Morgunblaðið - 22.11.2002, Síða 16

Morgunblaðið - 22.11.2002, Síða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 16 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HARPA Sjöfn er nú að fullu í eigu Eignarhaldsfélags Hörpu hf., eftir kaup þess á 45% hlut Sjafnar hf. í fyrirtækinu. Helgi Magnússon framkvæmda- stjóri Hörpu Sjafnar segir að sam- runi Hörpu og Sjafnar hafi gengið vel og verið í samræmi við þau markmið sem sett hafi verið. Vinnan við samrunann hafi þó verið meiri en menn hafi gert ráð fyrir en sam- runanum sé nú lokið. Helgi segir að markmið um markaðsstöðu fyrir- tækisins eftir samrunann hafi náðst og framleiðsla sameinaðs fyrirtækis sé nú meiri en hún hafi áður verið í fyrirtækjunum tveimur samanlagt. Samkeppni við innlenda og innflutta framleiðslu Aðspurður segir Helgi að erfitt sé að meta markaðshlutdeildina ná- kvæmlega þar sem málningarfram- leiðendur gefi ekki upp framleiðslu- tölur, en Harpa Sjöfn sé þó eftir samrunann stærst innlendu fram- leiðendanna þriggja, Hörpu Sjafnar, Málningar og Slippfélagsins. Helstu innflytjendur séu Byko og Húsa- smiðjan og mikil samkeppni sé á þessum markaði, bæði við innlenda framleiðslu og innflutta. Ekki er ætlunin að gera stefnu- breytingar hjá Hörpu Sjöfn í kjölfar breyttrar eignaraðildar. Verksmiðja og skrifstofur verða áfram á Stór- höfða 44 í Reykjavík þar sem einnig er málningarvöruverslun. Þar til viðbótar mun fyrirtækið áfram reka tvær verslanir í Reykjavík, eina í Kópavogi, eina í Keflavík og eina á Akureyri. Harpa var stofnuð árið 1936, en nafninu var breytt í Eignarhalds- félagið Hörpu þegar Harpa og Sjöfn sameinuðust hinn 1. september í fyrra. Fjölskylda Helga Magnús- sonar framkvæmdastjóra Hörpu Sjafnar á 77% hlutafjár í Eignar- haldsfélaginu Hörpu og Þóra Guð- rún Óskarsdóttir og fjölskylda eiga 23%. Önnur tækifæri skoðuð Baldur Guðnason er fram- kvæmdastjóri Sjafnar, en hann keypti 60% hlut í Sjöfn fyrir tæpum tveimur árum. Afganginn, 40%, á Kaldbakur fjárfestingarfélag. „Á þessum tíma var Sjöfn í ákveðnum rekstrarvanda,“ segir Baldur, „og það þurfti að endurskipuleggja reksturinn. Í framhaldi af því fórum við í heildarendurskipulagningu á rekstri Sjafnar sem leiddi af sér að í fyrra sameinuðum við málningar- deild Sjafnar og Hörpu í Hörpu Sjöfn. Hreinlætisvörudeild Sjafnar og Mjöll voru einnig sameinaðar í hreinlætisvörufyrirtækið Mjöll. Í framhaldi af þessu hefur verið mikil vinna að fylgja sameiningun- um eftir til að þær skili þeim ár- angri sem menn settu sér í sam- runaáætlununum.“ Baldur segir að þegar vinnunni við samrunann hafi verið lokið hafi verið rætt innan Sjafnar um framtíðarsýn fyrirtæk- isins. Þar hafi orðið að samkomulagi að rétt væri að skoða þann valkost að selja hlut fyrirtækisins í Hörpu Sjöfn til að það gæti einbeitt sér að öðrum þáttum þess rekstrar sem fyrirtækið sé í. Baldur segir að þeir Helgi Magnússon hafi rætt þetta og niðurstaðan hafi orðið sú að Eign- arhaldsfélag Hörpu myndi kaupa Sjöfn út. „Við munum nýta þá fjármuni sem við fáum út úr þessari sölu til að efla þá starfsemi sem við erum með í dag og skoða önnur tækifæri. Við höfum endurskoðað stefnu- mörkun Sjafnar og hún byggist á því að vera í breytingarstjórnun. Fara inn í rekstur þar sem þarf að taka til og breyta og auka verð- mætasköpun og arðsemi,“ segir Baldur. Kaupverðið er ekki gefið upp, en Baldur segir að eftir söluna standi Sjöfn mjög vel fjárhagslega. Heildareignir séu á fjórða hundrað milljónir króna og eiginfjárhlutfall yfir 70%. Sjöfn selur 45% í Hörpu Sjöfn Eignarhaldsfélag Hörpu á nú alla Hörpu Sjöfn Morgunblaðið/Golli Helgi Magnússon og Baldur Guðnason í verslun Hörpu Sjafnar. BAUGUR-ID hefur hagnast um einn og hálfan milljarð