Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 52
UMRÆÐAN
52 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Arngrímur Guð-jónsson fæddist í
Hafnarfirði 30. júlí
1927. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Sólvangi 13. nóvem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðjón Arngríms-
son, f. 13. október
1894, d. 7. nóvember
1972, og Elín Sig-
urðardóttir, f. 15.
ágúst 1893, d. 4. maí
1947. Systkini Arn-
gríms eru Guðríður
Petersen, f. 8. febr-
úar 1925, Valdís Guðjónsdóttir,
f. 15. apríl 1926, Sigurður Guð-
jónsson, f. 15. apríl 1929, og
Magnús Guðjónsson, f. 9. júlí
1935.
Arngrímur kvæntist hinn 15.
maí 1948 Hönnu Ebenezersdótt-
ur, f. 26. júní 1929, d. 28. febrúar
1999.
Börn þeirra eru: 1) Þórir,
kvæntur Aldísi Eðvaldsdóttur.
Börn þeirra eru Björg, Berglind
og Þórir Fannar. Langafabarn
Rakel Sara. 2) Ebba Freyja, gift
Kristjáni Kristjáns-
syni. Börn þeirra
eru Ásta Hanna og
Arngrímur. 3) Arn-
grímur, kvæntur
Turíð Müller. Sonur
hans er Guðmundur
Jóhann.
Arngrímur var
lærður húsasmíða-
meistari og starfaði
við iðn sína alla sína
starfsævi. Hann
sinnti margvísleg-
um kristilegum fé-
lagsstörfum og var
meðal annars lengi
formaður KFUM í Hafnarfirði
og Kaldæinga. Þau hjónin voru
gerð að heiðursfélögum Kaldæ-
inga enda helguðu þau krafta
sína í uppbyggingu KFUM og K
og sumarstarfi félaganna í Kald-
árseli. Arngrímur starfaði einn-
ig í Gídeon og ennfremur var
honum kristniboðsstarfið mjög
hjartfólgið.
Útför Arngríms verður gerð
frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
í dag og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Elsku hjartans pabbi minn, nú ert
þú farinn frá okkur og þinni löngu
sjúkralegu er lokið. Nú ert þú kom-
inn til himna, til Jesú frelsara þíns
sem þú trúðir svo heitt á. Nú ert þú
hjá mömmu sem kvaddi okkur fyrir
nokkrum árum. Nú eruð þið saman á
ný sæl og ánægð. Ég veit að þér líður
vel á þeim stað þar sem þú ert núna
og finnst mér gott að hugsa til þess.
Elsku pabbi minn, ég á margar
góðar og yndislegar minningar um
þig. Flestar tengjast þær kristilegu
starfi sem þú helgaðir þig alfarið af
mikilli trúfestu og vannst mikið og
óeigingjarnt starf. Þú varst formaður
KFUM í Hafnarfirði og Kaldæinga í
mörg ár og starfaðir mikið fyrir sum-
arbúðirnar í Kaldárseli á sumrin.
Ég á margar yndislegar bernsku-
minningar frá þeim tíma. Þar á meðal
sumrin sem við fjölskyldan vorum
þar á meðan stækkun miðhluta skál-
ans stóð yfir. Þar vannst þú og fleiri
fórnfúst og óeigingjarnt starf. Oft var
mikið glens og gaman þar þegar
margir komu og hjálpuðu til.
Ekki má gleyma öllum ferðunum
sem þú fórst með matinn í Kaldársel.
Oft vorum við mamma með í för og þá
var mikið sungið af kristilegum lög-
um. Það má eiginlega segja að Kald-
ársel hafi verið okkar annað heimili á
sumrin og það var gott heimili með
góðu og yndislegu fólki. Þakka þér
pabbi minn fyrir öll þessi yndislegu
sumur sem ég átti með þér. Þetta var
yndislegur tími.
