Morgunblaðið - 18.12.2002, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 18.12.2002, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 51 DAGBÓK Árnað heilla LJÓÐABROT AÐVENTA Glitrandi ljósaperur á gömlum trjám í gleymdum húsagörðum – skírlífisþreytt andlit ungra búðarstúlkna með ormétinn leiða í svörum – góður ásetningur í augum sex barna föður sem ætlar heim eftir Naustið – norskt jólatré við tún hvítrar kirkju með tungl í efstu greinum – ungar kynþreyttar konur með andlit full af hausti og útvatnaðan persónuleika – - - - Matthías Johannessen 50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 18. desember, er fimmtugur Halldór Halldórsson. Hann heldur upp á þessi tímamót föstudaginn 27. desember á milli kl. 17 og 20 í félagsheim- ili Karlakórsins Þrasta í Flatahrauni 21 í Hafnarfirði. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert fær um að gera stórar áætlanir, hefur auðugt ímyndunarafl og fylgir fast eftir ákvörðunum sem þú tekur. Árið framundan gæti orðið eitt það besta á ævi þinni. Njóttu þess! Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er bjart útlit fyrir róman- tíkina um þessar mundir. Allt virðist ganga þér í hag og allt er mögulegt. Naut (20. apríl - 20. maí)  Um þessar mundir eru mikil umskipti að verða til hins betra fyrir þig og fjölskyldu þína. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það verða án efa breytingar til batnaðar í samskiptum þínum við þína nánustu. Þú veist hvernig segja á réttu hlutina á réttum tíma svo þú náir þeirri niðurstöðu sem þú vilt. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú gætir náð góðum árangri í starfi á næstunni. Hugmyndir þínar um umbætur getur breytt miklu fyrir þig og þá sem eru í kringum þig. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Sköpunargáfa þín er öflug um þessar mundir. Samskipti við ástvini, fjölskyldu og börn ganga einnig vel. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Margt er þér hagstætt um þessar mundir. Duldir kraftar leysast skyndilega úr læðingi og koma þér og ástvinum þín- um til góða. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú færð tækifæri til að leiða aðra áfram eða hafa áhrif á hópa þannig að það leiðir til breytinga á umhverfi þínu. Fólk mun hlusta á þig. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Frami þinn virðist tryggður um þessar mundir og mögu- leikar þínir til að afla tekna eru miklir. Þér tekst líklega að tryggja þér fjárfestingar eða kauphækkun sem þig hefur dreymt um. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Andlegur kraftur þinn er mikill um þessar mundir og það nýt- ist þér í starfi. Þú ert í aðstöðu til að hagnast fjárhagslega. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Um þessar mundir er heppi- legt að greiða úr ýmsum mál- um sem hafa valdið þér vand- ræðum. Þeir sem þú átt samskipti við munu fallast á að leysa deilur um sameiginlegar eignir. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú vilt starfa með öðrum og tengjast. Aðrir hlusta á þig og þú skalt nýta það til að reyna að hafa bætandi áhrif á sam- félag þitt. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Um þessar mundir gengur þér allt í haginn og þú nýtur þess fjárhagslega eða félagslega. Guðirnir brosa við þér og þú ættir að njóta þess. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 1. f4 c5 2. Rf3 Rc6 3. g3 g6 4. Bg2 Bg7 5. 