Morgunblaðið - 15.11.2002, Page 25
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002 25
Herradeild Akureyri,
sími 462 3599.
Frakkar
Stuttir og síðir
ullarfrakkar
perlur sem innihalda meira af
Omega fitusýrum en aðrar
fiskiolíur,ásamt EPA og DHA
www.islandia.is/~heilsuhorn
Laxalýsi
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
Hvatningarfundur
Geir H. Haarde
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
boðar til fundar
vegna prófkjörs sjálfstæðismanna
í Reykjavík
á Grand Hótel á morgun,
laugardag kl. 13.30 - 14.30.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
ÞÓRSSTÍGUR 4, AKUREYRI
Fasteignir Akureyrarbæjar auglýsa eftir
tilboðum í fasteignina Þórsstíg 4, Akureyri.
Um er að ræða iðnaðar- og skrifstofuhús talið
vera um 3773 m², að hluta til nýbyggt
iðnaðarhús og eldri hluti í góðu ásigkomulagi.
Flatarmál lóðar er 7341 m²,
möguleg lóðarstækkun 918,5m² .
Áskilin er réttur til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Tilboðum ber að skila eigi síðar
en 28. nóvember 2002 kl. 16:00,
á skrifstofu Fasteigna Akureyrarbæjar.
Fasteignir Akureyrarbæjar, Geislagötu 9,
4. hæð, sími 460 1000 og 460 1128.
RÁÐGERT er að framleiðsla
fiskafóðurs rúmlega tvöfaldist á
næsta ári hjá Fóðurverksmiðj-
unni Laxá á Akureyri. Áætluð
framleiðsla þessa árs er um 4.700
tonn en verði um 10.000 tonn á
næsta ári. Að sögn Valgerðar
Kristjánsdóttur, framkvæmda-
stjóra Laxár, kallar framleiðslu-
aukningin á tvöfaldar vaktir í
verksmiðjunni og fjölgun starfs-
fólks úr 10 í 14.
Valgerður sagði að þessi áform
fyrirtækisins miðust við að þær
væntingar og áætlanir í fiskeldi
gengju eftir, m.a. opnun laxeldis-
stöðvar í Reyðarfirði og stækkun
stöðvarinnar í Mjóafirði. „Ég er
mjög bjartsýn á framhaldið í fisk-
eldinu og þar eru vissulega spenn-
andi tímar framundan.“
Laxá hefur nú fjárfest í nýju
tæki í verksmiðjuna, sem gerir
fyrirtækinu kleift að framleiða
fitusnauðara fóður fyrir þorsk og
lúðu. Valgerður sagðist hafa mikla
trú á þorskeldi á komandi árum og
að innan tíu ára verði menn komn-
ir á fulla ferð í þorskeldi. „Ég tel
að við eigum enn meiri möguleika
í þorskeldi en laxeldi, þegar náðst
hefur árangur í kynbótastarfinu.“
Valgerður sagði að þessi mikli
uppgangur í fiskeldi kallaði á
aukna framleiðslu fiskafóðurs og
hún gerir ráð fyrir að afkastageta
verksmiðjunnar verði orðin full-
nýtt árið 2005, eða 18–20 þúsund
tonna framleiðsla á ári. Aukin um-
svif kölluðu jafnframt á frekari
framkvæmdir hjá fyrirtækinu og
sagði Valgerður að nauðsynlegt
væri að byggja nýtt lagerhúsnæði
og í framtíðinni nýja birgðastöð
fyrir hráefni. Birgðastöðin gæti
jafnframt nýst Bústólpa, gömlu
fóðurvörudeild KEA, sem nú er
hlutafélag.
Fóðurverksmiðjan Laxá
Framleiðslan
tvöfölduð
á næsta ári
VERSLUNIN Radionaust hefur
opnað nýja verslun á Furuvöllum 5
á Akureyri. Radionaust hefur starf-
rækt verslun við Geislagötu og
verslun og rafeinda- og raftækja-
verkstæði við Glerárgötu. Radio-
naust keypti verslun og viðgerð-
arverkstæði Tækniheima, sem
starfrækt var á Furuvöllum 5 og
sameinar þar starfsemi beggja fyr-
irtækja undir nafni Radionaust.
Húsnæðið á Furuvöllum 5 er um
900 fermetrar og þar starfa tæp-
lega 20 manns. Vöruflokkar Tækni-
heima verða áfram á boðstólum og
því eykst vöruúrval Radionausts til
muna, auk þess sem viðgerðarþátt-
urinn hefur styrkst enn frekar. Þar
er m.a. boðið upp á viðgerðir á tölv-
um, ljósritunarvélum, símkerfum
og heimilistækjum. Þá er Radio-
naust umboðsaðili fyrir Norðurljós
á Akureyri, sem rekur m.a. Stöð 2
og Sýn. Á efri hæð hússins á Furu-
völlum 5 verður Radionaust með
skrifstofuhald og sýningarsal á
húsgögnum, stórum ljósritunar-
vélum og stærri búnaði fyrir fyr-
irtæki.
Húsnæði Radionausts í Geisla-
götu, alls tæpir 400 fermetrar, hef-
ur verið auglýst til sölu eða leigu.
Radionaust kaupir Tækniheima
Morgunblaðið/Kristján
Eigendur Radionausts í nýju versluninni á Furuvöllum 5 á Akureyri. F.v.:
Robert Friðriksson, kona hans Rósa Gunnarsdóttir, Einar Guðmundsson
og Bjarni Þórhallsson.