Á veturna starfaðir þú mikið fyrir
KFUM og meðal annars varst þú í
hverri viku með drengjafundi. Einnig
stjórnaðir þú samkomum á sunnu-
dagskvöldum og eftir samkomur buð-
uð þið mamma yfirleitt fjölda manns
heim í kaffi og kökur en þetta voru
yndisleg og skemmtileg kvöld sem ég
gleymi aldrei. Það var alltaf mikill
gestagangur hjá ykkur enda voruð
þið afskaplega gestrisin. Þú starfaðir
líka í Gídeon og í mörg ár fórst þú
með Nýja testamentið í alla skólana í
Hafnarfirði.
Pabbi minn, þú varst mikill lista-
smiður. Skemmtilegast fannst þér að
smíða fallegar innréttingar og muni
sem þú hannaðir sjálfur. Heimili ykk-
ar mömmu sýndi hversu hæfileika-
ríkur þú varst því þú naust þess að
innrétta það á allan hátt.
Það var alltaf gott að leita til þín
pabbi minn þegar eitthvað bjátaði á.
Þú varst alltaf úrræðagóður og elsku-
legur. Pabbi minn, við tengdumst
mjög sterkum böndum enda var ég
mikil pabbastelpa. Elsku pabbi minn,
ég á eftir að sakna þín mikið. Mig
langar til að þakka þér fyrir allt það
sem þú gafst mér og kenndir mér.
Það er ómetanlegt veganesti. Ég vil
kveðja þig með erindisbroti úr einum
af söngvunum sem við sungum svo
oft saman.
Ó, þá náð að eiga Jesú
einkavin í hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu’ í Drottins skaut.
(M.Joch.)
Þín dóttir
Ebba.
Elsku faðir okkar og tengdafaðir,
Arngrímur Guðjónsson, er látinn. Við
viljum senda okkar hinstu kveðju og
þakkir fyrir þann góða tíma sem við
áttum saman. Það er gott að vita að
þú ert núna kominn heim til Hönnu,
heim til Guðs. Okkur langar að
kveðja þig með sálmi úr söngbók
KFUM og K.
Nú til hvíldar halla eg mér,
höfgi á augu síga fer.
Alskyggn, Drottinn, augun þín
yfir vaki hvílu mín.
Enn í dag ég of margt vann,
er þig, Guð minn, styggja kann.
Herrans Jesú blessað blóð
bæti, hvað ég yfirtróð.
Ég nú fel í umsjón þér
alla hjartakæra mér,
gjörvallt fólk um gjörvöll lönd
geymi trútt þín föðurhönd.
(Þýð. Stgr. Thorsteinsson.)
Hvíl í friði
Turið og Arngrímur.
Elsku afi minn, mig langar með fá-
einum orðum að minnast á þær
stundir og þá tíma sem ég átti í návist
þinni. Þeir tímar hafa alltaf og munu
alltaf vera mér ómetanlegir, því að þú
varst mér alltaf góður afi. Þegar ég
hugsa um þá tíma sem við áttum sam-
an hlýnar mér um hjartarætur.
Nú vil ég kveðja þig með versi sem
þér þótti vænt um elsku afi.
Ó, Drottinn Guð, er dásemd þína lít
ég á dimmri nótt og horfi á stjarna her,
er hugsa’ eg um, að náðar ætíð nýt
ég og nálægð þína finn ég hvar sem er.
Þá fagnar sál mín, flytur lofgjörð þér,
ó, friðar Guð, þér heiður ber.
Er skæran lít ég skóg í fullum blóma,
hin skrýddu fjöll, er gnæfa undur hátt,
og heyri fuglasöng í eyrum óma,
ég undrast, Guð, þitt vald og dýrð og
mátt.
Er minnist ég, að byrði mína barstu
og blóð þitt rann og keypti frelsi mér,
að deyddur, smáður, hrakinn, hrjáður
varstu,
svo helgað gæti’ eg, Drottinn, líf mitt þér.
(Þýð. Sigurður Pálsson.)
Hvíl í friði.
Ásta Hanna og Magnús.
