Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 63
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 63 UM næstu helgi heldur Sjálfstæð- isflokkurinn prófkjör sitt í Reykja- vík. Fjölmargir nýliðar leita eftir sæti á listanum. Þeirra á meðal er Birgir Ármannsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Verzl- unarráðs Íslands. Ég kynntist Birgi þegar við störfuðum báðir á vettvangi ungra sjálfstæð- ismanna. Þar var Birgir sjálfskip- aður forystumaður, meðal annars einn yngsti formaður Heimdallar á sínum tíma og stjórnarmaður í SUS. Eins og gengur í slíku starfi takast menn oft á og um hríð tilheyrðum við Birgir andstæðum fylkingum innan SUS. Ég minnist þess sér- staklega að það var sama á hverju gekk í hita leiksins – Birgir naut ávallt óskoraðrar virðingar, ekki síð- ur meðal andstæðinga sinna en sam- herja innan hreyfingarinnar. Birgir Ármannsson hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum innan Sjálfstæðisflokksins. Hann er skel- eggur málsvari frelsis og réttlætis og hefur til að bera þá skynsemi, heilindi og einurð sem þarf til að at- hafnir fylgi orðum. Ég hvet sjálf- stæðismenn til að veita honum brautargengi í komandi prófkjöri. Birgi í 6. sæti Þorsteinn Siglaugsson, hagfræðingur, skrifar: ÞAÐ er ánægjuefni fyrir okkur sjálfstæðismenn í Reykjavík að einn allra öflugasti borgarfulltrúi okkar á síðustu árum, Guðlaugur Þór Þórðarson, hafi ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri fyr- ir alþingiskosning- arnar. Guðlaugur hefur í störfum sínum í borgarstjórn sýnt bæði mikið frumkvæði og áunnið sér orðspor fyrir vönduð vinnu- brögð og mikinn dugnað. Hann er hvarvetna góður málsvari Sjálf- stæðisflokksins þar sem hann kem- ur fyrir og hefur margoft sýnt að hann á auðvelt með að koma máli sínu til skila á einfaldan og skil- virkan hátt. Í störfum sínum í ung- liðahreyfingunni sýndi Guðlaugur fram á að honum er vel treystandi til þess að vera í fylkingarbrjósti hjá Sjálfstæðisflokknum og hefur hann löngu markað sér stöðu sem einn efnilegasti foringi okkar sjálf- stæðismanna. Það er gleðilegt að hann skuli nú hafa ákveðið að láta til sín taka á Alþingi og bjóða fram krafta sína þar. Ég hvet alla sjálf- stæðismenn til þess að tryggja honum góða kosningu og kjósa hann í 6. sæti í prófkjörinu næstu helgi. Styðjum Guðlaug í 6. sætið Þórir Kjartansson, verkfræðingur og MBA, skrifar: SEM þingmaður Sjálfstæðis- flokksins hefur Lára Margrét Ragn- arsdóttir haft nokkra sérstöðu. Hún hefur unnið unnið óvenju- mikið á alþjóðavett- vangi, ekki síst sem formaður Íslands- deildar Evrópuráðs- ins, en þar hefur hún gegnt formennsku í félags-, heilbrigðis- og fjölskyldu- málanefnd. Hún hefur fengið marg- ar viðurkenningar fyrir störf sín þar. Hún er ekki fyrir að halda sjálfri sér fram. Þess vegna hefur lítið verið frá þeim sagt hér heima. En fyrir at- beina annarra kom nýlega frétt hér í blaðinu, þar sem sagt var frá heið- ursviðurkenningu sem hún fékk frá tékkneska þinginu fyrir hlut sinn í eflingu neyðaraðstoðar vegna flóð- anna í Tékklandi. Hún hefur einnig tekið virkan þátt í friðarumleitunum í Tétsníu, þar sem hún sýndi mikið hugrekki er hún lagði líf sitt í hættu sinn eftir sinn. Þannig mætti lengi telja. Sterk greind, traust menntun og ágæt málakunnátta hafa í senn skapað henni mikla möguleika og góðan árangur. Sjálfstæðisflokk- urinn má ekki missa slíka mann- eskju af þingi. Þess vegna eigum við að tryggja þessari sterku sjálfstæð- iskonu fimmta sætið. Lára Margrét – ágætur fulltrúi á alþjóðavettvangi Þórir Stephensen, fv. dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, skrifar: STEFANÍA Óskarsdóttir, stjórn- málafræðingur og varaþingmaður, býður sig fram í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík um næstu helgi. Stef- anía er verðugur fulltrúi nýrrar kyn- slóðar sem býður fram krafta sína í þágu framsækinnar uppbyggingar ís- lensks þjóðfélags. Ég tek undir með henni þegar hún leggur áherslu á að efnahagsleg framþróun Íslands séháð áfram- haldandi uppbyggingu íslenska menntakerfisins og kröftugri inn- lendri rannsóknar- og þróun- arstarfsemi. Almennt er álitið að í framtíðinni verði útrás íslensks iðn- aðar sterklega háð þekkingarupp- byggingu fyrirtækja. Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar á íslensku háskóla- umhverfi og skólum á háskólastigi hefur fjölgað. Rannsóknanám er hinn skapandi þáttur háskólastarfs- ins. Mikilvægt er að hafa á Alþingi þingmenn með reynslu og þekkingu Stefaníu af rannsóknum og háskóla- starfi til að styðja þennan mik- ilvæga málaflokk. Ég hvet því alla til að tryggja Stefaníu öruggt sæti í prófkjörinu. Stefanía er verðugur fulltrúi Þorsteinn I. Sigfússon prófessor skrifar: KATRÍN Fjeldsted, læknir og al- þingismaður, sækist eftir fjórða sæt- inu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík nk. helgi. Á þeim rúmu tveimur áratugum sem Katrín hefur starfað sem læknir hefur hún aflað sér víðtækrar reynslu og þekkingar á heil- brigðismálum, ekki síst hvernig þau mál snúa að þeim sem nota þurfa þjónustuna – sjúklingum og fólkinu í landinu. Þá hefur hún tólf ára reynslu úr borgarstjórn og fjögur ár á Alþingi, og er því hnútum kunnug innan stjórnkerfisins. Öll þessi þekking og reynsla er nauðsynleg í dag, þegar heilbrigðismálin eru stærsti útgjaldaliður ríkisins, krafan um niðurskurð stöðug og kerfið í al- gjörum ólestri. Nú er þörf á því að taka til í þeirri ruslakistu sem heil- brigðiskerfi þjóðarinnar er orðið. Katrínu er treystandi til þess. Tryggjum henni fjórða sætið á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík. Lögum heilbrigð- iskerfið – Katrín í 4. sætið Viðar Magnússon, læknir, MBA, skrifar: HLUTVERK okkar sem tökum þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna er að stilla upp sigurstranglegum lista þannig að Sjálfstæðisflokkurinn geti haldið áfram að vinna að góðum mál- um sem stuðla að umbótum fyrir ís- lenskt þjóðfélag. Því eigum við að velja ungt fólk í komandi prófkjöri og til for- ystu en það er nauðsynlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosn- ingum í vor. Ingvi Hrafn Óskarsson, sitjandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, er í hópi ungra frambjóðenda. Er mér sönn ánægja að gefa honum góð meðmæli enda hugmyndaríkur ungur maður á ferð. Ingvi hefur í störfum sínum, sem forystumaður ungra sjálfstæð- ismanna, lagt áherslu á lækkun skatta, ráðdeild og sparsemi í rík- isrekstri og frelsi okkar til orðs og athafna. Á nýafstöðnu málefnaþingi SUS var ályktað um næstu skref sem sjálfstæðismenn eiga að taka í landsmálunum. Var Ingvi hug- myndasmiður að þessu góða þingi, sem heppnaðist einstaklega vel og á sjálfsagt eftir að verða fyrirmynd annarra málefnaþinga hjá ungum sjálfstæðismönnum. Sjálfstæð- ismenn, ungir sem aldnir, ættu að beita sér fyrir því að þessi ungi mað- ur nái góðum árangri í prófkjörinu á laugardaginn. Formann SUS á þing! Friðjón R. Friðjónsson, stjórnarmaður í SUS, skrifar: LÆGRI skattar og meiri velferð, þannig eru áherslur Sigurðar Kára Kristjánssonar, fyrrum formanns SUS, sem nú býður sig fram í prófkjöri okkar sjálfstæð- ismanna í Reykjavík. Það er rangt að lægri skattar skerði velferð, líkt og vinstrimenn halda látlaust að okkur. Léttari skattbyrði á einstaklinga og fyrirtæki tryggir þvert á móti blómlegt efnahagslíf sem aftur skilar sér til ríkisins og í öflugra velferðarkerfi. Heilbrigt skattaumhverfi laðar fyrirtæki að landinu, treystir nýsköpun og at- vinnuumhverfið. Við þurfum að sækja frekari skattalækkanir til rík- isins, tryggja að meira af sjálfsaflafé landsmanna lendi í þeirra eigin vös- um. Sigurður Kári er ekki aðeins öfl- ug viðbót við þingflokkinn, fram- bærilegur fulltrúi ungu kynslóðarinnar, heldur líka verð- ugur fulltrúi skattgreiðenda. Sig- urður Kári er málafylgjumaður og hugsjónamaður sem mun standa sína vakt sem þingmaður okkar sjálfstæðismanna. Kjósum hann í 7. sætið. Sigurð Kára í 7. sætið Þorbjörn Þórðarson, nemi í VÍ og stjórn- armaður í Heimdalli, skrifar: Hver kona er einstök, Helena Rubinstein býður upp á fjölbreytt úrval farða *m eð an bi rg ði r en da st Útsölustaðir: Ársól Grímsbæ, Gullbrá Nóatúni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi 23, Libia Mjódd, Mist Spönginni, Sara Bankastræti 8, Sigurboginn Laugavegi 80, Andorra Strandgötu Hafnarfirði, Bylgjan Hamraborg Kópavogi, Hygea Smáralind, Fína Háholti Mosfellsbæ. Landið: Hjá Maríu Glerártorgi Akureyri, Jara Hafnarstræti 104 Akureyri, Bjarg Stillholti 14 Akranesi, Hilma Garðarsbraut 18 Húsavík, Konur og menn Hafnarstræti 9 Ísafirði, Myrra Austurvegi 4 Selfossi, Miðbær Miðstræti 14 Vestmannaeyjum. Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir HR farða Taska með svampi fyrir farða og bursta fyrir púður, kinnalit og sólarpúður. meistar inn. is HÖNNUN LIST Kynnum OROBLU vetrarvörurnar í Árbæjarapóteki í dag kl. 14-18. Skrefi framar Sokkar, sokkabuxur, undirföt oroblu@islensk-erlenda.is 20% kynningarafsláttur af OROBLU sokkum og sokkabuxum. Árbæjarapótek Hverfisgötu 18, s. 530 9314 Caffé Kúlture fagnar „Thanksgiving“-hátíð Bandaríkjamanna Þessa helgi verður boðið upp á sérstaka kalkúnarétti í tilefni þakkargjörðarhátíðarinnar. Einnig sérstakur jólamatseðill fyrir hópa 1. des.-6. jan. Tekið er við pöntunum núna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.