Morgunblaðið - 22.11.2002, Page 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
afsláttur
25%
ÍSLAND hefur skuldbundið sig til að verja allt
að 300 milljónum króna til þess að leigja flug-
vélar undir herflutninga á vegum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), komi til aðgerða á vegum
bandalagsins, þar sem slíkra flutninga verður
þörf. Ríkisstjórnin hefur samþykkt þetta í fram-
haldi af beiðni frá NATO um framlög, sem geti
orðið til þess að styrkja hernaðargetu banda-
lagsins.
Þegar hefur verið gengið frá rammasamn-
ingum við Flugleiðir og Flugfélagið Atlanta, sem
gera stjórnvöldum kleift að óska aðstoðar þeirra
með litlum fyrirvara og taka flugvélar á leigu.
Nánari ákvörðun um slíkt framlag verður tekin í
hvert skipti, samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins, og þarf í hverju tilviki að skoða m.a.
áhættumat, tryggingamál o.fl.
Uppbyggingu friðargæzlu flýtt
Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að Ís-
lendingar vilji eins og aðrar þjóðir NATO
styrkja bæði bandalagið og sjálfa sig innan
bandalagsins með því að heita framlögum af
þessu tagi, komi til kreppuástands sem NATO
þurfi að fást við. 300 milljónir sé hámarksupp-
hæð tengd einni slíkri hernaðaraðgerð; ef þær
verði fleiri þurfi að skoða það sérstaklega. „Við
vonum auðvitað að slíkt ástand komi ekki oft
upp, og helzt aldrei,“ segir Davíð. Að auki hefur
ríkisstjórnin samþykkt að flýta uppbyggingu Ís-
lenzku friðargæzlunnar.
Þannig verður virkum friðargæzluliðum fjölg-
að úr 25 í 50 fyrir árið 2006, í stað þess að miða
við 2008 eins og gert hefur verið. Þetta þýðir að
kostnaður við friðargæzlu Íslands erlendis getur
orðið allt að hálfur milljarður króna árið 2006.
„Við viljum vera virkari í þessum efnum. Með
þessari ákvörðun erum við að taka heilmikinn
þátt, miðað við okkar hlutfall innan bandalags-
ins,“ segir Davíð.
Allt að 300 milljónum til
loftflutninga fyrir NATO
Prag. Morgunblaðið.
Loforð/42
HLJÓMSVEITIN Sigur Rós tekur
sér stutt frí frá ferðalagi um heim-
inn og heldur tvenna tónleika hér á
landi í byrjun desember. Tónleik-
arnir verða í Háskólabíói 12. og 13.
desember, en hljómsveitarmeðlimir
koma til landsins daginn fyrir fyrri
tónleikana. Með Sigur Rós á tón-
leikum leikur strengjakvartettinn
Amina. Sigurður Ármann verður
sérstakur gestur á þessum tón-
leikum. Miðasala á tónleikana verð-
ur í hljómplötuversluninni 12 tón-
um á Skólavörðustíg 15 og hefst
næstkomandi mánudag. Miðinn
mun kosta 2.900 kr.
Sigur Rós í
Háskólabíói
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær ís-
lenska ríkið til að greiða 11 ára gamalli
stúlku rúmar 16 milljónir króna í bæt-
ur. Barnið fæddist mjög skert andlega
en móðirin greindist með meðgöngu-
eitrun í mæðraskoðun.
Konan fór heim til sín að lokinni
skoðun en sama kvöld fór að blæða og
var konan þá flutt á sjúkrahús þar sem
kom í ljós að um fylgjulos var að ræða.
Taldi Hæstiréttur að líklegast væri að
meðgöngueitrunin hefði komið fylgju-
losinu af stað og leitt til þess að barnið
varð fyrir súrefnisskorti. Væri fötlun
þess þannig sennileg afleiðing af ofan-
greindum mistökum. Var talið að fæð-
ingarlæknir konunnar hefði ekki gert
henni nægilega grein fyrir nauðsyn
innlagnar þegar í stað og hvað í húfi
væri ef ekki kæmi til þess.
