Morgunblaðið - 18.12.2002, Page 8

Morgunblaðið - 18.12.2002, Page 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 19 75 1 1 2/ 20 02 Allt að50% afsláttur af jólaskrauti Hurðakrans með ljósleiðara Verð áður 4.998 kr. Nú 2.990 kr. Borgaðu, ég er farin heim til mömmu. Nýr íþróttafulltrúi ríkisins Holl hreyfing er meginatriði FRÁ árinu 1940 og tilársins 2002 hafaeinungis tveir Ís- lendingar skipað stöðu íþróttafulltrúa ríkisins. Nú er nýr íþróttafulltrúi sestur í stólinn og í hvert sinn sem það gerist er óhætt að segja að verið sé að yngja upp. Nýi íþrótta- fulltrúinn tók til starfa á þessu ári, þrautreyndur starfskarftur sóttur inn í raðir ÍSÍ. Þar er á ferð- inni Líney R. Halldórs- dóttir sem síðustu fjögur árin hefur verið sviðsstjóri afrekssviðs ÍSÍ. Morgun- blaðið ræddi aðeins nýju stöðuna við Líneyju á dög- unum. – Lýstu fyrir okkur þessu nýja starfssviði þínu … hvers vegna er þessi staða tilkomin og hverjar eru helstu áherslurnar sem lagðar verða á næstu misserum? „Árið 1940 voru íþróttalög samþykkt að tilstuðlan Her- manns Jónassonar, þá forsætis- og menntamálaráðherra. Til að framfylgja lögunum var kveðið á um að skipuð yrði íþróttanefnd ríkisins og ráðinn íþróttafulltrúi. Tveir mætir menn hafa skipað þessa stöðu, þ.e. Þorsteinn Ein- arsson 1940–1980 og Reynir G. Karlsson 1980–2002. Árið 1998 voru íþróttalögin endurskoðuð og var stöðuheitið „íþróttafulltrúi“ fellt niður, er nú deildarstjórastaða og heyrir und- ir skrifstofu menningarmála, íþrótta- og æskulýðsdeild. Íþróttanefnd er menntamála- ráðuneytinu til ráðgjafar í íþróttamálum og gerir tillögur að úthlutun úr íþróttasjóði og starfa ég með þeirri nefnd. Samkvæmt íþróttalögum fer menntamálaráðuneytið með yfir- umsjón íþróttamála að því leyti er ríkið lætur þau til sín taka. Eftir sem áður er lögð áhersla á að vinna að framgangi íþrótta- mála og efla samskipti á milli þeirra aðila sem að þeim koma, s.s. frjálsra félagasamtaka, sveit- arfélaga og ríksins. Meginmarkmið íþrótta- og æskulýðsdeildar er að stuðla að því að sem flestir landsmenn geti notið hollrar hreyfingar og upp- byggilegs félags- og tómstunda- starfs. Einnig er mikilvægt að efla samstarf milli opinberra að- ila og þeirra félagasamtaka sem fást við þessi mál í landinu. Sam- starf í íþrótta-, æskulýðs- og tóm- stundamálum á alþjóðlegum vett- vangi er stöðugt að aukast og er hlutverk menntamálaráðuneytis að taka þátt í þessu samstarfi fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.“ – Að hve miklu leyti er þetta nýtt og öðru vísi en fyrra starf íþróttafulltrúa hjá ÍSÍ? „Hjá ÍSÍ vann ég sem sviðs- stjóri fyrir afrekssvið og fór með málefni sem lúta að afreksíþrótt- um s.s. undirbúningi fyrir þátt- töku Íslands í Ólympíuleikum, Smáþjóðaleikum, Ól- ympíuhátíð Evrópu- æskunnar, erlend sam- skipti, m.a. við ólympíunefndir ann- arra þjóða, Alþjóða- ólympíunefndina og undirnefndir hennar auk fjölmargra annarra verkefna. Starfið, eins og gefur að skilja, fellur undir stjórnsýslu og er þar af leiðandi mun mót- aðra.“ – Ertu að fara út í fastmótaða vinnu eða færðu að móta og þróa eftir eigin höfði? „Starfið sem slíkt er í ákveðnum farvegi eins og á við um störf innan stjórnsýslunnar. Það er þó ljóst að með nýju fólki skapast nýir siðir og nýjar venjur að einhverju leyti. Starfið er einnig mótað af stefnu og áherslum ríkisstjórnarinnar og sitjandi menntamálaráðherra hverju sinni.“ – Hvaða þýðingu hefur þessi staða fyrir íþróttaiðkun í land- inu? „Þrátt fyrir að íþróttastarfsemi fari fram við önnur skilyrði en voru fyrir 40 árum er hugmyndin sú sama, þ.e. að skapa íþróttum formlega umgjörð um aðkomu ríkisins að íþróttamálum án beinna afskipta af því hvernig íþróttahreyfingin hagar störfum sínum. Ráðuneytið sinnir íþróttamál- um í heild á meðan aðrir, t.d. sveitarfélögin, íþróttahreyfingin, félögin og aðrir koma að ein- stökum greinum eða þáttum íþrótta- og æskulýðsstarfs. Að þessu leyti hefur ráðuneytið sér- stöðu og ákveðnu hlutverki að gegna. Það er þekkt að ríkið gegnir mikilvægu hlutverki í að skapa íþróttahreyfingunni og íþróttamönnum þær aðstæður og tækifæri sem oft eru forsenda ár- angurs.“ – Eru íþróttir vel geymdar á menningarskrifstofu ráðuneytis- ins? „Íþróttir eru ríkur þáttur í ís- lensku samfélagi og hluti af okk- ar menningu. Íþrótta- mál falla undir skrifstofu menningar- mála í ráðuneytinu og eru formlega flokkuð sem menning líkt og t.d. æskulýðsmál. Frá því að skipulagi ráðuneytisins var breytt 1998 hefur ráðuneytið unnið dyggilega að íþróttamálum og íþróttastarfið er nátengt því starfi sem fram fer á öðrum skrifstofum ráðuneytisins, t.d. skrifstofu menntamála. Sú skrif- stofa ákveður t.d. námsskrá fyrir íþróttakennslu í grunn- og fram- haldsskólum.“ Líney R. Halldórsdóttir  Líney R. Halldórsdóttir er íþróttafræðingur, fædd á Siglu- firði 24. apríl 1961. Er með BS- nám frá Rockford College 1983– 1987 í „Physical Education/ Education“ og mastersnám í „Exercise physiology“ og „Sports Med./Athletic Training“ frá Northern Illinois University 1988–1990. Var framkvæmda- stjóri Íþróttafélagsins Leiknis 1992–1997, skrifstofustjóri Ól- ympíunefndar Íslands 1997–1998, sviðsstjóri afrekssviðs ÍSÍ 1998– 2002 og deildarstjóri íþrótta- og æskulýðsdeildar menntamála- ráðuneytisins frá 2002. Maki er Oddný Sigsteinsdóttir. Ráðuneytið sinnir íþrótta- málum í heild

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.