Morgunblaðið - 22.11.2002, Side 1
Al-Qaeda-stórlax í haldi
ABD al-Rahim al-Nashiri, meintur
yfirstjórnandi aðgerða al-Qaeda-
hryðjuverkasamtakanna á Persa-
flóasvæðinu, hefur verið handtek-
inn og er í gæzlu Bandaríkja-
manna. Þetta staðfestu banda-
rískir stjórnarerindrekar í gær.
Al-Nashiri er grunaður um að
hafa verið aðalskipuleggjandi
sprengjuárásarinnar á bandaríska
tundurspillinn USS Cole í höfninni
í Aden í Jemen í október 2000.
Hann kvað hafa náðst í Kúveit.
Al-Nashiri er
mesti „stórlax-
inn“ úr röðum al-
Qaeda-samtak-
anna sem hand-
samaður hefur
verið frá því Abu
Zubaydah, meint
hægri hönd
Osama bin Lad-
ens, náðist í samstilltri aðgerð
bandarísku leyniþjónustunnar
CIA, alríkislögreglunnar FBI og
pakistanskra yfirvalda í Faisala-
bad í Pakistan í marzmánuði sl.
Bandarísk stjórnvöld höfðu ný-
lega greint frá því að háttsettur al-
Qaeda-maður hefði verið handsam-
aður, en fram til þessa hafði ekkert
verið gefið upp um hver hann væri.
Al-Nashiri er grunaður um að
hafa verið viðriðinn mörg tilræði
sem rakin eru til al-Qaeda, þar á
meðal sprengjutilræðin mann-
skæðu við sendiráð Bandaríkjanna
í Tanzaníu og Kenýa árið 1998.
Washington. AP, AFP.
Abd al-Rahim
al-Nashiri
STOFNAÐ 1913 274. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 mbl.is
Markmaður
úr útlegð
Ólafur Gottskálksson hverfur frá
Brentford til Grindavíkur Sport 1
Dagar hinna
dverghögu
Laugardalshöll helguð vestnor-
rænu handverki Daglegt líf 4
„Viðfangsefni okkar hefur verið um-
breyting bandalagsins,“ sagði George
Robertson framkvæmdastjóri NATO
á fundi með blaðamönnum í Prag.
„Þetta er ekki hversdagslegt við-
fangsefni, heldur er nýtt og nútíma-
vætt NATO að verða til, í stakk búið
að fást við verkefni nýrrar aldar.“
Formlegar aðildarviðræður hefjast
bráðlega við ríkin sjö, sem eru Eist-
land, Lettland, Litháen, Slóvakía,
Slóvenía, Rúmenía og Búlgaría.
Stefnt er að því að þau verði fullgild
aðildarríki NATO eigi síðar en í maí
2004.
Með stofnun hraðliðsins hefur
NATO sagt endanlega skilið við land-
fræðilegar takmarkanir á starfsemi
bandalagsins. Ellefu aðildarríki und-
irrituðu á fundinum skuldbindingar
um að leggja bandalaginu til lang-
drægar herflutningavélar, skip og
eldsneytisflugvélar til að styrkja getu
þess til að senda hersveitir um langan
veg. Af sinni hálfu hefur Ísland lofað
að leigja flutningaflugvélar, komi til
aðgerða á vegum NATO, og verja til
þess allt að 300 milljónum króna.
Leiðtogarnir samþykktu harðorða
yfirlýsingu, þar sem skorað er á Írak
að fara að ályktunum öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna. Aðildarríkin
segjast öll sem eitt munu „grípa til að-
gerða sem duga til að aðstoða og
styðja Sameinuðu þjóðirnar til að
tryggja að Írak fari strax og að öllu
leyti, án skilyrða eða takmarkana, að
ályktun öryggisráðsins nr. 1441“.
Ekki liggur þó ljóst fyrir hvort þetta
þýðir að NATO sem slíkt muni taka
þátt í hugsanlegum hernaðaraðgerð-
um gegn Írak.
„Umbreyting“Atlantshafsbandalagsins samþykkt á leiðtogafundi í Prag
Reuters
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, og Davíð Oddsson forsætisráðherra ganga saman, ásamt leiðtogum ann-
arra NATO-ríkja, inn í ráðstefnusalinn við upphaf leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Prag í gær.
Stærra
sterkara
sneggra
bandalag
LEIÐTOGAR hinna nítján aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins
(NATO) tóku í gær ákvarðanir, sem leiða munu af sér miklar breyt-
ingar á bandalaginu. Á fundi sínum í Prag í Tékklandi ákváðu leiðtog-
arnir að bjóða sjö Austur-Evrópuríkjum aðild að bandalaginu. Þá var
ákveðið að setja á stofn hraðlið NATO, sem auka á viðbragðsflýti
bandalagsins og á m.a. að gera því kleift að fást við hryðjuverkamenn
eða herskáa einræðisherra í fjarlægum heimshlutum. Loks var ákveð-
ið að styrkja til muna hernaðargetu bandalagsins á ýmsum sviðum og
hétu mörg aðildarríkin því að auka útgjöld sín til varnarmála.
Forsætisráðherra segir engar efasemdir
um ágæti þess að stækka NATO 18 og miðopna
Prag. Morgunblaðið.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir að stækkun NATO sé „mikill
sigur fyrir bandalagið og fyrir þær
þjóðir innan þess, sem alla tíð hafa
verið þeirrar skoðunar að það ætti
að stækka NATO, þar á meðal fyrir
Ísland“.
Davíð segir að NATO hafi svarað
því skýrt og skorinort að það sé
bandalag allra lýðfrjálsra ríkja í
Evrópu, sem vilji gangast undir þau
skilyrði sem bandalagið setur og
tryggja öryggi sitt og frelsi í sam-
starfi við aðra.
Forsætisráðherra segist telja að
ályktun leiðtogafundarins um Írak
hefði mátt vera skýrari um hvað
muni gerast, fari Írakar ekki að
ályktunum öryggisráðsins. „Það
má engu að síður vera ljóst að verði
framhald, sem á einhvern hátt
verður tengt atbeina Sameinuðu
þjóðanna, er Atlantshafsbandalagið
reiðubúið að taka þátt í þeim að-
gerðum,“ segir Davíð.
Mikill sigur
fyrir NATO
Ástarsöngvar
frá hjartanu
Bjarni Ara með Silju
sinni á nýjum diski Fólk 75
GERHARD Schröder, kanzlari
Þýzkalands, og Bush Bandaríkja-
forseti takast í hendur í Prag í gær.
Þess hafði verið beðið með nokkurri
eftirvæntingu, en spenna hefur ver-
ið í samskiptum þeirra vegna
ágreinings um Íraksmál.
AP
Sáttir leiðtogar
SVO kann að fara að leiðtogar
NATO sitji uppi með óboðinn gest á
fundi sínum í dag með Evró-Atlants-
hafsráðinu, sem 46 ríki eiga aðild að.
Leoníd Kútsjma, forseti Úkraínu, er
staðráðinn í að mæta þrátt fyrir að
bæði NATO og tékknesk stjórnvöld
segi hann óvelkominn vegna stað-
fests gruns um þátttöku forsetans í
vopnasölu til Íraks.
Alexander Lúkasjenkó, forseti
Hvítrússlands, fékk hins vegar ekki
vegabréfsáritun og hefur hótað
Tékkum öllu illu.
Boðflennan
frá Úkraínu
Prag. Morgunblaðið.