króna á fjárfesting- um í bresku félögunum Big Food Group (BFG) og House of Fraser (HoF) á undanförnum vikum, miðað við lokagengi í gær. Sem kunnugt er hagnaðist félagið um átta milljarða króna á viðskiptum með hlutabréf í Arcadia í september. Síðan hefur Baugur-ID keypt 16%, eða 55 milljónir hluta, í BFG og 17.225.000 hluti í HoF. Meðalkaupverð í BFG 38 pens Á hluthafafundi Baugs Group, sem haldinn var í fyrradag, kom fram að meðalkaupverð á hlut í BFG hefur verið 37,81 pens á hlut. Alls hefur Baugur-ID því keypt hlutafé í BFG fyrir tæplega 21 milljón punda, eða sem nemur 2,8 milljörðum króna. Lokagengi hlutabréfa BFG í gær var 55 pens og því var markaðsvirði hluts Baugs rúmlega fjórir milljarðar króna. Miðað við það gengi hefur fyr- irtækið því hagnast um tæplega 1,3 milljarða króna. Á fundinum kom einnig fram að meðalkaupverð á hlut í HoF nemur 60,18 pensum. Fjárfesting félagsins í HoF nemur því rúmum 10 milljónum punda, eða sem nemur 1,4 milljörðum króna. Lokagengi bréfa í fyrirtækinu var 70,5 í gær og því var markaðsvirði fjárfestingarinnar rúmlega 1,6 millj- arðar króna. Gengishagnaður Baugs- ID nemur 240 milljónum króna vegna kaupa á bréfum í HoF. Samtals er því hagnaður Baugs vegna þessara fjárfestinga, miðað við stöðuna í gær, rúmlega 1,5 milljarðar króna. Þessi tala getur þó breyst um- svifalaust með gengi félaganna. Baugur talinn vilja kaupa í Allders Sérfræðingar á fjármálamarkaði í London töldu líklegt að Baugur stæði á bak við tilboð sem gert var í gær í 10% hlutabréfa bresku verslunar- keðjunnar Allders. Við þessi tíðindi hækkuðu bréf í Allders um 20%. Tals- maður Baugs vildi ekki tjá sig um málið í samtali við Morgunblaðið en sagði að stefna fyrirtækisins væri að fjárfesta í smásölufyrirtækjum sem væru lágt metin. Bréf Baugs í BFG og HoF hafa hækkað um 1,5 milljarða EFNAHAGS- og framfarastofnunin, OECD, spáir 1,7% hagvexti á næsta ári hér á landi og 3,7% hagvexti árið 2004. Stofnunin spáir því hins vegar að hér verði enginn hagvöxtur í ár. Í spánni segir að niðursveifla efna- hagslífsins hafi orðið grynnri og styttri en gert hafi verið ráð fyrir vegna mikils vaxtar útflutnings sem vegið hafi upp samdrátt innlendrar eftirspurnar. Þrátt fyrir það hafi nið- ursveiflan nægt til að rétta af þann mikla viðskiptahalla og háu verðbólgu sem hafi verið orðin. Betri grundvöll- ur efnahagslífsins hafi gefið færi á lækkun vaxta og lagt grunninn að efnahagsbata. OECD segir að þar sem verðbólga sé orðin vel innan viðmiðunarmarka kunni að vera ástæða til frekari vaxta- lækkunar. Aukins aðhalds í peninga- málum verði hins vegar líklega þörf síðar á spátímabilinu þegar eftir- spurnin muni væntanlega aukast og líklegt sé að ráðist verði í meiriháttar fjárfestingar, en þar er átt við virkj- unarframkvæmdir vegna stóriðju. Aðhald í opinberum fjármálum er sagt nauðsynlegt til að vega upp áhrifin annars vegar af lækkunum tekjuskatts fyrirtækja og eignar- skatta og hins vegar af stóriðjufram- kvæmdum. Hægur efnahagsbati í heiminum Um alþjóðlega þróun efnahags- mála segir OECD að efnahagsbati verði hægur fram á næsta ár, en að flest svæði ættu að hafa náð sér upp úr efnahagslægðinni árið 2004. Spáð er 1,5% hagvexti í heiminum á þessu ári, 2,2% á því næsta og 4% árið 2004. Þrátt fyrir að vextir í Bandaríkj- unum hafi ekki verið lægri í 41 ár seg- ir OECD að seðlabankinn þar í landi ætti að vera við því búinn að lækka þá enn frekar ef ástæða þyki til þess. Japan ætti að mati stofnunarinnar að halda vöxtum nálægt núlli. Seðla- banki Evrópu ætti að lækka vexti fljótlega, segir OECD. Vaxtalækkun hans ætti að vera um 0,5% á næstu mánuðum, en síðar á árinu 2003 ættu þeir að fara hækkandi á ný. Stofnunin gerir ráð fyrir að