Morgunblaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002 17
SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKIN
Haraldur Böðvarsson hf., Skag-
strendingur hf. og Útgerðarfélag
Akureyringa hf. skiluðu samtals
2.040 milljóna króna hagnaði fyrstu
níu mánuði ársins 2002. Veltufé frá
rekstri fyrirtækjanna þriggja nam
samtals tæpum 2.200 milljónum
króna og eigið fé hinn 30. september
sl. nam um 7,2 milljörðum króna.
Rekstrartekjur félaganna námu alls
11,3 milljörðum króna fyrstu níu
mánuði ársins. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði nam rúmum
2,4 milljörðum króna, eða sem nem-
ur 22% af rekstrartekjum. Rekstr-
arhagnaður nam 2.040 milljónum
króna en þar af var gengishagnaður
um 1.200 milljónir. Eiginfjárhlutfall-
ið 34%. Heildareignir félaganna í lok
september sl. námu 21,3 milljörðum
króna, nettó-skuldir (þ.e. skuldir að
frádregnum veltufjármunum) 8,9
milljörðum og bókfært eigið fé var
um 7,2 milljarðar króna. Í lok sept-
ember var eiginfjárhlutfall samstæð-
unnar 34% og veltufjárhlutfall 1,47.
Ofangreind þrjú fyrirtæki mynda
nú sjávarútvegsstarfsemi Hf. Eim-
skipafélags Íslands. Rekstur þess-
ara félaga kemur aðeins að hluta
fram í samstæðuuppgjöri Eimskipa-
félagsins á þessu ári, þar sem kaupin
á þeim dreifast á árið. Rekstur Út-
gerðarfélags Akureyringa hf. er tek-
inn inn í samstæðureikning Eim-
skipafélagsins miðað við 1. apríl sl.,
rekstur Skagstrendings hf. miðað
við 1. júní sl. og rekstur Haraldar
Böðvarssonar hf. miðað við 1. nóv-
ember sl. Einnig má minna á að Eim-
skipafélagið hefur keypt þessi félög
á markaði þar sem kaupverðið hefur
verið hærra en bókfært eigið fé. Því
kemur það yfirverð, sem þá mynd-
ast, fram í formi hærri afskrifta í
Eimskipafélags-samstæðunni.
„Fyrirtækin þrjú, sem mynda
sjávarútvegshluta Eimskipafélags
Íslands, verða áfram rekin sem sjálf-
stæðar rekstrareiningar innan hins
nýja sjávarútvegsfélags. Lögð verð-
ur áhersla á sérhæfingu og arðsam-
an rekstur. Saman mynda þau eitt
öflugt sjávarútvegsfyrirtæki, sem
eina af meginstoðum í rekstri Eim-
skipafélagsins. Fyrirtækið hefur
átta lögaðila innan sinna vébanda, 10
starfsstöðvar hér á landi og hefur
starfsemi á öllum sviðum íslensks
sjávarútvegs. Sameiginlega hafa fé-
lögin umráð yfir aflaheimildum, sem
eru áætlaðar 11,4% af aflaheimild-
um, mældum í þorskígildum. Gera
má ráð fyrir að heildarvelta félag-
anna þriggja verði um 15 milljarðar
króna á yfirstandandi kvótaári,“ seg-
ir í frétt um afkomuna.
Yfir einingunum þremur verður
yfirstjórn, sem mun samhæfa rekst-
ur sjávarútvegsfyrirtækisins. Fram-
kvæmdastjóri þess er Guðbrandur
Sigurðsson en jafnframt því gegnir
hann áfram starfi framkvæmda-
stjóra Útgerðarfélags Akureyringa.
Aðstoðarframkvæmdastjóri er Stur-
laugur Sturlaugsson. Framkvæmda-
stjóri Haraldar Böðvarssonar hf. er
Haraldur Sturlaugsson og fram-
kvæmdastjóri Skagstrendings er Jó-
el Kristjánsson.
Mikil og skemmtileg
vinna framundan
„Þetta er nýtt og öflugt félag sem
byggist á traustum grunni þeirra fé-
laga sem að því standa. Við sem
myndum stjórnunarteymi nýja fé-
lagsins höfum mikla trú á framtíð
þess. Þetta er stærsta sjávarútvegs-
félag landsins með traustan efnahag,
mikla og góða fjármunamyndun, öfl-
ugan rekstur á öllum sviðum sjáv-
arútvegsins og með góða áhættu-
dreifingu. Það tel ég raunar mjög
mikilvægt í þeirri sveiflukenndu at-
vinnugrein sem sjávarútvegurinn
er,“ segir Guðbrandur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri sjávarútvegs-
starfsemi Eimskipafélagsins.
Guðbrandur segir að samlegðar-
áhrifa sé ekkert farið að gæta í af-
komutölum fyrir fyrstu 9 mánuði
ársins. „Framundan er mikil og
skemmtileg vinna við sameiningar-
ferlið og við væntum þess að hún
muni skila verulegum samlegðar-
áhrifum og efla félagið til enn frekari
sóknar í sjávarútveginum,“ segir
Guðbrandur.
HB, Skagstrendingur og ÚA
Hagnaður nam
2.040 milljónum
Dagskrá fundarins:
Föstudagur 22. nóvember:
Kl. 13:00 Afhending fundargagna
13:30 Setning - Pétur Rafnsson, formaður Ferðamálasamtaka Íslands
13:45 Ferðaþjónusta sveitarfélaga
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri
15:10 Kaffihlé
15:30 Aðalfundarstörf skv. lögum FSÍ
18:00 Skoðunarferð á Húsavík
20:00 Kvöldverður og kvöldvaka
Laugardagur 23. nóvember:
Kl. 09:30 Áherslur stjórnvalda í ferðaþjónustu á landsbyggðinni
Kristján Pálsson, alþ.m. og form. Ferðamálasamtaka Suðurnesja
10:15 Ferðatorg 2002 / 2003
Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri KOM
10:45 Bókunarkerfi frá fyrirtækinu Tourism in Action
Tim Diets, framkvæmdastjóri
11:15 Umræður
12:00 Fundarslit
Skráning á fundinn og bókun herbergja er hjá Hótel Húsavík í síma 464 1220
Framkvæmdastjórn FSÍ
AÐALFUNDUR
FERÐAMÁLASAMTAKA ÍSLANDS
VERÐUR HALDINN Á HÓTEL HÚSAVÍK
22. OG 23. NÓVEMBER 2002
FERÐAMÁLASAMTÖK ÍSLANDS
ICELANDIC TOURISM ASSOCIATION
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
1
/0
2