Morgunblaðið - 18.12.2002, Page 52

Morgunblaðið - 18.12.2002, Page 52
Eyfi Þessi viðleitni og þessi ástríða skilar sér svo um munar til hlustandans. Því að finna að hlutirnir séu gerðir af metnaði, áhuga og 100% einlægni er einfaldlega alltaf jafngott. Afurðin hér er skotheld léttpoppsskífa þar sem Eyfi hefur „Eyfapoppið“ nánast upp í annað veldi, studdur hljómsveit, strengjasveit og fjölda valinkunnra gestasöngvara. Maður verður nánast hissa hvað maður þekkir mörg af þessum lögum hans Eyfa – og kann þar að auki utan- bókar. „Dagar“, „Álfheiður Björk“, „Draumur um Nínu“, „Ég lifi í draumi“ og „Ástarævintýri (á Vetr- arbraut)“ eru allt dæmi um lög þar sem maður fer ósjálfrátt að raula með. Lög eins og „Gott“ og „Danska lagið“ sem var jaskað út á öldunum á sínum tíma fá hér svo fínustu vítamín- sprautu. Eyfi sjálfur er óaðfinnanlegur á þessari stóru stund sinni og syngur eins og hann eigi lífið að leysa. Meira að segja þynnri lagasmíðar eins og „Skref fyrir skref“ bæta á sig nokkr- um kílóum, sökum innlifunar okkar manns. Meðleikarar og -söngvarar virðast hrífast með og standa sig allir með prýði og vil ég þá sérstaklega nefna þátt Björgvins Halldórssonar sem syngur „Ég lifi í draumi“ frá- bærlega ásamt Eyfa. Platan dettur „ÞETTA er draumur lífs míns …“ segir Eyfi, Eyjólfur Kristjánsson, hrærður í enda lagsins „Draumsins um Nínu“. Engan jazz hér! inniheldur upptökur frá 20 ára starfsafmælistón- leikum þessa kunna dægurlagasöngv- ara, hvar hann renndi sér í gegnum sín kunnustu lög. Lesa má í viðtali við Eyfa, sem birtist í sunnudagsblaðinu hér, 8. desember, að hann hafi m.a. selt jeppann sinn til að láta þennan draum sinn rætast. pínkupons niður undir restina, þar sem fara lögin „Aftur heim“ og „Ertu viss“, veikburða smíðar sem lítið er hægt að gera með. En þeir hnökrar spilla engan vegin heildarupplifun- inni. Andi kvöldstundarinnar er nefnilega færður farsællega yfir á hljómdisk, klapp og stapp heyrist í áhorfendum og heildarútkoman er lif- andi og góð. Innblásnar athugasemd- ir á milli laga frá Eyjólfi sjálfum eins og „Djö … er þetta gaman!“ færa líka frekari sönnur á heilindin sem á bak við liggja og eru skemmtilegar. Um- slagið er ekki upp á marga fiska en innihald bæklingsins bætir það upp þar sem finna má alla texta, myndir frá kvöldinu góða og jafnframt skrifar Eyfi minningarbrot við hvert lag. Eyfi er kannski búinn að lifa af söngnum í 20 ár en hér sýnir hann og sannar að hann lifir líka fyrir hann. Vel af sér vikið „gamli“! Tónlist Heillandi tónlist, hjartsláttur lífsins Engan jazz hér! Skífan Engan jazz hér, upptaka frá 20 ára afmæl- istónleikum Eyjólfs Kristjánssonar í Borgarleikhúsinu, 7. september, 2002. Meðsöngvarar voru Stefán Hilmarsson, Sigríður Beinteinsdóttir, Björgvin Hall- dórsson, Helgi Björnsson, Richard Scob- ie, Bergþór Pálsson og Ingi Gunnar Jó- hannsson. Um bakraddir sáu Berglind Björk Jónasdóttir, Eva Ásrún Alberts- dóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og Ingi Gunnar. Um tónlist sáu Eyþór Gunn- arsson, Jóhann Hjörleifsson, Friðrik Sturluson, Jón Ólafsson, Jón Elvar Haf- steinsson, Sigurgeir Sigmundsson, Ás- geir Óskarsson, Jóel Pálsson, Eyfi, Þórir Baldursson og strengjasveitin Villtir strengir. Arnar Eggert Thoroddsen Eyjólfur Kristjánsson, eða Eyfi, syng- ur sín kunnustu lög á Engan jazz hér! FÓLK Í FRÉTTUM 52 