Morgunblaðið - 18.12.2002, Qupperneq 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ var stór stund hjá hópi ungs
fólks sem útskrifaðist í fyrsta
sinn úr skóla í síðustu viku enda
mikið lagt í útskriftina. Ekki nóg
með að menntamálaráðherra hafi
komið ásamt fríðu föruneyti til að
vera viðstaddur, heldur fengu all-
ir nemendurnir bland í poka í
kveðjugjöf.
Námsmennirnir eru allir fjög-
urra og fimm ára gamlir og skól-
inn þeirra heitir Lestrarskóli
Helgu en hann er starfræktur í
Kópavogi. Eins og nafnið bendir
til gengur námið, sem er tveggja
mánaða langt, út á að læra að
lesa. Langflestir ná að verða læs-
ir á þessum tíma og það er ekki
dónalegt veganesti til að hafa
með sér út í lífið framundan.
„Þau eru geysilega glöð með
þetta,“ segir Helga Sigurjóns-
dóttir, kennari og stofnandi skól-
ans. „Mín kenning er sú að það að
verða svona snemma læs auki
sjálfstraustið og lestrarkunnáttan
eflir börnin afskaplega mikið.“
Sama námsefni
fyrir lesblinda
Á námskeiðstímanum mæta
börnin í skólann ásamt foreldrum
sínum fjóra daga í viku, hálftíma
í senn. „Þau nota sérhannað
námsefni, sem ég hef búið til
sjálf. Foreldrarnir koma með í
skólann þar sem þeir læra
kennsluaðferðina og þjálfa börnin
síðan heima á sama hátt. Reynsl-
an sýnir að ef þau æfa sig ekkert
heima er árangurinn ekki eins
glæsilegur en almennt eru þau
mjög dugleg að æfa sig þótt það
séu engar stífar reglur um það.“
Námskeiðin eru frá klukkan
fjögur á daginn en alla jafna er
Helga með þrjá námshópa hverju
sinni og allt að sex börn í hverj-
um hóp. Hún viðurkennir að for-
eldrar þurfi oft á tíðum að leggja
talsvert á sig til að láta stunda-
töfluna ganga upp. „Þetta er oft
alveg heilmikið púsluspil hjá þeim
og ég dáist að þeim fyrir hvað
þeir eru duglegir,“ segir hún og
játar því líka að stundum séu
krakkarnir orðnir lúnir eftir
langan dag í leikskólanum. En
hún kann ráð við því. „Maður
verður að haga seglum eftir vindi
ef þau eru mjög þreytt og slaka
svolítið á.“
Skóli Helgu verður þriggja ára
í janúar næstkomandi en hann
stofnaði hún þegar hún komst á
eftirlaun fyrir þremur árum eftir
20 ára starf í Menntaskólanum í
Kópavogi sem íslenskukennari og
námsráðgjafi. Áður hafði hún ver-
ið barnakennari í Kópavogsskóla í
15 ár. „Eftir að ég stofnaði skól-
ann byrjaði ég með alhliða náms-
aðstoð í öllum fögum í grunnskóla
en er að færa mig meira og meira
í byrjendakennslu í lestrinum og
kennslu fyrir lesblinda. Þar er
eftirspurnin orðin mjög mikil.
Það sem er kannski athyglisverð-
ast er að ég nota alveg sama efn-
ið fyrir lesblinda nemendur, suma
hverja fullorðna, og í öllum til-
fellum ná þeir sér á strik.“
En hvers vegna leggur hún
svona mikla áherslu á lesturinn?
„Ég hef verið að fara ýmsar,
kannski ekki alveg hefðbundnar
leiðir lengi en eftir því sem ég
vinn lengur við þetta, þeim mun
ljósara verður mér hvað það er
alvarlegt mál ef börn ná ekki tök-
um á lestri,“ segir hún.
Það var kannski ekki síst þess
vegna sem hún ákvað að bjóða
Tómasi Inga Olrich mennta-
málaráðherra að vera viðstaddur
útskrift litlu námshestanna á dög-
unum. „Hann hefur verið að kalla
eftir árangri í lestrarkennslu
þannig að mig langaði að kynna
honum þetta. Hann mætti þarna,
meira að segja með fríðu föru-
neyti,“ segir hún og hlær við. Það
var þó ekki bara mennta-
málaráðherra sem gerði útskrift-
arstundina stóra fyrir litla fólkið.
