Morgunblaðið - 18.12.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 11
LOFTMYND af Stokkseyri prýðir
dagatal Z/I Imaging sem er stór-
fyrirtæki í framleiðslu á mynda-
vélum og öðrum búnaði til korta-
gerðar byggða á loftmyndum. Sjö
þúsund eintök voru prentuð af
dagatölunum og er þeim dreift til
viðskiptavina fyrirtækisinsvíða
um heim.
Ljósmyndin af Stokkseyri var
tekin 14. ágúst sl. fyrir fyrirtækið
Loftmyndir ehf. sem hefur und-
anfarin ár unnið að gerð stafræns
landlíkans af Íslandi. Búið er að
taka 15.000 loftmyndir af 85%
landsins og kortleggja 60%. Verk-
efnið hófst árið 1996 en gert er
ráð fyrir að því ljúki innan
þriggja ára. Skúli Magnús Þor-
valdsson, landfræðingur hjá Loft-
myndum, segir að myndirnar sýni
að sjálfsögðu allt sem er á land-
inu, hvort sem það sé hús, vegir
eða ár, með mikilli nákvæmni og
hægt sé nota upplýsingarnar til
að útbúa hefðbundin kort. Um
verði að ræða langnákvæmasta
heildarkortagrunn sem gerður
hafi verið af Íslandi. „Okkar
helstu viðskiptavinir eru Vega-
gerðin, Landsvirkjun og sveit-
arfélög sem nota gögn frá okkur
til að hanna mannvirki og við
skipulag en einnig geta ein-
staklingar keypt myndirnar í
verslun okkar á Skólavörðustíg,“
segir hann.
Tekin í 1.400 metra hæð
Myndin af Stokkseyri er tekin í
1.400 metra hæð eins og aðrar
myndir af þéttbýli. Filman er
23x23 sentimetar að stærð og
myndin er skýr eftir því. Þannig
er t.d. hægt að sjá hvort bílar séu
með sóllúgu eða ekki og menn og
dýr sjást ágætlega. Flogið er í
3.000 metra hæð yfir dreifbýli og
8.500 metra hæð yfir hálendinu
en ekki er talin þörf á jafnmikilli
nákvæmni yfir þessum svæðum.
Skúli segir að Loftmyndir ehf.
hafi keypt margvíslegan búnað af
Z/I Imaging í gegnum tíðina og í
haust hafi fyrirtækið óskað eftir
því að Loftmyndir sendu nokkrar
ljósmyndir sem kæmu til greina í
dagatal fyrirtækisins. Myndin af
Stokkseyri hafi síðan orðið fyrir
valinu.
Mynd af Stokks-
eyri á dagatali
stórfyrirtækis
ÍVAR J. Arndal, aðstoðarforstjóri
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins, hefur verið settur forstjóri
ÁTVR frá 2. júní 2003 til 30. maí
2004, en fjármálaráðherra hefur
veitt Höskuldi Jónssyni, forstjóra
ÁTVR, leyfi frá störfum á sama
tíma.
Ívar forstjóri
ÁTVR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá inn-
flutnings- og heildsölufyrirtækinu
Mötu ehf.:
„Í viðtali við Ingimar Jónsson,
forstjóra Kaupáss, í Morgunblaðinu
17. desember heldur hann því fram
að ástæða lækkunar ávaxta og
grænmetis á íslenska matvörumark-
aðnum frá því í október, sé sú að Búr
hóf eigin innflutning á umræddum
vörum. Þessi söguskýring Ingimars
hlýtur að flokkast undir yfirsjón og á
ekki við rök að styðjast, að dómi
Eggerts Á. Gíslasonar hjá Mötu
ehf.:
Það er fráleitt að halda því fram
að Nóatún og tengdar verslanir hafi
þurft að fara út í eigin innflutning til
að lækka smásöluverð á ávöxtum og
grænmeti. Þeir áttu einfaldlega kost
á að lækka verðið verulega löngu áð-
ur en kusu þess í stað að skammta
sér mjög ríflega álagningu. Óhætt er
að fullyrða að verðið sem þeir hafa
fengið hjá heildsölum árum saman
hefði gefið þeim mjög gott svigrúm á
umtalsverðri lækkun til neytenda,
en svo virðist sem áhuginn hafi ein-
faldlega ekki verið fyrir hendi.