Starfsemin sam-
einuð á einum stað
Á FUNDI stjórnar Norðurorku ný-
lega voru lögð fram drög að stofn-
fundagerð og samþykktum fyrir
hlutafélagið Norðurorku hf. Einnig
var rætt um væntanlega stofnun
hlutafélags um reksturinn, í fram-
haldi af þeirri vinnu og gagnasöfnun
sem fram hefur farið til undirbún-
ings stofnunar Norðurorku hf.
Stjórn Norðurorku samþykkti að
leggja til við bæjarstjórn að hún
staðfesti bókun stjórnar frá 10. maí
sl. og samþykki breytingu á rekstr-
arformi Norðurorku í hlutafélag frá
og með 1. janúar 2003.
Í bókun fundarins kemur fram sá
vilji stjórnar að allt verði gert til að
röskun á högum starfsmanna Norð-
urorku, við væntanlega breytingu,
verði sem minnst og samþykkir
stjórnin að allir núverandi starfs-
menn Norðurorku haldi störfum sín-
um og starfskjörum eftir því sem
unnt er hjá hinu nýja félagi.
Stjórnin telur á grundvelli fyrir-
liggjandi gagna og framtíðarskipan-
ar orkumála að breyting Norður-
orku í hlutafélag sé góður kostur og
til hagsbóta fyrir framtíð fyrirtæk-
isins. Stækkun fyrirtækisins með
samruna eða kaupum á öðrum fyr-
irtækjum verður auðveldari, stjórn-
un og ákvarðanataka skilvirkari og
lagalegt umhverfi í samræmi við það
sem gerist í nútímafyrirtækjum.
Forstjóra og fjármálastjóra ásamt
endurskoðanda Norðurorku var falið
að ræða frekar við forsvarsmenn Ak-
ureyrarbæjar um þau málefni er
semja þarf um við bæjarfélagið
vegna formbreytingarinnar og gera
tillögur til stjórnar fyrir 29. nóvem-
ber nk. að samkomulagi um þessi
mál.
Norðurorka verði hlutafélag
um næstu áramót
Starfsmenn haldi
störfum sínum og
starfskjörum
Málstofan ESB – ungt fólk og
framtíðin verður haldin í dag, 15.
nóvember kl. 15, en til hennar
efna
auðlindadeild og rekstrar- og við-
skiptadeild Háskólans á Akureyri
ásamt Landsbanka Íslands á Ak-
ureyri. Erindi flytja Eiríkur Berg-
mann Einarsson, stjórnmálafræð-
ingur og Birgir Tjörvi Pétursson,
framkvæmdastjóri Heimssýnar og
eftir erindin munu Þorgerður K.
Gunnarsdóttir og Bryndís Hlöð-
versdóttir alþingismenn taka þátt
í panelumræðum. Málstofan er öll-
um opin.
Í DAG
Fjórir eistneskir tónlistarmenn
þeir Jaan Alavere, Mait Trink,
Valmar Valjaots og Tarvo Nönm
mynda saman hljómsveitina
ATVN sem heldur tónleika í
Deiglunni annað kvöld, föstudags-
kvöldið 15. nóvember kl. 23.
Jaan spilar á píanó, hljómborð,
harmóniku, fiðlu, lágfiðlu, gítar
bassa, kontrabassa og trommur.
Tarvo spilar á trompet, gítar,
bassagítar, blokkflautu og tromm-
ur. Valmar spilar á fiðlu, altfiðlu,
píanó, orgel, harmóniku, hljóm-
borð og gítar. Mait er söngvari og
spilar á píanó, gítar, trompet og
blokkflautu. Þeir tala allir eistn-
esku og íslensku, og allir nema
einn rússnesku, finnsku og ensku.
Þeir búa allir hér á landi og eru
allir tónlistarkennarar í skólum á
Norðurlandi.
Á tónleikunum munu þeir flytja
írska og eistneska tónlist. Húsið
verður opnað kl. 22.30 og aðgang-
ur er kr. 1000.
Á MORGUN
Námskeið í heimajarðgerð verður
haldið í gömlu gróðrarstöðinni við
Krókeyri á Akureyri á laugardag,
16. nóvember frá kl. 13 til 16.
Vistfræðilegir og samfélagslegir
kostir jarðgerðar eru ótvíræðir
segir í frétt um námskeiðið, en með
því að skila aftur í jarðveginn þeim
næringarefnum sem bundin eru í
lífrænum leifum viðheldst hin eðli-
lega hringrás vistkerfanna. Aukin
endurvinnsla, eins og jarðgerð,
minnkar magn þess úrgangs sem
frá heimilum kemur og það skilar
sér í minni mengun en ella vegna
flutnings, urðunar og brennslu úr-
gangs.
Á námskeiðinu verður stutt bókleg
yfirferð og sýnikennsla í gróð-
urhúsi Framkvæmdamiðstöðvar
þar sem þátttakendum gefst færi á
að spyrja og miðla reynslusögum.
Kennarar eru Baldur Gunn-
laugsson kennari við Garðyrkju-
skóla ríkisins og Jóhann Thor-
arensen hjá Framkvæmdadeild
Akureyrarbæjar. Skráning er á
netfangið gudm@akureyri.is.
Á NÆSTUNNI