Elsku afi minn, um þig á ég ynd-
islegar minningar. Þú varst góður afi
og leyfðir mér oft að vera með þér í
vinnunni. Þú talaðir mikið við mig og
fræddir um ýmsa hluti og varst óend-
anlega þolinmóður. Þú tókst mig líka
alltaf með þér á drengjafundi í
KFUM og naut ég þess að vera með
þér. Ég vil kveðja þig með söngnum
sem við sungum svo oft saman.
Áfram, Kristsmenn krossmenn,
kóngsmenn erum vér.
Fram í stríðið stefnið,
sterki æskuher.
Kristur er hinn krýndi
kóngur vor á leið.
Sjáið fagra fánann
frelsis blakta’ á meið.
Gjörvöll Kristi kirkja
kveður oss með sér,
fjendur ótal eru,
ei þó hræðast ber.
Konungsstólar steypast,
stendur kirkjan föst,
bifast ei á bjargi
byggð, þótt dynji röst.
Komið, allar álfur,
allra þjóða menn.
Veitið oss að vígi,
vinna munum senn.
Allar englatungur
undir taki’ í söng:
Dýrð og lof sé Drottni,
dýrð í sæld og þröng.
(Þýð. Friðrik Friðriksson.)
Hvíl í friði
Arngrímur Kristjánsson.
Elsku Addi afi. Við systkinin eig-
um svo margar góðar minningar um
þig, og Hönnu ömmu, sem lést fyrir
rúmum þremur árum. Heimili ykkar
ömmu var svo einstaklega hlýlegt og
notalegt, og til ykkar var alltaf gott
að leita. Trúrækni var innsti kjarninn
í öllu lífi ykkar, enda helguðuð þið líf
ykkar og krafta kristilegu starfi. Trú-
in gaf ykkur einnig þann styrk sem
þið þurftuð á að halda í erfiðleikum
ykkar síðustu árin sem amma lifði.
23. Davíðssálmur var ykkur ömmu
sérstaklega hugleikinn og viljum við
því kveðja þig með honum og um leið
þakka þér, elsku afi, fyrir alla vænt-
umþykju þína og ómetanlegar sam-
verustundir.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Minningin um góðan og kærleiks-
ríkan afa lifir.
Björg, Berglind og
Þórir Fannar.
Einn mesti fjársjóður mannlífsins
er að eiga góða vini. Á unglingsárum
varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi, að
kynnast Arngrími eða Adda, og upp
frá því átti ég í honum traustan vin.
Ljúflyndi einkenndi líf hans allt.
Arngrímur og Hanna bjuggu þá
ásamt börnum sínum tveimur, Þóri
og Ebbu Freyju, á Álfaskeiði 50, og
seinna bættist við þriðja barnið, Arn-
grímur. Mér fannst ég eignast nýja
fjölskyldu, þar sem mér var mætt
með umhyggju og hlýju. Þegar ég 21
árs gömul flutti í Hafnarfjörð sem ný-
útskrifaður kennari, var ég bjartsýn
á lífið, því ég átti þessa góðu vini þar.
Samstarf okkar var í KFUM og
KFUK og í sumarbúðunum í Kald-
árseli og í því starfi voru þau hjónin
áhugasöm og fórnfús. Addi var lengi
formaður KFUM, formaður Kaldæ-
inga og formaður í Kristniboðsdeild-
inni. Svo var hann einstaklega laginn
smiður. Þau eru ófá handtökin hans í
húsum félaganna og ekki síst í Kald-
árseli. Hann var með verkstæðið í
kjallara heimilis síns og þar vann
hann dag og nótt. Hann færðist mikið
í fang því margir vildu njóta hand-
lagni hans, þeirra á meðal var ég. Það
var ekki von að tækist að gera allt á
tilsettum tíma, en ósvikið var það.
Síðustu árin voru erfiður reynslu-
tími, þegar sjúkdómar lögðu þennan
öðling að velli. Í slíkum tilvikum kem-
ur dauðinn líknandi.
Hugsunin um Arngrím Guðjóns-
son og alla samfylgd með honum kall-
ar á ótal margar og góðar minningar.
