Morgunblaðið - 07.12.2002, Side 65
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 65
FYRIR 30–40 árum var sú
stefna mótuð í landsmálum að
leggja mikla áherslu á raforku-
framleiðslu með vatnsafli. Eina
kleifa orkunýtingin var stóriðja.
Og stóriðjan kom að utan. Á þess-
um árum voru ríflega tveir tugir
orkuvera „reiknaðir inn í“ helstu
stórár landsins og aðeins lítill hluti
þeirra ekki talinn hagkvæmur eða
tilhlýðilegur, t.d. vegna þekktra
náttúrufyrirbæra sem orkuverin
skertu. Eftir það urðu allmörg
orkuveranna að raunveruleika, eitt
af öðru og í takt við vaxandi málm-
iðnað. Enn er þessari stefnu fylgt í
meginatriðum, en tekið meira tillit
til umhverfisins en áður.
Mörgum milljörðum króna á nú-
virði hefur verið eytt í margs kon-
ar undirbúning orkuveranna og
hefur Landsvirkjun ávallt unnið
„fram fyrir sig“ eins og eðlilegt er.
Markaðsátak stjórnvalda erlendis
og elja, samhliða uppbyggingunni,
hefur að mestu snúist um málm-
iðnað. Köflótt reynsla af Kröfu-
virkjun í fyrstu og rík áhersla á
vatnsvirkjanir hefur leitt til þess
að Landsvirkjun heldur sig að
mestu við „langstærstu draumana“
í fallvötnunum.
Ný og öflug orkufyrirtæki í jarð-
hitageiranum gátu lengi ekki
fullnustað sínar hugmyndir um
raforkuframleiðslu með gufuafli
því þau gátu ekki selt orkuna inn á
landsnetið. Það var fyrst leyft ný-
lega. Orkuverð gufuaflsvirkjana
var enn fremur ekki samkeppn-
ishæft við verð vatnsorkurafmagns
nema ef heitt vatn og/eða gufa
fylgdi með til einhverra kaupenda.
Í markaðsátakinu erlendis var of
lítið gert til að reyna að finna iðn-
rekendur sem vantaði bæði raf-
orku, heitt vatn og gufu, enda ein-
blínt á orkufrekasta iðnaðinn.
Þannig hjálpaði hver þáttur hinum
til þess að áherslan á vatnsorkuver
með tilheyrandi raski og miðlunum
varð einráð; sem og áhersla á
málmiðnaðinn.
Einhæfnin litaði áfram það sem
á eftir fór. Stefnumótendur og
ráðamenn í þessum málaflokki
hafa hvorki tekið nægilegt tillit til
breyttra og nútímalegra umhverf-
isviðhorfa né nýrra atvinnuhátta
sl. tvo áratugi. Hefðu þeir gert það
væru jarðhitaorkuver fleiri og
stærri og með mun léttbærari um-
hverfisáhrifum en svipuð vatns-
orkuver. Hefðu þeir gert það væri
uppi betri skilningur en ella á þörf-
um ferðaþjónustunnar og hags-
munum komandi kynslóða hvað
landvernd varðar. Hefðu þeir gert
það væru hér fleiri að skoða sig um
en helst álframleiðendur. Í stað
þess hefur gamli snjóboltinn oltið
ofan brekkuna og stækkað. Enda-
laus og stundum ósanngjörn gagn-
rýni á Landsvirkjun og stjórnvöld,
þref um mat á umhverfisáhrifum,
auk landshlutarígs, hefur svo
sundrað fólki og gert orkumálin
tortryggileg í augum almennings,
illu heilli.
Til er tæknileg lausn á Norð-
lingaölduveitu þannig að miðhá-
lendinu og einkum Þjórsárverum
verði hlíft. Aukinn kostnaður sem
kann að hljótast af slíkri lausn er
eðlilegt verð fyrir framtíðarauð-
lindir og alþjóðaskuldbindingar. Í
stað stóru Kárahnjúkavirkjunar-
innar geta komið býsna vistvænar
rennslisvirkjanir í Jökulsá á 4–8
árum, aðrar vatnsaflsvirkjanir og
svo tenging við ný jarðhitaorkuver
á Norðausturlandi og Suðvestur-
landi sem unnt er að byggja á 2–4
árum. Fleira mætti tína til.
Þá er óleystur sá vandi hvernig
minnka megi áhersluna á álið og
dreifa eggjunum í fleiri körfur.
Hagvanir menn í þessum bransa
vita eflaust af einhverju vitrænu;
svo um það verður ekki fjölyrt hér.
Allt annað en slíkar vænlegar
lausnir á vandræðunum lítur út
sem steinrunnin stefna eða eitt-
hvað sem er óhjákvæmilegt af því
menn líta ekki til hliðar, aðeins
beint áfram. Það sem hér hefur
komið fram er á vitorði fjölmargra.
Þetta eru ekki einkaskoðanir mín-
ar. Síðast heyrði ég staðreyndirnar
koma fram í máli Júlíusar Sólness
prófessors og fyrrv. umhverfisráð-
herra í Útvarpi Sögu. Það þarf
samt að minna á þær. Enn og aft-
ur.
Vand-
ræði …
enn og
aftur
Eftir Ara Trausta
Guðmundsson
Höfundur er jarðeðlisfræðingur og
áhugamaður um orkumál og nátt-
úruvernd.
„Stefnumót-
endur og
ráðamenn í
þessum
málaflokki
hafa hvorki tekið nægi-
legt tillit til breyttra og
nútímalegra umhverf-
isviðhorfa né nýrra at-
vinnuhátta.“
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111