Morgunblaðið - 18.12.2002, Page 39

Morgunblaðið - 18.12.2002, Page 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 39 ✝ Erlendur Einars-son fæddist hinn 2. september árið 1914. Hann lést á hjartadeild Landspít- alans við Hringbraut hinn 12. desember síðastliðinn eftir skamma sjúkdóms- legu. Foreldrar hans voru Einar Dagfinns- son, f. 12.10. 1885, d. 31.5. 1970, og Ingi- björg Guðjónsdóttir, f. 6.4. 1888, d. 28.8. 1955. Systkini hans voru Dagfinnur Björn, f. 6.7. 1910, Ólöf, f. 6.5. 1912, Páll, f. 16.8. 1917, Guðný, f. 18.1. 1919, og Kristján, f. 13.6. 1920. Guðný er ein systkina Er- lendar enn á lífi. Hinn 14. október 1939 kvæntist Erlendur Friðgerði Friðriksdótt- ur sem lifir mann sinn og eign- uðust þau þrjú börn. Þau eru: 1) Einar, f. 2.12. 1939, eiginkona Margrét Höskuldsdóttir og eiga þau fjögur börn; Höskuld, Hilmar, Erlend og Helenu. 2) Ardís, f. 30.11. 1943, eigin- maður Sigurður Hermannsson, d. 15. desember 1988, þau eiga þrjár dætur; Gerði, Fjólu og Svövu. 3) Ingibjörg, f. 3.9. 1947. Hún var gift Franklin Brynj- ólfssyni, þau skildu og eiga þau þrjú börn; Erlu, Kristján Þór og Erlend. Er- lendur og Friðgerð- ur eiga 13 barna- barnabörn. Erlendur starfaði fyrstu starfsár sín hjá Kolaversl- un Sigurðar Ólafssonar eða allt þar til 1947 er hann eignaðist sinn fyrsta vörubíl og hóf störf hjá Vörubílastöðinni Þrótti þar sem hann starfaði til margra ára. Síð- ustu starfsár sín vann hann hjá Kassagerð Reykjavíkur þar sem hann lauk starfsævi sinni 76 ára að aldri. Útför Erlends fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Leiðir okkar Ella eins og hann var jafnan kallaður lágu saman árið 1977 er ég kynntist barnabarni hans sem síðar varð eiginkona mín. Varð mér fljótt ljóst hversu einstakur maður var þar á ferðinni. Frá fyrsta degi fann ég hversu miklu máli það skipti fyrir hann að fylgjast með lífshlaupi okkar unga fólksins og setja sig inn í málefni líðandi stundar hverju sinni. Elli var margfróður maður og víð- lesinn og voru það ófáar stundirnar þar sem hann sagði ýmist frá efni góðra bóka, lífinu fyrr á árum eða samtímamönnum hans í gegnum líf- ið. Hann hafði sterka pólitíska sann- færingu sem mótast hafði á hans yngri árum þegar honum brann fyrir brjósti hversu mismunandi aðstæður samborgarar hans bjuggu við. Elli var alla tíð mikill verkalýðssinni og hafði fastar og ákveðnar skoðanir á þjóðmálum sem hann fylgdist afar vel með fram á síðasta dag. Ekki var því óalgengt að upp kæmu skemmti- legar rökræður um menn og málefni þar sem stundum sýndist sitt hverj- um. Aldrei var það þó svo að skoð- anir hvers og eins væru ekki virtar heldur umræðurnar fremur til þess að víkka sjónarhorn þeirra málefna sem til umræðu voru hverju sinni. Ella þótti ekki lítið til þess koma að ég skyldi leggja fyrir mig starf tengt skólamálum sem voru mikið áhugamál hjá honum. Áttum við mörg samtölin um þær breytingar sem orðið hafa á skipulagi mennt- unar á Íslandi og þeim nýjungum sem efstar voru á baugi hverju sinni. Ekki síst hafði hann ákveðnar skoð- anir á agamálum í skólum sem hon- um þótti hafa farið nokkuð aftur og taldi að þar mætti taka verulega á ef ekki ætti illa að fara. Þótti honum börn og unglingar ekki nægjanlega þakklát fyrir þau miklu tækifæri sem verið væri að bjóða þeim við skipulag menntunar þeirra í dag. Ferðalög voru eitt aðal áhugamál Ella og til margra ára ferðuðust hann og Fríða víða bæði innanlands og erlendis. Það voru ófá löndin sem þau heimsóttu og sum hver aftur og aftur. Í kjölfar slíkra ferðalaga fylgdu ítarlegar sögur og fróðleikur um land og þjóð