Morgunblaðið - 22.11.2002, Side 58
UMRÆÐAN
58 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FORYSTUHÆFNI Sólveigar
Pétursdóttur og pólitískir hæfi-
leikar hafa notið sín til fulls þau
rúmu þrjú ár sem hún hefur gegnt
embætti dóms- og
kirkjumálaráð-
herra. Þessi áður
látlausu ráðuneyti
hafa vaknað til nýs
og betra lífs eftir
að Sólveig tók við.
Það er því vel við
hæfi að þessi glæsilegi ráðherra
bjóði sig fram í 3. sæti á lista
sjálfstæðismanna í prófkjöri
þeirra í Reykjavík 22. og 23. nóv.
nk. Sem dæmi um þá mörgu og
mikilvægu málaflokka er tekið
hafa breytingum til hins betra
undir forystu Sólveigar má nefna
endurskoðun barnalaga, þyngri
refsiákvæði vegna kynferð-
isafbrota gegn börnum, hert við-
urlög við fíkniefnabrotum, end-
urskipulagningu löggæslu- og
umferðarmála, aukið sjálfstæði
kirkjunnar gagnvart ríkisvaldinu
og svo mætti lengi telja. Síðast en
ekki síst hefur Sólveig verið ötull
talsmaður þess að jafnræðis gæti
á milli karla og kvenna á öllum
sviðum þjóðlífsins. Tökum þátt í
prófkjörinu og tryggjum Sólveigu
glæsilega kosningu.
Tryggjum
Sólveigu glæsi-
lega kosningu
Helga Guðrún Jónasdóttir, formaður
Landssambands sjálfstæðiskvenna,
skrifar:
SIGURÐUR Kári er drengur
góður sem ekki hefur látið sitt eftir
liggja í baráttunni fyrir hugsjónum
Sjálfstæðisflokksins á marg-
víslegum vettvangi
flokksstarfsins. Við
sem fylkjum okkur
um hann í yfirstand-
andi prófkjöri gerum
það ekki síst vegna
eljusemi hans og
drifkrafts, vissunnar
um að hann muni reynast andstæð-
ingum okkar skæður á þingi og sam-
herjum okkar dugmikill liðsmaður.
Sigurður Kári reyndist ung-
liðahreyfingu flokksins öflugur for-
maður og leiðtogi, óþreytandi í þeim
baráttumálum sem Samband ungra
sjálfstæðismanna setti á oddinn.
Þegar við unga fólkið beiðumst þess
af samherjum okkar af eldri kyn-
slóðinni að þeir veiti ungum fram-
bjóðanda atkvæði sitt þá er ekki að
ófyrirsynju að við horfum til Sig-
urðar Kára sem vonar Sjálfstæð-
isflokksins á þingi. Hann mun reyn-
ast verðugur fulltrúi okkar,
drengskaparmaður með rétt hjarta-
lag og áhersluna á réttu baráttu-
málin.
Sigurð Kára
í 7. sætið
Kristinn Vilbergsson, framkvæmdastjóri,
skrifar:
KONUR hafa lengi verið í minni-
hluta í framvarðarsveit Sjálfstæð-
isflokksins. Því er það sérstakt
fagnaðarefni þegar ung kona með
mikla þekkingu á
hagfræði og reynslu
úr fjármálalífinu
stígur fram og býð-
ur krafta sína og
rödd til starfa í
þágu Sjálfstæð-
isflokksins og lands-
manna allra. Guðrún Inga er ritari
framkvæmdastjórnar SUS, situr í
skattanefnd Sjálfstæðisflokksins og
stýrði starfshópi um skattamálefni
á síðasta landsfundi. Hún er jafn-
framt varamaður í jafnréttisnefnd
Reykjavíkurborgar. Guðrún hefur
lengi verið þekkt fyrir skoðanir sín-
ar á jafnréttismálum og er ein af
þeim ungu konum sem standa að
vefritinu www.tikin.is. Hennar
áherslumál standa henni því nærri
en hún leggur áherslu á lækkun
skatta og gjalda, en vill einnig
vinna að jafnréttismálum í víðum
skilningi. Ég mæli því eindregið
með Guðrúnu Ingu og treysti henni
til góðra verka. Kjósum Guðrúnu
Ingu í 9. sætið.
