Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 59
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 59
BJÖRN Bjarnason gefur kost á
sér í prófkjöri sjálfstæðismanna og
sækist eftir 3. sætinu. Björn er fjöl-
hæfur stjórnmálamaður með dýr-
mæta þekkingu á
mikilvægum mála-
flokkum.
Sem mennta-
málaráðherra skilaði
hann afar góðu
starfi. Aldrei hafa
fleiri sótt sér mennt-
un á framhalds- og háskólaskólastigi
og fjölbreytni framhaldsnáms er
meiri en nokkru sinni fyrr.
Þekking Björns á utanríkis- og ör-
yggismálum er einnig þjóðþekkt.
Það er nauðsynlegt fyrir þingflokk
sjálfstæðismanna að hafa á að skipa
mönnum sem hafa kynnt sér þau
mál rækilega.
Síðast en ekki síst hefur Björn,
vegna stöðu sinnar sem leiðtogi
borgarstjórnarflokksins, góða yf-
irsýn yfir hagsmunamál Reykvík-
inga. Þingmaður, sem er öllum hnút-
um kunnugur í málefnum
höfuðborgarinnar, er afar dýrmætur
fyrir Reykvíkinga.
Ég hvet alla sjálfstæðismenn til
þess að tryggja Birni Bjarnasyni
örugga kosningu í prófkjörinu 22.–
23. nóvember.
Björn Bjarnason
til forystu
Hrefna Ástmarsdóttir, stjórnmála-
fræðinemi og stjórnarmaður í SUS, skrif-
ar:
KATRÍN Fjeldsted læknir er fjöl-
gáfuð og hæfileikarík kona með ríka
starfs- og lífsreynslu að baki. Rödd
hennar og viðhorf spegla þá grund-
vallarstefnu Sjálfstæðisflokksins að
hagsmunir allra þjóðfélagshópa séu
hafðir að leiðarljósi
og menning og
mannsæmandi kjör
eigi að vera réttur
hvers manns. Hún
hefur mikla reynslu
af borgarmálum eft-
ir 12 ára starf sem
borgarfulltrúi. Hún er þekkt fyrir
störf sín í þágu umferðarmála og
heilbrigðismála í Reykjavík, ekki
síst fyrir lækkun hámarkshraða í
íbúðabyggð, byggingu heilsugæslu-
stöðva og bætta þjónustu í heima-
hjúkrun.
Katrín er fjölmenntuð, stundaði
tónlistarnám frá barnsaldri og lista-
og menningarmál eru henni hug-
stæð, ásamt umhverfis- og meng-
unarmálum. En það besta við hana
er að hún er alþýðleg og hlý og ber
hag náungans fyrir brjósti af sannri
réttlætiskennd. Katrín er þingmað-
ur fólksins í borginni og ég hvet alla
að tryggja henni fjórða sætið í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins.
Katrínu í 4. sætið
Þuríður Pálsdóttir skrifar:
PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna í
Reykjavík fer fram 22.–23. nóvember
næstkomandi. Meðal frambjóðenda
er Guðrún Inga Ingólfsdóttir, 30 ára
hagfræðingur.
Hennar helstu
áherslumál eru af-
nám tolla, einföldun
skattkerfisins og
lækkuð greiðslu-
byrði námslána.
Þannig vill hún bæta
lífskjör allra landsmanna og auð-
velda ungu fólki að koma undir sig
fótunum. Einnig hefur hún lagt
áherslu á að afnema tvísköttun, hvar
sem hún finnst í skattkerfinu. En
þeir skattar sem hún leggur mesta
áherslu á að afnema eru eignar- og
erfðafjárskattur. Guðrún Inga er
ung kona með ákveðnar skoðanir
sem á fullt erindi inn á Alþingi Ís-
lands og mun þekking hennar og
reynsla af hagfræði og fjármálum án
efa nýtast þar vel. Því styð ég Guð-
rúnu Ingu í prófkjörinu um helgina.
Guðrúnu Ingu
í 9. sæti
Eysteinn Guðmundsson bifreiðasmiður
skrifar:
SEM formaður Verkalýðsráðs
Sjálfstæðisflokks um nokkurra ára
skeið vann Guðmundur Hallvarðs-
son ötullega í verkalýðsarmi
flokksins. Guð-
mundur var þá og
er góður málsvari
þeirra gilda að
Sjálfstæðisflokk-
urinn er flokkur
allra stétta. Í mörg
ár hefur í um-
ræðunni verið krafa um sveigj-
anleg starfslok. Guðmundur
gegndi formennsku í nefnd um
sveigjanleg starfslok á vegum for-
sætisráðuneytis sem skilaði af sér
nú í október sl. merkilegum til-
lögum í átt til þess sem menn hafa
um langan tíma fjallað um í ræðu
og riti. Það er mér bæði ljúft og
skylt að hvetja alla þá sem taka
þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins hér í Reykjavík að setja Guð-
mund Hallvarðsson í fimmta sætið
– því þar fer bæði öflugur og góð-
ur maður.
Guðmund í
fimmta sætið!
Hilmar Guðlaugsson, fv. borgarfulltrúi,
skrifar:
EINI ókosturinn við að búa í
Hafnarfirði er að geta ekki tekið
þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík um
helgina. Í því tæki
ég glaður þátt til
að styðja framboð
Björns Bjarnason-
ar. Þó ekki nema
vegna mikilla end-
urbóta sem urðu á
menntakerfinu í tíð hans sem
menntamálaráðherra. En ekki síð-
ur vegna þeirrar byltingar sem
varð í starfsumhverfi íþróttahreyf-
ingarinnar á Íslandi meðan hann
var íþróttaráðherra. Líklega hefur
enginn íþróttaráðherra reynst
íþróttahreyfingunni betri liðs-
maður en hann. Sem þingmaður
og ráðherra hefur Björn aldrei
setið aðgerðalaus heldur hrundið
hverju umbótamálinu af öðru í
framkvæmd, af einbeitni og
stefnufestu sem afreksmanni
sæmir. Slíkum mönnum þurfum
við á að halda í stafni þjóðarskút-
unnar. Hvet ég íþróttamenn í
Reykjavík til að styðja Björn til
þriðja sætis í prófkjörinu.
Styðjum afreks-
manninn Björn
Ágúst Ásgeirsson, blaðamaður og fyrrver-
andi stjórnarmaður í ÍSÍ, skrifar:
Karlmennska
sn‡st ekki um heppni...
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
94
49
11
/2
00
2
debenhams
S M Á R A L I N D
...Hún sn‡st frekar um a› vera
réttur ma›ur
á réttum sta› og réttum tíma
Þess vegna viljum við bjóða þér að koma á herradaga
í Debenhams dagana 22. og 23. nóvember.
...nokkuð sem gæti ávaxtast ríkulega með réttri ráðstöfun – og smá heppni!
Dagskrá
Vínsmökkun
frá Allied Domecq föstudag frá kl. 15-18 og laugardag frá kl. 13-17
Kaffikynning
Te & kaffi kynna Sælkerakaffi
Ferskur ilmur
Kynning á nýjum og ferskum herrailmum og rakspírum
Tilboð
1.000 kr. gjafabréf í Debenhams fyrir hverjar 5.000 kr.
sem þú verslar í herradeild, alla helgina...