Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 60
UMRÆÐAN 60 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ         Skólavörðustíg 12 og 16 Sími 552 1412 og 551 2242 Verið velkomin Í tilefni af opnun Skólavörðustígs er 15% afsláttur af öllum myndlistar- og föndurvörum föstudag kl. 10-18 og laugardag kl. 11-18 MEÐ störfum sínum á Alþingi hefur Guðmundur Hallvarðsson bar- ist ötullega fyrir málefnum hinna ýmsu hópa í þjóð- félaginu. Guð- mundur hefur verið á þingi síðan 1991 og gegnir nú m.a. for- mennsku í sam- göngunefnd. Þar hefur hann beitt sér fyrir úrbótum í samgöngumálum Reykvíkinga. Nýlega lagði Guð- mundur fram þingályktunartillögu um stöðu hjóna og sambúðarfólks. Í tillögunni er harðlega gagnrýnt að þjóðfélagið virðist hafa innbyggða hvata til málamyndaskilnaða fólks með slakan fjárhag. Þá er Guð- mundur góður og þaulreyndur mál- svari eldri borgara, en málefni þeirra virðist oft og tíðum gleymast í þjóðfélagi tækniframfara og hraða. Það kemur að því að við verðum öll gömul og kjósum að eyða síðustu ævidögunum áhyggjulaus. Um næstu helgi fer prófkjör sjálf- stæðismanna í Reykjavík fram. Tryggjum traustum manni öruggt sæti á þingi og merkjum 5 við Guð- mund Hallvarðsson í prófkjörinu – mann úr hópi launþega sem lætur sig málefni fólksins varða. Guðmundur er maður fólksins Guðrún Helga Jóhannsdóttir, stjórnmála- fræðinemi, skrifar: STEFANÍA Óskarsdóttir stjórn- málafræðingur, sem gefur kost á sér í 6. sæti lista Sjálfstæðiflokks- ins í Reykjavík, er öflugur tals- maður sjálfstæð- isstefnunnar eins og þeir vita, sem fylgst hafa með öflugum málflutningi hennar á Alþingi, sem vara- þingmanns Reyk- víkinga, sem for- manns Hvatar og í almennri umræðu. Stefanía hefur varað við að of geyst sé farið hvað varðar þátttöku Íslendinga í ESB og að mikilvægt sé að Íslendingar móti eigin stefnu en láti ekki kúga Ís- lendinga að samingaborðum sem þeir ekki vilja sitja við. Á sama tíma hefur Stefanía lagt áherslu á að mikilvægt sé að gæta hagsmuna atvinnuveganna og leitað sé leiða til að stuðla að áframhaldandi hag- vexti og eðlilegu rekstarumhverfi fyrirtækja. Undir forystu Sjálf- stæðisflokksins hefur hagkerfi Ís- lands tekið umskiptum í átt til frjálsræðis og heilbrigðis. Mik- ilvægt er að standa vörð um þann árangur. Kjör Stefaníu Ósk- arsdóttur er góð leið til að tryggja að á Alþingi setjist öflugur tals- maður sjálfsstæðisstefnunnar. Framfarir, frelsi og fjöl- breytileiki – Stefaníu á þing Guðjón Valdimarsson sjómaður skrifar: ÉG hvet alla sjálfstæðismenn til þess að leggja Soffíu Kristínu Þórð- ardóttur lið í prófkjörinu næstu helgi. Soffía er ung kona sem hefur bæði til að bera rétt- sýni og staðfestu, hún er heiðarleg og einlæg og hefur sannarlega bein í nefinu. Eitt aðal- áherslumála Soffíu er þynging refsi- dóma fyrir kynferðis- og ofbeld- isbrot. Í íslenskri refsilöggjöf er mikið ósamræmi milli refsinga fyrir einstakar brotategundir. Dómar fyr- ir kynferðisbrot eru margfalt styttri en dómar fyrir auðgunar- og fíkni- efnabrot. Það er kominn tími til að taka þessi mál til gagngerrar endur- skoðunar. Soffía er reiðubúin að tak- ast á við þessi málefni af festu. Það er mikilvægt að hafa einstaklinga á þingi sem eru tilbúnir að senda