Læknisfræðileg örorka 90%
Móðir stúlkunnar greindist með
meðgöngueitrun við mæðraskoðun í
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur í febr-
úar 1991, þar sem hún var með eggja-
hvítu í þvagi, hækkaðan blóðþrýsting
og vaxandi bjúg. Í mæðraskrá var
skráð innlögn á kvennadeild Landspít-
alans. Hún fór samt heim að lokinni
skoðun og stóð til að hún legðist inn að
morgni næsta dags. Um kvöldið varð
skyndilega mikil blæðing hjá henni og
var hún flutt á sjúkrahúsið með
sjúkrabíl. Kom í ljós að um fylgjulos
var að ræða. Var barnið tekið með
keisaraskurði og hefur læknisfræðileg
örorka þess verið metin 90% og fjár-
hagsleg örorka 100%.
16 millj-
ónir vegna
mistaka
Var ekki gerð nægj-
anleg grein fyrir
nauðsyn innlagnar
ÓLAFI Elíassyni myndlistarmanni hefur verið boð-
ið að sýna í túrbínusalnum, stærsta sal Tate Mod-
ern-listasafnsins í London, á næsta ári. Verk hans
verður hluti af sýningarröðinni „Unilever Series“.
Fram að þessu hefur einungis þremur öðrum
listamönnum verið boðið að vinna verk í þessa röð;
þeim Louise Bourgeois, Juan Muñoz og Anish Kapo-
or. Risavaxin verkin sem þau sköpuðu af þessu til-
efni hafa öll vakið mikla athygli, bæði í listheim-
inum og meðal almennra gesta safnsins.
Ólafur sagðist í samtali við Morgunblaðið þegar
vera farinn að setja saman fjölmennan hóp vísinda-
manna úr ýmsum áttum sem standa á saman að
sköpun verksins.
Vinnan er þó öll á frumstigi en sýningin verður
opnuð í október á næsta ári. / 34
ZUMA Press
Túrbínusalurinn er sá stærsti í Tate Modern-listasafninu í London.
Ólafur Elíasson í Tate Modern
GÍFURLEG stemmning var í troð-
fullu Háskólabíói þegar Sálin hans
Jóns míns og Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands tóku þar höndum saman í
gærkvöldi. Uppselt er á tvenna
aðra tónleika. Ríkarður Ö. Pálsson
tónlistargagnrýnandi var meðal
áheyrenda og segir í umsögn sinni
að Sálin, Sinfónían og stjórnandinn
hafi komist „langt með að gera
sannfærandi bræðing úr flestu“.
Morgunblaðið/Kristinn
Bernharð Wilkinson, Una Sveinbjarnardóttir, Stefán Hilmarsson og Guð-
mundur Jónsson voru einbeitt á svip á tónleikunum í gærkvöldi.
Rífandi
stemmning
„VIÐ þurfum á hressilegu suðvestan
roki að halda, með miklu brimi,“ seg-
ir Aðalsteinn Einarsson, skipstjóri á
netabátnum Hring HF frá Hafnar-
firði. Afli neta-
báta í Faxaflóa
hefur verið
óvenju dræmur í
haust og segjast
skipstjórnar-
menn vart muna
annað eins.
„Tíðarfarið
hefur verið okkur
afar óhagstætt,
það hefur varla
hreyft vind hér í allt haust. Þá verð-
ur sjórinn súrefnissnauður og fisk-
urinn hreyfir sig lítið, leggst hrein-
lega á botninn. Það sést best á því að
færabátar hafa verið að fá ágætan
afla innan um netatrossurnar. Þegar
hinsvegar gerir brælu fer ætið á
hreyfingu og þá lifnar yfir öllu lífrík-
inu,“ sagði Alli á Hring.
Þorsteinn Svavarsson, skipstjóri á
netabátnum Mána HF frá Hafnar-
firði, hefur sömu sögu að segja. „Það
hefur verið alger ördeyða í netin í
haust, ég man varla eftir jafnlélegri
haustvertíð. Við erum með sex tross-
ur og köllum það gott ef aflinn fer yf-
ir tonnið eftir daginn. Hér hafa verið
norðan- og norðaustanáttir og það
kemur sér illa fyrir okkur sem
stundum veiðar í Faxaflóa. Það þarf
hressilegar vestlægar áttir til að
hræra upp í lífríkinu í Flóanum.“
Biðja um
hressilega
brælu
Döpur aflabrögð.
♦ ♦ ♦