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HLJÓMSVEIT allra landsmanna mætti snarboruleg og grínaktug á svið Þjóðleikhússins og kveikti upp eld, eitt kveld, þeg- ar skammt var í gormánuð. Þar framreiddu þeir fjölæra og fjöl- breytta flóru popp- listar ásamt einvala liði aðstoðarmanna. Metnaðurinn var mikill og voru herlegheitin hljóð- rituð og þeim þrykkt á hljómskífu sem hér er til umfjöllunar. Frímann og félagar héldu meira að segja út- gáfutónleika vegna þessara tónleika, eins og sönnum æringjum af MH- ísku galgopakyni sæmir. Að öllu yfirdrifnu hjali slepptu þá komast fáir með tærnar þar sem Stuðmenn eru með hælana í hinni eðlu list að skemmta með stíl og bravúr. Á þessum Þjóðleikhústón- leikum settu Stuðmenn sig í spari- stellingar ef svo má kalla, blésu ryk- ið af sjaldheyrðum lögum, frum- fluttu nokkur og léku þekkta smelli af innblásinni fagmennsku. Hér er valhoppað um víðan völl með fínasta árangri. Það er t.a.m. gaman að heyra sígilt verk eins og „Á skotbökkum“ af Tívolí í lifandi mynd og súrrealíska snilldin „Reyk- ingar“ yljar sem fyrr. Síðasta hljóð- versplata sveitarinnar, Hvílík þjóð vakti takmarkaða lukku á sínum tíma (1998) en hér eru lögin „Þú manst aldrei neitt“ og „Við hér í sveitinni“ dýrkuð upp og hljóma bara skolli vel. Ný lög eins og „Þetta er gott“ lofa og góðu og mikill fengur er að „Manstu ekki eftir mér“, lagi ársins 2002 (á eftir „Julietta 2“ með Ske). Algerlega ómótstæðileg popp- smíð. Og ekki má gleyma samsöng Valgeirs Guðjónssonar og Egils Ólafssonar í „Út í veður og vind“. Þessi upptalning er engan veginn tæmandi, hér er nóg af molum til að mylja á. Á heildina litið veglegt verk þar sem hljómsveit allra landsmanna gefur okkur vel framreidd sýnishorn af þeim menningarlega margbreyti- leika sem þrífst innan sveitarinnar. Enn er tórt til trallsins Stuðmenn Á stóra sviðinu Fljúgandi diskar/Edda Stuðmenn – á stóra sviðinu geymir upp- tökur frá tónleikum Stuðmanna í Þjóð- leikhúsinu, hinn 1. og 2. október á þessu ári. Arnar Eggert Thoroddsen Morgunblaðið/Þorkell Ragga Gísla söngdrottning með meiru skellti sér í skautbúning af tilefninu. ein þessara sveita sem láta í sér heyra í fyrsta sinn á plasti þótt í við- tali við hljómsveitarmeðlimi komi fram að hljómsveitin er ekki alveg ný af nálinni. Á plötunni ber mikið á söngkon- unni Sigríði Eyþórsdóttur sem er með fína rödd og syngur oft glæsi- lega. Hér og þar skortir á hlýju í röddinni sem kemur væntanlega með meiri reynslu, en það setur líka yf- irleitt ákveðinn tilfinningavegg á milli flytjanda og innihalds texta þeg- ar sungið er á öðru en sínu móður- máli, ekki síst þegar sungið er um til- finningar. Stirð framsögn þvælist fyrir á stöku stað. Sigríður á það og til að syngja of mikið, ef svo má segja, á eftir að ná fullum tökum á því að minna er meira. Það breytir því þó ekki að hún er geysimikið efni og vert að leggja nafn hennar á minnið. Lögin á plötunni eru almennt vel samin, ekki flóknar smíðar en dægi- legar laglínur og þægilega flutt. Eft- irminnileg eru lögin So Shy, sem er skemmtilega raddað með óvenjulegri útfærslu á laglínu, upphafslagið Girl, sem er mjög skemmtilegt, Little Things, Been a Long Time, sem er FLJÓTT Á litið virðist ekki ýkja mikið að gerast í íslensku rokki, eins og allir séu á kafi í hiphopinu, en þó hafa nokkrar ís- lenskar rokksveitir látið til sín heyra í fyrsta sinn fyrir þessi jól. Þær eru