Morgunblaðið - 22.11.2002, Side 33
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 33
SAMBAND austfirskra kvenna hélt
nýverið aðalfund sinn á Skriðu-
klaustri í Fljótsdal. Þetta er 76.
starfsár sambandsins og hefur það
innan sinna vébanda 14 kvenfélög
með um 250 félagskonum.
Guðborg Jónsdóttir hefur verið
formaður SAK undanfarin þrjú ár.
Hún segir að utan venjubundinna að-
alfundarstarfa hafi nýútkomin bók,
Djúpar rætur, hugverk þingeyskra
kvenna, verið kynnt. „Okkur stendur
til boða að þess háttar bók verði
skrifuð um hugverk austfirskra
kvenna og gefin út, sem er mjög
áhugavert verkefni,“ segir Guðborg.
Þá leggjast allir á eitt um að safna
hugverkum í bundnu og óbundnu
máli frá öllum tímum eftir austfirsk-
ar konur. Útgefandinn, Björn Hró-
arsson hjá Pjaxa ehf., mun starfa
með ritnefnd austfirskra kvenna að
því að koma þessari bók saman. „Við
höfum einmitt rætt það hvernig sam-
bandið gæti stutt við bakið á þeim
konum sem vildu gefa út eigið efni og
þarna gefst tækifærið. Auk þess
værum við að halda til haga verð-
mætum þætti í sögu austfirskra
kvenna.“
Næsta sumar verður Landsþing
Kvenfélagasambands Íslands haldið
á Hallormsstað, en það er haldið
þriðja hvert ár. „Við byrjuðum að
leggja drög að því strax í júní sl.,“
segir Guðborg. „Þetta verður um 200
kvenna þing og allar konur velkomn-
ar. Það stendur í fjóra daga, frá 12. til
14. júní, og mikið verður um að vera.
Af því tilefni komu forseti KÍ og
framkvæmdastjóri, þær Helga Guð-
mundsdóttir og Kristín Guðmunds-
dóttir, á aðalfundinn til að fara yfir
hvert okkar hlutverk verður í þing-
haldinu og undirbúningi, en það er
einkum að sjá um hina ytri umgjörð
þingsins.“
Þá var á aðalfundinum rætt um
málefni Hússtjórnarskólans. Sam-
band austfirskra kvenna er einn af
bakhjörlum skólans en vilji er til þess
innan sambandsins að koma beinlínis
að uppbyggingu skólans, sem vex nú
og dafnar eftir áralanga erfiðleika.
Laga sig að nýjum tímum
Aðspurð um stöðu kvenfélaga á
Austurlandi segir Guðborg hana ær-
ið misjafna. „Sum félögin eru fámenn
en samt ekkert á því að gefast upp,
enda sinna þau mikilvægum sam-
félagsþáttum hvert í sinni heima-
byggð. Engum dylst að tímarnir hafa
breyst frá því að kvenfélögin voru
stofnuð. Áður fyrr var mikil þörf fyr-
ir þau í sveitum landsins. Enn þann
dag í dag eru kvenfélögin að láta gott
af sér leiða, þótt hljótt fari. Við reyn-
um að breyta áherslunum í fé-
lagsstarfi okkar í takt við nýja og
breytta tíma og ein leiðin er sú að
huga líka að félagskonunum og hvað
við getum gert fyrir þær.
Það er nokkuð um það að ungar
konur gangi í kvenfélögin. Fjöldi fé-
lagskvenna er frá 7 konum og upp í
41 eina konu í félagi. Sem dæmi má
nefna útverði okkar í norðri, konurn-
ar í Lindinni í Vopnafirði, sem eru
mjög öflugar, 23 talsins. Þá er stórt
kvenfélag á Norðfirði. En stór eða
smá, öll eru þau mikilvægir hlekkir í
SAK,“ sagði Guðborg að lokum.
Orlofsnefnd húsmæðra starfar á
sambandssvæðinu. Í nóvember í
fyrra fóru 39 konur af svæðinu í vel
heppnað húsmæðraorlof til Prag, en
ráðgert er að fara annað hvert ár í
orlofsferð.
Í nýkjörinni stjórn SAK sitja Guð-
borg Jónsdóttir, sem áfram verður
formaður, Sælín Sigurjónsdóttir og
Ragnheiður K. Hall. Í varastjórn eru
Ásta Jónsdóttir, Björk Gunnlaugs-
dóttir og Svandís Sigurjónsdóttir.
Konur fjölmenna í
Hallormsstaðaskógi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Samband austfirskra kvenna hélt aðalfund sinn á Skriðuklaustri. Kven-
félögin á Austurlandi eru 14 talsins með um 250 félagsmenn.
Egilsstaðir
SÍÐASTLIÐINN sunnudag var
haldinn handverksmarkaður í golf-
skálanum á Efra-Seli en á þeim bæ
er fjölsóttur átján holu golfvöllur.
Um tuttugu aðilar, komnir víðs-
vegar að, voru með margskonar
handunnar vörur til sölu, meðal ann-
ars muni sem greinilega eru unnir
af listfengi og alúð. Staðarhaldarar í
Efra-Seli, þau Ásta Guðný Daníels-
dóttir og Halldór Guðnason, geng-
ust fyrir markaðnum sem og Helena
Eiríksdóttir handavinnukennari.