Það er fráleitt að talsmaður Nóa-
túns sem er ein dýrasta verslun
landsins í þessum vöruflokki skuli
reyna að eigna sér lækkunina. Það
rétta er hins vegar að frumkvæðið
að lækkuninni nú í haust eiga sjálf-
stæðar verslanir, s.s. Fjarðarkaup,
Europris, Gripið og greitt og Spar-
verslun en flestar þessara verslana
eru viðskiptavinir Mötu. Þessar
verslanir sem sannanlega knúðu á
um lækkunina standa alfarið utan
stóru blokkanna Baugs og Búrs, en
innan vébanda þessara stóru blokka
eru m.a. Nóatún, Nettó, 11–11, 10–
11, Hagkaup, Bónus og Samkaup
ásamt kaupfélögunum í landinu.
Samanlagt heldur þessi risavaxna
fákeppnisblokk utan um meira en
90% af smásöluverslun í landinu.“
Athugasemd
frá Mötu
EINS og undanfarin ár er hægt
að kaupa sérstök gjafabréf með
áskrift að Morgunblaðinu. Gjafa-
áskriftin getur varað í einn mánuð
eða lengur, allt eftir óskum hvers
og eins. Hægt er að panta gjafa-
áskrift á áskriftarvef Morgun-
blaðsins á mbl.is, einnig eru pant-
anir afgreiddar í áskriftardeild í
síma 569 1122 eða í Morgunblaðs-
húsinu í Kringlunni. Boðið er upp
á að senda gjafabréfið á gefanda
eða viðtakanda eftir því sem við á.
Sérstakt tilboð er fyrir áskrifend-
ur Morgunblaðsins sem felur í sér
að ef gjafabréf er keypt fyrir 24.
desember nk. fylgir svört hliðar-
taska með á meðan birgðir endast.
Gjafaáskrift að Morgunblaðinu er
tilvalin gjöf fyrir unga fólkið, sem
er að hefja búskap eða er búsett
erlendis og getur líka komið að
góðum notum fyrir pabba og
mömmu, afa og ömmu, frændur
eða frænkur, hvort sem er hér
heima eða erlendis.
Gjafaáskrift að Morgun-
blaðinu – taska í kaupbæti
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
ÚTSALA - ÚTSALA
Dæmi um verð: Áður: Nú:
Flíspeysa 3900 900
Röndóttur blaxerjakki 5900 1900
Vatteraður jakki 5900 2400
Bómullarpeyra 6600 1900
Rennd jakkapeysa 5800 1900
Tunika 3900 1700
Dömuskyrta 3100 1200
Kjóll 4600 1900
Stutt piil 2900 1200
Rúskinnsstígvél 8900 2900
Herrapeysa 5900 2400
Herraskyrta 4000 1600
...og margt margt fleira
stærðir 36-52
50—80%
afsláttur
Síðumúla 13, sími 568 2870,
108 Reykjavík.
Opið frá kl. 10.00-18.00
www.friendtex.is
Silkimarkaður
Silki náttföt: 7.400 kr. Silki náttkjólar: 5.600 kr.
Silki sloppar: 6.000 kr.
Herraskyrtur og bindi úr tælensku silki.
Handofin Pashmina og kasmír treflar og sjöl frá Nepal.
Silka Laugavegi 20,
opið 11.00-23.00 alla daga fram að jólum.
Náttsloppar kr. 4.900
Flísjakkapeysur kr. 2.500
Bindi frá kr. 800
Laugavegi 34, sími 551 4301• Opið til kl. 22 öll kvöld
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930