Guðrúnu Ingu
á þing
Marta Guðjónsdóttir, varaformaður Félags
sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi,
skrifar:
Sjálfstæðisflokkurinn er furðu-
skepnan í íslenskum stjórnmálum:
þar rúmast í samlyndi andstaða við
alþjóðahernað og
gegn landinu, fúlar
frjálshyggjuöfgar og
e.k. félagsleg rétt-
sýni. Leiðtogadýrk-
un hefur blómstrað í
flokknum, sumir
þeirra voru bara
minni leiðtogar en aðrir.
Sjálfbirgingsbelgingur ungs fólks í
stjórnmálaflokkum veldur vantrú
fjölda manna á heiðarleika íslenskra
stjórnmálamanna.
Birgir Ármannsson er skynsamur
og mælskur stjórnmáladrengur án
öfgafullra frjálshyggjuskoðana og
ekki einsýnn á altækan mátt frels-
isins. Hann er sjálfgert leiðtogaefni
með heilbrigða skynsemi og pínulítið
kennedískt yfirbragð og honum er
treystandi til að vinsa hið góða úr for-
tíðinni og henda draslinu úr nútíðinni.
Og honum er sannarlega treyst-
andi til góðra hluta í framtíðinni.
Treystandi til
góðra hluta
Bragi Kristjónsson bókakaupmaður
skrifar:
UNGT fólk vill ekki aðeins láta til
sín taka úti í þjóðfélaginu. Það vill
að samviska Sjálfstæðisflokksins
nái inn á Alþingi. Við verðum að
tryggja að þing-
flokkurinn end-
urspegli þá vídd
sem er meðal kjós-
enda, endurspegli
þau málefni sem
brenna á ungu fólki,
að rödd þeirra heyr-
ist. Það eru mikil sóknarfæri fyrir
flokkinn í Reykjavík í komandi
þingkosningum. Kjördæmabreyt-
ingin ein og sér veitir okkur færi á
2–3 þingsætum til viðbótar. Við
göngum hins vegar ekki að þessum
þingsætum vísum, við verðum að
berjast fyrir þeim með kjafti og
klóm eins og jafnan. Í þeim slag
þurfum við á öllu okkar að halda,
ekki síst liðsinni yngri kjósenda.
Sigurður Kári Kristjánsson er öfl-
ugur ungur einstaklingur sem hefur
sannað sig á vettvangi flokksins og í
störfum sínum. Það er svigrúm fyr-
ir ungliða á Alþingi!
Sigurð Kára
í 7. sætið
Þorvaldur Davíð Kristjánsson, nemi í VÍ og
stjórnarmaður í Heimdalli, skrifar:
MIG langar að lýsa yfir stuðningi
við Stefaníu Óskarsdóttur sem býð-
ur sig fram í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík. Stefanía hef-
ur víðtæka reynslu á
mörgum sviðum, en
mig langar að vekja
athygli á góðri þekk-
ingu hennar á
mennta- og fræðslu-
málum. Hún hefur á
undanförnum árum
komið að málefnum framhaldsskóla
með tvennum hætti; hún situr í
skólanefnd Menntaskólans við Sund
og kenndi um tíma við Versl-
unarskólann. Fyrir utan þetta hefur
Stefanía kennt stjórnmálafræði við
félagsvísindadeild Háskóla Íslands,
við háskóla í Bandaríkjunum og
starfað í dómnefnd Kennaraháskóla
Íslands. Menntamál eru ótvírætt
einn mikilvægasti málaflokkurinn
sem fjallað er um á Alþingi. Þess
vegna er áríðandi að þar sé fólk með
góða þekkingu á skólastarfi.
Kennslu- og stjórnunarreynsla Stef-
aníu Óskarsdóttur er henni afar gott
veganesti og ég hvet kjósendur til að
tryggja henni 6. sætið í prófkjörinu.
Stefaníu í
6. sætið
Kristrún Lilja Daðadóttir, kennari og
knattspyrnukona, skrifar:
UNGT fólk á erindi á þing.
