Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 299. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 mbl.is Beint frá hjartanu Þórunn Antonía, pabbi hennar og nýja platan Fólk 76 Einar Már Guðmundsson í viðtali um skáldskap sinn Lesbók 4 Myndlistin heiðruð Listasjóður Pennans styrkir Erlu og Jóhann Ludwik Listir 38 HALLDÓR Ásgrímsson, formað- ur Framsóknarflokksins, segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri verði að velja hvort hún vilji vera borgarstjóri áfram eða fara í framboð til þings. Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borgarstjórn, segir að líf Reykja- víkurlistans sé í höndum Ingi- bjargar Sólrúnar. Halldór sat fyrir svörum í Kast- ljósinu í Ríkissjónvarpinu í gær- kvöld. Hann sagði að Ingibjörg yrði að velja hvort hún vildi áfram vera borgarstjóri fyrir R-listann, eða fara í framboð fyrir Samfylk- inguna. „Við erum líka búin að segja það að þetta gangi ekki upp og við stöndum á því. Það veit hún,“ sagði Halldór. Hann sagði það vera frekar spurningu um daga en vikur að framtíð R-listasamstarfsins yrði ráðin. „Ég get ekki séð að það gangi [að borgarstjóri bjóði sig fram] og lokaákvörðunin í þessu verður að sjálfsögðu tekin af borg- arfulltrúum Framsóknarflokksins og vinstri-grænna en mín afstaða í þessu er alveg ljós og þetta er af- staða framsóknarmanna í Reykja- vík ... við getum ekki haft neina aðra afstöðu,“ sagði Halldór. Verður að víkja Alfreð Þorsteinsson segir um- mæli Halldórs í takt við þá kröfu borgarfulltrúa Framsóknar og vinstri-grænna að Ingibjörg Sól- rún þurfi að víkja úr sæti borg- arstjóra ætli hún í framboð. Að- spurður hvort VG og Framsókn muni leysa borgarstjórnarmeiri- hlutann upp, taki Ingibjörg ekki annan hvorn kostinn, segir Alfreð að ekki sé komið að slíku. „Þetta er nú ennþá á þessu viðræðustigi og við eigum eftir að ræða betur við borgarstjóra um þetta. Það er ráðgerður fundur milli jóla og ný- árs og það stendur bara,“ segir Al- freð. Aðspurður hvort R-listinn eigi framtíð fyrir sér fari Ingi- björg úr borginni, segir hann: „Ég tel það nú afar hæpið en þetta er að okkar mati í höndum borgar- stjóra. Það má segja að líf Reykja- víkurlistans sé í hennar höndum.“ Anna Kristinsdóttir, borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins, seg- ist sammála afstöðu Halldórs. „Það hefur ekkert breyst, það er öllum alveg ljóst og hefur verið al- veg ljóst frá því við gáfum út þessa yfirlýsingu að þetta er okkar skoð- un,“ segir Anna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagðist ekki hafa heyrt ummæli Halldórs í Kastljóssþættinum og vildi ekki tjá sig um málið. Líf R-listans sagt í höndum Ingibjargar  Krafa um afsögn/6 Alfreð segir framtíð R-lista hæpna án borgarstjóra  Frekar spurning um daga en vikur, segir Halldór ÞEIR sem voru í jólagjafainn- kaupum í miðbæ Reykjavíkur í gær ráku sumir upp stór augu þegar þeir sáu tvo lögregluþjóna ganga upp Bankastrætið með lögregluhund í bandi. Þarna var austurríski lögregluhundurinn Rex ekki á ferðinni, eins og ein- hver gæti hafa haldið, heldur hinn rammíslenski schäfer- hundur Flóki, sem hefur gengið til liðs við lögregluna í Reykjavík. Karl Steinar Valsson aðstoðar- yfirlögregluþjónn segir að lög- reglan í Reykjavík hafi fimm lög- regluhunda á sínum snærum en fleiri séu í þjálfun. Vegna ákvörð- unar ríkislögreglustjóra um að fjölga hundum hjá lögregluemb- ættum landsins hafi verið tekin sú stefna að nota hundana meira en til þessa og þjálfa þá til almennra lögreglustarfa eins og þekkist víða um heim. Lögreglan muni fara meira inn á þá braut á næst- unni og stefnt sé að fjölgun lög- regluhunda á næsta ári. Sigurður Jónasson lög- reglumaður er eigandi Flóka en Ríkharður Örn Steingrímsson er með honum á myndinni. Karl Steinar segir að Flóki hafi verið tekinn með í almennt lögreglueft- irlit í