Vinátta Adda hefur gert mig ríka. Ég
minnist þess líka, að þegar ég á ung-
lingsárum lá á sjúkrahúsi, var þar
samtímis mér Ebenezer, tengdafaðir
Adda, sem ég þekkti frá bernsku úr
sunnudagaskóla. Við töluðum saman
um Adda og Hönnu og aldrei hef ég
heyrt nokkurn tala jafn fallega um
tengdason sinn.
Guði séu þakkir fyrir Arngrím og
allt hans mikla starf í KFUM og fyrir
einlæga vináttu. Ég trúi því að bænir
hans fylgi börnum hans, tengdabörn-
um og barnabörnum og færi þeim
blessun Guðs. Þeim votta ég dýpstu
samúð.
Stína Gísladóttir.
Það er með trega að við kveðjum
Arngrím Guðjónsson. Addi, eins og
við kölluðum hann, var húsasmíða-
meistari að mennt. Hann var formað-
ur KFUM og í stjórn sumarbúðanna í
Kaldárseli frá því að ég kom í félögin
ungur að árum.
Ég man eftir honum fyrst þegar ég
kom á fundi hjá yngri deild KFUM.
Hann sá um að segja framhaldssög-
una. Hann gekk um gólf fyrir framan
okkur og sagði okkur spennandi
framhaldssögu sem hann kunni utan
að. Ég var alltaf jafnspenntur að
hlusta á hann hvort sem hann sagði
framhaldssögu eða sagði okkur sögur
úr Biblíunni sem voru honum svo
kærar. Þó að Addi hafi haft stóra,
sterka smiðshönd spilaði hann undir
á píanóið og drengirnir sungu með.
Kraftar og menntun Adda nýttust
vel í starfi KFUM og K og þá sér-
staklega í sumarbúðunum í Kaldár-
seli sem voru honum svo kærar.
Hann var mikill athafnamaður enda
var mikið uppbyggingarstarf unnið
undir hans stjórn í Kaldárseli.
Það voru ófáar ferðirnar sem við
fórum saman í Kaldársel á vorin til að
undirbúa staðinn fyrir sumarstarfið,
undir leiðsögn Adda.
Addi átti dýrmæta perlu í hjarta
sér sem er trúin á Jesú Krist. Hann
var einlægt trúaður maður sem vildi
þjóna og starfa fyrir Drottin sinn.
Það var alltaf jafnvel tekið á móti
okkur á heimili þeirra hjóna Adda og
Hönnu og stóð það alltaf opið fyrir
okkur unga fólkið. Margar góðar og
blessunarríkar stundir áttum við þar.
Við kveðjum Adda og þökkum hon-
um fyrir fórnfúst starf í þágu KFUM
og K.
Við fjölskyldan kveðjum góðan vin
með söknuði og sendum börnum hans
og ættingjum hlýjar samúðarkveðj-
ur.
Langar okkur að lokum að enda
með versi eftir Hallgrím Pétursson.
Ég lifi í Jesú nafni
í Jesú nafni ég dey,
þó heilsa og líf mér hafni
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt.
Í Kristí krafti ég segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
Sveinn Alfreðsson og
Valdís Ólöf Jónsdóttir.
ARNGRÍMUR
GUÐJÓNSSON
endilega að segja allt,“ sagði hann.
Hans var líka að sýna ást sína í verki
og með glæsibrag og það kunni eng-
inn betur. Þetta vita allir sem hann
elskaði og elskuðu hann.
Og við lútum höfði og hugleiðum
drauminn sem við áttum saman:
Að sitja einn dag á fallegum stað
undir tré, það er sól á himni og engin
ský, hvítdúkað borð með rauðum
rósum og alls staðar hlátur. Þær
sitja líka með okkur Halla og Brynja
og Íris og Pálína. Konurnar sem
hann elskaði heitast og vildi allt fyrir
gera.
Við skálum í kampavíni, flott skal
það vera, fyrir langþráðum fundi.
Það er gaman að lifa.
En draumur okkar rættist aldrei.