skýr skilaboð til samfélagsins. Soffía er ennfremur öflugur málsvari sjálf- stæðisstefnunnar. Það væri mikill fengur fyrir sjálfstæðismenn að hafa hana ofarlega á lista okkar í kosn- ingunum í vor. Soffíu Kristínu í 8. sætið Guðríður Margrét Kristjánsdóttir, félagi í stjórn Hvatar, skrifar: ÉG hef þekkt Ástu Möller frá því við vorum í menntaskóla. Hún er mæt stúlka, dugleg, heið- arleg og ábyggileg í öllu því sem hún tekur sér fyrir hend- ur. Hefur þú velt því fyrir þér að þetta er hennar fyrsta kjör- tímabil sem þing- manns? Samt sem áður hefur hún áork- að miklu. Þegar hún kemur fram í fjölmiðlum eru málin rædd af festu, yfirvegun og skynsemi. Ásta Möller er manngerðin sem á að vera þingmaður. Heilbrigðismálin eru henni hugleikin. Hún þekkir þau, veit að málaflokkurinn er við- kvæmur, markmiðið er einatt að sjúklingurinn sé númer eitt. Skipu- lagsbreytingar gætu leitt til enn betri nýtingar á fjármagni. Henni er treystandi til að takast á við það. Vegna þessa er mikilvægt að gefa henni gott brautargengi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Kjósum Ástu Möller Haraldur Sigurðsson, augnlæknir, skrifar: FYRIR nokkrum árum buðu nokkrar ungar konur í Sjálfstæð- isflokknum mér í kvöldkaffi í risíbúð vestur í bæ. Við spjölluðum fram eft- ir öllu um heima og geima í íslenskri pólitík. Mér leist al- veg rosalega vel á þær. Var glöð að kynnast svona skyn- sömum og víðsýnum stelpum með hjartað á réttum stað. Raunsæjum hug- sjónamanneskjum. Ég hvatti þær til að láta meira í sér heyra og fór létt- stíg af þessum fundi. Síðan hef ég fylgst með þeim bæta við menntun sína og reynslu og vitað að þarna eigum við góðan hóp, sem hefur mikla burði til að láta gott af sér leiða. Guðrún Inga er ein af þess- um stelpum. Ég fagna því að hún skuli gefa kost á sér í prófkjöri til Alþingis. Þessi þrítuga, vel menntaða kona hefur þegar töluverða reynslu af stjórnmálum og hefur staðið sig með prýði í krefjandi störfum. Hún á er- indi á þing og sækist eftir 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Ég ætla að kjósa hana og hvet aðra til að gera það líka. Guðrúnu Ingu í 9. sætið Guðrún Pétursdóttir skrifar: GUÐMUNDUR Hallvarðsson hóf ungur afskipti af félagsmálum sem beindust aðallega að málefnum sjómanna. Honum rann blóðið til skyldunnar því 14 ára gamall hóf hann sinn sjómennskufer- il sem vikadrengur á fraktskipi. Að loknum tilskildum siglingatíma á flutn- inga- og varðskipum tók hann stýrimannspróf frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík og starfaði sem stýrimaður um nokk- urra ára skeið. 1972 var hann kos- inn í stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur og varð síðar formað- ur félagsins. Guðmundur var síðar kjörinn formaður Sjómannadags- ráðs, en undir það heyrir Dval- arheimili aldraða sjómanna, Hrafn- istuheimilin. 