þar sem áhugaverð- um stöðum var lýst auk frásagna af þjóðlífinu á hverjum stað. Ella var einkar lagið að tengjast ungu fólki og kom það ekki síst í ljós í samskiptum hans við barnabarna- börnin. Ótrúlegt var að fylgjast með því hversu vel hann setti sig inn í það sem þau tóku sér fyrir hendur hvort heldur sem um var að ræða vinnu, menntun eða tómstundir. Oftar en ekki var rætt um knattspyrnu þar sem ekki var komið að tómum kof- unum hjá honum. Umræðurnar snerust þá ýmist um það sem efst var á baugi hverju sinni eða eftir- minnileg atvik frá Melavellinum fyrr á árum. Elli var mikill Valsmaður og þótti honum mikið til þess koma þegar sonur minn tók að spila með meist- araflokki Vals og áttu þeir saman margar stundir þar sem gengi liðsins var helsta umræðuefnið og þær væntingar sem hvor um sig bar til framtíðarinnar hvað liðið snerti. Því miður er Sigurður erlendis um þess- ar mundir að ljúka námi og hefur því ekki tækifæri til að fylgja langafa sínum til hinstu hvílu í dag en ég veit að hugurinn er hjá Ella þessa stund- ina. Elli var alla tíð heilsuhraustur og með afar skýra hugsun fram á síð- asta dag en það lýsir honum kannski meira en mörg orð að hans helsta áhyggjuefni undir það síðasta var hvort eiginkonu hans til síðastliðinna 63 ára liði sem best. Að kveðja góðan mann er alltaf erfitt og því fylgir söknuður en fyrst og fremst er mér, eflaust eins og flestum sem hann þekktu, efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast og eiga samleið Ella. Elsku Fríða og fjölskyldan öll. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Þorsteinn Sæberg. Mig langar að minnast Ella afa míns með nokkrum orðum. Í huga mínum var afi hlýr, duglegur og kraftmikill maður. Hann var víðles- inn og fylgdist ávallt gaumgæfilega með þjóðfélagsmálum. Hann sat aldrei á skoðunum sínum um menn og málefni og hafði gríðarlega gam- an af því að viðra þær í góðra vina hópi. Verkalýðsmál og staða lítil- magnans voru oftar en ekki um- ræðuefnið og þar var afi ötull stuðn- ingsmaður. Fólk skipti hann máli og hann dáðist alltaf að þeim sem börð- ust áfram af eigin dug. Afi fylgdist alltaf vel með því sem var að gerast í lífi mínu, bæði í leik og starfi. Stund- um hristi hann höfuðið yfir uppá- tækjum mínum en oftast var hann afar stoltur. Afi kenndi mér svo sannarlega margt með sínum litríku skoðunum og lífsmynstri. Hann var sterkur maður og ég er þakklát fyrir allt sem hann gaf mér. Minningin um afa mun lifa með mér. Svava. ERLENDUR EINARSSON ✝ GuðmundurBergmann Jóns- son fæddist á Hauka- gili í Hvítársíðu í Borgarfirði 3. júní 1917. Hann lést á Landakotsspítala í Reykjavík 6. desem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Hildur Guð- mundsdóttir, hús- freyja frá Kolsstöð- um, f. 1877, d. 1938, og Jón Sigurðsson, bóndi og alþingismað- ur frá Haukagili, f. 1871, d. 1935. Systkini Guðmundar voru Svava (hálfsystir samfeðra), skrifstofumaður í Reykjavík, f. 1902, d. 1969, Sigurður, iðjuhöldur og vísnasafnari í Reykjavík, f. 1912, d. 1985, Ingibjörg Vídalín, f. og d. 1913, Björn, lögregluþjónn í Reykjavík, f. 1915, d. 1992, Ásgerð- ur, húsfreyja á Haukagili, f. 1918, d. 1999, og Ingibjörg Vídalín, hús- freyja á Velli í Hvol- hreppi, 1921, d. 1992. Guðmundur stund- aði nám í Reykholts- skóla tvo vetur, 1935–1937. Hann bjó á Haukagili með systkinum sínum Birni, Ásgerði og Ingibjörgu 1938– 1945. Eftir það flutt- ist hann til Reykja- víkur þar sem hann átti heima til ævi- loka. Hann lærði húsasmíði og hlaut meistararéttindi í þeirri grein. Hann starfaði síðan óslitið víð trésmíðar, aðallega í