Morgunblaðið - 22.11.2002, Page 39
LISTIR/KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 39
KVIKMYNDAIÐNAÐURINN
hefur jafnan sótt viðfangsefni í
verk höfuðskáldanna og sú er
raunin með rómantísku gam-
anmyndinni The Importance of
Being Earnest sem byggð er á
samnefndu leikriti eftir Oscar
Wilde. Það var sýnt hérlendis und-
ir nafninu Hreinn umfram allt, og
er eitt sígildra leikhúsbókmennta-
verka írskættaða skáldjöfursins.
The Importance of Being
Earnest hefur verið kvikmyndað
a.m.k. 6 sinnum áður, þar af þrisv-
ar fyrir sjónvarp. Útgáfan sem er
frumsýnd í Regnboganum í dag er
með völdum leikurum í hverju
hlutverki í þessu vitsmunalega og
fjöruga verki sem gerist í Eng-
landi á ofanverðri 19. öld. Aðal-
persónurnar eru tveir ungir herra-
menn og ungar, fagrar og forríkar
stúlkur.
Jack Worthing (Colin Firth) á
sér vel varið leyndarmál: Hann lif-
ir tvöföldu lífi. Annarsvegar nýtur
hann lífsins sem virtur og hæglát-
ur heiðursmaður sem býr á sínum
herragarði úti á landsbyggðinni,
þar sem hann er m.a. forsjármaður
hinnar undurfögru og vellauðugu
Cecily Cardew (Reese Wither-
spoon). Á hinn bóginn, þegar hann
langar að skvetta úr klaufunum,
bregður Jack sér til Lundúna þar
sem hann dvelur undir undir
fölsku flaggi og segist vera Earn-
est Worthing – bróðir sem hann
hefur skáldað upp. Í Lundúnum
býr hann við glaum og gleði og
stundar stíft ljúfa lífið ásamt Algy
Moncrieffe (Rupert Everett),
besta vini sínum.
Hitt veit Jack ekki að Algy not-
ar einnig dularnefnið Earnest og
til að skemma ekki ánægjuna fyrir
væntanlegum bíógestum er ekki
skynsamlegt að fara nánar útí þær
fléttur og uppákomur sem þetta
sameiginlega dulnefni á eftir að
leiða þá vinina í. Ekki síst eftir að
kvenkostirnir Gwendoline
(Frances O’Connor), og Cecily
dragast inn í framvinduna.
Þeir Firth (Bridget Jones Diary,
Shakespeare in Love) og Everett
(Another Country, My Best
Friends Wedding) eru báðir með
virtari leikurum Breta. Hitt verður
forvitnilegra að sjá hvernig Suð-
urríkjastúlkunni, bandarísku leik-
konunni Reese Witherspoon, geng-
ur að fást við sitt hábreska,
vitræna gamanhlutverk. Farnast
henni eins vel og Gwyneth Paltrow
í Emmu? Það kemur fljótlega í
ljós.
Meðal annarra kunnra nafna í
leikhópnum ber sérstaklega að
geta stórleikaranna Judi Dench,
Toms Wilkinson og Edwards Fox.
Leikstjóri er Oliver Parker.
Snúin gamanmál
The Importance of Being Earnest er byggð á samnefndu leikriti eftir Osc-
ar Wilde. Það var sýnt hérlendis undir nafninu Hreinn umfram allt.
Regnboginn frumsýnir The Importance
of Being Earnest.
Leikarar: Rupert Everett, Colin Firth,
Reese Witherspoon, Judi Dench, Franc-
es O’Connor, Tom Wilkinson, Anna
Massey og Edward Fox.
SÍÐAN Harry Potter kom fyrst fram
á sjónarsviðið árið 1997 í bókinni
Harry Potter og viskusteinninn hafa
vinsældir hans slegið öll met um allan
heim. Fjórar bækur hafa komið út og
nú er sú fimmta á leiðinni. Fyrsta
kvikmyndin um hann, sem var byggð
á fyrstu bókinni, kom út í nóvember
árið 2001 og komst fljótt í annað sæti
yfir vinsælustu kvikmyndir allra
tíma. Harry Potter og leyniklefinn,
sem frumsýnd verður í dag, er byggð
á annarri bókinni í Harry Potter ser-
íunni, en alls er stefnt að því að kvik-
myndirnar verði sjö talsins.