0-0 Rf6 6. c3 0-0 7. d3 d6 8. Rh4 Hb8 9. Ra3 Bd7 10. Kh1 b5 11. De1 Dc8 12. e4 Bh3 13. f5 Bxg2+ 14. Rxg2 Db7 15. Bf4 Rg4 16. Hd1 Rge5 17. Re3 b4 18. Bxe5 Rxe5 19. Rac4 Staðan kom upp á heims- meistaramóti 20 ára og yngri sem stendur nú yfir í Goa á Ind- landi. Stefán Krist- jánsson og Davíð Kjartansson (2.224) eru á meðal þátttak- enda en staðan kom upp í skák þess síðar- nefnda gegn Spán- verjanum Manuel Perez Candelario (2.408) sem tókst með svörtu að snúa á Ís- lendinginn knáa. 19. … Rxd3! 20. Dd2 hvítur yrði skipta- muni undir eftir 20. Hxd3 Dxe4+. Í framhaldinu er hvíta staðan einnig gjörtöp- uð. 20. … Dxe4+ 21. Kg1 Re5 22. Rxe5 Bxe5 23. Hde1 bxc3 24. bxc3 Db7 25. Rg4 Bg7 26. Hxe7 Dxe7 27. f6 Bxf6 28. Rxf6+ Kg7 29. Rd5 De4 30. Rf6 De6 31. g4 h6 32. g5 hxg5 33. Dxg5 Hh8 34. h4 De5 35. Dg4 Dxc3 36. Re4 Dd4+ 37. Kh1 Hbe8 38. Hxf7+ Kxf7 39. Rg5+ Kg8 og hvítur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. SVEIT undir forystu Steph- ens Landens vann Reising- er-keppnina á haustleikun- um í Phoenix eftir harða keppni við sveitir Nickells og Brachmans, sem báðar eru skipaðar fyrrverndi heimsmeisturum. Með Landen spiluðu Doug Doub, Dan Morse, Bobby Wolff, Adam Wildavsky og Pratap Rajadhyaksha. Wolff og Morse eru best þekktir utan Bandaríkjanna, en hinir fjórir eru allir atvinnuspilar- ar. Annar atvinnumaður í brids er Norðmaðurinn Geir Helgemo. Hann hefur búið í Bandaríkjunum í allmörg ár, þar sem hann spilar á öll- um helstu mótum. Helgemo var auðvitað í Phoenix, en vann ekki tiltil í þetta sinn. Hins vegar komst hann í mótsblaðið fyrir úrvinnslu sína í eftirfarandi spili úr Reisinger-keppninni: Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ 965 ♥ D1053 ♦ D83 ♣K73 Vestur Austur ♠ DG8 ♠ Á32 ♥ 6 ♥ Á72 ♦ G9 ♦ K7654 ♣DG109864 ♣52 Suður ♠ K1074 ♥ KG984 ♦ Á102 ♣Á Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 hjarta 3 lauf 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Helgemo var í suður og fékk út laufdrottningu. Les- andinn ætti nú að staldra við og reyna að finna vinnings- leiðina á opnu borði. Vörnin fær alltaf tvo slagi á spaða og einn á hjartaás og því má engan gefa á tígul. Eina vonin er að hreinsa upp svörtu litina og neyða vörn- ina til að hreyfa tígulinn. Helgemo spilaði hjartaáttu í öðrum slag og yfirdrap með tíunni. Þetta er lykilleikur- inn, því sagnhafi þarf tvær innkomur í borð til að spila svörtu litunum. Ef austur drepur með hjartaás og spil- ar aftur hjarta fær blindur slaginn á fimmuna. Í reynd dúkkaði austur. Helgemo henti þá tígli í laufkóng og trompaði lauf. Spilaði síðan hjartakóngnum. Austur drap og spilaði aftur hjarta, sem Helgemo tók í borði með drottningunni. Og spil- aði spaða á kónginn og aftur spaða. Vörnin gat tekið tvo slagi á spaðann, en varð síð- an að spila tígli eða laufi út í tvöfalda eyðu. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 27. júlí sl. í Lágafells- skirkju af sr. Jóni Þorsteins- syni þau Guðný Anna Bragadóttir og Bjarki Karlsson. Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 3. ágúst sl. í Kópa- vogskirkju af sr. Ægi Fr. Sigurgeirssyni þau Nína Ýr Guðmundsdóttir og Ólafur Ögmundarson. Heimili þeirra er í Danmörku. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 29. júní sl. í Einars- staðakirkju í Reykjadal af sr. Þorgrími Daníelssyni þau Björg Helga Sigurðar- dóttir og Kári Örlygsson. Heimili þeirra er í Reykja- vík. DIETER óskar eftir ís- lenskum pennavinum. Dieter Janssen, 421-H Adelphi Street, Brooklyn, NY 1238 USA djanssen@alumni.