Morgunblaðið - 22.11.2002, Síða 30
BÖRN og unglingar innan 18 ára
aldurs og ellilífeyrisþegar geta
nýtt sér þjónustu almennings-
vagna Reykjanesbæjar án endur-
gjalds á næsta ári.
Íbúar Reykjanesbæjar greiða
áfram 100 krónur fyrir hverja
strætisvagnaferð en það er helm-
ingi lægra gjald en á höfuðborg-
arsvæðinu. Börn að sextán ára
aldri hafa greitt 50 krónur. Bæj-
arstjórn hefur ákveðið að fella
það gjald niður frá og með ára-
mótum og hækka aldursmörkin í
18 ár. Árni Sigfússon bæjarstjóri
segir að þjónusta almennings-
vagna sé aðallega notuð við upp-
haf og lok skóladags. Stjórn-
endur bæjarins hafi áhuga á að
hvetja börn, unglinga og eldri
borgara til að nota þjónustuna
einnig á öðrum tímum, til dæmis
til að sækja fjölbreytt íþrótta- og
tómstundastarf sem í boði er. Ala
þurfi unga fólkið upp í því að
nota almenningssamgöngur. Því
hafi verið ákveðið að bjóða þeim
þessa þjónustu án endurgjalds.
Frítt í strætó fyrir
börn og eldri borgara
SUÐURNES
30 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁFORMAÐ er að nýta til raforku-
framleiðslu orkuna sem myndast við
brennslu sorps í nýrri brennslustöð
Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.
Framkvæmdir hófust í gær með því
að Sigríður Jóna Jóhannesdóttir,
formaður stjórnarinnar, tók fyrstu
skóflustunguna á lóðinni að Berg-
hólabraut 7 í Helguvík.
Með því að breyta úrganginum í
orku er hægt að ná yfir 80% endur-
vinnslu sorps í stöðinni og verður
það hæsta hlutfall endurnýtingar í
landinu. Stöðin mun sjálf nýta helm-
ing áætlaðrar raforkuframleiðslu og
verður því sjálfbær hvað raforku
áhrærir og auk þess verður unnt að
nota varmann til að hita upp húsnæði
og snjóbræðslukerfi í plani.
Nýja sorpeyðingarstöðin er tví-
skipt, annars vegar móttöku- og
flokkunarstöð og hins vegar vélasal-
ur þar sem brennslulínan sjálft verð-
ur ásamt stjórnstöð og tilheyrandi
aðstöðu.
Fyrirhugað að reka gámaplan fyr-
ir almenning á lóð stöðvarinnar,
einnig í Grindavík og Vogum. Þar
mun íbúum gefast kostur á að koma
með forflokkaðan úrgang til endur-
vinnslu, líkt og gerist hjá Sorpu á
höfuðborgarsvæðinu.
Kostar 900 milljónir
Tekið verður á móti öllu sorpi inn-
andyra og engin meðhöndlun sorps
fer fram utanhúss. Sá úrgangur sem
kemur inn í flokkunarstöðina fer
annaðhvort beint í sorpþró til
brennslu eða er flokkaður til endur-
vinnslu. Aska og óbrennanlegur úr-
gangur sem til fellur verður urðaður
á nýjum sorphaugum sem teknir
verða í notkun á Stafnesi.
Brennslulínan getur afkastað
12.300 tonnum á ári og er tæknilega
mjög góð, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu sem Sorpeyðing-
arstöðin hefur sent frá sér. Hún mun
standast ströngustu reglur Evrópu-
sambandsins um útblástur, reglur
sem raunar hafa enn ekki tekið gildi
hér á landi.
Stöðin leysir af hólmi gömlu
brennslustöðina við Hafnaveg og
verður hún gangsett í lok næsta árs.
Byggingartími verður því rúmt ár en
þess ber að geta að lengi hefur verið
unnið að undirbúningi. Héðinn hf. er
aðalverktaki, byggir stálgrindarhús
og setur upp brennslulínu, en Ís-
lenskir aðalverktakar annast jarð-
vinnu og lóðarframkvæmdir.
Heildarkostnaður er nú áætlaður
um 900 milljónir kr., með virðisauka-
skatti en 720 milljónir án hans.