allar góðar á sinn hátt og það besta er hversu ólíkar þær eru. Santiago er vel útfært og virkar örugglega vel á tónleikum, og Eternity sem byrjar mjög hugljúft, nær góðum tilfinn- ingaþunga og endar með skemmti- legri fléttu. Hljóðfæraleikur er til fyrirmyndar og athygli vekur hlýr og góður hljóm- ur á skífunni. Mikið ber á gítarleik Ragnars Arnar Emilssonar, sem skreytir lögin mjög smekklega, en kassagítar Birgis Ólafssonar gefur góða fyllingu og hrynsveitin traust undir. Textar á plötunni eru flestir slæm- ir, inntakið að vísu gott víðast hvar, kannski fullmærðarlegir hér og þar, en orðalag og -val kauðskt, sjá til að mynda textann við Little Things og eins við You Tell Me, I Love You og Misty Eyes sem eru allir klaufalega orðaðir upp á ensku, en hefðu hugs- anlega gengið á íslensku. Ekki er reyndar gott að segja af hverju þau Santiago-félagar syngja á ensku, málið liggur ekkert sérstaklega vel fyrir þeim og platan hefði verið mun sterkara innlegg í íslenska tónlistar- flóru á íslensku. Geysi- mikið efni Santiago Girl Mix – Hljóðriti Hljómsveitina Santiago skipa Sigríður Eyþórsdóttir söngkona, Birgir Ólafsson og Ragnar Örn Emilsson gítarleikarar, Jökull Jörgensen bassaleikari og Oddur F. Sigbjörnsson trommuleikari. Eyþór Gunnarsson leikur á orgel og rafpíanó í nokkrum lögum og Ellen Kristjánsdóttir leggur til raddir í tveimur. Mix – Hljóðriti gefur út. Árni Matthíasson Sérstök jólasýning! 29. des. kl. 14. örfá sæti laus 5. jan. kl. 14 laus sæti 12. jan. kl. 14. laus sæti 19. jan. kl. 14. laus sæti Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Munið gjafakortin! Lau 28/12. kl. 21 Jólasýning Föst 3/1 kl. 21 Uppselt Lau 11/1 kl 21 Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu sun 29. des kl. 20, HÁTÍÐARSÝNING, nokkur sæti föst 3. jan, kl 20, laus sæti föst 10. jan, kl 20, laus sæti Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00. Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni fyrir sýningu á www.hhh.is Stóra svið SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Frumsýning lau 11/1kl. 20 UPPSELT 2. sýn su 12/1 kl 20 gul kort, 3. sýn fö 17/1 kl. 20 rauð kort 4.sýn lau 18/1 græn kort SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Lau 28/12 kl 20, Su 29/12 kl. 20 Sýningum fer fækkandi HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Su 29/12 kl 14, Su 12/1 kl 14, Nýja svið Þriðja hæðin Litla svið Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 HERPINGUR e. Auði Haralds og HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20 Síðustu sýningar RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Má 30/12 kl 20, UPPSELT, Fö 3/1 kl. 20 SÓL & MÁNI eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR - GJAFAKORT Á TILBOÐSVERÐI TIL JÓLA JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Su 29/12 kl 20, Fö 3/1 kl. 20 GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF JÓLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl. Su 5/1 kl 14 og 15 - Kr 500 15:15 TÓNLEIKAR Takemitsu, George Crumb. Benda Lau 21/12 kl 22 - ath. breytan tíma Hversdagslegt kraftaverk eftir Évgení Schwarz Leikstjóri: Vladimir Bouchler. Lau. 21.12. kl. 19 laus sæti. fös. 27.12. kl. 20 lau. 28.12. kl. 19 Barn fær frítt í fylgd með fullorðnum í leikhúsið yfir jólin. Miðasölusími sími 462 1400 www.leikfelag.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.