- princeton.edu Sophia, sem er 32ja ára gömul frá Jamaica, óskar eftir að skrifast á við ís- lenska karlmenn. Hún hef- ur áhuga á eldamennsku, golfi og ferðalögum. Sophia Sparkes, Atlas Protection Ltd. 15 Prevention Road, Kingston 5, Jamaica W.I. Uwe, sem er frá Þýska- landi, óskar eftir íslensk- um pennavinum. Hann er að læra norsku og sænsku. Uwe Rickert, Kölner Strasse 82, D. 40764 Langenfeld, Germany. Pennavinir Reykjavíkurmótið í sveitakeppni Reykjavíkurmótið í sveitakeppni 2003 fer fram dagana 7.-18. janúar. Spilaðir verða 16 spila leikir nema að þátttaka verði of mikil til að leyfa þann fjölda spila. Spilað verður með forgefnum spilum og verður árang- ur hvers pars metin í fjölsveitaút- reikningi. Keppnisdagar miðað við 24 sveitir (23 umferðir). 7. janúar umf. 1-2 8. janúar umf. 3-4 11. janúar umf. 5-8 12. janúar umf. 9-12 14. janúar umf. 13-14 15. janúar umf. 15-16 18. janúar umf. 17-20 19. janúar umf. 21-23 Ef þátttaka er 22 sveitir verða spilaðir 3 leikir 12.1 og 18.1. Ef 20 sveitir taka þátt þá verða 3 leikir 11.1 og 2 leikir 19.1. Ef þátttaka verður minni en 19 sveitir eða fleiri en 24 þá gæti dagskráin raskast all verulega. Skráningarfrestur er til kl. 17 mánudaginn 6. janúar. Dregið verð- ur í töfluröð kl. 18 sama dag. 15 efstu sveitirnar úr Reykjavík öðlast rétt til að spila í undankeppni Íslandsmótsins í sveitakeppni 2001. Keppnisgjald er 26.000 kr. á sveit. Tekið er við skráningu á skrifstofu BSÍ, s. 587-9360 eða í tölvupóst bridge@bridge.is Skráningu verða að fylgja nöfn 4 spilara í sveitinni. Heimasíða mótsins er www.bridgefelag.is Félag eldri borgara í Kópavogi Þriðjudaginn 10. des. mættu 22 pör til keppni og varð lokastaða efstu para í N/S þessi: Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 267 Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörunds 247 Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddss. 247 Skorin í A/V: Anton Sigurðss. - Hannes Ingibergss. 255 Aðalheiður Torfad. - Ragnar Ármundss. 251 Guðm. Magnúss. - Magnús Guðmss. 250 Sl. föstudag mættu 20 pör og þá urðu úrslitin þessi í N/S: Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörundss. 275 Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 253 Júlíus Guðmundss. - Oliver Kristófss. 249 Hæsta skor í A/V: Magnús Halldórss. - Þorsteinn Laufdal 276 Eysteinn Einars. - Sigurleifur Guðjónss. 271 Ásta Erlingsd. - Sigurður Pálsson 269 Meðalskor báða dagana var 216. Bridshátíð í Borgarnesi Dagana 4. og 5. janúar nk. verður haldin hin árlega Bridshátíð Vest- urlands. Á laugardeginum verður sveitakeppni sem hefst kl. 10 en á sunnudeginum tvímenningur í tveimur lotum en fyrri lotan hefst kl. 11. Hótel Borgarnes er með mjög gott tilboð í mat og gistingu. Að venju verða peningaverðlaun fyrir efstu sætin en spilagjald verður kr. 2.000 á mann í hvorri keppni. Hægt er að skrá sig hjá Bridssambandi Ís- lands í síma 587-9369 (og á heima- síðu) og hjá Hótel Borgarnesi í síma 437-1119. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Hef opnað stofu í Læknastöð Vesturbæjar, Melhaga 20-22, 107 Reykjavík. sími 562 8090. Starfssvið almennar geðlækningar með áherslu á geðlækningar aldraðra. Sæmundur Haraldsson, geðlæknir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.