Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 61
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 61
Taktu þátt í að leggja grunninn
að sigri Sjálfstæðisflokksins í vor.
debenhams
S M Á R A L I N D
Morgundögg
allan daginn
100% ilmefnalaust
Góðan daginn!
Komdu og kynntu þér ferska sýn Clinique á förðun, Dewy Smooth Anti-Aging
Makeup SPF 15 farðann. Þetta er einstaklega rakagæfur farði og auðvelt að bera
hann á jafnvel mjög þurra húð. Áferðin er þægileg og mjúk og hann helst á allan
daginn. Einnig veitir hann húðinni fyllingu þannig að smáhrukkurnar frá í gær
virðast dofna og hreinlega hverfa.
Um leið hylur farðinn afar vel allar misfellur og bletti, jafnar húðlitinn og gerir
húðina bjartari. SPF 15-stuðullinn veitir góða vernd gegn áreiti umhverfisins.
Láttu þér líða vel með Clinique.
www.clinique.com
ÉG vil lýsa yfir stuðningi við Stef-
aníu Óskarsdóttur sem gefur kost á
sér í prófkjörinu sem fram fer um
næstu helgi. Oft er talað um að skort-
ur sé á hæfileikafólki
í stjórnmálum. Ekki
verður lagt mat á þá
fullyrðingu hér, en
hitt er víst að Stef-
anía er ákaflega hæf
kona sem hefur bæði
þá þekkingu og
reynslu sem mun nýtast vel á Alþingi.
Jafnframt er ég þess fullviss að Stef-
anía mun gæta almannahagsmuna af
heilindum. Hún hefur í störfum sín-
um sýnt að hún er ósérhlífin og fylgir
málum eftir. Annar mikilsverður
kostur Stefaníu er að henni lætur vel
að vinna með öðrum, hlusta eftir sjón-
armiðum og vinna að lausnum sem
flestir geta fellt sig við. Allt eru þetta
mikilvægir eiginleikar sem nýtast
ekki síst við úrlausn vandasamra
ágreiningsefna. Sjálfstæðisflokk-
urinn þarf á því að halda að framvarð-
arsveit hans sé dugandi og end-
urspegli þá miklu breidd sem
flokkurinn hefur skírskotað til allt frá
stofnun hans 1929.
Stefaníu í fram-
varðarsveitina
Friðrik Páll Jónsson læknir skrifar:
UNGIR sjálfstæðismenn hafa
löngum verið óhræddir við að gagn-
rýna Sjálfstæðisflokkinn og veita
þingmönnum nauð-
synlegt aðhald. Það
segir meira en mörg
orð um Björn
Bjarnason að hann
hefur staðist öll slík
próf með stakri
prýði. Björn gefur
sér auk þess alltaf tíma til að hlusta
á skoðanir unga fólksins og ber
traust til þess. Það traust er gagn-
kvæmt og er mikilvægt að sýna það í
verki með því að kjósa Björn í 3. sæti
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Ungt fólk
treystir Birni
Ragnar Jónasson, lögfræðingur og
stjórnarmaður í Heimdalli, skrifar:
TVEIR af ungu frambjóðend-
unum sem bjóða sig fram í komandi
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, þau Guðrún Inga Ing-
ólfsdóttir og Ingvi
Hrafn Óskarsson
hafa lagt mikla
áherslu á það þarfa
verkefni að lækka
matvöruverð á Ís-
landi. Hátt mat-
vöruverð hér á landi
er með öllu ólíðandi, of stór hluti
ráðstöfunartekna fer í kaup á mat. Í
samanburði við hin Norðurlöndin er
verð á matvöru langtum hærra á Ís-
landi, þó svo þau lönd teljist dýr í
samanburði við önnur lönd Evrópu.
Markmiði sínu um að lækka mat-
arverð ætla þau Guðrún Inga og
Ingvi Hrafn að ná með þeirri ein-
földu aðgerð að lækka tolla og vöru-
gjöld á innfluttum matvörum.
Fyrir almenna neytendur myndi
tollalækkun þýða mikla kjarabót,
þar sem stór hluti af launum þeirra
sem lægstar tekjur hafa í þessu sam-
félagi fara í matarkaup. Lækkun á
matarverði myndi því hafa mjög já-
kvæð áhrif á kaupmátt fólks. Nær-
tækasta dæmið um vel heppnaða
tollalækkun var afnám tolla á græn-
meti fyrr á þessu ári. Fyrir þá að-
gerð voru kaup á grænmeti mun-
aður sem sumir gátu ekki leyft sér.
Lækkun tolla á grænmeti hefur skil-
að sér í verulegri lækkun á græn-
metisverði sem og aukinni neyslu.
Styðjum ungt fólk með einfaldar
og góðar hugmyndir. Styðjum Ingva
Hrafn í áttunda sætið og Guðrúnu
Ingu í það níunda.
Lækkum tolla
á matvælum og
bætum kjör
launafólks
Kristján Bragason, framkvæmdastjóri
Starfsgreinasambands Íslands, skrifar:
ÞAÐ vakti fögnuð minn og vina
minna innan Sjálfstæðisflokksins að
einn frambjóðenda í prófkjöri
flokksins setur út-
rýmingu ósann-
gjarnrar skatt-
heimtu á oddinn í
baráttu sinni. Guð-
rún Inga hefur sagt
að verði hún kjörin á
þing muni hún beita
sér fyrir afnámi eignaskatts og
erfðaskatts. Þessir tveir skattar eru
ósanngjarnasta skattheimta í okkar
skattþjáða samfélagi.
