Morgunblaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 65
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 65
VIÐ SEM störfum á heilbrigð-
issviði vitum öll hve mikilvægt það
er að velja til forystu einstaklinga
sem hafa þekkingu og skilning á
þeim störfum sem
unnin eru á heil-
brigðisstofnunum.
Ásta Möller er einn
þeirra. Ásta hefur
verið í forystusveit
okkar hjúkr-
unarfræðinga um
árabil og unnið að mörgum stórum
framfaramálum í hjúkrun. Þar ber
sennilega hæst sameiningu hjúkr-
unarfélaganna tveggja sem áður
störfuðu.
Álagið á heilbrigðiskerfið vex
stöðugt með tilheyrandi álagi á
heilbrigðisstofnanir, önnum hjá
heilbrigðisstarfsfólki og auknum
byrðum skattgreiðenda. Það er
nauðsynlegt að sátt ríki um rekstur
heilbrigðiskerfisins, sátt sem trygg-
ir okkur áfram þjónustu sem er á
meðal þess besta sem þekkist á
Vesturlöndum.
Undirrituð hefur þekkt Ástu
Möller í fjölda ára og veit að þar
fer kona sem hefur þá hæfileika og
þekkingu sem þarf til að móta það
starf sem framundan er á heil-
brigðissviðinu. Ég skora því á alla
Sjálfstæðismenn í Reykjavík að
fylkja sér á bak við Ástu Möller og
setja hana í eitt af efstu sætunum á
lista Sjálfstæðisflokksins í kosning-
unum í vor.
Styðjum Ástu
Möller til forystu
Helga R. Ottósdóttir hjúkrunarfræðingur
skrifar:
ÉG kynntist Birgi Ármannssyni í
menntaskóla en þrátt fyrir ungan
aldur hafði hann þá þegar getið sér
gott orð fyrir störf að félagsmálum.
Í MR gegndi hann
m.a. embættum for-
seta málfundafélags-
ins Framtíðarinnar
og skólafélagsins.
Hann keppti marg-
oft fyrir skólann í
ræðukeppni og
spurningakeppni. Yfirleitt vann
hann til verðlauna á þessum sviðum
enda víðlesinn og snöggur í til-
svörum.
Birgir valdist einnig til foryst-
ustarfa í félagsstarfinu í Háskól-
anum þar sem hann varði hagsmuni
stúdenta með oddi og egg en sýndi
þó jafnan sanngirni.
Að námi loknu hefur Birgir gegnt
trúnaðarstörfum í þágu atvinnulífs-
ins þar sem hann hefur einnig getið
sér gott orð fyrir dugnað og réttsýni.
Þeir sem kynnst hafa störfum
Birgis eru sammála um að þar fari
óþreytandi vinnuþjarkur, ábyrgur
en þó áræðinn. Umfram allt er hann
þó heiðarlegur og viðkunnanlegur
maður með ríka réttlætiskennd.
Einmitt þess vegna á Birgir erindi á
Alþingi og hvet ég sjálfstæðismenn
til að styðja hann til trúnaðarstarfa í
þágu Reykvíkinga.
Birgi á þing
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur skrifar:
Í VIKULOK munu sjálfstæð-
ismenn í Reykjavík velja fulltrúa
sína á framboðslista flokksins til Al-
þingiskosninga á vori komanda.
Mikilvægt er að
vanda valið og velja
saman vaska sveit
dugmikilla manna.
Kröftugan hóp fólks
með mikla reynslu
og þekkingu.
Æskilegt er að
einhver nýliðun verði og að allar
raddir fái að heyrast. Fagnaðarefni
er að Birgir Ármannsson, sem hefur
víðtæka reynslu af atvinnulífi og fé-
lagsstarfi, skuli bjóða sig fram til
setu á framboðslista Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík. Birgir hefur
jafnan verið valinn til trúnaðarstarfa
í framvarðasveit hvar sem hann hef-
ur komið. Aldrei hefur hann brugð-
ist trausti manna.
Ég hefi aldregi verið í vafa um það
að Birgir eigi fullt erindi á Alþingi
Íslendinga, það leynir sér ekki á at-
gjörvi hans að þar fer maður ríku-
lega kostum búum, né fer það dult í
ræðu eða riti. Ég vil því hvetja sjálf-
stæðismenn til að veita Birgi Ár-
mannssyni brautargengi í komandi
prófkjöri. Birgi í 6. sæti.