miðbænum í gær, ekki síst sökum veðurblíðunnar, en hundar geti haft margs konar þjálfun. Hundar geti nýst við fíkniefnaleit, sprengjuleit, mann- fjöldastjórnun og almennt eftirlit, þá megi nota til sporleitar og til að leita uppi menn, t.d. í húsnæði sem hefur verið brotist inn í. Morgunblaðið/Júlíus Lögreglumenn á gangi í jólaösinni í miðbænum með lögregluhundinn Flóka sér til aðstoðar. Fleiri lögregluhundar við eftirlit VOPNASKÝRSLA Íraka er vonbrigði fyrir „þá sem vilja koma á friði“, sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti í gær um skýrslu Íraksstjórnar um vopnaeign hennar er skil- að var til Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Tók Bush undir með Colin Powell utanríkisráð- herra, sem sagði á fimmtudag að því færi fjarri að skýrsla Íraka hefði aukið líkurnar á friðsamlegri lausn Íraksdeilunnar. Rússar sögðu aftur á móti í gær að þeir teldu ekki að skýrsla Íraka sýndi að þeir hefðu gengið gegn ályktun SÞ um afvopn- un. Ígor Ívanov, utanríkisráðherra Rúss- lands, sagðist þó ekki geta sagt af eða á hvort Rússar væru ánægðir með skýrsluna. Bandaríkjamenn hafa hótað því að þeir muni beita vopnavaldi til að neyða Íraka til að eyða öllum gereyðingarvopnum sínum, afvopnist þeir ekki sjálfviljugir. Reuters George W. Bush talar í Hvíta húsinu í gær. Bush segir skýrsluna vonbrigði Washington, Moskvu. AFP. Rússar telja ekki sýnt fram á brot Íraka STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for- maður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs, segir einfalda og skýra afstöðu fel- ast í yfirlýsingu borgarfulltrúa VG og Fram- sóknar. Með ummælum sínum í Kastljósinu hafi Halldór Ásgríms- son staðfest stuðning sinn við þá yf- irlýsingu. „Ég hef sagt líka að ég styð þeirra viðhorf, að þetta sé ósamrýmanlegt, þetta fari ekki saman og hún verði að velja.“ Hann segir að staða flokkanna sé ólík. Framsókn sé í ríkisstjórn en vinstri-grænir í stjórnarandstöðu með Samfylkingu. „Það flækir enn frekar málin í samskiptum Ingi- bjargar Sólrúnar og Samfylking- arinnar annars vegar og Fram- sóknarflokksins hins vegar. Þeim flækjum er í öllu falli ekki fyrir að fara í okkar samskiptum,“ segir Steingrímur. „Ég ætla ekki að fara út í getgát- ur eða vangaveltur um hvað er framundan á næstu sólarhringum. Það verður bara að skýrast. Það er niðurstaða borgarfulltrúanna að þetta sé ósamrýmanlegt og við höf- um sagt það forystumennirnir að við séum sammála þeirri afstöðu. Það getur í sjálfu sér ekki skýrara verið. Boltinn er hjá Ingibjörgu Sól- rúnu og hún verður að velja.“ Boltinn er hjá borgarstjóra ♦ ♦ ♦ Með vængi á heilanum SAMKOMULAG náðist í gærkvöldi á fundi sjávarútvegsráðherra Evrópusambands- ríkjanna um niðurskurð á þorskkvóta um 45%. Ráðherrarnir höfðu fundað um málið í fimm daga og ekki hafði verið búist við sam- komulagi fyrr en eftir helgi. Franz Fischler, sem fer með sjávarút- vegsmál í framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins (ESB), hafði lagt til að niður- skurðurinn á þorskkvótanum yrði 80%. Hann fagnaði í gær samkomulaginu er náð- ist og sagði það marka tímamót. Sjávarútvegsráðherra Þýskalands, Ren- ate Künast, sem ásamt sjávarútvegsráð- herra Svíþjóðar greiddi atkvæði gegn sam- komulaginu, lét í ljósi vonbrigði sín. Sagði hún að niðurskurðurinn yrði ekki nægur til að tryggja að þorskstofninn næði að end- urnýjast. Samkomulagið var einnig gagnrýnt vegna þeirra slæmu áhrifa er það myndi hafa á afkomu sjómanna. Sagði talsmaður skosku stjórnarandstöðunnar að samkomu- lagið væri „skelfilegt. Miklu verra en nokk- ur hafði óttast“. Framkvæmdastjórn ESB hefur sagt að eftir margra ára ofveiði sé nú nauðsynlegt að gera breytingar á sameiginlegri fisk- veiðistefnu sambandsins. Þorskkvóti í ESB minnk- ar um 45% Brussel. AFP, AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.