Veitingar voru með afslætti og
gestir voru fjölmargir.
Nokkrir nemendur úr Barnakór
Flúðaskóla voru með tombólu en
ákveðið er að barnakórinn fari til
Ungverjalands í byrjun maí á næsta
ári. Börnin eru um þrjátíu talsins
sem ætla að syngja fyrir Ungverja
en margir foreldrar munu fylgja
með. Þau safna nú peningum af
krafti til fararinnar; svo sem flösk-
um og dósum, ætla m.a að halda
söngskemmtun, kökubasar og sitt-
hvað fleira. Tónlistarkennari þeirra
og fararstjóri er Edit Molnár en hún
er einmitt frá Ungverjalandi.
Fréttaritari smellti mynd af fjórum
áhugasömum stúlkum sem sögðust
vera farnar að hlakka til fararinnar.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds
Dröfn Magnúsdóttir, Auður Grétarsdóttir, Þórdís Gísladóttir og Sigrún
Sigurðardóttir voru að safna fyrir utanlandsferð Barnakórs Flúðaskóla.
Grunnskólanemendur
safna til utanfarar
Hrunamannahreppur
DJASSSVEITIN Kuran Swing
hélt tónleika í Félagsheimili
Hvammstanga sl. sunnudag á veg-
um Tónlistarfélags V-Hún. Sveit-
ina skipa: Szymon Kuran, Björn
Thoroddsen, Ólafur Þórðarson og
Jón Rafnsson. Hljómsveitin skil-
greinir sig í flokki swing, djass og
heimstónlistar. Gestaleikari með
sveitinni var Jörgen Svare, dansk-
ur klarinettleikari, sem talinn er
einn besti djassleikari í Evrópu.
Tónleikarnir voru afar vel heppn-
aðir og skemmtu gestir sér hið
besta. Í hléi var boðið upp á kaffi
og vöfflur.
Tónlistarfélag V-Hún. hefur
starfað í ellefu ár og stendur fyrir
mánaðarlegum tónleikum frá
hausti til vors. Meðlimir félagsins
greiða árgjald en fá frían aðgang
að tónleikum. Vetrarstarf félagsins
hófst í október með píanótónleik-
um Þorsteins Gauta Sigurðssonar.
Leitast er við að fá flytjendur sem
fjölbreyttastrar tónlistar og að sem
flestir njóti þessa framtaks. Næstu
tónleikar verða 15. desember í Fé-
lagsheimili Hvammstanga en þar
koma fram allir starfandi kórar í
héraðinu með jóla- og aðventutón-
list..
Núverandi stjórn Tónlistarfélags
V-Hún. skipa: Guðmundur St. Sig-
urðsson, sem er formaður, Elin-
borg Sigurgeirsdóttir, Bjarni Þór
Einarsson, Lilja Björk Jónsdóttir
og Jón Eiríksson.
Ljósmynd/BÞE
Kuran Swing og Jörgen Svare í léttri sveiflu á Hvammstanga.
Fjölbreytt tón-
list fyrir alla
Hvammstangi
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
SÚ nýbreytni var á starfsdegi nýlega að kennarar
og annað starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi, fóru
í skólaheimsóknir á höfuðborgarsvæðinu. Skiptist
fólk á milli fimm grunnskóla og viðaði að sér hug-
myndum og kynntist störfum annarra. Eftir hádegi
voru Orkuveita Reykjavíkur og Skólavörubúðin
heimsótt. Þeir sem höfðu úthald fóru síðan í Bláa
lónið síðdegis á meðan hinir fóru heim í Borgarnes.
Meðfylgjandi mynd er tekin af hópnum á lóðinni við
Skólavörubúðina.
Heimsóttu skóla í höfuðborginni
Borgarnes
UM nokkurt árabil hafa félög eldri
borgara á Snæfellsnesi hist á sam-
eiginlegri skemmtun að hausti til.
Félögin á hverjum þéttbýlisstað,
þ.e í Grundarfirði, Snæfellsbæ og
Stykkishólmi, hafa skipst á um að
halda þessar skemmtanir og fengið
til liðs við sig ýmis félagasamtök
hvert á sínum stað.
Að þessu sinni var komið að
Eldriborgarafélagi Grundarfjarðar
að halda samkomuna og fór hún
fram í Samkomuhúsi Grundar-
fjarðar að kvöldi fyrsta vetrardags
sl. Um 150 manns mættu og áttu
þar saman góða kvöldstund. Boðið
var upp á mat og skemmtiatriði og
að síðustu var dansað fram á nótt.
Matreiðsla og framreiðsla matar
var í höndum Kvenfélagsins Gleym
mér ei, Lionsklúbbs Grundarfjarð-
ar og Rauða krossdeildarinnar í
Grundarfirði. Veislustjóri var Páll
Cecilsson. Formaður Eldriborg-
arafélags Grundarfjarðar er Elís
Guðjónsson.
Morgunblaðið/ Gunnar KristjánssonEldri borgarar glaðir á góðri stund.
Eldri borgarar á Snæ-
fellsnesi skemmta sér
Grundarfjörður