Yngstu þingmenn þjóðarinnar
standa á fertugu og því ljóst að þau
mál sem helst brenna á ungu fólki
eiga sér engan mál-
svara.
Ungar konur eiga
erindi á þing enda
er hlutfall kvenna á
þingi enn ekki við-
unandi. Mikilvægt
er að Sjálfstæð-
isflokkurinn tefli fram ungum kon-
um í næstu alþingiskosningum.
Tvær öflugar konur hafa boðið
fram krafta sína, þær Guðrún Inga
hagfræðingur og Soffía Kristín
hugbúnaðrsérfræðingur. Báðar
hafa þær starfað innan SUS og
báðar eru þær þekktar fyrir dugn-
að og skörungsskap.
Stefnumál Guðrúnar eru m.a. að
afnema tolla og lækka með því
matvælaverð. Hún hefur lagt
áherslu á að hægja á endurgreiðslu
námslána og setur jafnréttismál í
víðustu merkingu á oddinn. Bar-
áttumál Soffíu eru m.a. harðari
refsingar við kynferðisbrotum en
það er brýnt að þyngja dóma í
þeim málaflokki verulega. Hún hef-
ur einnig lagt til niðurfellingu
styrkja í landbúnaði. Sjálfstæð-
isflokkurinn yrði tvímælalaust
sterkari með þessum tveimur
atorkusömu konum innanborðs.
Kjósum Guðrúnu
Ingu og Soffíu
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir laganemi
skrifar:
STEFANÍA Óskarsdóttir er
glæsileg og vel menntuð kona. Hún
varð fyrst íslenskra kvenna til að
ljúka doktorsprófi í stjórnmálafræði.
Stjórnmál hafa verið
hennar áhugamál frá
unga aldri. Hún er
öflugur talsmaður
jafnréttis og kjör
aldraðra og öryrkja
og þeirra er minna
mega sín eru henni
hugleikin. T.d. hefur hún verið for-
maður Hvatar, félags sjálfstæð-
iskvenna, og hún er varamaður á Al-
þingi. Stefanía lærði
stjórnmálafræði í Bandaríkjunum
og hún hefur víða farið og er víðsýn
og traust. Konur, kjósið fleiri konur
á Alþingi Íslendinga. Kjósið Stef-
aníu Óskarsdóttur í öruggt sæti.
Kjósið Stefaníu
Óskarsdóttur í
öruggt sæti
Helga Berndsen, eldri borgari, skrifar:
NÚ líður senn að prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík. Þá
gefst öllum flokksmönnum tækifæri
til að hafa áhrif á hvernig fram-
boðslistinn raðast
upp og hverjir fá að
berjast fyrir mál-
efnum borgarbúa á
þingi.
Upp á síðkastið
hefur mér verið of-
arlega í huga
hversu vægir dómar í kynferð-
isglæpum eru og þá sérstaklega
gegn börnum. Nú er komin fram
ung og sterk kona, Soffía Kristín
Þórðardóttir, sem hefur það að
leiðarljósi að breyta þessu.
Hennar málflutningur virkar
þannig á mig, að ég treysti henni
til að koma þessu í verk og laga
það sem þarf. Því fær Soffía Krist-
ín atkvæði mitt í prófkjörinu og ég
skora á þig lesandi góður að gera
slíkt hið sama.
Soffía fær mitt
atkvæði
Helga Lára Haarde menntaskólanemi
skrifar:
UMFERÐARÞING var sett í gær
og ánægjulegt var að sjá hve fjöl-
mennt var á þinginu sem standa mun
í tvo daga. Á þinginu er samankom-
inn hópur fólks sem býr yfir ómet-
anlegri þekkingu og reynslu í þess-
um mikilvæga málaflokki. Þeir, sem
starfa að umferðaröryggismálum á
Íslandi, hafa lyft grettistaki á und-
anförnum áratugum. Samhliða ört
vaxandi umferðarþunga og aukinni
bifreiðaeign landsmanna hefur slys-
um fjölgað með alvarlegum afleið-
ingum fyrir margar fjölskyldur.
