York 2001 og í
Salnum í Kópavogi 2001.
Guðjón Guðmundsson