Morgunblaðið - 22.11.2002, Page 53

Morgunblaðið - 22.11.2002, Page 53
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 53 Í GREIN Bjarna Daníelssonar óperustjóra í Morgunblaðinu 21.11. eru settar fram hugmyndir um að ekki skuli lengur stefnt að því að gera ráð fyrir óperuflutningi í stórum sal væntanlegs Tónlistar- húss heldur stefna að því að byggður verði annar minni salur við húsið fyr- ir óperuflutning. Bjarni setur fram fáein rök fyrir máli sínu, aðallega þau að starfsemi Íslensku óperunnar verði samfelldari ef sýnt er í litlum sal. Hugmynd Bjarna er ekki góð. Í fyrsta lagi hefur það aldrei staðið til að byggja 700 manna óperusal við Tónlistarhúsið. Fjárhagslega væri það mjög vafasamt fyrir byggingar- aðila hússins að taka á sig slíkan aukakostnað, sem yrði af allt annarri stærðargráðu ef stóri salur hússins væri samnýttur fyrir sinfóníur og óperur. Í öðru lagi hefur rekstur Ís- lensku óperunnar verið fjárhagslega erfiður undanfarin ár og mun það ekki síst byggjast á því að salur hennar er of lítill til að standa undir kvöldkostnaði. Tap Óperunnar verð- ur því meira eftir því sem sýningar hennar eru vinsælli! Til að bæta þar úr þyrfti að stækka salinn verulega og gæti 1.300 manna salur Tónlistar- hússins hér skipt sköpum, en 5–700 manna salur ekki. Í þriðja lagi má nefna að breytingar á sviði stóra sal- ar Tónlistarhússins myndu ekki að- eins þjóna óperunni heldur einnig sýningum í öðrum listgreinum; t.d ballett og leiklist. Slík aðstaða myndi án vafa gerbreyta sýningarmögu- leikum Listahátíðar í Reykjavík. Ekki er ástæða til að örvænta um samstarf við Sinfóníuhljómsveit Ís- lands við notkun tónleikasalarins, hvorki fyrir óperur né aðra starf- semi, því eins og kunnugt er er áætl- að að hljómsveitin leiki í aðalsal hússins ekki oftar en einu sinni í viku að meðaltali. Betri nýting stóra sal- arins myndi þjóna hagsmunum húss- ins sjálfs. Fastráðning söngvara við Óp- eruna er falleg hugmynd og vonandi gengur hún fram. Engu að síður – og eins og rækilega hefur komið fram í auglýsingum Óperunnar – sækjast íslenskir óperuunnendur mest eftir því að heyra í skærustu söngstjörn- unum okkar, en þær búa flestar er- lendis og verða því vart fastráðnar hér. Hins vegar mætti það verða for- gangsatriði fyrir fyrir Íslensku óp- eruna að fastráða til sín góðan hljómsveitarstjóra. Enn um Tónlistar- hús og óperu Eftir Árna Tómas Ragnarsson „Ekki er ástæða til að örvænta um samstarf við Sinfóníu- hljómsveit Íslands við notkun tónleikasal- arins.“ Höfundur er læknir. Stuðningsmenn Katrín Fjeldsted 4. sæti •Fylgir sannfæringu sinni •Rödd hins hófsama sjálfstæðismanns •Eini læknirinn á Alþingi Startpakkinn - allt sem til þarf Hver býður betur? ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I SS 1 91 41 10 /2 00 2 ADSL mótald • Stofngjald Samtals verðmæti 18.125 kr. Aðeins 5.900 kr. Tilboð 1. Nokia 3310 á 9.900 kr. Með 12 mánaða áskrift. Ekkert stofngjald 2.100 Venjulegt verð 14.900 kr. 9.900 kr. Tilboð 2. islandssimi.is Hringdu strax í síma 800 1111 eða komdu í verslun okkar í Kringlunni. SVÆÐISSKRIFSTOFA málefna fatlaðra á Vesturlandi rekur víðtæka þjónustu við fólk sem er fatlað og fjöl- skyldur þeirra: Stuðningsþjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra, víðtæka ráðgjafarþjónustu, skamm- tímavistun og stuðningsfjölskyldur. Fullorðnum er einnig boðin ráðgjaf- arþjónusta, stuðningur við fólk til sjálfstæðrar búsetu og sambýli sem eru á Akranesi og í