hag- vöxtur í Bandaríkjunum verði á spá- tímabilinu með þeim mesta á meðal ríkari þjóða heimsins. Spáð er 3,6% hagvexti í Bandaríkjunum árið 2004, 2,7% á evrusvæðinu og 0,9% í Japan. OECD spáir 1,7% hagvexti hér 2003 Telur að ástæða kunni að vera til frekari lækkunar vaxta RAFTÆKJAVERSLUNIN Expert verður opnuð í Skútuvogi 2 í Reykjavík á morgun. Einar Long, framkvæmdastjóri verslunarinnar, segir að hjá Expert verði áhersla lögð á að veita góða þjónustu í þægilegu umhverfi. „Við verðum með mikið vöruúr- val, samkeppnishæft verð og eigin viðgerðarþjónusta er í sama hús- næði og verslunin,“ segir Einar. „Ýmsar nýjungar verða hjá okkur, eins og stór hljóðklefi, þar sem við- skiptavinirnir geta hlustað í ró og næði á það sem í boði er, og innrétt- ingadeild, bæði fyrir eldhús og bað- herbergi. Þá verða afgreiðslukass- ar fleiri en fólk á að venjast í raftækjaverslunum, eða níu alls, en markmið okkar er að bjóða við- skiptavinum okkar þægilegan verslunarmáta að öllu leyti.“ Expert á Íslandi er í eigu Expert Norge ASA sem starfrækir rúm- lega 380 verslanir á Norðurlöndum. Raftækja- verslunin Expert opn- uð á morgun Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Einar Long, framkvæmdastjóri Expert á Íslandi. greininni jákvæð sem saman mynda hagnað í greininni. Hafa ber í huga að ökutækjatryggingar eru lang stærsta vátryggingagreinin með rétt um helming iðgjalda félagsins. Iðgjöld vegna sjótrygginga hækka verulega um áramótin Hagnaður af rekstri ábyrgðar- trygginga var 56,1 milljón og hagn- HAGNAÐUR Tryggingamiðstöðv- arinnar hf. nam 173 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 333 milljónir. Nú eru ekki lengur reiknuð áhrif verðlagsbreytinga og því er ekki færð verðbreytingarfærsla í rekstr- arreikning. Hefði sami háttur verið viðhafður á síðasta ári hefði hagn- aður þess tímabils verið 91 milljón króna lægri. Hagnaður af ökutækja- tryggingum var 271,8 milljónir króna þrátt fyrir fleiri slys og óhöpp í umferðinni það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra. Skýrist það eink- um af því að tjónakostnaður hefur ekki verið jafn mikill og árið á undan. Einnig er matsþróun eldri tjóna í aður af rekstri slysa- og sjúkra- trygginga var 54,8 milljónir króna. Tap af rekstri eignatrygginga var 189,2 milljónir. Tap í sjó-, flug- og farmtryggingum var 52,5 milljónir en hagnaður hefur verið af rekstri þessarar greinar undanfarin ár. Þetta tap má m.a. rekja til tveggja stórra altjóna sem urðu á tímabilinu, þ.e. altjóna á ms. Guðrúnu Gísladótt- ur og ms. Aroni. „Slæm afkoma end- urtryggjenda félagsins í sjótrygg- ingum sem og versnandi staða á alþjóðlegum endurtryggingamörk- uðum mun leiða til stóraukins end- urtryggingakostnaðar fyrir félagið. Af þessum ástæðum, ásamt auknum tjónaþunga í greininni á undanförn- um árum, er óumfýjanlegt að iðgjöld í sjótryggingum muni hækka veru- lega frá næstu áramótum,“ segir í til- kynningu frá TM. Hagnaður af vátryggingarekstri var 134 milljónir og hagnaður af fjár- málarekstri var 246 milljónir króna. Bókfærð iðgjöld voru 5.775 milljónir, eigin iðgjöld voru 3.855 milljónir. Bókfærð tjón tímabilsins voru 5.525 milljónir en voru 3.724 milljónir króna eða 48,4% hærri en árið áður. Aukninguna má rekja til eins tjóns, þegar fjölveiðiskipið Guðrún Gísla- dóttir sökk undan Noregsströndum í júní síðastliðnum. Það tjón nemur u.þ.b. 2,2 milljörðum króna. Stjórnendur Tryggingamiðstöðv- arinnar telja að hagnaður félagsins geti orðið um 400 milljónir á árinu eða svipaður og á síðasta ári. Tryggingamiðstöðin með 173 milljónir í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins 272 milljóna hagnaður af ökutækjatryggingum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.