Í Harry Potter og leyniklefinn eru
Harry, Ron og Hermione á leið í 2.
bekk í Hogwarts-skóla, en fyrst þarf
Harry að þola sumarið hjá Dursley-
fjölskyldunni, en þau láta eins og
hann sé ekki til. Á tólf ára afmæli
Harrys kemur lítill húsálfur, sem
kallar sig Dobby, til hans. Dobby var-
ar Harry við að fara aftur í Hog-
warts-skólann því að þar leynist mikl-
ar hættur. Þegar Harry þarf að velja
á milli þess hvort hann eigi að hætta á
að vera í skólanum með vinum sínum
eða dvelja lengur með mugga-
fjölskyldunni, þá velur hann hætt-
urnar umfram fjölskylduna.
Fljótlega eftir að Harry er kominn
í Hogwarts-skóla fara skrýtnir hlutir
að gerast. Harry fer að heyra hvísl,
sem enginn annar heyrir. Nokkrir
nemendur, sem hafa muggablóð í æð-
um sínum, hafa breyst í steinlíki en
enginn veit hver er að breyta þeim.
Það hjálpar ekki að orðrómur um að
Harry sé afkomandi Salazar Slyth-
erin fer af stað í skólanum. Slytherin
var einn af þeim fjórum galdrakörl-
um, sem stofnuðu Hogwarts-skóla og
er sagður hafa búið til leyniklefa, sem
er heimili hræðilegs skrímslis. Harry
byrjar að rannsaka málin með hjálp
frá Ron og Hermione. Saman reyna
þau að leysa gátuna um hinn dul-
arfulla leyniklefa.
Sögurnar um Harry Potter eru eft-
ir breska rithöfundinn J.K. Rowling,
en kvikmyndin er í leikstjórn Chris
Columbus.
Kanna sögusagnir um
dularfullan leyniklefa
Sambíóin, Álfabakka, Kringlunni, Kefla-
vík og á Akureyri, ásamt Háskólabíói og
bíóhúsunum á Ísafirði og Akranesi
frumsýna Harry Potter og leyniklefinn.
Leikarar: Daniel Radcliffe, Rupert Grint,
Emma Watson, Kenneth Branagh,
Robbie Coltrane, Richard Harris, Alan
Rickman, Maggie Smith, John Cleese og
Warwick Davis.
Harry Potter og leyniklefinn, sem frumsýnd verður í dag, er byggð á ann-
arri bókinni í Harry Potter-seríunni, en alls er stefnt að því að kvikmynd-
irnar verði sjö talsins.
SPENNUTRYLLIRINN
Swimfan er sagður vera
einskonar unglingaútgáfa af
Fatal Attraction en Jesse
Bradford úr Clockstoppers
leikur menntaskólanema,
sem verður fyrir hrottalegu
áreiti, ofbeldi og einelti eft-
ir „einnar nætur gaman“
með nýju sætu stelpunni í
skólanum sem Erika
Christensen úr Traffic leikur.
Söguþráðurinn er á þá leið að
Ben Cronin virðist hafa allt í hendi
sér sem ungir menn geta óskað
sér. Hann er góður nemandi, innsti
koppur í búri í vinahópnum og
kærastan hans, Amy Miller, er al-
gjört æði. Í ofanálag hefur Ben
frábæra sundhæfileika, sem eru að
fleyta honum inn í góðan háskóla.