1991 var Guðmundur kjörinn á Alþingi. Á því tímabili sem liðið er síðan hefur hann lagt mikla áherslu á velferðarmál sjó- manna og hefur flutt á þingi marg- ar tillögur þar að lútandi. Á Alþingi situr Guðmundur í sjávarútvegs- nefnd og er formaður samgöngu- nefndar. Það hefur ekki gerst fyrr í sögu Alþingis að þingmaður Reykjavíkur sé kjörinn formaður samgöngunefndar. Ég vona að sem flestir stuðningsmenn Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík taki þátt í prófkjörinu og greiði Guðmundi at- kvæði í 5. sæti í prófkjörinu. Guðmund í 5. sætið – stétt með stétt! Helgi Hallvarðsson, fyrrverandi skipherra, skrifar: UM helgina gefst sjálfstæð- ismönnum tækifæri til að velja full- trúa sína á framboðslista flokksins í Reykjavík fyrir þingkosningar í vor. Formaður og varaformaður Sjálf- stæðisflokksins sækjast einir eftir 1. og 2. sæti í próf- kjörinu. Þeir munu því leiða lista flokksins í Reykja- víkurkjördæmunum tveimur og veita þar örugga og trausta for- ystu. Sólveig Pétursdóttir sækist eftir stuðningi í 3. sætið í prófkjörinu. Sólveig hefur verið þingmaður Reykvíkinga frá árinu 1991 og gegnt embætti dóms- og kirkju- málaráðherra þetta kjörtímabil. Sólveig er eina konan í þingliði Sjálfstæðisflokksins sem gegnir ráðherraembætti. Í störfum sínum sem ráðherra hefur Sólveig tekið af festu á hinum mikilvægu málum sem heyra undir ráðuneyti hennar. Það er mikilvægt fyrir ímynd Sjálfstæðisflokksins að flokksmenn sýni með skýrum hætti að þeir treysta konum jafnt sem körlum til forystustarfa. Um helgina gefst færi á að sýna það í verki með því að tryggja Sólveigu Pétursdóttur afgerandi kosningu í 3. sætið og veita jafnframt öðrum konum brautargengi í prófkjörinu. Sólveigu Péturs- dóttur í 3. sætið Dögg Pálsdóttir lögmaður skrifar: ALLIR kvenframbjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík héldu framsöguerindi á fjölmennum fundi sem Hvöt bauð til þriðjudaginn 5. nóv- ember sl. Þarna voru bæði konur með reynslu af setu á Al- þingi svo og nýir kvenframbjóðendur. Konurnar voru skemmtilega ólíkar en allar höfðu þær áhugaverð stefnumál fram að færa og gleyptu fundarmenn í sig hvert orð. Fund- urinn var þess vegna fjörugur og að framsöguerindum loknum spunnust áhugaverðar umræður, einkum um heilbrigðismálin. „Verst að geta ekki kosið þær allar,“ hugsaði ég en til- efni þessara skrifa minna er að hvetja karla jafnt sem konur til að veita þeim gott brautargengi í próf- kjörinu um næstu helgi. Frábærar konur! Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, skrifar: NÚ styttist í prófkjör sjálfstæð- ismanna í Reykjavík, en það verður haldið um næstu helgi. Sjálfstæð- isflokkurinn á góða forystumenn og nauðsynlegt er að þeir skipi efstu sæti listans. Sólveig Pét- ursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, sækist eftir þriðja sæti listans og hvet- ur undirritaður sjálf- stæðismenn til að veita henni braut- argengi í það sæti. Hér er á ferðinni röggsamur stjórnmálamaður sem tekið hefur á umfangsmiklum mál- um ráðuneytis síns af dugnaði og atorku. Hún hefur ætíð verið mikill hvatamaður fyrir ungt fólk í stjórn- málum og þekkir baráttumál þess vel. Eftir setu í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins og eitt kjör- tímabil sem varaþingmaður tók hún sæti á Alþingi 1991 og varð ráðherra 1999. Störfin segja meira en mörg orð um hæfni hennar. Hún er for- ystumaður sem eftir er tekið. Kjós- um Sólveigu Pétursdóttur í þriðja sætið! Sólveigu í 3. sæti! Kjartan Ólafsson, stjórnarmaður í Sam- bandi ungra sjálfstæðismanna, skrifar: BJÖRN Bjarnason hefur um ára- bil skipað forystusveit Sjálfstæð- isflokksins. Mikil