Sorpeyðingarstöðin annast
brennslu úrgangs frá sveitarfélögun-
um fimm á Suðurnesjum sem og frá
varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Við móttöku sem fram fór af þessu
tilefni í golfskálanum í gær rifjuðu
Sigríður Jóna og Guðjón Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, upp aðdragandann að byggingu
stöðvarinnar og skýrðu fyrirhugaða
uppbyggingu.
Sigríður lét þess getið að bygging
gömlu stöðvarinnar við Hafnaveg
hafi verið bylting í sorphirðu og eyð-
ingu sorps á svæðinu. Hún stæðist
ekki lengur kröfur tímans. Sveitar-
félögin hefðu enn á ný ákveðið að
leysa þessi mál sameiginlega og í
samvinnu við varnarliðið og myndi
nýja stöðin verða mikil lyftistöng á
sviði sorphirðu og umhverfismála á
Suðurnesjum.
Framkvæmdir hafnar við byggingu nýrrar flokkunar- og brennslustöðvar
Yfir 80% end-
urvinnsla úr-
gangs í stöðinni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sigríður Jóna Jóhannesdóttir, formaður stjórnar Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja, fékk það verkefni að hefja framkvæmdir við nýju flokkunar-
og brennslustöðina í Helguvík og notaði við það voldugt vinnutæki.
Flokkunar- og brennslustöðin verður í stálgrindarhúsi og gámasvæði verð-
ur á planinu og mun líta svona út, samkvæmt fyrstu drögum arkitektanna.
Helguvík
GJALDSKRÁ þjónustu hjá Reykja-
nesbæ er í mörgum tilvikum lægri en
hjá stóru sveitarfélögunum á höfuð-
borgarsvæðinu. Ákveðið hefur verið
að börn og unglingar innan 18 ára ald-
urs og ellilífeyrisþegar fái frítt í al-
menningsvagna frá og með áramót-
um.
Unnið er að undirbúningi fjárhags-
áætlunar Reykjanesbæjar. Verður
tillaga að henni lögð fyrir bæjarstjórn
3. desember og er stefnt að því að hún
verði samþykkt á fundi 10. desember,
að sögn Árna Sigfússonar bæjar-
stjóra. Er það fyrr en verið hefur.
Segir Árni mikilvægt að stjórnendur
viti fjárhagsrammann tímanlega og
séu tilbúnir þegar nýtt ár hefst.
Bæjarstjórn hefur þegar samþykkt
gjaldskrár fyrir næsta ár. Hafa þær í
för með sér ýmsar breytingar á þjón-
ustugjöldum, bæði til hækkunar og
lækkunar. Árni segir að breytingarn-
ar miði að því að þjónusta og þjón-
ustugjöld í sveitarfélaginu séu vel
samkeppnisfær við það sem algeng-
ast er á höfuðborgarsvæðinu. Saman-
burðurinn miðist þó í flestum tilvikum
við þau gjöld sem gilda á þessu ári hjá
hinum sveitarfélögunum þar sem
breytingar fyrir næsta ár séu ekki
ljósar hjá öllum.
Leikskólagjöld hækka
Útsvar verður óbreytt á næsta ári,
12,7%, sömuleiðis fasteignaskattur og
önnur fasteignagjöld, nema hvað ekki
hafa verið teknar ákvarðanir um
sorphirðugjald.
Leikskólagjöld hækka um 5 til 11%
en eru eigi að síður talsvert lægri en í
Reykjavíkurborg. Mánaðargjald fyrir
átta tíma vistun með mat og hress-
ingu verður á næsta ári 22.800 krónur
í leikskólum Reykjanesbæjar en
27.000 krónur í Reykjavík. Foreldrar
sem eru með tvö börn í leikskóla
þurfa að greiða tæpar 40 þúsund í
Reykjanesbæ en rúmar 45 þúsund
krónur í Reykjavík.