Ben lætur samt velgengnina ekki
stíga sér til höfuðs heldur leggur
sig allan fram við námið og sund-
þjálfunina. Óhætt er að segja að
hann verji svo sannarlega flestum
frístundum í æfingar og heldur
nánast til í lauginni. Allt gengur að
óskum þangað til Madison Bell
flytur í bæinn. Hún er glæsileg og
veit hvað hún vill, en það versta er
að hún þekkir illa hvað felst í hug-
takinu höfnun. Madison verður
samstundis hrifin af Ben og fyrr
en varir er hún byrjuð að beita öll-
um brögðum til að góma piltinn.
Það gengur ekki til að byrja með
svo klækirnir stigmagnast uns
markinu er náð eina kvöldstund.
Madison verður aðalaðdáandi
sundgarpsins en fljótlega verður
hún jafnframt hans aðalmartröð
þegar hrifningin og síðan höfnunin
breytist í þráhyggju og bilun, sem
endar með ósköpum.
Spennutryllirinn Swimfan komst
í efsta sæti vinsældalistans í haust
og leikstjórinn, hinn
ástralski John Polson,
naut samstundis góðs af.
Hann er um þessar
mundir að byrja á Fear
Itself, nýrri mynd með
hinum vinsæla Edward
Norton, sem fer með
hlutverk í Red Dragon, í
aðalhlutverki. Handrit
myndarinnar skrifaði
Charles F. Bohl, en það
undirstrikar m.a. að
freistingarnar geta
leynst þar sem menn síst
grunar, ekki síst í nýju
stelpunum í bænum.
Freistingarnar
leynast alls staðar
Smárabíó og Borgarbíó, Ak-
ureyri, frumsýna Swimfan.
Leikarar: Erika Christensen,
Shiri Appleby, Dan Hedaya og
Jesse Bradford.
Spennutryllirinn Swimfan er sagður vera einskonar
unglingaútgáfa af Fatal Attraction.
Fyrir jólin bjóðum við upp á glæsilegt
mini-hlaðborð
Rjómalöguð súpa með nýbökuðu brauði, hangikjöt,
ávaxtafyllt lambalæri, hamborgarhryggur, kalkúnn, villipate,
hreindýrapate, kartöflusalat, hrásalat, rauðkál, grænar baunir,
4 tegundir af síld, sjávarrétta- gratín, sykurbrúnaðar kartöflur,
fiskipate, tartarsósa, rauðvínssósa, sveppasósa
og ýmislegt fleira sem og eftirréttir.
Jólahlaðborð á aðeins
2.100 kr.
(Munið að panta strax)
Pantanasími 568 0098
eða hjá Siggu í síma 699 1070
Fimmtudaga, föstudaga
og laugardaga frá og með
28. nóvember
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík.
Sýningarsalir, safnbúð og kaffistofa,
opið alla daga nema mánudaga frá kl. 11-17.
Vefsetur: www.listasafn.is
Stærsta sýning á íslenskri samtímalist til þessa
ÍSLENSK MYNDLIST
1980-2000
Á fræðsludagskránni:
• Leiðsögn alla þriðjudaga og sunnudaga.
• Aukið sýningarrými - aldrei verið meira.
• Stækkuð safnbúð með nýjum vörum.
• Opinn gagnagrunnur í tölvum safnsins.
Málþing laugardaginn 23. nóvember kl. 11-13
Leiðsögn sunnudaginn 24. nóvember kl. 15-16
Staða íslenskra listamanna og alþjóðleg tengsl myndlistar.
Stjórnandi: Dr. Ólafur Kvaran, safnstjóri.
Pallborðsumræður: Anna Líndal myndlistarmaður, prófessor við
myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Arnbjörg Sveinsdóttir alþingismaður,
Kristján Steingrímur Jónsson myndlistarmaður,
deildarforseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands,
Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarmaður,
Tumi Magnússon myndlistarmaður, prófessor við
myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Þorgeir Ólafsson listfræðingur,
deildarstjóri lista- og safnadeildar menntamálaráðuneytisins.
„Samtal við listaverk“. Þessir listamenn fjalla um verk sín:
Hannes Lárusson, Margrét Blöndal, Tumi Magnússon, Steingrímur Eyfjörð.