Morgunblaðið - 18.12.2002, Síða 55
Bird með tónleika á Vídalín
BRESKA söngkonan Bird stígur fram á
sjónarsviðið í kvöld á Vídalín. Bird, sem er
listamannsnafn söngkonunnar Janie Price,
hefur verið að vinna undanfarið með Einari
Tönsberg, gítarleikara og meðlimi sveitar-
innar Lorien, en hann er búsettur í Lund-
únum. Umboðsmaður Bird er Anna Hildur
Hildibrandsdóttir og Frónartengslin því allt-
umlykjandi.
Blaðamaður Morgunblaðsins heyrði hljóð-
ið í Janie, en hún er búin að vera hér nú í
viku, og er djúpt sokkin í störf í hljóðveri Jó-
hanns Jóhannssonar, Nýjasta tækni og vís-
indi.
„Ég er hér á landi að semja fyrir stóru
plötuna mína. Er svona að soga í mig kraftinn
hérna,“ segir Janie.
Tónlist sinni lýsir hún sem frekar lág-
stemmdri en með henni á tónleikunum verða
tveir gítarleikarar, en einn þeirra spilar m.a.
með Nelly Furtado. Sjálf á Janie nokkra
reynslu að baki í tónlistinni, starfaði m.a. með
rokksveitinni Young Offenders og fór í tón-
leikaferðalag um heiminn með fiðluleikaran-
um snjalla Vanessu May, þar sem hún söng
bakraddir.
Aðspurð segist hún álíta það eðlilegt skref
að stíga fram í sviðsljósið nú.
„Ef maður er lagahöfundur og tónlistar-
maður þá er þetta náttúruleg þróun. Þetta
var óhjákvæmilegt þótt ég sé ekki með neina
allsherjar hernaðaráætlun á prjónunum. Ég
er bara mjög spennt og hamingjusöm yfir
þessu öllu saman.“
Miðaverð á tónleikana í kvöld er 500 krón-
ur. Fyrsta stuttskífa Bird verður fáanleg í
janúar, og er það Smekkleysa sem dreifir hér
á landi. Breiðskífa er svo fyrirhuguð í vor.
Eðlileg skref
Bird breiðir út vængi
sína á Vídalín í kvöld.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 55
Sýnd kl. 5.30.
BOND ER MÆTTUR
FLOTTARI EN
NOKKRU SINNI FYRR
ÍSLAND Í
AÐALHLUTVERKI-
ÓMISSANDI
I
YFIR 40.000 GESTIR.
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Bi 14.
Frumsýnd 26. des.
Tryggðu þér miða í tíma
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
RadíóX
DV
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 5.30 og 8.30. B.i.12 ára
Enn tekst frændunum Craig og Day-
Day að koma sér í vandræði. Þriðja og
fyndnasta myndin til þessa í hinni
bráðfjörugu Friday seríu.
DV
RadíóX
YFIR 40.000 GESTIR.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Frumsýnd 26. des.
Tryggðu þér miða í tíma
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4.30, 7 og 10. B. i. 12 ára.
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
!" ## # #$%&#% #'( #)* #+#, #- # #)./#-".01 .2#(
&( /22#3# . #2# # 4#%" #5 6#%" 6#7 06#&8 3 #(##&"6#) 3
9 6#: #(#3#).+6# #&+ #;#.#(#%!
''/
88
+88
=888
, +
<<<#=(>#-
% //
99
?+#=" @
,# 1 .# 1 .
A.
) 2.
A.
, #3
=3"#!3"
B #:(0@
9 #)#;#B" #$
7
0
%1#7" (
A.
) #="
?0
B"-# #;#&"
B"-#C 28
A.
&
%#5 (
D
B#%* #B(
'(0
:#;#
5#:
5# .#E# E
F8#
)"#2#.(
?3
(/(#9(>
,# 1 .# 1 .
9(. # .#"
G#)"# 2
?(HE#
( "
H2# +##8#H
!- #$ #&!-
I#% #(
J00+- 1
(#K( #!0#L
D5*
% #/12 #%1
=3. #(#00
M#N
=(//
:
#.#
B"-#C 28
O I#C2 #C#%
P
D#+ #H#
D#@@#-EL
C #7
5#= -#Q #%((#!(#!-#7
700#D
:#C(
) 3
) 3
) 3
) 3
) 3
?(HE
#"
, #"
)(
J
O.
) 3
) 3
, #"
7
).
)0(
D
7"2 .2
, #"
, #"
) 3
) 3
, #"
D&$
) 3
%&C
ÞAÐ verður bara að segj-
ast eins og er; sann-
kallað Írafár ríkir í hljóm-
plötuverslunum landsins
þar sem fer fyrsta plata
poppsveitarinnar Írafárs.
Allt sem ég sé hefur sleg-
ið í gegn og situr í efsta
sæti Tónlistans, fjórðu
vikuna í röð, og hafa nú
tæplega 7.000 eintök
runnið út úr helstu sölu-
stöðum geislaplatna á Íslandi. Á plötunni eru
þekktir smellir sveitarinnar í gegnum tíðina
ásamt nýjum lögum. Hefur titillagið t.a.m. verið
spilað grimmt á Popp Tíví undanfarið og má
með sanni segja að myndbandið við lagið sé
magnþrungið. Svona eins og ægivald sveit-
arinnar yfir Tónlistanum um þessar mundir.
Draumur!
LÝS, milda
stjarna hefur
að geyma
upptökur með
tenórnum Jó-
hanni Frið-
geiri Valdi-
marssyni og
Mótettukór
Hallgríms-
kirkju undir
stjórn Harðar
Áskelssonar. Um er að ræða efnisskrá sem
flutt var á aðventutónleikum í Hallgríms-
kirkju í desember á síðasta ári.
Þessir tónleikar hafa jafnan verið taldir einn
af ómissandi hlekkjum jólastemningarinnar
hér í Reykjavík og umlykur hátíðleikinn
nefnda plötu svo um munar. Það er Hjálp-
arstarf kirkjunnar sem nýtur góðs af söl-
unni.
Aðventa!
SLÁ má því föstu
að endurútgáfa á
verkum meistara
Megasar sé sú
vandaðasta sem
ráðist hefur verið
í hérlendis. Níu
upprunalegar plöt-
ur eru nú komnar
út, allar prýddar
fjölda aukalaga.
Telur safnið sem hér um ræðir því tíu plötur.
Hér er samankomið á tveimur diskum safn
laga frá árunum 1972–2002, lög sem lifað
hafa með þjóðinni eins og „Spáðu í mig“,
„Lóa Lóa“, „Reykjavíkurnætur“ og „(borðið
þér orma) Frú Norma“. Einnig fylgir þriðji
diskurinn með, hvar er að finna átján lög úr
hinum og þessum áttum og hafa mörg hver
aldrei litið dagsins ljós fyrr en nú.
Megas ég kyssi!
HUGMYNDIN að
baki Rímum og
rappi er æv-
intýraleg. Umliðna
menningarnótt var
fulltrúum tveggja
ljóðforma stefnt
saman, hins æva-
forna og ramm-
íslenska rímna-
forms og svo
rappformsins, sem rakið er til vesturstrandar
Ameríku. Listamenn úr báðum geirum öttu svo
kappi en sneru einnig saman bökum svo úr
varð einstakur suðupottur tveggja listforma,
sem aldir höfðu fram að því skilið að. Fram
koma m.a. Steindór Andersen, Erpur Eyvind-
arson, Vivid Brain og félagar úr Kvæðamanna-
félaginu Iðunni.
Rímnarapp!