Það var enda svo margt sem varð
aldrei, en verður seinna, einhvers
staðar, einhverntíma og þá munu
blómin blómstra hundraðfalt og þús-
undfalt. Hvílíkt haf sem það verður!
Í dag kveðjum við Jónas Nord-
quist, sterkan, áhrifamikinn og góð-
an mann.
Við bíðum draumsins og vitum að
það er mikils að vænta.
Þá verður aftur gaman að lifa.
Vigdís Grímsdóttir.
Langt af fjöllum hríslast lækirnir
og laða þig margir til fylgdar.
En vegurinn er einn, vegurinn velur þig,
hvert spor þitt er stigið.
Og frá upphafi allra vega
fór enginn þá leið nema þú.
Með þessu ljóði Snorra Hjartar-
sonar kveð ég vin minn, Jónas Nord-
quist, og þakka honum samfylgdina.
Um leið sendi ég Höllu, Brynjunni
minni, Nonna og öllum þeim sem
elskuðu hann mínar dýpstu samúð-
arkveðjur.
Guð geymi ykkur.
María Guðmundsdóttir.
Jónas starfaði á sínum yngri árum
sem loftskeytamaður og sigldi um
flest heimsins höf. Á þeim tímum var
starf loftskeytamannsins oft mjög
fjölþætt og fólst oft í því starfi að
annast hin ýmsu samskipti, jafnt
bréfleg, sem munnleg, auk hins
venjulega sambandsstarfs loft-
skeytamannsins, sem annast þurfti
fyrir skip og skipverja. Í starfi þessu
öðlaðist Jónas mjög haldgóða
reynslu og þekkingu sem oft kom
honum að notum síðar í störfum
hans hjá varnarliðinu.
Jónas starfaði lengi hjá aðilum
Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Fyrst um fimm ára skeið hjá banda-
rískum verktökum er önnuðust upp-
byggingu mannvirkja varnarliðsins í
byrjun sjötta áratugarins og síðan,
eftir nokkurra ára starf sem loft-
skeytamaður hjá Eimskipafélagi Ís-
lands, hóf hann störf hjá varnarlið-
inu hinn 18. október 1962 og starfaði
þar óslitið til 13. janúar 1996. Hann
réði sig fyrst til bókhaldsstarfa og
tók síðan jafnt og þétt við vaxandi
ábyrgðarstörfum. Í janúar 1978 tók
Jónas við starfi framkvæmdastjóra
fjármálasviðs flotastöðvar varnar-
liðsins og gegndi því um 18 ára
skeið.
Jónas var einstakur atorkumaður
og naut virðingar og trausts allra
þeirra er áttu við hann samskipti.
Starfsþekking, hæfni, árvekni og
sókn hans í öll tækifæri til símennt-
unar gerðu honum kleift að ná tök-
um á og ráða við hin erfiðustu við-
fangsefni. Enginn vafi leikur á því að
hin vönduðu og ötulu störf Jónasar á
starfsferli hans hjá varnarliðinu
urðu til þess að fjárveitingar til
reksturs þess reyndust yfirleitt full-
nægjandi og úrbætur fengust oftast
frá bandarískur fjárveitingaraðilum
þegar á þurfti að halda.
Við fráfall Jónasar er genginn
góður samstarfsmaður, einlægur fé-
lagi og vinur. Ég og eiginkona mín,
Berta Björgvinsdóttir, færum eftir-
lifandi eiginkonu hans, Höllu, börn-
um þeirra og fjölskyldu, okkar inni-
legustu samúðaróskir. Við erum
þakklát fyrir ánægjulegar samveru-
stundir með þeim hjónum.
Blessuð sé minning Jónasar
Nordquist.
Guðni Jónsson.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hef-
ur borist. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að síma-
númer höfundar og/eða sendanda
(vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem
pláss er takmarkað getur þurft að fresta
birtingu greina, enda þótt þær berist innan
hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru
á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist
formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á
útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki
vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með
bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálks-
entimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án
þess að það sé gert með langri grein. Grein-
arhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.