Í fyrsta lagi eru eigna- og erfða-
skattar ósanngjarnir því sömu fjár-
munirnir er skattlagðir tvisvar. Í
öðru lagi bitnar þessi skattheimta á
fólki á eftirlaunaaldri sem hefur
sparað fyrir áhyggjulausu ævi-
kvöldi. Þetta er því þvert á þá hug-
sjón Sjálfstæðisflokksins að umbuna
skuli einstaklingnum fyrir fyr-
irhyggju og framtakssemi. Ég
treysti Guðrúnu Ingu betur en flest-
um til að taka á þessum málum, hún
er með meistaragráðu í fjármála-
hagfræði, hefur mikla reynslu af
rekstri lífeyrissjóða og stýrði skatta-
nefnd Sjálfstæðisflokksins á síðasta
landsfundi. Guðrúnu Ingu í 9. sætið.
Guðrúnu Ingu í 9.
sætið og útrým-
um tvísköttun
Hulda Þórisdóttir skrifar:
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja-
vík hefur efnt til prófkjörs vegna
komandi þingkosninga. Afar ár-
íðandi er að end-
urnýjun eigi sér
stað í þing-
flokknum, enda
vilja sjálfstæð-
ismenn ekki lenda í
sömu vandræðum
og Samfylkingin í
Reykjavík, að bjóða fram nánast
sama lista og fyrir fjórum árum.
Birgir Ármannsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Versl-
unarráðs Íslands, gefur kost á sér
í prófkjörinu og ef hann nær kjöri
verður það afar góð viðbót við
þingflokk sjálfstæðismanna. Birgir
er vandaður maður sem hefur
mikla reynslu hvort sem er úr fé-
lagsmálum, stjórnmálum eða at-
vinnulífinu. Fáir geta talist betur
til þess fallnir að vinna Sjálfstæð-
isflokknum gagn á þingi.
Birgir er baráttumaður fyrir
sjónarmiðum sjálfstæðismanna og
hefur sýnt í störfum innan og utan
flokks að hann er um leið rökfast-
ur, ákveðinn og sanngjarn í mál-
flutningi. Birgir mun eiga auðvelt
með að ávinna sér traust kjósenda
fyrir kosningarnar næsta vor og
vinna að hagsmunum þeirra á
þingi.
Birgi Ármanns-
son í
6. sætið
Guðrún Gyða Árnadóttir, nemi við MBA-
áfanga HÍ, skrifar:Í PRÓFKJÖRI Sjálfstæðisflokks-
ins sem fram fer 22.–23. nóvember
næstkomandi er glæsilegt úrval
ungra frambjóð-
enda. Bent hefur
verið á að nauðsyn-
legt er að ungt fólk
komist inn á þing í
þessu prófkjöri því
ef þinglið Sjálfstæð-
isflokksins helst
óbreytt verður komin upp sú staða
að yngsti þingmaður flokksins verð-
ur 48 ára þegar næsta kjörtímabili
lýkur. Þannig yrði enginn fulltrúi
heillar kynslóðar frá 18–48 ára á
þingi fyrir flokkinn. Slík samsetning
er ekki heillavænleg fyrir flokk sem
vill skírskota til breiðs hóps kjós-
enda á öllum aldri. Guðrún Inga Ing-
ólfsdóttir er ung kona sem gefið hef-
ur kost á sér í 9. sæti í prófkjörinu.
Hún er með góða menntun í hag-
fræði frá bandarískum háskóla og
hefur reynslu úr viðskiptalífinu.
Hennar baráttumál snúa að miklu
leyti að skattamálum og þá sér-
staklega tollamálum. Þannig vill hún
tryggja landsmönnum öllum bætt
lífskjör án þess að auka umfang rík-
isrekstrar. Ég mæli því með þessari
nýju rödd á þing og hvet alla sjálf-
stæðismenn til að kjósa þessa ungu
konu í 9. sæti.
Nýja konu
í níunda sæti
Guðríður Sigurðardóttir starfsþróun-
arstjóri skrifar:
MEÐ Guðmundi Hallvarðssyni
fer öflugur málsvari eldri borgara
sem áræðinn heldur uppi glæsilegri
framtíðarsýn Hrafnistuheimilanna á
höfuðborgarsvæð-
inu. Er þar glöggt
dæmi um bygging 64
leiguíbúða við
Hrafnistu í Hafn-
arfirði og nýleg
skóflustunga að
nýrri hjúkrunarálmu
við Hrafnistu í Reykjavík. Þá þakka
eldri sjálfstæðismenn honum fyrir
frumkvæði hans að stofnun sam-
bands eldri sjálfstæðismanna. Með
störfum sínum á Alþingi og hjá DAS
hefur Guðmundur sannað að þar fer
öflugur og traustur málsvari eldri
borgara. Setjum Guðmund Hall-
varðsson í fimmta sætið og veitum
honum brautargengi í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Kjósum Guðmund
Hallvarðsson
Páll Gíslason læknir skrifar:
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is