Sumir gjaldskrárflokkar í Tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar hækka
verulega en aðrir standa í stað. Eigi
að síður eru gjöldin talsvert lægri en
til dæmis í Reykjavík. Gerðar hafa
verið athugasemdir við það að nem-
endur á 6. stigi í tónlistarnámi og ofar
verða framvegis látnir greiða hærra
gjald en yngri nemendur. Kjartan
Már Kjartansson bæjarfulltrúi telur
að þetta sé síst til þess fallið að hvetja
nemendur til áframhaldandi tónlist-
arnáms. Árni segir að þessi breyting
hafi verið ákveðin að tillögu skóla-
stjóra Tónlistarskólans þar sem
kostnaður við þessa nemendur sé
meiri en við kennslu þeirra yngri.
Gjald í sund hefur verið hærra í
Reykjanesbæ en hjá sveitarfélögun-
um á höfuðborgarsvæðinu. Mun stak-
ur sundmiði fullorðinna kosta 200
krónur á næsta ári, eins og nú er á
höfuðborgarsvæðinu, í stað 220 kr. og
stakur miði barna mun kosta 100
krónur í stað 110 kr.
Þjónustugjöld höfð lægri
en á höfuðborgarsvæðinu
Reykjanesbær
Útgjöld
fram úr
áætlun
ÚTLIT er fyrir að útgjöld Gerða-
hrepps verði 44 milljónum krónum
hærri en gert var ráð fyrir í fjár-
hagsáætlun og að til fjárfestinga
verði varið 23 milljónum umfram
áætlun. Tekjur aukast ekki að sama
skapi. Til að mæta þessu hefur
meirihluti hreppsnefndar ákveðið að
taka 50 milljóna króna lán.
Þessar upplýsingar komu fram
þegar endurskoðuð fjárhagsáætlun
ársins kom til síðari umræðu í
hreppsnefnd. Hún var samþykkt
með atkvæðum fulltrúa F-listans
sem skipa meirahluta en fulltrúar I-
og H-lista sátu hjá.
Í bókun, sem fulltrúar F-listans
lögðu fram, kemur fram að útgjöld
vegna fræðslumála fara 23 milljónir
kr. fram úr áætlun. Talið er nauð-
synlegt að finna ástæður fyrir því og
leiðir til að ná kostnaðinum niður.
Ástæða þess að fjárfestingar fóru
fram úr áætlun eru sagðar þær að
átak í lagningu gangstétta hafi orðið
mun dýrara en áætlað var. Lögð er
áhersla á að á næsta ári verði ekki
unnið fyrir hærri upphæð en varið
verður til verksins. Þá kemur fram
að á árinu hefur verið mikil ásókn í
byggingarlóðir. Þurft hafi að undir-
búa lóðir og leggja vegi á fjórum
stöðum í byggðarlaginu.
Fram kemur í bókun meirihlutans
að samkvæmt endurskoðaðri fjár-
hagsáætlun ársins taki rekstur
málaflokka, án eignfærðrar fjárfest-
ingar, til sín liðlega 87% af tekjun-
um. Leggja fulltrúarnir áherslu á að
við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs
verði hlutfallinu komið niður í 80%.
Garður
South River Band gengst fyrir
söngkvöldi í kvöld, föstudag, í veit-
ingahúsinu Vitanum í Sandgerði.
Hljómsveitin leiðir sönginn og öllum
textum verður varpað á sýning-
artjald þannig að auðvelt verður að
fylgjast með og taka undir.
Á efnisskránni eru íslensk alþýðu-
og dægurlög með innskotum af eigin
efni hljómsveitarinnar.
Söngkvöldið hefst kl. 22. Miðasala er
við innganginn.
Í DAG
HEILBRIGÐISMÁL verða rædd á
opnum fundi sem Félag eldri borg-
ara á Suðurnesjum (FEB) boðar til á
morgun, laugardag, í samstarfi við
Reykjanesbæ og verkalýðsfélög.
Fundurinn verður í félagsheimilinu
Stapa í Njarðvík.
Yfirskrift fundarins er: Betri
heilsa, bætt mannlíf, gegn fátækt.
Fundurinn hefst klukkan 11 með
ávarpi Hilmars Jónssonar, formanns
FEB. Síðan flytur Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra eða staðgengill
hans erindi svo og Þórunn Svein-
björnsdóttir, varaformaður Efling-
ar, María Ólafsdóttir heimilislæknir
og Magnús Pétursson forstjóri.
Eldri borgarar
halda fund um
heilbrigðismál
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