Borgarnesi. Stuðningur er við þátttöku á almenn- um vinnumarkaði og verndaður vinnustaður og hæfing er á Akranesi og í Borgarnesi. Arðsemi þjónustunnar er hægt að skoða út frá þremur þáttum: Í fyrsta lagi í auknum lífsgæðum fólks, sem vegur þyngra í dag en áður. Góð þjón- usta við fólk sem er fatlað og fjöl- skyldur þeirra skilar því að Vestur- land er góður búsetukostur fyrir fjölskyldur. Þetta styrkir alla at- vinnustarfsemi á svæðinu og dregur að sér þor til nýsköpunar. Lands- byggðin er í samkeppni við höfuð- borgarsvæðið og þetta er því hluti af framsækinni byggðastefnu. Í öðru lagi felst arðsemi þjónust- unnar í aukinni framleiðslu, sköpun og þeim afrakstri sem hver og einn skilar til þjóðfélagsins. Þjónusta svæðisskrifstofunnar stefnir að því að styrkja hvern einstakling og fjöl- skyldurnar, sem skilar sér í dugmiklu og skapandi fólki og fjölskyldum sem hafa orku og krafta til að leggja sitt af mörkum til þjóðarbúsins. Þjónustan krefst þannig ekki aðeins útgjalda heldur skilar þeim margfalt til baka með aukinni þjóðarframleiðslu. Í þriðja lagi er þjónustan fyrir- byggjandi og skilar sér í lægri út- gjöldum í framtíðinni. Góð þjónusta í dag skilar minni þörf fyrir þjónustu í framtíðinni, bæði þjónustu ríkisins og sveitarfélaga, minni félags- og heil- brigðisþjónustu og lægri bóta- greiðslum. Öll þjónusta svæðisskrifstofunnar skilar auknum lífsgæðum. Arðsömust er ráðgjafarþjónusta Svæðisskrif- stofu Vesturlands, sem er fyrirbyggj- andi þjónusta. Þjónusta við fatlaða og fjölskyldur þeirra tekur mið af þörf- um hvers og eins og það er lögð áhersla á að þjónustuþegarnir taki þátt í að móta þjónustuna. Aukin lífs- gæði fólks eru þannig þungamiðja þjónustunnar. Svæðisskrifstofa Vest- urlands leggur áherslu á að styrkja fjölskyldurnar í sínu hlutverki. Fjöl- skyldan er þungamiðjan í lífi hvers einstaklings og þess vegna er grund- vallaratriði að styðja hana og styrkja. Ráðgjafarþjónustan er sveigjanleg, hreyfanleg, lagar sig að þörfum hverju sinni og vinnur mikið með skóla og félagsþjónustu sveitarfélag- anna. Ásamt stoðþjónustunni gerir hún fjölskyldunum kleift að taka full- an þátt í samfélaginu og skapa arð fyrir þjóðfélagið. Hún er fyrirbyggj- andi. Öflug þjónusta við fjölskyldur fatlaðra barna leiðir til þess að þegar börnin verða fullorðin, þá bæði skila þau meiru til þjóðfélagsins og þurfa minni þjónustu og stuðning sam- félagsins. Þetta skiptir miklu máli fyrir sveitarfélögin og einnig sparar þetta útgjöld rikisins. Öflug þjónusta við fötluð börn leiðir til aukinnar sjálfsbjargargetu fólks þegar það verður fullorðið. Ef sjálfsbjargarget- an eykst sem nemur einum þyngd- arflokki samkvæmt ákv. þjónustmati sparast að meðaltali kostnaður við þjónustu sem nemur yfir einni milljón á ári. Ráðgjafarþjónusta Svæðisskrif- stofu Vesturlands sinnir í dag fjöl- skyldum 60 barna. Ef þessi þjónusta í dag dregur úr þörf 15 þessara barna fyrir þjónustu síðar, að meðaltali um einn þjónustuflokk, sem er varlega áætlað, þá sparast um 700 milljónir í þjónustu við þessa einstaklinga í framtíðinni. Góð þjónusta Svæðisskrifstofu Vesturlands kostar fé í dag, en það er fjárfesting sem skilar arði í framtíð- inni. Þjónusta við fatlaða á Vest- urlandi er arðbær þjónusta Eftir Magnús Þorgrímsson „Öll þjón- usta svæð- isskrifstof- unnar skilar auknum lífs- gæðum.“ Höfundur er framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Vesturlands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.