Umferðaröryggisáætlanir hafa
verið samþykktar á Alþingi, síðast
hinn 29. apríl 2002, þegar samþykkt
var þingsályktun um stefnumótum
um aukið umferðaröryggi. Sam-
kvæmt henni ályktar Alþingi að á
næstu ellefu árum, eða fyrir lok árs-
ins 2012, skuli stefnt að fækkun
banaslysa og annarra alvarlegra um-
ferðarslysa um 40% miðað við fjölda
slysa árin 2000 og 2001. Þessu tak-
marki verður náð með sameiginlegu
átaki ríkis, sveitarfélaga, fyrirtækja,
áhugahópa um umferðaröryggismál
og alls almennings. Samstarf allra
þessara aðila er forsenda þess að
markmiðinu um stórfellda fækkun
umferðarslysa verði náð. Fyrrgreind
tillaga gerir ráð fyrir að dómsmála-
ráðherra kynni Alþingi í byrjun
hvers árs stöðu umferðaröryggis-
mála og hvernig miðar í átt að settu
marki. Gert er ráð fyrir að starfs- og
framkvæmdaáætlun verði endur-
skoðuð árlega.
Í starfi mínu sem dómsmálaráð-
herra hef ég lagt ríka áherslu á bætt
umferðaröryggi, m.a. með margvís-
legum lagabreytingum, hækkun
sekta og aukinni fræðslu. Miklum
áfanga var náð þegar Umferðarstofa
tók nýverið til starfa, en hún var
mynduð með samruna stjórnsýslu og
starfsemi á vegum Umferðarráðs, og
starfsemi Skráningarstofunnar hf.
Innan vébanda Umferðarstofu starf-
ar stór hópur fólks sem býr yfir mik-
illi sérþekkingu og reynslu í umferð-
aröryggismálum.
Þótt fagna beri öllum skrefum
sem tekin eru til þess að bæta um-
ferðaröryggi og draga úr alvarlegum
slysum í umferðinni, er mikilvægt að
við höldum vöku okkar og að allir
sameinist um markmiðið að Íslend-
ingar verði fyrirmynd annarra þjóða
í umferðaröryggismálum. Slíkt sam-
starf er forsenda þess að allir, sem
um götur og þjóðvegi ferðast, komi
heilir heim að kvöldi. Þetta er vissu-
lega metnaðarfullt verkefni, en ís-
lenska þjóðin hefur áður sýnt að
henni er ekkert ómögulegt þegar all-
ir leggjast á eitt!
Umferðarör-
yggi er mál allr-
ar þjóðarinnar
Eftir Sólveigu
Pétursdóttur
Höfundur er dómsmálaráðherra.
„Allir sam-
einist um
markmiðið
að Íslend-
ingar verði
fyrirmynd annarra þjóða
í umferðaröryggismál-
um.“
GUÐMUNDUR Hallvarðsson
setur stefnuna á fimmta sætið í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík sem fram fer um
helgina. Guðmundur
hefur óneitanlega
sérstöðu sem þing-
maður. Hann kemur
úr verkalýðsarmi
Sjálfstæðisflokksins
– flokks sem nær til
allra stétta í þjóðfélaginu. Enda hef-
ur Guðmundur gamalt og gott slag-
orð – stétt með stétt – að leiðarljósi.
Með þeirri þekkingu sem henn hefur
öðlast sem sjómaður átti hann far-
sælt starf sem formaður hafn-
arstjórnar Reykjavíkurhafnar á
miklum uppgangstímum. Verkin
tala og sanna uppbygging hafn-
armannvirkja í Reykajvík á árunum
1986–1994 það. Með því að setja
Guðmund í fimmta sætið í prófkjör-
inu stuðlum við að því að rödd sjó-
manna, aldraðra og verkalýðsins fái
notið sín á Alþingi.
Stétt með stétt
Sigurður Þ. Árnason, fv. skipherra hjá
Landhelgisgæzlunni, skrifar:
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekumSkólavörðustíg 21, sími 551 4050.
Viskustykki
Til í níu mynstrum
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Stretchbuxur kr. 2.90
Konubux r frá kr. 1.790
ragtir, kjólar,
blús ur og pils.
Ódýr nát fatna