„Þau fengu framhaldsbók í lestri
og reikningsbók í verðlaun auk
þess sem þau fengu bland í poka í
tilefni dagsins.“
Litlir lestr-
arhestar
útskrifast
með viðhöfn
Kópavogur
Námið tekið föstum tökum: Útskriftartíminn var nýttur til hins ýtrasta og hér leiðbeinir Helga lestrarhestunum í
síðasta sinn. Á hliðarlínunni fylgjast foreldrarnir með af áhuga enda mikilvægt að þeir læri kennsluaðferðina.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Það var ekki amalegt að hafa yf-
irmann menntamála í landinu við-
staddan útskriftina, en kannski hef-
ur nammipokinn nú samt verið
meira spennandi fyrir suma.
TIL AÐ mæta brýnni þörf eftir
leikskólaplássum í Hafnarfirði
skoða bæjaryfirvöld nú þá hug-
mynd að nýta gamla Lækjarskól-
ann undir leikskólastarfsemi frá
næsta sumri, þegar almennt skóla-
starf flyst þaðan að fullu í nýbygg-
ingu við Hörðuvelli. Jafnframt er
til skoðunar undirbúningur að
byggingu nýs leikskóla í Áslands-
hverfi.
Meirihluti bæjarstjórnar segir í
samantekt á heimasíðu bæjarins að
brýnt sé að taka sem fyrst á þeim
mikla vanda sem blasir við í leik-
skólamálum, en yfir 400 börn eru á
biðlista, þar af yfir 220 sem orðin
eru 2 ára eða eldri. Samkvæmt
fjárhagsáætlun 2003, sem tekin
verður til síðari umræðu í bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar í dag, verð-
ur nýr fjögurra deilda leikskóli,
Hraunkot við Haukahraun, tekinn í
notkun næsta sumar með rými fyr-
ir 100 börn. Þar fjölgar leikskóla-
rýmum um 50 til viðbótar þeim
sem fyrir voru í gamla leikskól-
anum sem var nánast í ónýtu hús-
næði.
Þá verður ný deild byggð við
leikskólann í Hvammi og þar bæt-
ast við 20 ný leikskólapláss. Einnig
verður samkvæmt áætluninni ráð-
ist í viðbyggingu við leikskólann
Smáralund. Að auki má nefna að
nýrri deild var bætt við leikskólann
Víðivelli við Miðvang á dögunum
þegar nýlegu gæsluvallarhúsi var
breytt í leikskóladeild og þannig
bætt við hátt í 20 leikskólaplássum.
Í greinargerð með fjárhagsáætl-
un sem lögð hefur verið fram til
kynningar segir að með þessum
verkefnum í leikskólabyggingum sé
mikilvægum áföngum náð, en ljóst
sé að ennþá er ýmsu ólokið sem
nánar verður fylgt eftir með þeirri
langtímaáætlun bæjarins sem lögð
verður fyrir á komandi vori.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lækjarskóli verði leikskóli
Hafnarfjörður
HIN árlega Stjörnumessa var haldin
í Grafarvogi á föstudagskvöld í bíla-
verkstæðinu Bílastjörnunni við góðar
undirtektir Grafarvogsbúa en á milli
300 og 400 manns mættu til að vera
viðstaddir. Að sögn Þráins Hafsteins-
sonar, íþrótta- og tómstundafulltrúa
Miðgarðs-fjölskylduþjónustunnar í
Grafarvogi, hefur aðsóknin aldrei ver-
ið meiri í þau þrjú skipti sem Stjörnu-
messan hefur verið haldin.
Það eru Grafarvogsskáldin og eig-
endur Bílastjörnunnar sem standa að
Stjörnumessunni með stuðningi frá
Miðgarði en fjöldi valinkunnra lista-
manna kom þar fram. Meðal annars
tróðu Einar Kárason og KK upp í til-
efni af bók Einars um tónlistarmann-
inn. Leynigestur samkomunnar var
Þórarinn Eldjárn og Thor Vilhjálms-
son tók einnig óvænt til máls utan
dagskrár.
Stemmn-
ing á
stjörnu-
messu
Grafarvogur
Morgunblaðið/Jim Smart