Reykjavík, en vann einnig við byggingu Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi. Hann var síðast smið- ur á Landakotsspítala um árabil uns hann lét af störfum árið 1990. Útför Guðmundar Bergmanns fór fram frá Fella- og Hólakirkju í Reykjavík 13. desember. Fallinn er nú frá frændi minn Guðmundur Bergmann og er þar með gengið á braut síðasta systkinið frá Haukagili í Hvítársíðu, börn Jóns Sigurðssonar og Hildar Guðmunds- dóttur. Það verður ekki annað sagt en hlýjar minningar kallist fram um þau systkini nú á þessari stundu, og þá ekki síst um Guðmund Bergmann en hann var ávallt fastur punktur í tilveru okkar. Hann kom reglulega í heimsóknir til okkar í Goðheima og þá bar yfirleitt margt á góma. Sveitalífið, Hvítársíðan, bílar, ferða- lög, landsins gagn og nauðsynjar og síðast en ekki síst aðaláhugamál þeirra bræðra, kveðskapur en þeir kunnu óteljandi vísur og kvæði og söfnuðu þeim af ástríðu auk þess að semja sjálfir ágætis vísur. Guðmundur Bergmann var vand- aður maður, ávallt traustur sínu fólki, gekk veg lífsins af æðruleysi og öryggi og reyndist öllum vel er til hans leituðu. Megi Guð geyma hann. Jón Haukur Björnsson. GUÐMUNDUR BERG- MANN JÓNSSON Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS GUNNLAUGSDÓTTIR frá Reynihólum, síðast til heimilis í Víðinesi, sem lést þriðjudaginn 10. desember, verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn 18. des- ember kl. 13.30. Gunnlaug Björk Þorláksdóttir, Ólafur Þórðarson, Bjarney Gísladóttir, Helga Þórðardóttir, Svavar Júlíusson, Bergljót Þórðardóttir, Katla Þórðardóttir, Ingi Þór Jóhannesson, Heiðrún Bára Jóhannesdóttir, Sigurður Georgsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, MAGNÚSÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Brekku á Ingjaldssandi, Hlíf II, Ísafirði, sem lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði aðfaranótt miðvikudagsins 11. desember, verður jarð- sungin frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 20. des- ember kl. 14.00. Jarðsett verður í Holtskirkjugarði. Guðmundur Oddsson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Erling J. Sigurðsson, Hrafnkell Gunnarsson, Svanbjört Þorleifsdóttir, Oddur Ævar Guðmundsson, Ásdís Björk Ásmundsdóttir, Unna Guðmundsdóttir, Jónas Arnórsson, Ingjaldur B. Guðmundsson, Vilhelmína H. Guðmundsdóttir, Guðmundur H. Indriðason, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AXELÍNA GEIRSDÓTTIR fyrrum húsfreyja, Sveinbjarnargerði, lést á hjúkrunarheimilinu Seli, Akureyri, laugar- daginn 14. desember. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 20. desember kl. 14.00. Jónas Halldórsson, Anný Larsdóttir, Jóhannes Halldórsson, Herdís Jónsdóttir, Haukur Halldórsson, Bjarney Bjarnadóttir, Vigdís Halldórsdóttir, Sævaldur Valdimarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, MAGNÚSAR FRIÐRIKS EINARSSONAR pípulagningameistara, Rauðalæk 71. Ásdís Bjarnadóttir, Þórey Magnúsdóttir, Bjarni Eiríkur Magnússon, Jóna Þórdís Magnúsdóttir, Salvar Guðmundsson, Guðmundur Sigurður Magnússon, Einar Magnússon, Gunnhildur Konráðsdóttir, Magnús Ásgeir Magnússon, Heiða Hringsdóttir, Kristján Magnússon, Ásdís Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJARNI ÁSGRÍMUR JÓHANNSSON, Víðilundi, lést á heimili sínu að kvöldi mánudagsins 16. desember. Ingibjörg Jónsdóttir, Kristín Bjarnadóttir, Eiríkur Frímann Arnarson, Jóhann Bjarnason, Laufey Guðmundsdóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir, Halldór Hauksson, Jón Bjarnason, Bergþóra Ragnarsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.