þekking og yfirsýn Björns Bjarnasonar á öllum málefnum er varða íslenskt þjóðlíf og ekki síst þeim mál- efnum er varða stöðu Íslands á al- þjóðavettvangi er al- kunn. Störf hans hafa sýnt að honum er treystandi til að takast á hendur forsjá í þeim mál- um er varða okkur miklu. Af kynnum mínum við Björn Bjarnason veit ég að hann er orð- heldinn maður, sem axlar pólitíska ábyrgð. Björn leitar ekki skjóls gagnvart erfiðum verkefnum heldur tekst á við þau. Hann býður fram starfskrafta sína til að gæta af yf- irvegun og dugnaði þeirra hags- muna sem honum er trúað fyrir, en ekki til þess að afla sjálfum sér met- orða. Björn hefur einnig til að bera framsýni, stefnufestu og kjark til að taka ákvarðanir í samræmi við hug- sjónir sínar þó að þær séu ekki alltaf til dægurvinsælda fallnar. Þetta eru mikilsverðir kostir forystumanns í stjórnmálum. Tryggjum Birni Bjarnasyni þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Tryggjum gott brautar- gengi Björns Bjarnasonar Þórunn J. Hafstein skrifstofustjóri skrifar: ÉG vil hvetja þá sem taka þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykja- vík dagana 22. og 23. nóvember nk. að veita Láru Margréti brautargengi í 5. sætið. Lára Margrét hef- ur verið á þingi und- anfarin þrjú kjör- tímabil og staðið sig með miklum sóma. Hún hefur verið í eldlínunni víða bæði fyrir hönd flokksins og sem eftirlits- fulltrúi Evrópuþingsins víða í Evr- ópu, svo eitthvað sé nefnt. Hún hefur reynslu og þekkingu úr einkageir- anum og rekstri hins opinbera, hvort heldur sem er á sviði heilbrigðis- og menningarmála eða rekstrar og stjórnunar fyrirtækja. Ferill Láru Margrétar er skýr vís- bending um hæfileika hennar og þekkingu, ásamt því trausti sem hún nýtur á alþjóðlegum vettvangi. Það er því ómetanlegt fyrir okkur sjálf- stæðismenn að njóta krafta hennar, þekkingar og persónulegra tengsla áfram innan þingsins í náinni fram- tíð. Sem forystumaður úr íþrótta- hreyfingunni get ég líka borið ský- laust vitni um áhuga hennar og metnað fyrir eflingu íþróttastarfsemi í landinu og vil því ítreka hvatningu mína til áhugasamra kjósenda í próf- kjörinu um að velja Láru Margréti í 5. sætið. Láru Margréti í 5. sæti. Jónas Egilsson skrifar: BORGARBÚAR eiga að geta gengið um stræti og torg án þess að eiga á hættu að lenda í klónum á misindismönnum. Er til of mikils mælst að húseignir okkar og bílar séu örygg fyrir þjófum og skemmd- arvörgum? Við bú- um í annars konar umhverfi en fyrir ekki svo mörgum ár- um. Stórborgarbragurinn er meiri á Reykjavík, með tilheyrandi glæpum og öryggisleysi borgaranna. Okkar annars fagra samfélag hefur verið svert og er það með öllu ólíðandi. Ein af frumskyldum ríkisvaldsins er að standa vörð um frelsi borg- aranna. Eins og staðan er í dag er forgangsverkefnið að endurheimta frelsið, eyða öryggisleysinu sem Reykvíkingar búa við. Til þess að berjast hinni góðu baráttu þurfum við að eiga okkur öfluga talsmenn á Alþingi, sem láta ekki deigan síga. Sigurður Kári hefur gert þetta mál að sínu. Hann sækist eftir 7. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, veitum honum stuðning okkar! Sigurð Kára í 7. sætið Ásgeir Jóhannesson, laganemi í HÍ, segir:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.