Veljum Birgi
Snorri Stefánsson laganemi skrifar:
SÓLVEIG Pétursdóttir, dóms- og
kirkjumálaráðherra, sem nú býður
sig fram í þriðja sæti í prófkjöri sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, hefur með
verkum sínum allar
götur frá því hún hóf
stjórnmálaþátttöku
verið ötul bar-
áttukona fyrir jöfnun
hlutdeildar kynjanna
í áhrifastöðum í þjóð-
félaginu, m.a. í sveit-
arstjórnum og á Alþingi. Með fram-
göngu sinni og góðum árangri bæði
sem þingmaður og ráðherra er hún
öðrum konum, sem hyggja á stjórn-
málaþátttöku, góð fyrirmynd og
hvatning. Hún er forystukona sem
tryggja verður forystusæti í prófkjör-
inu. Sjálfstæðismenn, fjölmennum á
kjörstaðina og nýtum áhrifamátt okk-
ar í Sjálfstæðisflokknum. Sólveigu í
þriðja sætið!
Sólveigu í
forystusæti
Kristín Guðmundsdóttir, fyrrv. formaður
Hvatar – félags sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík, skrifar:
BJÖRN Bjarnason, alþing-
ismaður og borgarfulltrúi, býður sig
nú fram í prófkjöri sjálfstæðismanna
í Reykjavík, sem fram fer 22.–23.
nóvember. Að mínu
mati er Björn
Bjarnason einfald-
lega einn af okkar
allra bestu mönnum.
Hann er sá maður í
þingflokki Sjálfstæð-
isflokksins sem ég
tel hvað vinnusamastan og traust-
astan. Ég styð Björn heilshugar í
prófkjörinu og hvet alla til að kjósa
hann í 3. sæti framboðslistans.
Björn Bjarnason
til forystu
Pétur Gautur myndlistarmaður skrifar: PRÓFKJÖR okkar sjálfstæð-
ismanna er framundan. Hver og
einn okkar ágætu frambjóðenda hef-
ur augastað á sínu óskasæti á listan-
um og hún Katrín
Fjeldsted stefnir
ótrauð á fjórða sæt-
ið.
Katrín hefur dýr-
mæta reynslu í far-
teski sínu. Hefur
starfað lengst af sem
heimilislæknir, verið borgarfulltrúi í
fremstu víglínu og verið þingmaður
af miklum móð, eins og kunnugt er.
Á sviði heilbrigðismála er Katrín á
heimavelli og er eini læknirinn í
þingliði Íslendinga nú. Sú þekking
og reynsla er dýrmæt þegar sá
málaflokkur er annars vegar. Heil-
brigðismálin eru geysilega viðamik-
ill málaflokkur á þingi, eins og kunn-
ugt er.
Katrín er þekkt kjarnakona og
ætlar að sveifla sér upp listann og í
fjórða sætið – með okkar stuðningi!
Svo er hún auðvitað formaður
„Bæjarins bestu“ (félag okkar
kvenna sem hafa verið í borg-
arstjórn Reykjavíkur)!
Segir allt sem þarf!
Katrín fjórða!
Margrét Theodórsdóttir skrifar:
ÉG styð Ástu Möller í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 22.
til 23. nóvember n.k. og hvet þig les-
andi góður til þess að kjósa hana í 4.
til 5. sæti.
Ásta Möller al-
þingismaður tekur
nú þátt í prófkjöri
fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn í Reykja-
vík í fyrsta sinn.
Ásta var í bar-
áttusæti flokksins fyrir síðustu
kosningar sem níundi maður á lista.
Hún hefur á þessu fyrsta kjör-
tímabili sínu vakið athygli fyrir
skýra og einarða stefnu í fjölmörg-
um málum. Ásta hefur m.a. verið
leiðandi í umræðum um heilbrigð-
isþjónustu og vakið athygli á þeim
möguleikum sem liggja í fjölbreytt-
ari rekstrarformum en nú tíðkast
innan heilbrigðisþjónustunnar.
Ég hef um árabil starfað með
Ástu að málefnum hjúkrunarfræð-
inga og veit að þar fer ósérhlífin,
vönduð og stefnuföst kona sem hikar
ekki við að standa við sannfæringu
sína. Vegna reynslu sinnar, þekk-
ingar og leiðtogahæfileika tel ég
hana hafa stóru hlutverki að gegna í
forystusveit Sjálfstæðisflokksins á
alþingi Íslendinga.
Ástu Möller
í 4. til 5. sætið
Lilja Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur,
skrifar:
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn